Morgunblaðið - 07.03.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 07.03.1997, Síða 1
f [;¥ ■■■M' i i f ■ UIMGT FÓLK UM ÞJÓÐFRÆÐI/2 ■ KERTAUÓS OG SAMSTAÐA KVEIMMA /3 ■ LITRÍK ÍSLEMSK GLERAUGU MARKAPSSETT í EVRÓPU/4 ■ GEIM- STÖÐIN Á AÐDÁENDUR ALLS STAÐAR/5 ■ HEIMILISOFBELDI/7 ■ Morgunblaðið/Kristinn ÞÓRUNN og Brynja eru í 9. bekk Vogaskóla og skreyttu sig með spennum fyrir Daglegt líf. ÞÓRUNN með giimmer- spennu og gervistein. BRYNJA með græna spennu úr eigin safni og fleiri. Samkvæmisgreiðsla götunnar er með hárspennum, hnútum, glitögnum og gervisteinum ÖMMUKLEMMUR, glimmerspenn- ur, gylltar, silfraðar eða skreyttar hafa verið áberandi í hártísku göt- unnar um nokkurt skeið. Stúlkur á unglingsaldri, eða enn yngri, hafa verið iðnar við að taka hártoppinn frá andlitinu með einni og einni spennu og nú þykir ekki síðra að raða eins mörgum í hárið og það ber. Markmiðið er „hallærislega flott“. Sumar festa mismunandi spennur í hárið sitt á hvað. Aðrar setja marg- ar saman hlið við hlið, því fleiri því betra. Skemmst er að minnast hár- greiðsiu Bjarkar Guðmundsdóttur í þættinum Á elleftu stundu í byijun árs, þar sem söngkonan hafði raðað silfurlitum spennum eins og amma notaði til að leggja á sér hárið í ein- hvers konar kórónu eða spöng. Margir halda því reyndar fram að Björk sé frumkvöðull spennutísk- unnar og þeirrar hefðar að vefja hárið í óreglulega hnúta sitt á hvað og ber hárgreiðslufólki sem rætt var við saman um að spennutískan fylgi ákveðnum fatastíl. Uppsett en sjúskað Þröng föt og lítil hafa verið áber- andi á slám og í hillum verslana og þeirri tísku fylgir gjarnan sá siður að setja hárið upp, hvort sem það er stutt eða sítt, og þá með mörgum spennum. Áherslan er að hluta til á bernskuna, litlar flíkur og hárskraut sem minnir á smáfólkið, marglitar spennur eða með mynd af Mikka mús. „Heildarsvipurinn á að vera dálít- ið sjúskaður og ég myndi segja að þessi tíska sé angi af pönkbylgj- unni, án hugmyndafræðinnar," segjr Hreiðar Árni Magnússon hjá Salon Veh. Hárið á að vera frjálslegt og ekki greitt um of, þótt það eigi að heita uppsett. Spennur margvíslegrar gerðar hafa líka stungið upp kollin- um í hillum verslana: með blómum, semalíu-steinum eða öðru skrauti; litlu sigti, gerviperlu, hjólkoppi eða frá Kína með marglitum glitögnum. Af nógu er að taka og útfærslan takmarkast einvörðungu af hug- myndafluginu. ■ Morgunblaðið/Þorkell MÁTULEGA kæruleysislegar greiðslur með spennum frá Grímu og Hótel Sögu. Kókómjóihiirðagar i verslunum 11-115.-21. mars Taktu þátt í skemmtilegum leik með kókómjólkurkettinum Klóa. Þú svarar nokkrum laufléttum spurningum á þáttökuseðlinum sem liggur fyrir í verslunum 11-11 og setur hann í svarkassa í versluninni. Þá átt þú möguleika á stórglæsilegum vinningum. Vinningar Aðalvinningur: Ferð til Evrópu fyrir tvo Aukavinningar: 25 Kókómjólkuríþróttatöskur Dregið verður á ^ 3 ADALSTÖÐIN í þætti Steinars Viktorssonar, ORJÓTNÁMAN þann 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.