Morgunblaðið - 20.03.1997, Page 68
ffrðAsuftififttfe M
<Ö>
AS/400
Mikið úrval
viðskiptahugbúnaðar
CO> NVMI
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Launþegaforystan endurmetur stöðuna - samninganefndir sendar heim
Hlíf og VSK frestuðu
allsheijarverkfalli í gær
Framsókn vill hefja viðræður strax
um 70 þús. kr. lágmarkslaun
FRAMHALD kjaraviðræðna á al-
menna vinnumarkaðinum er í veru-
legri óvissu eftir að kjarasamningar
Dagsbrúnar/Framsóknar voru felld-
ir í fyrrakvöld. í gær var ákveðið
að gera tveggja daga hlé á viðræðum
VMSÍ og Landssambands ísl. versl-
unarmanna við vinnuveitendur í tvo
sólarhringa og voru samninganefnd-
ir sendar heim. Forystumenn sam-
bandanna munu halda áfram þreif-
\-4t ingum við viðsemjendur til að kanna
hvort möguleikar séu á að koma
viðræðum í gang á ný. Samiðn mun
þó halda áfram viðræðum við vinnu-
veitendur kl. 10 í dag.
Formenn landssambanda ASÍ
endurmátu stöðu kjaramála í gær
og ljóst var af máli þeirra að áhersl-
ur á launabreytingar verða endur-
skoðaðar og meiri þungi lagður á
kröfur um hækkun kauptaxta og
70_þúsund kr. lágmarkslaun.
í gær frestuðu bæði Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavíkur og Hlíf
í Hafnarfirði áður boðuðum allsheij-
arverkföllum, sem hefjast áttu 23.
mars, til miðnættis 2. apríl. Yfír-
standandi verkföll bensínafgreiðslu-
manna og hafnarverkamanna í Hlíf
munu þó halda áfram. Sigurður T.
Sigurðsson, formaður Hlífar, og
Kristján Gunnarsson, formaður
VSK, segja að þetta sé gert til að
samræma fyrirhugaðar aðgerðir
þeim verkfallsdagsetningum sem
flest önnur VMSÍ-félög hafi miðað
við.
Aftur á upphafsreit
Formenn Dagsbrúnar og Fram-
sóknar skýrðu ríkissáttasemjara frá
stöðu mála í gær og áttu samráðs-
fund með forystumönnum landssam-
banda ASÍ. Einnig átti Halldór
Björnsson, formaður Dagsbrúnar,
óformlegan fund með forystumönn-
um VSI í gær. Alger óvissa er um
hvenær og með hvaða hætti unnt
verður að hefja sáttaviðræður félag-
anna með vinnuveitendum á ný.
Halldór segir að menn séu komnir
aftur á upphafsreit, málin séu í patt-
stöðu, verkföll muni halda áfram og
harkan fara vaxandi.
Á stjórnarfundi Framsóknar í
gærkvöldi var samþykkt að ítreka
kröfuna um 70 þúsund kr. lágmarks-
laun og að sett verði inn skýrt
ákvæði um tryggingar. Einnig var
samþykkt að ekki mætti gera hlé á
viðræðum við vinnuveitendur, heldur
verði að hefja þær sem allra fyrst,
að sögn Rögnu Bergmann, formanns
félagsins. Ragna sagði að allsheijar-
verkfallinu 23. mars yrði ekki frest-
að en mikill fjöldi kvenna, sem vinna
við ræstingar, væri óánægður, vegna
þess að þær væru að fara í 10 daga
páskafrí.
Vinnuveitendur falla frá
hugmyndum um dómsmál
í gær létu vinnuveitendur fara
rækilega yfir hvort afgreiðsla stóru
samninganefndar Dagsbrún-
ar/Framsóknar á kjarasamningnum
hafi verið lögleg. Forysta og stjórn
félaganna undirritaði samningana á
þriðjudag með fyrirvara um sam-
þykki samninganefndarinnar, sem
felldi þá síðan. Þórarinn sagði að
það hefði verið mat lögfræðinga að
vinnuveitendur hefðu gert mistök
með því að gera ekki athugasemdir
við undirskrift verkalýðsfélaganna.
Því væri ekki á vísan að róa að gera
það að dómsmáli og vinnuveitendur
sæju ekki tilgang í að hefja deilur
við félögin um formsatriði.
„En eftir stendur að sérkjara-
samningarnir voru löglega gerðir og
þeim verður ekki hafnað nema í alls-
heijaratkvæðagreiðslu," segir hann.
Þórarinn segir að allt sé í óvissu
um viðræður við Dagsbrún enda
hafi formaður félagsins í gær greint
frá því að hann gæti ekki staðið að
samningaviðræðum nema hafa alla
120 manna samninganefndina með
sér. Þórarinn sagði einnig að vinnu-
veitendur hlytu að íjalla um það á
næstunni hvernig brugðist verður
við verkföllum verkalýðsfélaganna
og verkbönn kæmu að sjálfsögðu til
álita.
Morgunblaðið/Ásdís
Þrír odda-
leikir
ÞRÍR leikir voru í 8-liða úrslitum
1. deildar karla i handknattleik
í gær og þurfa liðin að mætast
að nýju í oddaleikjum, áður en
ljóst er hvaða lið leika í undanúr-
slitum.
KA vann Selfoss, Valur lagði
Hauka og Framarar höfðu betur
gegn ÍBV. ÍR tryggði sér áfram-
haldandi veru í deildinni með
sigri á Selfyssingum eftir fram-
lengdan leik, en lið Selfoss leikur
í 2. deild að ári.
■ Leikirnir / C-blað
Mikil áhrif af verkfalli Dagsbrúnar
SVR áformar að
fækka ferðum
FERÐUM SVR verður fækkað nk.
mánudag hafi verkfallsdeila Dags-
brúnar og vinnuveitenda ekki verið
leyst fyrir þann tíma. Lilja Ólafs-
dóttir, forstjóri SVR, sagði að
ástæðan væri sú að eldsneytisbirgð-
ir fyrirtækisins minnkuðu hratt og
myndu þijóta fyrir páska ef ekkert
yrði að gert.
Lilja sagði að allir olíutankar SVR
hefðu verið fylltir fyrir verkfall, en
það gengi hratt á birgðir enda bíla-
flotinn stór og bílarnir stöðugt á
ferðinni. Hún sagðist reikna með
að ferðum vagnanna yrði fækkað
nk. mánudag. Þó yrði reynt að halda
uppi venjulegri þjónustu á þeim tím-
um þegar fólk er að fara úr og í
vinnu. Hún sagði að með því að
fækka ferðum ætti að vera hægt
að halda uppi þjónustu strætisvagna
fram að páskum.
Fjögur fragtflutningaskip hafa
stöðvast í Reykjavík vegna verkfalls
flutningaverkamanna. Fleiri skip
eru á leið til landsins og stöðvast í
næstu viku. Að sögn forsvarsmanna
skipafélaganna er fyrirsjáanlegt að
mikið tjón verður í verkfallinu ef
það leysist ekki á næstu dögum.
Biðraðir voru víða við bensínsjálf-
sala á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Birgðir í a.m.k. þremur sjálfsölum
kláruðust í gær og verulega hefur
gengið á birgðir í öðrum.
■ Fjögur flutningaskip/6
Kvartett
úr MH vann
NÆR 2000 unglingar fylgdust
með söngkeppni framhaldsskóla-
nema í Laugardalshöll í gær-
kvöldi. Kvartett úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð sigraði,
en hann skipa Flóki Guðmunds-
son, Haukur Halldórsson, Björn
’ Thors og Stefán Hallur Stefáns-
son.
Sigurvegararnir sungu lag Bee
Gees við texta Stefáns Halldórs-
sonar. Keppendur voru 27 úr öll-
um framhaldsskólum landsins.
Nokkrir þekktir söngvarar
stigu sín fyrstu skref í þessari
keppni, m.a. Páll Óskar, Emilíana
Torrini og Móeiður Júníusdóttir.
Urslitatilraun í kjaraviðræðum RSI og ríkisins
Verkfall hófst í nótt
VERKFALL rafiðnaðarmanna í rík-
isþjónustu hófst á miðnætti í nótt.
Sáttafundur stóð þá enn yfir hjá
ríkissáttasemjara og átti að gera
úrslitatilraun í nótt til að ná sam-
komulagi og voru nokkrar líkur þá
taldar á að samningar myndu tak-
ast og að verkfallinu yrði aflýst.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður RSÍ, sagði skömmu fyrir
miðnætti að tekist væri á um erfið
grundvallarmál en viðræður höfðu
þá staðið yfir óslitið frá kl. 13 í
gærdag.
Ef verkfall heldur áfram hefur
það þó nokkur áhrif á útsendingar
hjá RÚV, bæði í útvarpi og í sjón-
varpi. Útsendingar á ellefufréttum
og Dagsljósi falla niður sem og
auglýsingar og spumingaþátturinn
Gettu betur. Hins vegar fengust
nokkrar undanþágur hjá verkfalls-
nefnd rafiðnaðarmanna, að sögn
Eyjólfs Valdimarssonar fram-
kvæmdastjóra tæknideildar Ríkis-
útvarpsins, og því verða sendar út
veðurfregnir rétt fyrir átta og átta-
fréttir en auk þess allir tilbúnir
þættir bæði innlendir og erlendir.
Að sögn Eyjólfs fékkst ennfrem-
ur undanþága til að senda út lesnar
fréttir á hefðbundnum fréttatímum
á Rás 1, en einnig tónlist, veður-
fregnir og alla tilbúna þætti. Þá
verður öllum þeim þáttum sem dag-
skrárgerðarmenn senda sjálfir út
útvarpað á Rás 2 samkvæmt dag-
skrá. „Ekki fékkst undanþága til
að senda út tilkynningar í útvarpi,
en reynt verður að fá heimild til
að senda út dánar- og jarðarfaratil-
kynningar," segir Eyjólfur.
KEA kaupir
mjólkurkvóta
fyrir bændur
BÆNDUR á félagssvæði Kaupfé-
lags Eyfirðinga á Akureyri hafa
notið aðstoðar KEA við kaup á
mjólkurkvóta. Ætlun KEA með
þessu er að veija þann kvóta sem
fyrir er í byggðinni og stefna að því
að ná til baka kvóta sem seldur
hefur verið úr héraðinu síðustu árin.
Árni Magnússon, fjármálastjóri
KEA, sagði að kvóti hefði í auknum
mæli verið keyptur og deilt út til
bænda. Með þessu tryggir KEA
einnig mjólkursamlagi sínu hráefni.
■ Vilji til/14