Morgunblaðið - 27.09.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 27
Ingvar
Helgason hf.
Sœvurhiifúa 2
Síwi 525 8000
Subam Legacy awD sjálfskiptur meö sidrifi og sérstakri spóivörn kr. 2.366.000.-
Árni
Sigfússon
að mínu mati röng forgangsröð að
setja nær 700 milljónir í fleiri lista-
söfn og sali á sama tíma og fjár-
skorti er borið við þegar huga þarf
að betri menntun barna okkar.
Þetta eru þyngstu rökin. En það
er fleira sem ég geri athugasemd
við þegar ákvörðun um 700 milljóna
króna R-listasafn í Hafnarhúsinu er
tekin:
Röng nýting á mikilvægum
stað
Það á að vera stefna borgaryfír-
valda að efla gamla miðbæinn. Hann
hefur upp á margt að bjóða, en til
þess að hann dafni þarf að skapa
ramma fyrir starfsemi sem kallar á
margt fólk. Listasafn í Hafnarhúsi
verður ekki fjöldasamkomustaður.
Sá sem heldur það er á villigötum,
því miður. Aðstæður í miðbænum
til að efla hann eru takmarkaðar
og því þarf að huga vel að húsnæði
sem gefur jafn mikla möguleika og
Hafnarhúsið. Verslun er smám sam-
an að hverfa úr gamla miðbænum.
Við því þarf að sporna, ekki með
því að banna mönnum að gera eitt-
hvað annað við húsnæði sitt, heldur
með því að skapa aðlaðandi ramma
fyrir ákjósanlega verslun. Hafnar-
húsið gæti t.d. sómt sér mjög vel
til að styrkja fjölbreytilega verslun
og lítil gallerí í miðbænum. Hús-
næðið hentar vel sem margþætt við-
skipta-, lista og þjónustumiðstöð.
Hugmyndir sem áður hafa verið
reifaðar af reyndu fólki í viðskiptum
hafa miðað að því að Hafnarhúsið,
með anddyri að erlendum farþega-
skipum, sé kjörin aðstaða fyrir fjöl-
þætta verslun, litla sýningarsali og
handverkstæði.
Þrengt að umferð í miðbænum
R-iistinn hefur ákveðið með ný-
gerðu aðalskipulagi að auka ekki
umferðarrýmd vestan Elliðaánna.
Þetta þýðir að um leið og Reykjavík
stækkar, verður ekkert gert til að
auka umferðarrýmd inn á svæði
gamla miðbæjarins. Þetta mun því
smám saman herða hálstakið á mið-
bænum. Hvaða starfsemi sem yrði
rekin í Hafnarhúsinu myndi því beij-
ast við þá staðreynd að þrengt er
að aðkomu í gamla miðbæinn.
Engin þörf á enn einu safni
Hér verða nefnd helstu söfn, sýn-
ingarsalir og gallerí í Reykjavík.
Upptalning er þó ekki tæmandi. Að
auki eru söfn og sýningarsalir í
Gegn 700 milljóna
króna R-listasafni
ASÍ, Listasafn íslands, Listasafn
Sigurjóns Ólafssonar.
Salir undir listsýningar: Gerðu-
berg, Norræna húsið, Nýlistasafnið,
Ráðhúsið, Þjóminjasafnið.
Gallerí/sýningarsalir: 20 fm,
Dada, Gallerí Borg, Gallerí Fold,
Gallerí Gangur, Gallerí Gúlp, Gallerí
Hlust, Gallerí Hornið, Gallerí Lista-
kot, Gallerí Sævars Karls, Ingólfs-
stræti 8, Listhús Ófeigs, Listhús í
Laugardal, Mokka, Myndás, Regn-
boginn, Stöðlakot, Tehúsið.
Hvað verður um tónlistarhús?
R-listinn ætlar að troðast af stað
með 700 milljóna króna fram-
kvæmd, fyrir utan rekstrarkostnað,
og vera kominn svo langt með hana
við næstu kosningar að hann geti
sýnt sig þar á listahátíð. Þótt húsið
verði þá alls ekki fullklárað er þar
með verið að sjá svo um að nokkur
hundruð milljónir verði að fara í það
fram til ársins 2000. Þetta þýðir að
draumar um tónlistarhús verða afar
óraunhæfir, og hefur samt þótt erf-
itt að finna rekstrarlegan grundvöll
áður. Enginn spyr um rekstrarlegan
grundvöll fyrir R-listasafninu! Víst
er að hann treystir á árlegar niður-
greiðslur borgarbúa. Hins vegar er
augljóst að værum við í stakk búin
til að vélja á milli 700 milljóna í enn
eitt listasafnið eða tónlistarhús, hið
eina hér á landi, stend ég með tón-
listarhúsi.
En fyrst og fremst stend ég með
betri grunnmenntun barna okkar
þegar kemur að forgangsröðun í
borginni.
Höfundur er oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
BORGARSTJÓRI segir að nú séu
ekki til peningar til að greiða grunn-
skólakennurum hærri laun og rætt.
er um hvort launahækkun til leik-
skólakennara eigi að koma fram í
útsvars- eða gjaldskrárhækkunum.
Gæsluvöllum í borginni hefur verið
fækkað af því að það er „ekki skyn-
samleg íjárfesting", að mati R-list-
ans.
Á sama tíma er stefnir í 700 millj-
óna króna kostnað við enn eitt borg-
arrekið listasafnið. Nú þegar eru
starfandi um 30 söfn, salir og gallerí
í borginni og fleiri slík eru í næstu
byggð, Kópavogi og Hafnarfirði.
Söfnin og salirnir í Reykjavík eru
jafnmargir grunnskólunum. Það er
Kópavogi og Hafnarfirði. Þessi upp-
talning sýnir að miðað við fólks-
fjölda er mikil gróska í listinni okk-
ar, mælt í sýningarsölum, söfnum
og galleríum. Þau listaverk sem
Reykjavíkurborg eignast eða kaupir
af listamönnum, hveiju nafni sem
þeir nefnast, eiga að vera til sýnis,
en ekki öll, ailtaf. Það á að skipta
þeim út og nota til þess þau söfn
og þá sali sem bjóðast í borginni.
Listasöfn í Reykjavík: Ásmund-
arsafn, Kjarvalsstaðir, Listasafn
Enginn spyr um rekstr-
arlegan grundvöll fyrir
R-listasafninu!
Árni Sigfússon telur
víst að hann treysti á
árlegar niðurgreiðslur
borgarbúa.