Morgunblaðið - 11.04.1997, Síða 4
KORFUKNATTLEIKUR
Damon Johnson leikmaður íslandsmótsins að mati Morgunblaðsins
Sakna ekki veðursins
Lokahóf KKÍ
LOKAHÓF körfuknattleiks-
manna hefst kl. 19 ! kvöld á
Hótel íslandi. Hápunktur hófsins
er þegar leikmenn, sem skarað
hafa framúr í úrvaisdeildinni og
1. deild karla og kvenna, verða
heiðraðir. Húsið verður síðan
opnað kl. 22 fyrir aðra en matar-
gesti og kostar 1.000 krónur inn,
en 3.500 fyrir matargesti.
Þetta er í fyrsta sinn sem við-
urkenningar eru veittar fyrir
frammistöðuna í 1. deild karla.
Fyrir nokkrum árum fékk reynd-
ar einn leikmaður deildarinnar
viðurkenningu fyrir að vera best-
ur en það var Eyjólfur Sverrisson
knattspyrnukappni, sem þá lék
með Tindastóli.
KÖRFUKNATTLEIKSMENN halda lokahóf sitt á Hótel íslandi í
kvöld og þá kemur í Ijós hverjir skarað hafa framúr að mati leik-
manna. Morgunblaðið hefur undanfarin ár valið besta leikmann
úrvalsdeildarinnar og að þessu sinni er það Bandaríkjamaðurinn
Damon Johnson, sem leikur með meisturunum úr Keflavík, sem
blaðið telur besta leikmann úrvalsdeildarinnar. Johnson gerði
487 stig í deildarkeppninni, 23,2 stig að meðaltali í leik, tók 246
f ráköst, var með 55% nýtingu í tveggja stiga skotum, 41,9% í
þriggja stiga skotum og 81% nýtingu af vítalínunni. Hann gaf
78 stoðsendingar á samherja og var þar efstur á lista Kef Ivíkinga.
Damon Johnson er fæddur 1.
mars 1974 í Tennessee í
Bandaríkjunum og er því nýorðinn
■■■■■ 23 ára. Hann er fjöl-
Skúli Unnar hæfur leikmaður
Sveinsson sem hefur reynst
skriiar Keflvíkingum vel en
þar hefur hann leikið
framheija, miðhetja^ og bakvörð ef
þannig stendur á. „Ég lék sem bak-
vörður í skóla en í háskólanum var
ég látinn leika framheija þannig að
ég hef svo sem leikið flestar stöð-
ur,“ sagði Johnson þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann í gær.
Vjssir þú eitthvað um Keflavík
og fsland áður en þú komst hingað?
„Nei, afskaplega lítið og ég vissi
ekki hvers var að vænta. Keflvíking-
ar tóku vel á móti mér og þeir hafa
reynst mér vel þannig að ég hef
kunnað mjög vel við mig hér á landi.
Keflavík er rólegur staður, hér býr
mátulega margt fólk, sem er mjög
þægilegt í umgengni, og það sem
ég kann svo vel við hér á landi er
að hér er ekkert ofbeldi og fólk er
svo þolinmótt. Ég gæti vel hugsað
mér að koma hingað aftur.
Það er líka þægilegt fyrir banda-
rískan strák að búa svona nærri
Varnarliðinu. Það hefur hjálpað mér
mikið að geta heimsótt landa mína
þar. Þegar ég kom hingað til lands
var ég að fara í fyrsta sinn að heim-
an og ég hafði aldrei farið til út-
landa þannig að breytingin er mikil,
enda hringdi ég mikið heim og síma-
reikningarnir voru svimandi háir.
Mér fannst þetta dálítið erfitt í upp-
hafí, veðrið var talsvert öðruvísi, hér
keyra menn öðruvísi og allt er öðru-
vísi en heima. Mér líkar ekki kuldinn
hér og það eina sem ég sakna ekki
héðan er veðrið.“
En vissir þú eitthvað um liðið?
„Örlítið. Siggi [Sigurður Ingi-
mundarson] þjálfari og Tómas
[Tómasson] umboðsmaður, sögðu
mér aðeins frá liðinu þegar þeir voru
í sambandi við mig og sögðu að
stefnan væri að komast í úrslita-
keppnina eins og liðið hefði gert
undanfarin ár. Eftir nokkrar æfingar
og æfingaleiki var ég viss um að
við yrðum meistarar og ég vissi allt-
af að við myndum geta sigrað í öllum
mótunum, sem við og gerðum. Ég
var samt dálítið hissa þegar ég kom
á fyrstu æfíngarnar hjá Keflavík því
þær voru svo auðveldar, miklu létt-
ari en ég hafði vanist heima. Þetta
er á vissan hátt skiljanlegt því hér
vinna menn allan daginn og flestir
eiga fjölskyldu þannig að það er
eðlilegt að æfingarnar séu ekki
þannig að menn skríði út af þeim.
En það er alltaf tekið vel á æfíngun-
um þegar verið er að spila."
Birgir og Aibert
erfiðustu „mótheijamir11
Þegar Johnson var spurður um
hveijir væru erfiðustu mótheijar
hans í vetur hugsaði hann sig vel
um og sagði síðan: „Ætli ég verði
ekki bara að segja að það séu Biggi
[Birgir Örn Birgissonj og Alli [Al-
bert Óskarsson] á æfíngum því það
er mjög erfítt að spila á móti þeim.
Það var líka erfítt að leika við Grind-
víkinga í úrslitunum því Hermann
Myers var kominn á skrið og þá er
erfitt að eiga við hann. Annars er
ég hrifinn af Hermanni Haukssyni
í KR. Það er strákur sem ræður
yfir miklum hæfíleikum og ég held
að það eina sem hann vanti sé meiri
grimmd og að taka oftar af skarið.
Annars held ég að erfíðustu leikirnir
okkar í vetur hafí verið á móti ÍR,
það voru magnaðir leikir."
Johnson er með BA-próf f sálar-
fræði og segist hafa hug á að halda
áfram námi þegar ferlinum lýkur í
körfunni. „Ég er ekki frá því að
námið hjálpi í körfunni. Ég er ekki
sérlega stór og því lendir maður
stundum í pústrum þegar verið er
að vinna sér svæði og sálfræðinámið
hefur kennt mér að það borgar sig
Sá besti
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
DAMON Johnson með bikarlnn sem hann fékk frá Morgunblaðinu í gœr. Johnson var besti
maður Úrvalsdeildarinnar í vetur að mati íþróttafréttamanna blaðslns.
að halda ró sinni. Ég vona að ég
komist í framhaldsnám einhvern
tíma síðar á ævinni því mér líkaði
vel í sálarfræðinni."
Reynl að elda sjálfur
Johnson segir að það geti stund-
um verið einmanalegt að vera er-
lendur körfuknattleiksmaður á ís-
landi því á daginn sé í rauninni ekk-
ert við að vera þar sem allir séu að
vinna. „Ég vakna oftast ekki fyrr
en um hádegi og þá reyni ég að elda,
en það hafði ég aldrei nokkurn tíma
gert áður en ég kom hingað,“ segir
hann og hlær við. „Síðan horfí ég á
bíómynd af myndbandi eða þá á
körfuboltaleik. Æfíngar hjá okkur
voru seinni partinn og eftir þær fór
ég oft í snóker eða þá uppá Völl að
hitta félaga mína þar.
Ég lyfti líka talsvert og
held að það sé mjög mikil-
vægt. Mér líður betur eftir
að ég hef verið að lyfta
og þetta gera allir í
Bandaríkjunum enda eru
leikmenn þar mun sterkari
en körfuboltamenn hér. Til að vera
ekki þreyttur í lok tímabils held ég
að það sé gott að lyfta allan vetur-
inn og fyrir mig er það nauðsynlegt
því mér líður betur og þá er stórum
áfanga náð.“
Bróðir Johnsons, sem er 19 ára
gamall, spilar einnig körfuknattleik
og segist Johnson hiklaust geta
mælt með því við hann að koma
hingað til lands og spila. „Mér hefur
líkað ijómandi vel hérna. Ég kynnt-
ist stúlku og hefur hún og fjölskylda
hennar reynst mér vel og ég hef
áhuga á að koma hingað til lands
næsta vetur og leika með Keflvíking-
um. Auðvitað hefur gott gengi liðs-
ins haft sín áhrif, það hefði örugg-
lega ekki verið eins notalegt að vera
hér ef við hefðum tapað og tapað.
Ég ætla að reyna fyrir mér í
körfuboltabúðum í sumar og vonandi
kemst ég í NBA-búðir og draumur-
inn er auðvitað að slá í gegn þar,“
segir Johnson með blik i auga, en
hann er raunsær og veit að það er
erfitt að komast að á meðal þeirra
bestu. „Það er langur vegur í NBA-
deildina og þangað komast ekki
nema sárafáir, nema maður þekki
réttu mennina, það hjálpar mikið.
En ef ég fæ ekkert sem mér list
betur á hef ég hug á að koma á ný
til Keflavíkur."
Oft er talað um að dómararnir séu
að gera tóma vitleysu. Hvernig
fannst þér íslenskir dóm-
arar?
„Þeir eru talsvert öðru-
vísi en heima. í Banda-
ríkjunum er það starf að
vera dómari í körfubolta
og menn leggja sig alla
fram til að ná sem lengst
á þeim starfsvettvangi. Til að ná
langt þurfa menn að æfa og æfa
vel, alveg eins og leikmennirnir.
Hérna er dómarastarfið hins vegar
áhugamál fyrst og fremst og mér
skilst að dómarar dæmi lítið sem
ekkert yfír sumarið. Ætli menn sér
að verða mjög góðir, sama hvort það
er í körfubolta eða sem dómarar,
verða menn að æfa allt árið. íslensk-
ir dómarar eru ágætir, þeir dæma á
það sem þeir sjá og gera sitt besta.
Ég hef aldrei kennt dómara um úr-
slit leiks, þeir gera sitt besta og leik-
menn gera miklu fleiri mistök en
þeir.“
Getur vel
hugsað sér
að koma aftur
til Keflavíkur
Morgunblaöiö/Einar h'alur
Fjölhæfur leikmaður
DAMON Johnson í lelk gegn Grindvlklngum; hér er hann kom-
Inn framhjá Pétrl Guðmundssynl og Marel Guðlaugssyni.