Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER1997
MORGUNBLAÐIÐ
\BV
BJARNI Jóhannsson sagði eftir sigurinn á
Keflavík að margir þættir hefðu áhrif, ekki
síst uppeldið - hvað sagt er við strákana í
æsku og hvað þeir fá að borða. „Án þess að ég
sé að gera lítið úr öðrum held ég að svona stað-
ir séu með miklu meiri sál en þéttbýlustu svæð-
in. Hver hefur sinn stíl og hér einkennist líf fólks
af dugnaði og mikilli vinnu.“
Jóhannes sagði að þetta skipti máli. „Hjartað í leikmönnum
er mjög sterkt - þeir spila mikið með hjartanu. Gleðin er mik-
il og strákarnir hafa ofboðslega gaman af þessu, hafa metnað
fyrir því að standa sig fyrir hönd félagsins og ekld síst fyrir
hönd Vestmannaeyja. Við erum ekki það sterkir að leikmenn
geti leyft sér að spila fyrir sjálfa sig og peninga heldur verður
Eyjahjartað og liðshjartað alltaf að vera númer eitt, tvö og
þrjú. Þessi styrkleiki er fyrir hendi og samstaðan í hópnum
sést vel á því sem strákamir hafa verið að gera í frítíma sínum
á kvöldin fyrir félagið. í sumar tóku þeir sig til dæmis til og
bættu aðstöðuna fyrir leikmenn, bjuggu til litla setustofu,
smíðuðu þvottaaðstöðu og svo má lengi telja.“
í FYRRA tóku Eyjamenn
upp á því að fagna hverju
Gleðin í fyrirrúnti
marki á sérstakan hátt og mæltist þessi nýbreytni almennt vel
fyrir. „Fögnin“ vöktu athygli og gleðin smitaði út frá sér.
„Leifur Geir Hafsteinsson og Malli eiga heiðurinn af þessum
fögnum en Snorri Rútsson vakti menn til umhugsunar varð-
andi mikilvægi háttvísi og prúðmannlegs leiks. Atli hélt upp-
teknum hætti og agaði liðið mjög vel en undanfarin tvö ár höf-
um við fengið Dragostyttuna fyrir að vera prúðasta liðið og
allt bendir til þess að við fáum hana einnig í ár. Léttleiki og
hraði eru greinilega vænlegir þættir til árangurs en ekki er
endalaust hægt að vera með „fögn“ - gleðin getur verið með
ýmsu móti.“
Hann sagði að leikgleði Eyjamanna væri ekki aðeins sigur
fyrir þá heldur íslenska knattspyrnu því hún smitaði út frá
sér. „Við höfum skapað ánægjulega ímynd sem hefur fallið
vel í kramið um allt land. Þess vegna er þessi gleði sigur fyr-
ir fótboltann, góð fyrirmynd fyrir knattspyrnuna í framtíð;
inni. í þessu sambandi má líka nefna að einkunnarorð KSI
eru „reyklaus knattspyrna til sigurs,“ og við erum með reyk-
laust lið.“
ÍBÚAR í Eyjum eru tæp-
lega 4.700 og hefur vakið
BæjarféKagid á eftir
athygli að lið Eyjamanna hefur að mestu leyti verið skipað
heimamönnum sem margir hverjir hafa stundað nám í Reykja-
vík á veturna. „Okkur hefur reynst happadrjúgt að hafa þenn-
an hátt á varðandi mannskapinn og verið mjög lánsamir með
aðkomumenn," sagði Jóhannes. „Zoran Milkovic hefur til
dæmis reynst algjör gullmoli og aðrir hafa fallið vel inn í hóp-
inn. Hins vegar hafa flestir talið að ómögulegt væri að halda
úti liði með svona tvöföldu kerfl. Ferðakostnaðurinn er gífur-
lega mikill, um þrjár milljónir á ári fyrir meistaraflokkinn en
ekki nema um ein milljón fyrir alla flokka hjá félögum á
Reykjavíkursvæðinu. Þá verðum við að vera með tvo þjálfara í
starfi yfir vetrartímann, einn í Eyjum og annan í Reykjavík
auk þess sem við þurfum að greiða fyrir alla aðstöðu fyrir
sunnan. En við höfum haldið að okkur höndum eins og unnt er.
Fyrst og fremst vegna tvískiptingarinnar höfum við farið í æf-
ingaferðir til útlanda á vorin. Við höfum fengið að heyra að
þessar ferðir séu bara skemmtiferðir en það er af og frá.
Nauðsynlegt er að hópurinn komi saman og búi sig undir átök
tímabilsins og ég held að árangurinn 1 Evrópukeppninni sé að-
allega því að þakka að menn hafa leikið við lið erlendis, sem
eru í ámóta styrkleikaflokki og til dæmis Hibemians frá
Möltu, sem við slógum út í sumar. Þessar ferðir hafa þjappað
hópnum mjög vel saman og þess ber að geta að strákamir
hafa sjálfir safnað fyrir ferðakostnaðinum. Þessar ferðir hafa
sannað ágæti sitt og með bættan árangur í huga held ég að við
þyrftum að fara að minnsta kosti tvisvar út í æfingabúðir á
veturna."
Atli Eðvaldsson sagðist aldrei hafa kynnst eins atorkumiklum
mönnum og stjómarmönnum knattspymudeildar IBV en með
Jóhannesi í stjóm em Eggert Garðarsson, Jóhann Freyr Ragn-
arsson, Jón Óskar Þórhallsson, Tryggvi Kr. Ólafsson, Siguijón
Birgisson og Guðni Hjörleifsson. „Mennimir hugsa aðeins um
hvað sé félaginu fyrir bestu. Þeir börðust á móti straumnum en
höfðu erindi sem erfiði og ÍBV-íþróttafélag varð að veruleika í
ár. Þeir snúa bökum saman og gera bókstaflega allt.“
Jóhannes sagði að vissulega hefði starfið verið á fárra hönd-
um og nauðsynlegt væri að fá meiri stuðning frá bæjarfélag-
inu. „Við höfum reynt að hlúa að öllu eins vel og hægt er en því
miður höfum við orðið fyrir miklum vonbrigðum með bæjarfé-
lagið öll þessi ár. í langan tíma höfum við hamrað á því að
bæta þurfi aðstöðu fyrir leikmenn eins og öll bæjarfélög, jafn-
vel mun minni en okkar, hafa gert fyrir löngu. Þegar Týr og
Þór vom var meistaraflokkur IBV eins og aukahjól í kerfinu,
hjól sem fámennur hópur reyndi að rúlla. Um sjö til átta
EYJAMENN fögnuðu gífurlega og hlupu sigurhring á Hásteinsvelli þegar titillinn var í höfn.
Morgunblaðið/Golli
Komum fagnandi
E:
f
I inar Gylfi Jónsson, sál-
fræðingur, hefur verið
I formaður stuðnings-
mannaféiags ÍBV á Reykja-
v/kursvæðinu frá byrjun, tek-
ið virkan þátt í starfinu utan
vallar og liðsinnt leikmönn-
um.
„Þetta byijaði allt í kjölfar
gossins 1973,“ sagði Einar
Gylfi við Morgunblaðið
spurður um stuðningsmanna-
félagið. „ÍBV neyddist til að
leika heimaleikina í Njarðvík
og landflótta Eyjamenn í
landi litu á leikina sem nokk-
urs konar átthagamót. ÍBV
var „spútniklið" deildarinnar
1990 og vegna árangurs-
ins var mikil stemmning
fyrir liðinu í bænum. Þá
ákváðum við að mynda
formlegan félagsskap en
samt fór þetta ekki al-
mennilega í gang fyrr en
1994.“
Eyjamenn hafi vakið
mikla athygli fyrir
skemmtileg tilþrif, glens
og gaman. Þeir áttu
Tryggvagötuna fyrir bik-
arúrslitaleikinn í fyrra,
troðfylltu flugskýii á
Reykjavíkurflugvelli fyrir
„fyrsta“ f bikar í ár og
eru að huga að enn einum
samverustað fyrir bikar-
úrslitin 5. október. Þeir
hafa verið áberandi á
pöllunum, jákvæðir og
drffandi, og fyrir vikið
heiðraði Háttvísinefnd KSÍ
stuðningsmennina á fasta-
landinu 1995, en einkennis-
orð þeirra eru „komum
fagnandi“.
„Það er rétt, okkur hefur
tekist að skapa jákvæða
stemmningu," sagði Einar
Gylfi. „Ekki er mikil hefð fyr-
ir starfsemi svona klúbba í
landinu og því höfum við nán-
ast getað gert það sem við
viljum. Fyrir vikið höfum við
átt auðvelt með að yfirgnæfa
stuðningsmenn flestra heima-
manna á útileikjum ÍBV nema
helst á Skaganum. Okkur hef-
ur tekist að skapa skemmti-
lega umgjörð á útileikjunum
og viljum þakka okkur pínu-
lítið fýrir árangur liðsins.
Fyrsta árið okkar vannst eng-
inn leikur á útivelli en í sum-
ar er liðið taplaust á útivelli.
Auðvitað ráða strákarnir úr-
slitum inni á vellinum en
Morgunblaðið/sigtas U. Uuðmuntísson
KAFFIDÖMURNAR og þær sem sjá um að rukka. Frá vinstri: Svava Björk Johnsen, Svanhildur
Guðlaugsdóttir, Paloma Ruiz Martinez, Rósa Sveinsdóttir, Þórunn Ingvarsdóttir, Katrín Freys-
dóttir, Guðríður Þorvaldsdóttir, Inga Hjálmarsdóttir, Hanna Þórðardóttir, Jóna Björgvinsdóttir,
Ragnheiður Ástvaldsdóttir, Ragnheiður Víglundsdóttir, Laufey Grétarsdóttir, Tamara Miljkovic
með Slavicu Miljkovic í fanginu, Júlía Bergmann, Kristný Tryggvadóttir, Ingibjörg Bjarnadótti,
Ása Björk Hansdóttir og Nína Björk Gísladóttir fyrir framan.
Morgunblaðið/Steinþór
HEIMIR Hallgrimsson, nýkjörinn for-
maður stuðningsmannafélagsins í Eyj-
um, í ræðustól og Einar Gylfi Jónsson,
formaður stuðningsmannafélagsins á
Reykjavíkursvæðinu.
kannski eigum við eitthvað í
sigrunum.“
Félag stofnað
í Eyjum
ÍBV-íþróttafélag var stofnað
snemma árs og eitt fyrsta
verk knattspymudeildar var
að koma á stuðningsmanna-
félagi í Eyjum með því mark-
miði að auka samskipti
stjómar og áhangenda.
Að sögn Jóhanns Freys
Ragnarssonar, stjórnarmamis
í knattspymudeild, ýtti
stjómin málinu úr vör og em
110 skráðir félagar en form-
Iegur stofhfundur klúbbsins
var sl. laugardag. Heimir
Hallgrfmsson, fyrrum leik-
maður og fyrirliði ÍBV, var
kjörinn formaður, Gísli Hjarf-
arson varaformaður og ívar
Atlason gjaldkeri en Jón Ósk-
ar Þórhallsson verður
tengiliður stjómar við klúbb-
inn. „Allir vita hvað stuðn-
ingsmannaklúbbar geta verið
öflugir og okkar klúbbur er í
göðum farvegi," sagði Jóhann
Freyr.
STUÐNINGSMENN ÍBV troðfylltu flugskýli á Reykjavíkur-
flugvelli fyrir „fyrsta" í bikar í ár, bikarúrslitaleikinn við Kefla-
vík, en liðin verða aö leika annan úrslitaleik 5. október.
manna kjarni hefur rekið þetta, sömu menn hafa séð um allt.
Helmingur stjórnarmanna sér ekki fyrri hálfleik vegna þess
að mennirnir eru að rukka aðgangseyri. Bæjarfélagið hefur
ekki komið nægjanlega að rekstrinum. Ekki er nóg að skreyta
sig með því að segja að Hásteinsvöllur sé góður sem og æf-
ingasvæðin því aðstaðan fyrir leikmenn og áhorfendur er ekki
boðleg. Öll alvöru félög eru farin að tala um mikilvægi yfir-
byggðs vallar, en þó hér sé mesti vindur á landinu, erum við að
tala um aðstöðu sem flest félög búa við. Samt heyri ég að vilji
sé til að breyta þessu og ég trúi því að farið verði á fullt þegar
í haust. Ekkert bæjarfélag hefur fengið eins góða auglýsingu
og mikla athygli og Vestmannaeyjar vegna árangurs ÍBV í
knattspyrnu og bæjarfélagið á að koma meira að þessu en það
hefur gert. Við höfum ávallt talið það mikla ábyrgð að reka
meistaraflokkinn og ekki viljað bjóða bæjarfélaginu eða
íþróttahreyfingunni upp á áhættu í fjármálum en spumingin
er hvort bæjarfélagið verði ekld að leggja meira af mörkum,
ekki aðeins hvað aðstöðu varðar heldur hreinlega til að við get-
um haldið liðinu úti.“
í því sambandi benti hann á að margir leikmenn væru með
lausa samninga og þegar væru önnur félög farin að kroppa í
þá. „Óhætt er að taka undir orð Bjarna þess efnis að með ólík-
indum sé að ákveðnir aðilar, jafnvel þjálfarar og aðrir sem
tengjast hreyfingunni, séu á fullu á miðju tímabili að reyna að
koma þessum leikmönnum til annarra liða. Ekkert siðferði
virðist vera til staðar í þessum málum og þau verður að skoða
vel. Ef bestu leikmennirnir fara úr landi verður erfitt að fá
fólk á völlinn til að horfa á íslenska knattspyrnu."
Stofnun ÍBV-íþróttafélags markaði tímamót í Eyjum og Jó-
hannes sagði að sameiningin hefði verið nauðsynleg, rekstur-
inn væri mun auðveldari nú en áður. „Við sem höfum staðið á
bak við meistaraflokkinn höfum ávallt sagt að hér ætti að vera
eitt félag og höfum verið harðir á þeirri skoðun. Nú hefur
þetta gerst og rekstur handboltans og knattspyrnunnar er
mun auðveldari en ella en rekstur deildanna er aðskilinn. Fé-
lagið hefur til dæmis ákveðið að borga allan ferðakostnað lið-
anna en þar er um að ræða hátt í 15 milljónir króna á ári.“
Lifiö snýst um fótbolfa
OFT ER þungt yfir Vest-
mannaeyjum, svört þokan
yfir öllu, en einstaklega bjart hefur verið yfir fótboltanum í
Eyjum í sumar, létt til á leikdegi eins og um helgina og síðan
hefur þokan lagst yfir eins og í liðinni viku. En hún hefur ekki
náð að gleypa helsta áhugamálið. „Hér snýst lífið um fótbolta
og hvar sem menn koma saman er rætt um gengi liðsins,"
sagði Jóhannes. „Eyjamenn eru mjög kröfuharðir og eiga að
vera það en verða að vera réttlátir í gagnrýninni. Aðsóknin að
leikjunum sýnir stuðninginn í verki. I tæplega 4.700 manna
bæjarfélagi erum við með um 800 manns að meðaltali á heima-
leik sem sannar metnaðinn fyrir því að standa með liðinu.
Stuðningsmannahópurinn í Reykjavík er einnig einstakur og
hann hefur átt stóran þátt í árangrinum, sem hefur aldrei ver-
ið betri á útivelli. Stuðningurinn hefur verið frábær og hann
ber að þakka.“