Morgunblaðið - 20.03.1997, Page 55
morgunblaðið
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997 55
j
I
»
)
3
9
J
I
3
i
i
i
Í
Í
i
i
i
i
i
3
í
4
4
í
H
BRÉF TIL BLAÐSINS
Svik R-listans
við kjósendur
Frá Karli Ormssyni:
VORIÐ 1994 plataði svokölluð R-
listagrúppa sig inn á kjósendur í
Reykjavík með allskonar bellibrögð-
um, loforðum um bætta stjórn á
borginni, ekkert atvinnuleysi,
hækkuð laun o.fl. eins og flestum
er kunnugt. Undirritaður hefur við-
að að sér alls konar upplýsingum
úr fjölmiðlum, meðal annars upp-
tökuspólu af fundinum fræga á
vegum útvarpsins á Hótel Holiday
Inn. Þær upplýsingar passa nú al-
deilis ekki við gerðir R-listans, at-
vinnuleysi í Reykjavík hefur aldrei
verið meira síðan í kreppunni upp
úr 1930, samt segir borgarstjóri að
atvinnuleysi hafi minnkað. R-
listagrúppan ætlaði að gera at-
vinnuleysi útlægt úr Reykjavík, en
það er nú eitthvað annað. Nú þegar
skattborgararnir eru að fá tilkynn-
ingu um fasteignagjöldin inn um
póstlúguna er ekki úr vegi að þeir
beri saman fasteignaseðlana 1995
og 1997. Það er mikii blekking
þegar gjaldendum er sendur lit-
prentaður áróðursbækiingur yfir
það sem þeim er ætlað að greiða
1997 og bera saman við árið 1996
því 1995 var 30% skolpskattur sett-
ur á. Því miður hefur R-listinn af
einhveijum ástæðum fengið alveg
óvenjugóðan aðgang að flestum
fjölmiðlum með áróður sinn. Svo
hafa þeir hamrað á blekkingum sín-
um að fólk hefur ruglað, í sumum
tilfellum hvaða skattar eru lagðir á
af sveitarfélögönum,og hvað er frá
ríkinu. Holræsagjaldið sem lagt var
á var bara byijunin. Þegar sorp-
hirðugjald nær 30% er lagt ofan á
fasteignagjöldin skilst manni að
faseignagjöldin hafi hækkað um
nær 30% ekki satt?, svo er gjalddög-
um fjölgað úr íjórum í sex til að
blekkja enn frekar. Þegar kort að
sundstöðum duga í færri sundferðir
fyrir sama gjald er það lævís hækk-
un, þegar kort að strætó dugar
miklu færri ferðir er það hækkun.
Þegar innritunargjaid fyrir aldraða
er hækkað úr 300 í 400 krónur er
það 30% hækkun. Þegar timinn
fyrir 50 krónur í stöðumæla er
styttur um helming er það 100%
hækkun, og meira því tíminn var
lengdur og er líka á laugardögum,
það hefur ábyggilega margur lent
í þeirri hringiðu.
í Morgunblaðinu 21. febr. kórón-
ar einn af oddamönnum R-listans,
Pétur Jónsson, aumingjaskap og
úrræðaleysi R-listans með því að
segja að atvinnuleysi í Reykjavík
hafi tífaldast frá 1991-1996, og
hann bætir um betur: „Árið 1995
fluttust 800 fleiri frá Reykjavik en
til Reykjavíkur.“ Og hann segir
meira: „Atvinnulausum hefur ekki
einu sinni ijölgað heldur fer lang-
varandi atvinnuleysi vaxandi."
Hversvegna tókst R-listagrúppunni
ekki að taka á atvinnuleysisdraugn-
um sem hún lofaði kjósendum ef
hún fengi vald til að stjórna í ■
Reykjavík? Á opnum fundi sem
þessi hópur talaði á fyrir kosningar
1994 var þeim tíðrætt um að kjós-
endur ættu heimtingu á að fá að
vita í hvað skattpeningur þeirra
fer. Hver borgaði litprentaða áróð-
ursbæklinginn sem fylgdi fast-
eignaseðlunum? Þessu og fleiru
verður þessi hópur að svara eftir
rétt ár, kjósendur krefjast þess. Um
fylgistap R-listagrúppunar ætla ég
ekki að fjölyrða, en mörg persónu-
leg bréf til borgarstjóra og fylgis-
sveina (oft frá stuðningsfólki hans)
eru á vitorði þeirra sem fylgjast
með fjölmiðlum.
KARL ORMSSON,
deildarfuiltrúi,
Huldulandi 5, Reykjavík.
„Syndugur maður er
alltaf á villigötum“
VERSLANIR
51 -S.551-7717-SkeHunni19-S.568-1717
RUBBER SOLE A ---------------------------------sportvöRuínís
Fosshálsi 1-112 Reykjavík - Simi 577-5858
Frá Þorsteini Scheving Thorsteins-
syni:
í SÍÐASTA tímariti Mannlífs (feb)
er viðtal við séra Karl Sigurbjörns-
son. Þar segir sr. Karl er hann
er spurður: „Hver er skoðun þín
á öðrum trúarbrögðum? Er Guð
þar að verki líka eða eru menn
þar á villigötum?“ Séra Karl svar-
ar: „Þar eru menn á villigötum
alveg eins og þeir eru líka innan
kristninnar. Syndugur maður er
alltaf á villigötum.“
Hvernig er það hafa menn sem
lokið hafa guðfræðinámi leyfi frá
Guði til að dæma önnur trúar-
brögð? Nei, en hefur Guð opinberað
þeim það persónulega að hin trúar-
brögðin séu ekki rétt og kristin trú
þjóðkirkjunnar sú eina rétta?
Nei, þrátt fyrir að menn hafi
útskrifast frá guðfræðideild HÍ,
sem hefur hvorki verið viðurkennd
né skipulögð af Guði, eru síðan
menn farnir að titla sig sem fræð-
*nga um Guð (guðfræðinga), án
þess að hafa fengið samþykki Guðs
fyrir því, og dæma önnur trúar-
brögð.
Satt best að segja ættu menn
fyrst að reyna að fá samþykki
Guðs fyrir þessu námi eða kenn-
mgum sínum áður en þeir fara að
kalla sig fræðinga um Guð og síð-
an dæma önnur trúarbrögð.
Er til eitthvað sem heitir Guð-
fræðistofnun og fékkst samþykki
Guðs fyrir stofnuninni eða stofn-
setti Guð hana sjálfur hér á ís-
landi fyrir þjóðkirkjuliðið? Nei.
Á hveiju á maður von á næst
ráðuneyti Guðs á íslandi í staðinn
fyrir dóms- og kirkjumálaráða-
neytið, þar sem dr. Einar Sigur-
björnsson og fleiri geta síðan dæmt
menn villitrúarmenn skv. kreddu-
bókinni „Credó“ og hinni sem má
ekki gleyma „Kirkjan játar“ (en
sem orðið er tímabært að endur-
skíra Kirkjan játar og neitar).
Hefurþjóðkirkjannokkuðfengið
einkaleyfi á Guði, rétt eins og
titlinum guðfræðingur? Nei.
Eg vona að menn fari að hætta
að sýna þennan leiðinlega hroka
gagnvart öðrum trúarbrögðum.
Einnig að menn hætti að senda
einhvern leiðinlegan hroka í fjöl-
miðla gagnvart sínum samstarfs-
mönnum, eins og sr. Karl sýndi
gagnvart sr. Auði Eir í DV.
I eldra tímariti Mannlífs ekki
alls fyrir löngu (Des 1994. tbl 11
áfg-) segir hr. Ólafur Skúlason
biskup, er hann er spurður í við-
tali, að hann geti hugsanlega talað
v'ð Einar í Fíladelfíu, Snorra Ósk-
arsson í Eyjum og Gunnar í Kross-
inum. Ólafur segist gera mikinn
greinarmun á þessum hópum og
Vottum Jehóva og Mormónum, en
hann myndi ekki vilja tala hjá
þeim.
Gúmmísólabakpokar
tilvalin H BBa
fermingargjof
Hafdu þitt á þurru!
Rúmbetri en keppinautarnir?
MAZDA 323 Sedan er stærri og með lengra farþegarými en 323 Sedan kostar frá kr. ÉlEiiltíMil
helstu samkeppnisbílar. Komdu, mátaðu og fmndu muninn! Aðrar gerðir kosta frá kr. 1.249.ooo
Umboðsmenn: Akranes: Bílás sf. • ísafjörður: Bílatangi ehf. • Akureyri: BSA hf. • Egilsstaðir: Bílasalan Fell • Selfoss: Betri bílasalan • Vestmamiaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs
Ólafur biskup sem reyndar er
forystuhirðir íslensku þjóðkirkj-
unnar, en góði hirðirinn í dæmisög-
unni er sá sem leggur lífið í sölurn-
ar. Hvernig er það er hr. Ólafur
Skúlason biskup hættur að vera
góður hirðir eða hvað?
Góði hirðirinn er sá sem skilur
eftir lömbin 99 á öruggum stað
og fer síðan að finna lambið sem
er týnt. En forystuhirðirinn í ísl.
þjóðkirkjunni myndi fara með öll
99 lömbin og skilja eftir lambið
sem er týnt.
Kirkjunnar menn innan raða
þjóðkirkjunnar hafa ekki viljað
kannast við það að kærleikurinn
er það eina afl sem getur sameinað
hópa, fjölskyldur, trúarbrögð, þjóð-
ir og heiminn. Nei, menn vilja frek-
ar kenna öðrum að dæma, að-
skilja, fyrirlíta, særa og síðan fá
menn til þess að hata aðra. Það
er auðvelt fyrir forystuhirði þjóð-
kirkjunnar að fá söfnuði inná þenn-
an farveg, sumir menn hafa viljað
segja að hann sé kristilegur og
réttur.
Sem betur fer er Ólafur biskup
að hætta og vonandi verður bæði
öðrum kristnum mönnum og
mönnum frá öðrum trúarbrögðum
boðið á 1000 ára afmæli kristnitök-
unnar. Sjálfsagt verður íslenska
þjóðkirkjan að halda fljótlega ann-
að fjölmiðlanámskeið og bjóða
fréttamönnum til Skálholts svo að
þeir geti þannig ævinlega komið
fram sínum málum gagnvart öðr-
um hópum og félögum hér á ís-
landi ekki satt, því að íslenska þjóð-
kirkjan hefur ævinlega þurft að
koma fram með sína skoðun. Sem
er oftast nær neikvæð gagnvart
öðrum trúarhópum og trúarbrögð-
um sem eiga í hlut.
Ólafur hefur reyndar margsinnis
minnst á hvað fréttaflutningur fjöl-
miðlanna hefur verið neikvæður
gagnvart þjóðkirkjunni, en hann
hefur passað sig á því að segja
ekkert neikvætt varðandi áróður
ísl. þjóðkirkjunnar. Hvenær verður
það annars sem Skálholtsútgáfan
hættir að gefa út bækur gegn öðr-
um trúarbrögðum eins og t.d.
Trúarbrögð mannkyns, þar sem
ekki er minnst einu orði á kærleika?
Lokaorð
Þar sem menn innan raða þjóð-
kirkjunnar (guðfræðingar) eiga
svona erfitt með að sýna um-
burðarlyndi gagnvart öðrum trúar-
brögðum væri það best að Búddha-
musterið sem hefur verið í fjölmiðl-
um, yrði reist fyrir framan þessa
merkilegu guðfræðistofnun þ.e.a.s.
fyrir framan HÍ. tveimur eða þrem-
ur metrum fyrir framan Aðalbygg-
inguna. Þannig að dr. Einar pró-
fessor og allt liðið gæti með góðu
móti lært trúarlegt umburðarlyndi.
Ég vil síðan að lokum benda á að
það eru til menn innan þjóðkirkj-
unnar sem hafa það til að bera að
geta sýnt trúarlegt umburðarlyndi,
eins og t.d. sr. Jakob í Dómkirkj-
unni, sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson og Pétur biskup.
ÞORSTEINN SCHEVING
THORSTEINSSON,
formaður Samstarfsnefndar
trúfélaga fyrir heimsfriði,
Hörðalandi 6, Reykjavík.
Elizabeth Arden
Kynning í Apóteki Garðabæjar
í dag, fimmtudag og á morgun, föstudag.
Snyrtifræðingur veitir ráðgjöf
- 15% kynningarafsláttur
APOTEK
GARÐABÆJAR
Sími 565 1321