Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 2
2 D SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 D 3 BÍLAR Á NEÐSTU hæð bíða gljáfægðir Audi bílar eftir nýjum eigendum. Bíllinn sóttur í Audi Center ____Kaup á nýjum bíl er næststærsta_ fjárfestingin í lífí flestra. Aðeins íbúðarkaup útheimta meiri fjármuni. Þetta vita þeir hjá Audi AG í Ingolstadt Morgunblaðið/GuGu FYRIR utan Audi Center í Ingolstadt. F.v. Þórhallur Jósepsson, Axel Just, Guðbrandur Bogason og Jóhannes Reykdal. AUDI býður viðskiptavinum sín- um að sækja bílinn í Audi Center í Ingolstadt þar sem sköpuð er um- gjörð um afhendinguna á bflnum sem kaupandinn og fjölskylda hans muna eftir. Audi Center er stórfengleg bygging úr gleri og áli og eitt af kennimerkjum Ingolstadt. Þar ræður ríkjum meðal annarra Axel Just, einn af sölustjórum Audi. Byggingin var opnuð fyrir fímm árum og Just segir að hún sé frum- mynd þess sem Audi AG vilji sjá í öðrum löndum hjá umboðsaðilum sínum í framtíðinni. Ferðaskrifstofa „Það er auðvelt að ímynda sér að það kosti mikið fé að reisa slíka byggingu og það yrði að sjálfsögðu alltof dýrt fyrir langflest umboðin. Þess vegna gerum við ráð fyrir því að þemu úr byggingunni sjáist þegar að því kemur að umboðsaðil- ar þurfa að endumýja húsakost sinn og hjá þeim sem eru að bygg- ja. Við viljum því nálgast þessa lausn í fyllingu tímans en afstaða okkar er þó frjálsleg vegna þess að Audi er fyrirtæki sem er í stöðugri þróun,“ segir Just. Kaupendur Audi geta samið um það við bflasalann í sinni heima- borg eða bæ að þeir sæki bílinn sjálfir til Ingolstadt. Þeir geta samið um það við Audi að gista eina nótt í borginni á hóteli og þess vegna er ferðaskrifstofa starfrækt í Audi Center. Hún sér einnig um að panta flugmiða eða lestarmiða fyrir viðskiptavininn til Ingolstadt og aftur í heimahaga hans. Forsagan Audi Center er á tveimur hæð- um. A neðri hæð hússins bíða gljá- andi og rennilegir Audi bílar í röð- um eftir nýjum eigendum. Þar er einnig vísir að bflasafni því þar er að fínna nokkra forvera Audi bíl- anna. Forsagan er sú að Þjóðverj- inn August Horch, sem stofnaði bflaverksmiðju undir eigin nafni, var keyptur út úr fyrirtækinu árið 1899. Hann stofnaði þá annað fyr- irtæki undir eigin nafni en var gert að breyta nafninu. Hann þýddi þá nafn sitt yfír á latnesku og Horch (Ég heyri) varð að Audi. 1910 kom fyrsti Audi bíllinn á markað. Á þriðja áratug aldarinnar sameinuð- ust síðan fjórir bflaframleiðendur í einn, þ.e. Horch, Audi, Wanderer og BKW og til varð Auto Union. í lok sjöunda áratugarins bættist við fímmti framleiðandinn, NSU, og úr varð Audi NSU Auto Union. Ár- ið 1971 keypti VW samsteypan fyr- irtækið og var nafni þess þá breytt í Audi. Afhendingin Á efri hæð hússins er veitinga- staður og snyrting og inn af veit- ingastaðnum er afgreiðsluborð sem minnir mest á skenk í hótel- móttöku. Þangað bóka viðskipta- vinir Audi sig inn og fá afhent númeraspjald. Á meðan afhending bflsins er undirbúin gengur við- skiptavinurinn frá ferðaáætlun sinni á ferðaskrifstofunni. Margir nota tældfærið og skoða verk- smiðju Audi undir leiðsögn en hún er spölkorn frá Audi Center. Með- an beðið er afhendingar getur við- skiptavinurinn horft á myndbönd þar sem greint er frá framleiðslu bflsins og eiginleikum hans eða keypt varning, eins og t.d. úr, fatn- að, penna, kveikjara og annað smá- legt sem Audi lætur framleiða fyr- ir sig sem minjagripi. Börnunum er búin aðstaða í sérstöku leikher- bergi. Af stakri þýskri nákvæmni eru sjónvarpsskjáir uppi á veggjum, svipaðir þeim sem notaðir eru til að tilkynna komutíma flugvéla á flugvöllum. Á skjána er nafn hvers viðskiptavinar skráð og af- hendingartími upp á mínútu. Þeg- ar bíllinn er tilbúinn til afhending- ar er nafn viðskiptavinarins kallað upp í hátalarakerfí og bílnum ekið inn í sal á jarðhæð þar sem við- skiptavinurinn tekur við honum. Tilgangurinn með þessu er að gera það að sérstakri hátíð þegar nýr bíll er keyptur sem festist í minningunni. Þannig „ræktar“ Audi viðskiptavininn og uppsker í staðinn tryggð hans við merkið og hefðina að baki þessum hágæða- bfl. Hundraðusti Lund Rover jeppinn BIFREIÐAR og Landabúnaðarvélar afhentu í síð- ustu viku eitt hundraðasta Land Rover bflinn en fyrirtækið tók við umboðinu á síðasta ári af Heklu hf. Karl Óskarsson, sölustjóri hjá B&L, segir að ánægja ríki með viðtökumar á Land Rover og sal- an aukist jafnt og þétt. Frá því hundraðasti bfllinn var afhentur hafa selst 10 bflar til viðbótar. Það var hin góðkunni handknattleiksmaður Guðmund- ur Guðmundsson, t.v. á myndinni, sem festi sér hundraðasta Land Rover jeppann sem er af Discovery gerð. Morgunblaðið/Halldór. + BILAR í MÆLABORÐINU er auk ýmissa mæla, háspennukeflið og búnaður fyrir kveikjukerfið. Stýrishjólið er gullhúðað. Góð blundu Jeppi Einars Þórs Gnnlaugssonar er blanda úr ólíkustu bíltegundum SIGURJEPPI Einars Þórs Gunnlaugssonar í fyrsta torfæru- móti ársins um síðustu helgi sló í gegn í fyrstu tilraun, en jeppinn var smíðaður í vetur. Þetta er sannkallaður kokteill, blanda úr ýmsum farartækjum, en engu að síður eitt öflug- asta ökutæki landsins. Vélin er Cheverolet 454 og er búið að setja nítróbúnað við hana. Á hún að geta skilað milli 700-950 hestöflum, en Einar notar yfírleitt 150 hestafla stillingu á nítróinu, en grunnhest- öfl eni áætluð 700. Til að þola lætin í torfæru er Predator blöndungur og MSD kveikjukerfi, sem þolir betur hliðarhalla og skyndileg átök en hefðbundinn blöndungur. Heddið er sniðið fyrir kvartmílubfla og eykur loftflæði og þar með afl. Þá eru stæi-ri ventlar, þi-ykktir stimplar, knastás, sveifarás og stimpilstangir úr stáli. Pústflækjurnar er upphaflega smíðað- ar fyrir ameríska spyrnugrind (dragster). Notar aðeins 1. og 2. gir í drifbúnaðinum er Chevrolet 350 skipting, þriggja gíra. Er búið að endurbæta hana fyrir brölt torfærunnar með íslensk- um meðulum. Einar notar eingöngu 1-2 gír og ekur í háa drif- inu. Vélarafl er nægilegt til að slíkt gangi upp. Með því að nota háa drifið eru öll átök á drifbúnðinn mun mýkri en í lága drifínu. Dana 20 millikassi úr Bronco sem snýr á hvolfi tengist sjálfskiptingunni, en Dana 60 hásing úr Chrysler er að fram- an. Að aftan er 9“ Ford hásing með 31 rílu öxlum og í henni er svokallaður N-köggull, sterkari en upprunalegt drif. Drif- \% *-• -"y AFTUR f jeppanum eru tveir rafgeymar, nítrókútur til að auka afl vélarinnar og kælikerfið að hluta til. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson JEPPINN sem vann fyrsta torfærumót ársins var smíðaður f vetur. sköftin eru úr Chevrolet vörabfl frá árinu 1958, en hjöraliðs- krossar úr litlum DAF vörabfl. Loftpúöaf jöðrun Fjöðrunin er byggð upp á loftpúðum og Rancho dempur- um, sem hvoratveggja er stillanlegt á marga vegu. Tjakkstýri prýðir jeppann, svipaður búnaður og notaður er í lyftara eða vinnuvélar. Aðeins er einn hringur borð í borð, þrefalt minna en í venjulegum fólksbíl. Leggur því jeppinn því einstaklega vel á, þó hann sé ekki notaður í borgaramferð. Bremsukerfið er úr ýmsum áttum. Bremsur úr Wagoneer era að framan, en aftan blanda úr Mazda og Lödu Sport, en höfuðdælan er úr Subaru. Mjög alþjóðlegt bremsukerfi. Ausudekk eru allan hringinn undir jeppanum, 33x17 tommur og á hverju dekki eru 22 spyrnur. „Þetta er góður kokteill og ég er ánægður með útkomuna í fyi-stu keppni. Ég á svo eftir að sjá hvernig jeppinn virkar í öðram mótum“, sagði Einar í samtali við Morgunblaðið. „Fjöðrunin gefur mun meira grip en var í jeppanum sem ég ók áður og hann lætur mjög vel að stjórn. Ég er með sömu vél og áður, en vegna aukins grips virkar jeppinn miklu betur en sá gamli. Ausudekkinn virka vel. Ég prófaði venjuleg skóflu- dekk í fyrra og mér fannst eins og það væri brotinn öxull að aftan, svo mikill var munurinn. Þetta á að geta orðið meist- aratæki ef ég er í stuði í sumar“ sagði Einar. Gunnlaugur Rögnvaldsson. > M-jeppinn kynntur í Bandaríkjunum MERCEDES-BENZ M- jeppinn var kynntur í Birmingham í Ala- bama í Bandaríkjunum í síðustu viku. Þar opn- aði fyrirtækið sína fyrstu fólksbílaverk- smiðju í Bandarikjun- um 21. maí nk. og þar verður M-jeppinn smi'ðaður. Auk verk- smiðju hefur Mercedes-Benz byggt þar þjálfurnarstöð og gestamiðstöð sem sést í bakgrunni bflsins á myndinni að ofan. Bfll- inn fyrir Bandaríkja- markað verður með 3,2 lítra, V-6 vél og sítengdu aldrifi og miklum búnaði. Búast má við að slíkur bíll yrði á 5-6 miHjónir ÍSK hér á landi. M-jeppinn kemur ekki á markað í Evr- ópu fyrr en að ári liðnu en Ræsir hf., umboðsaðili Mercedes-Benz á fsiandi, hefur þegar pantað sýningarbíl og von- ast til þess að geta sýnt bflinn hérlendis fyrir árslok. Framleiðsla fyrir Evrópu- markað hefst í maí 1998. Til stendur að Evrópuútfærslan verði fáanleg með 2,3 lítra vél og 2,7 lítra forþjöppudísilvél sem nú er verið að þróa. Margir hafa haft samband við Ræsir hf. og lýst yfir áhuga á þessum bíl en þeir verða að bíða enn um nokkurn tíma. Vonast um- boðið til þess að hægt verði að bjóða jeppann á verði frá fjórum milljónum kr. 4- MIKE Barnham, þjónustu- og gæðastjóri Ford of Europe, af- hendir forráða- mönnum Brim- borgar verð- launin. F.v.: Mike Barnham, Sigtryggur Helgason, Egill Jóhannsson og Jóhann Jóhanns- Bosal Viðurkennd gæðavara Brimborg fær verðlaun fró Ford FYRIR stuttu veitti Ford Brim- borg hf. verðlaun fyrir að hafa náð sölu- og gæðamarkmiðum Ford en Brimborg var í hópi þriggja bestu umboðsmanna Ford í heiminum ár- ið 1996. Umboðsmenn Ford utan Banda- ríkjanna eru 153. Árið 1996 hóf Ford mikið gæða- og söluátak hjá umboðsmönnum sínum og sett voru gæða- og sölumarkmið sem allir þurftu að uppfylla fyrir árslok 1996. Átakið stendur til ársins 2000. Þurftu umboðsmenn að uppfylla sölumarkmið og breyta starfshátt- um til að uppfylla staðla og ki'öfur Ford á öllum sviðum. Vora haldin námskeið fyrir starfsmenn í þessum tilgangi. I lok ái'sins var gerð úttekt á öllum umboðsmönnum Ford um það hvort markmiðum hefði verið náð. „Forráðamenn Brimborgar og starfsmenn era að vonum ánægðir með verðlaunin en þó er það mikil- vægast að viðskiptavinir fyrirtækis- ins ættu að finna fyrir breytingum þegar í stað og næstu árin,“ segir í frétt frá Brimborg. TILBOÐ OSKAST í Dodge Caravan árgerð '92, Ford Taurus GL árgerð '91, Pontiac Grand Am. árgerð '87, GMC R2500 Sierra Club Coupe árgerð '88 m/dieselvél og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 3. júní kl. 12-15 Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA öfcOC •q»Bi ‘ifíimolíöv lillA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.