Morgunblaðið - 28.09.1997, Page 6
6 B SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER1997
MORGUNBLAÐIÐ
FOLALDSHRYSSUR standa verr að vígi í
girðingum hjá stóðhestum og meiri líkur á
að þær komi fyllausar þaðan en hryssurnar
sem eru án folalda.
nÚOCSRK
AFA stóðhestar nátt-
úrulegan hæfileika til
að skynja hvenær egg-
los hefst hjá hryssum?
Þessari spumingu og
ýmsum fleirum hefur
Bjöm Steinbjörnsson
dýralæknir velt fyrir
sér sumurin ‘95 og ‘96 og méira en það, því
hann hefur staðið fyrir frjósemisrannsóknum
í samvinnu við erlenda aðila. Þar hefur meðal
annars verið fylgst með atferli og hegðun
þeirra í stóðlífi. Var Bjöm beðinn að segja frá
rannsóknunum og þeim ályktunum sem
draga má af þeim.
Frjósemi og hegðun stóðhesta hefur verið
mikið í umræðunni síðustu árin. Margir telja
að frjósemi fari dvínandi í íslenska hrossa-
stofninum og hafa áhyggjur af. íslensk hross
hafa verið í hópi þeirra frjósömustu í heimin-
um. Þessi umræða og ýmislegt fleira varð
kveikjan að því að Bjöm réðst í þessar mjög
svo áhugaverðu rannsóknir.
„Tilgangur rannsóknanna er að skoða
stóðlíf hrossa hvað varðar fijósemi og fleira
við náttúrulegar aðstæður. Islenski hrossa-
stofninn er enn mjög frjósamur og hálfvilltur.
Þá er náttúran hér ómenguð. Erlendis hefur
verið erfitt að gera langtímarannsóknir hvað
þetta varðar vegna þess að þar dimmir yfir
nóttina. Hér á landi er sumarnóttin björt og
hægt að fylgjast grannt með hrossunum allan
sólarhringinn og aðstæður þar af leiðandi
ákjósanlegar hér.
Með því að skoða þrjá stóðhópa allan sól-
arhringinn í ákveðinn tíma eram við að leita
svara við spurningum sem ekki hefur tekist
að svara á alþjóðagrandvelli. Þá hafa komið
upp vandamál í hrossaræktinni hérlendis og
því tilvalið að hrinda þessum rannsóknum í
framkvæmd," sagði Bjöm þegar hann út-
skýrði megin tilgang rannsóknanna.
Auk spurningar um þann hæfileika stóð-
hestanna að skynja tímasetningu eggloss hjá
hryssum sagði hann að skráð hafi verið
hversu oft hestarnir fóra á hryssurnar,
hvenær á gangmáli hryssnanna þeir höfðu
samræði við þær, og hversu lengi hryssumar
þýddust stóðhestana. Þá var einnig skoðað
hvort hryssan losi eitt egg eða tvö, en þegar
það gerðist væri meiri von á að frjóvgun yrði
en einnig væri möguleiki á tvífyli, það er að
bæði eggin frjóvgist, þegar slíkt gerðist.
Þrískipt sólarhringsvakt
„Við rannsóknina 1995 var notað ómskoð-
unartæki og hryssurnar skoðaðar með því
strax eftir að hesturinn fór á þær. Þannig
gátum við séð hvort stóðhesturinn færi á
hryssuna í nánd við egglos og reiknað út
sæðisnýtinguna. Eitt af markmiðunum var
að fá upplýsingar um hvemig best sé að
hafa hryssuhópa samsetta hjá stóðhestum.
Fyrra sumarið, 1995, var fylgst með tömd-
um stóðhesti hjá 29 tömdum hryssum í 23
daga en seinna sumarið var um að ræða
ótaminn hest í ótömdum hryssum. Síðast
liðið sumar var fylgst með ótömdum stóð-
hesti hjá 22 ótömdum hryssum í sex vikur.
Sá ótamdi var hafður í stóðinu allt árið. I
báðum tilvikum var um þrískipta sólar-
hringsvakt að ræða og fýlgst með hverju
fótmáli stóðhestanna. I seinna tilvikinu var
annar stóðhestur í sömu girðingu með
annað stóð sem einnig var fylgst lítilega
með,“ og sagði Björn að þar hefði ekki
STÓÐHESTURINN, stolt stóðsins og hrossaræktandans, er ekki allur þar sem hann er
séður. Margar spurningar hafa vaknað um hegðun og atferli stóðhesta og þykir ýmislegt í
hegðan þeirra vera að breytast eftir því sem maðurinn hefur meiri afskipti af viðkomu
hrossanna.
verið um neina árekstra að ræða. „Greini-
lega voru mjög ákveðnar samskiptareglur
í gildi sem fylgt var eftir í hvívetna.
Astæðan fyrir því að skoðaðir voru ólíkt
samsettir hópar er sá grunur að ýmis
vandkvæði skapist við æxlun hjá hrossum
sem mikið eru undir mannahöndum.“
Hreinn sveinn tekinn næst fyrir
„I næstu lotu verður fylgst með þriðja
hópnum, ungum og óreyndum stóðhesti í
hryssuhópi, sem er síðasti hluti rannsókn-
arinnar. Þarna er verið að kanna hvort
hann sýni viðvaningshátt við hryssurnar
eða hvort hann hagi sér svipað og eldri og
reyndari hestar. Þar ætti að koma fram
hvort um meðfædda eiginleika sé að ræða
eða hvort hestar læri kúnstirnar og afli
sér reynslu með tíð og tíma. Þannig má
áætla þann fjölda sem ungur hestur og
óreyndur getur gagnast þannig að honum
verði ekki ofgert og tryggt að hryssurnar
fyljist. Ég þekki dæmi þess að 25 hryssur
voru settar til þriggja vetra fola sem eðli-
lega hafði ekki reynslu. Voru menn síðan
að furða sig á því af hverju hryssurnar
voru geldar. Líklegast er að folinn hafi
einfaldlega guggnað, þetta hafi verið of
mikið fyrir hann, en þetta er meðal annars
það sem við munum skoða í framhaldinu.“
Varðandi hross sem eru mikið undir
mannahöndum er það vel þekkt skoðun
víða um heim að hross sem eru undir
miklu álagi, andlegu og líkamlegu, til
dæmis í stífri þjálfun og/eða keppni, gagn-
ist verr þegar að æxlun kemur. Þarna er
streitan farin að hafa truflandi áhrif.
Hryssur geta átt í erfiðleikum með að losa
egg undir slíkum ki-ingumstæðum, svo
dæmi sé nefnt. Þá er spurning hvort hús-
notkun hesta á vorin hafi afgerandi áhrif á
afköst þeirra síðar um sumarið að ekki sé
nú talað um ef þeir fara í keppni eða sýn-
ingar milli gangmála. Niðurstöður úr þess-
um rannsóknum benda til að svo sé og
styður þar með þessar skoðanú’ manna.
Nílján sinnum á eina hryssu
„Ef við víkjum að tamda hestinum kom
hann þreyttur í girðinguna eftir húsnotk-
un. Sýndi hann af þeim sökum ekki mikinn
áhuga fyrstu dagana og voru afköstin eftir
því. Hann sinnti hryssunum mjög tilvilj-
anakennt, fór á hryssurnar ýmist fyrir
egglos, meðan á egglosi stóð eða eftir egg-
los. Ekki var hægt að merkja að hann
skynjaði hvenær hryssurnar losuðu egg og
væru þar með frjóar. Einnig tók hann
tvær eða þrjár hryssur án þess að þær
væru álægja. Þá var breytilegt hversu oft
hann fór upp á hverja hryssu. I hópnum
voru nokkrar geldhryssur sem hann sýndi
mun meiri áhuga en folaldshryssunum.
Eina hryssuna tók hann til dæmis nítján
sinnum. Ef margar hryssur voru að
ganga samtímis valdi hann tvær til þrjár
úr en sinnti hinum ekkert. Hafði greini-
lega ekki áhuga á fieirum í senn. Eftir að
hryssur kasta ganga þær u.þ.b. viku
seinna. Erlendis er talið óæskilegt að
halda hryssu á þessum tíma þar sem móð-
urlífið hefur ekki jafnað sig nægilega vel
eftir fæðinguna. Þær festa ekki fang. Mér
virðist þetta ekki eiga við hjá okkur. I
ótamda stóðinu sem ég fylgdist með í sum-
ar festu allar hiyssurnar fang í fyrsta
gangmáli eftir köstun utan ein sem gekk
upp. Ég hef trú á því að þessi niðurstaða
samrýmist reynslu hrossaræktenda. Þegar
hryssurnar ganga svo aftur u.þ.b. þremur
vikum seinna er mjólkurframleiðsla mest,
enda í samræmi við það að folaldið nærist
nær eingöngu á móðurmjólkinni þessar
fyrstu vikur. Þessi mikla mjólkurfram-
leiðsla getur haft áhrif á hormónafram-
leiðslu í þá veru að hryssurnar sýna veik-
ari einkenni þess að þær séu að ganga og
jafnvel að þær sleppi gangmáli. Þetta er
þekkt erlendis frá og segir okkur að þess-
ar hryssur eru síður þjónustaðar af stóð-
hestinum og þeim hættara við að koma
geldar úr girðingu. Þetta leiðir svo hugann
aftur að tímanum sem stóðhesturinn er
hjá hryssunum. í ljósi þessa virðast fjórar
vikur vera of knappur tími en öruggara
væri að hafa þær sex.“
Kynorka, kyngeta og kynheilbrigði
„Ekki má gleyma því að það er ýmislegt
fleira sem spilar inn í og getur haft áhrif á
það hvort hryssur fái fyl í girðingu hjá
stóðhesti. Þar má nefna kynorku stóð-