Morgunblaðið - 28.09.1997, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR sem_ reynt hafa vita að tilfinningin sem fylgir því
að verða íslandsmeistari í knattspyrnu er einstök. „Já,“
öskraði Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnudeild-
ar ÍBV-íþróttafélags, þegar Sigurvin Ólafsson gerði glæsilegt
mark á móti Keflavík í Eyjum skömmu fyrir miðjan fyrri hálf-
leik um liðna helgi. Jafntefli nægði Eyjamönnum til að tryggja
sér Islandsmeistaratitilinn í annað sinn - IBV varð einnig
meistari 1979 - en þegar Jóhann B. Guðmundsson jafnaði
mínútu síðar stirðnaði formaðurinn. Hann stökk í loft upp þeg-
ar Steingrímur Jóhannesson kom heimamönnum í 2:1 rétt fyr-
ir hlé og brosti breitt þegar Tryggvi Guðmundsson bætti
þriðja markinu við áður en flautað var til hálfleiks. Tryggvi ró-
aði formanninn enn með marki í byrjun seinni hálfleiks og Jó-
hannesi leiddist ekki þegar Tryggvi gerði fimmta mark ÍBV
og fullkomnaði þrennu sína undir lokin.
„Þetta er æðislegt. Þetta er ótrúlegt," sagði hann við Morg-
unblaðið. Dyggir stuðningsmenn í Eyjum tóku undir, sungu
baráttusöng IBV, kveiktu á blysum og fánar voru dregnir að
húni. Konurnar í eldhúsinu í félagsheimilinu báru kræsingar í
gesti eins og ávallt á heimaleikjum og glatt var á hjalla. „Sterk
kvennadeild er eitt það mikilvægasta sem félag getur átt,“
sagði Jóhannes. „Þessar konur sjá til þess að alltaf er tekið
veglega á móti aðkomuliðum, þær reka mót yngri flokkanna,
Shellmótið og Pepsímótið, og þær skipuleggja alla rukkun á
þjóðhátíð."
Þó gera hafi mátt því skóna í nokkurn tíma að ÍBV yrði ís-
landsmeistari var gífurlega mikil spenna í Eyjum fyrir leik.
Messutíma var flýtt frá kl. 14 til 13 til að kirkjugestir kæmust
örugglega á síðasta heimaleik ársins. Fyrrum þjálfarar Eyja-
manna voru mættir á völlinn ásamt landsliðsþjálfaranum og
fulltrúar KSÍ, fonnaður og framkvæmdastjóri, vora til taks og
afhentu sigurlaunin í leikslok.
Fljótlega eftir að titillinn var í höfn fóra að berast hamingju-
kveðjur og skeyti, m.a. eftirfarandi frá Andvara VE-100.
„Staddir á 4804N 4502V, Flæmingjagrunni. Okkur bárust góð-
ar fréttir á öldum ljósvakans af árangri ykkar í dag. Til ham-
ingju með íslandsmeistarabikarinn og þennan frábæra árang-
ur hjá ykkur í sumar. Svo er að taka hinn bikarinn líka. Sigur-
kveðjur, Pétur Sv. skipstjóri og áhöfn.“
Þolinmæði i öndvegi
EKKI blés byrlega íyrir
Eyjamönnum þegar Jó-
hannes kom inn í stjórn knattspyrnudeildarinnar fyrir áratug,
en hann hefur verið formaður undanfarin átta ár. Félagið, sem
fagnaði bikarmeistaratitli 1968,1972 og 1981 og íslandsmeist-
aratitli 1979, hafði verið í ákveðinni lægð og bamingurinn hélt
áfram. Liðið slapp naumlega við fall úr 2. deild 1988 en reif sig
upp árið eftir og kom mest á óvart í 1. deild 1990, gerði 39
mörk og endaði í þriðja sæti stigi á eftir Fram og KR. í ár
hafa Eyjamenn átt samfelldri sigurgöngu að fagna, hófu tíma-
bilið með því að verða deildameistarar, tryggðu sér íslands-
meistaratitilinn um helgina, hafa staðið sig frábærlega í Evr-
ópukeppni bikarhafa og leika seinni leikinn við Stuttgart í
Þýskalandi á fimmtudag, mæta í „annan“ í bikar á sunnudag
og spila síðan í meistarakeppninni annan miðvikudag.
„Þessi árangur byggist á margra ára vinnu, mikilli þolin-
mæði,“ sagði Jóhannes. „Kjarninn innan sem utan vallar hefur
verið lengi saman en markviss uppbygging hófst þegar við
réðum Sigurlás Þorleifsson þjálfara liðsins haustið 1988. Hann
breytti hugarfarinu, kom því inn að knattspyrna væri fyrst og
fremst vinna. Menn yrðu að leggja virkilega mikið á sig til að
ná árangri. Sigurlás gerði mjög góða hluti hjá okkur og ruddi
brautina, kom með nýja vídd og nýjar hugmyndir. Menn fóru
að æfa markvisst flesta daga í viku.“
Sigurlás tók undir orð formannsins. „Við byrjuðum að æfa
af meiri krafti en áður og byrjuðum fyrr. Baráttan hefur skilað
sér í betri knattspyrnu og ánægjulegt er að sjá árangur starfs-
ins í verki. Meistaralið á ávallt á hættu að missa leikmenn en
staðan hér er það sterk að við eigum að hafa alla burði til að
vera í toppbaráttu um ókomin ár.“
MÖRGUM er í fersku
minni þegar ÍBV bjargaði
Malli bjargvættur
sér á ævintýralegan hátt frá falli 1992 og 1993 en bæði árin
tryggði Martin Eyjólfsson liðinu áframhaldandi veru í 1. deild
með mörkum í síðasta leik. Fyrra árið gerði varamaðurinn
bæði mörkin undir lokin í 2:1 sigri á KA en seinna árið endur-
tók hann afrekið með marki á 89. mínútu í botnslag við Fylki.
„Malli var bjargvætturinn tvö ár í röð,“ sagði Jóhannes. „Við
lentum í basli árið sem Lási hætti og þá stefndi í óefni. Margir
fóru frá okkur en þá fengum við Jóhannes Atlason til að taka
við liðinu og hann var rétti maðurinn til þess. í hópnum vora
ungir strákar og hann hafði ekki annað að vinna úr. Jóhannes
stillti upp þremur ungum og óreyndum strákum í vöm og það
var kraftaverk að halda liðinu uppi. Hins vegar vildi hann ekki
vera lengur með liðið og því réðum við heimamanninn Snorra
Rútsson. Hugmyndin var að hann byggði upp lið til næstu ára
en hann gaf ekki kost á sér í starfið nema í eitt ár. Þá varð
okkar lán að fá Atla Eðvaldsson til starfans. Hann agaði liðið
mjög vel og gerði góða hluti í tvö ár. Bjarni Jóhannsson tók við
af honum og hefur staðið fagmannlega að verki, gert frábæra
hluti. Uppbygging hans var mjög markviss allan síðastliðinn
vetur svo og skipulag og hann hefur fengið strákana til að
leggja á sig það sem þarf.“
Lárusar saknað
ÞEGAR litið er af hæsta
tindi yfir farinn veg er
margs að minnast. Lið frá Vestmannaeyjum tók þátt í fyrsta
íslandsmótinu í knattspymu 1912 og í grein Hermanns Kr.
Jónssonar um sögu knattspymunnar í Eyjum kemur fram að
leikmenn hafi verið tvo daga á leiðinni til Reykjavíkur. Siglt
var til Stokkseyrar og gengið þaðan til Selfoss en daginn eftir
farið með tveimur póstvögnum til Reykjavíkur - þó gengið
upp Kambana. íþróttafélagið Þór var stofnað 1913, knatt-
spymufélagið Týr 1921 og ÍBV 1945. Knattspyma átti erfitt
uppdráttar í Eyjum fyrst og fremst vegna þess að flestir
knattspymumennimir voru sjómenn eða störfuðu við fisk-
vinnslu eða þjónustu tengda henni. 1955 var ÍBV fyrst með í 2.
deild og 1967 tryggði liðið sér sæti í 1. deild í fyrsta sinn. Því
era um þrír áratugir síðan Guðmundur Þórarinsson, Týssi,
gerði fyrsta mark IBV í 1. deild, en hann varð bráðkvaddur í
fyrradag. Síðan hefur félagið átt þrjá markakónga í deildinni,
þar af einn tvö ár í röð. Tómas Pálsson var með 15 mörk 1972,
Sigurlás Þorleifsson var markahæstur ásamt Lárusi Guð-
Morgunblaðið/Golli
JÓHANNES Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV og lögregluvarðstjóri í Eyjum, hefur haft lítinn tíma til að sinna
fjölskyldunni að undanförnu en hann og 10 ára sonurinn Ólafur Björgvin voru stoltir með uppskeruna.
GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON
BÆJARSTJÓRI
Góð og jákvæð áhrif
á bæjarfélagið
uðjón Hjörleifsson,
bæjarstjðri í Vest-
mannaeyjum, leyndi
ekki gleði sinni þegar ís-
landsmeistaratitillinn var í
höfn eftir 18 ára fjarveru.
„Strákar, þið eruð frábærir,"
sagði hann eftir að Hlynur
Stefánsson, fyrirliði ÍBV,
hafði tekið við bikarnum sem
nafnbðtinni fylgir „og erfitt
verður að fá bikarinn frá
Eyjum.“
Hann sagði við
Morgunblaðið að
árangurinn hefði
mjög mikið að
segja fyrir Vest-
mannaeyjar og
Vestmannaey-
inga. „Auk þess
hefur þessi sigur
mjög mikla þýð-
ingu fyrir íþrótt-
ir og æskulýðs-
starf í bænum.
Ákveðið jákvæði
fylgir og það er
hluti af því sem
hefur verið að
gerast í samein-
ingarmálunum.
Strákarnir hafa
sýnt að sam-
staða, leikgleði
og „karakter“ sem eru í fé-
laginu skila sér þegar á þarf
að halda. Með þessum sigri
hafa Eyjamenn enn einu
sinni sannað að þeir geta rif-
ið sig upp þegar á reynir og
fyrmefnd atriði hafa skilað
meiri háttar árangri. Þegar
haidið er rétt á spilunum
næst árangur og ég hef þá
trú að Eyjamenn eigi eftir að
berjast um efstu sæti á næstu
ámm, sem hefur mikið að
segja fyrir okkur.“
Knattspymudeild ÍBV-
íþróttafélags hefur gagnrýnt
bæjarfélagið fyrir aðstöðu-
leysi og formaður deildarinn-
ar hefur líkt aðstöðunni við
það sem þekkist hjá meðal 3.
deildarliði en Guðjón sagði
að markvisst væri unnið að
uppbyggingu. „Þegar sam-
einingin átti sér stað keypti
bærinn eignir félaganna og
síðan styður hann félagið
með beinum styrkjum.
Knattspymuráðið rekur vell-
ina fyrir okkur og ÍBV-
iþróttafélag rekur félags-
heimilin en bærinn kemur á
beinan og óbeinan hátt að
starfinu. Við ætlum að halda
áfram að byggja upp og af
nógu er að taka en spurning-
in er um forgangsröð. Á fjár-
hagsáætlun em 10 milljónir
króna f framkvæmdir og
verður byrjað á íþróttamið-
stöðinni en næsta ár er gert
ráð fyrir að bæta búningsað-
stöðu.“
Guðjón sagði
að nefnd væri
komin í fyrr-
nefnt mál og
Uóst væri að
uppbygging
kæmi öllum til
góða. „Forystu-
menn knatt-
spymudeildar-
innar em
kraftaverka-
menn, sem hafa
fómað sér fyrir
málstaðinn og
eiga heiður skil-
inn. Þeir hafa
ávallt haldið sér
réttum megin í
peningamálum,
aldrei eytt um
efni fram og
haft mikla og ömgga stjóm á
hlutunum. Otrúlegt er hvað
mennimir hafa mikið úthald
til að standa f svo miklu sjálf-
boðaliðastarfi sem raun ber
vitni en það er svona sigur-
stimd, sem gefur starfinu
gildi.“
Eyjamenn hafa fengið
mikla og jákvæða unifjöllun
heima og erlendis vegna ár-
angurs innanlands sem utan
og sagði Guðjón hana hafa
mikið gildi fyrir bæinn. „Við
höfúm lagrt áherslu á að
skapa jákvæð viðhorf til
knattspymunnar og ég hef
fúndið á ferðum mfnum um
landið að við höfum mjög
góða fmynd. Fyrir vikið fjölg-
ar stuðningsmönnum og auð-
veldara er að fá styrktarað-
ila. Þetta er stærsta stundin í
sögu knattspymunnar í Eyj-
um og þetta er stórkostlegt
fyrir bæjarfélagið því árang-
ur knattspymumannanna
hefur góð og jákvæð áhrif á
það.“
GUÐJÓN Hjörleifsson,
bæjarstjóri (Vestmannaeyj-
um, var ánægður með lífið
og tilveruna í Eyjum þegar
Islandsmeistaratitillinn
var í höfn.
/ fv M
mM M
§jjA_
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
STJÓRNARMENNIRNIR Jón Óskar Þórhallsson og Tryggvi
Kr. Ólafsson sjá um miðasöluna ásamt öðrum stjórnar-
mönnum og missa því af fyrri hálfleik.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
BJARNI Jóhannsson og Viktor Helgason eiga þaö
sameiginlegt að hafa stýrt ÍBV til ísiandsmeistaratitils
í knattspyrnu.
mundssyni með 12 mörk 1981 og með 10 mörk eins og Heimir
Karlsson árið eftir. Tryggvi Guðmundsson stendur í sporum
markakóngsins í ár.
Gleðin var mikil í Eyjum þegar ÍBV varð fyrst íslands-
meistari 1979 og ánægja skein á ný úr hverju andliti í Eyjum
sl. sunnudag - á fyrsta starfsári nýs félags, IBV-íþróttafélags.
,Ávallt hefur verið stemmning í kringum þetta,“ sagði Viktor
Helgason, þjálfari meistaraliðs ÍBV1979, „en miklar framfarir
hafa verið í knattspyrnunni. 1979 héldum við að framtíðin væri
björt en botninn datt úr þessu hjá okkur. Vonandi höldum við
dampi lengur núna og ég á von á því með nýju félagi og góðri
umgjörð."
„Margir hafa komið við sögu á löngum tíma en á þessum
tímamótum sakna ég innilega eins úr hópnum, Lárusar heitins
Jakobssonar, framkvæmdastjóra okkar,“ sagði Jóhannes og
bætti við að fyrir fyrsta leik á hverju tímabili færi liðið og legði
blómsveig á leiði hans. „Við voram jafnaldrar, saman í skóla og
byrjuðum saman í ráðinu á sama tíma en hann markaði
ákveðnar línur í rekstri og öðru sem við höfum fylgt eftir, var
kraftaverkamaður í rekstri. Fyrir bragðið höfum við alltaf rek-
ið þessa deild hallalaust og án skulda.“
Spilað með h|artanu
FLESTA dreymir um að
verða íslandsmeistari en
Jóhannes sagði að Eyjamenn hefðu fyrst alavarlega stefnt á
toppinn fyrir þremur árum. „Þegar strákar eins og Rútur
Snorrason, Tryggvi Guðmundsson, Steingrímur Jóhannesson
og Ingi Sigurðsson áttu þátt í að halda liðinu uppi sáum við að
þeir gætu meira og hugmyndin var að byggja á þeim, halda vel
utan um hópinn með þá von í huga að með þolinmæði tækist
þetta. Þegar Atli tók við liðinu sagði hann að það tæki þrjú ár
að verða meistari og nú eru þrjú ár liðin. Þetta hafðist undir
stjórn Bjama og verk hans tala sínu máli.“
SJÁ BLS 4 Þ