Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997 B 17
I
i
5
I
I
I
I
9
i
I
.
i
I
3
I
Andlegri heilsu
Reagans hrakar
Los Angeles. Daily Telegraph.
ANDLEGRI heilsu Ronalds Reag-
ans, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seta, hrakar ört og er hann það
þungt haldinn af Alzheimer-veiki,
að hann getur ekki haldið uppi
samræðum og þekkir sjaldnast
nána ættingja sína, að sögn sonar
hans Michaels Reagan.
„Það er hægt að tala til hans,
en úr því verða engar samræður,"
sagði forsetasonurinn, sem er á
ferðalagi um Bandaríkin að kynna
nýjustu bók sína sem ber nafnið
„Borgin á hæðinni: að uppfylla
framtíðarsýn Ronalds Reagans
fyrir Ameríku.“
„Nú orðið man hann ekki alltaf
hvað ég heiti er ég heimsæki hann.
En hann veit hver ég er. Ér er
náunginn sem faðmar hann alltaf
að sér,“ sagði Michael Reagan um
föður sinn. Hann sagði að forsetinn
fyrrverandi, sem orðinn er 86 ára,
væri að öðru leyti við hestaheilsu
líkamlega. Fer hann í gönguferð
daglega í fylgd leyniþjónustu-
manna og leikur öðru hverju golf
með lækni sínum.
Trúboðinn Billy Graham, gamall
vinur Reagans, lýsti nýlegri heim-
sókn sinni til Ronalds og Nancy
Reagan á heimili þeirra í Bel-Air í
Los Angeles. Kvaðst hann hafa
orðið fyrir áfalli er honum varð ljóst
hversu illa Alzheimer-sjúkdómurinn
væri búinn að leika Reagan. Hann
sagði að þeir hefðu setið að spjalli
í hálftíma þegar forsetinn fyrrver-
andi sneri sér að konu sinni og
sagði: „Heyrðu, ég á að hitta Billy
Graham klukkan tvö.“ Hún svar-
aði: „Þú hefur verið að tala við
hann síðasta hálftímann." Sagði
Graham að hann hefði þá horft á
sig, staðið upp og gengið út að
glugga, komið aftur og sest í stól
og haldið áfram að spjalla.
Þrátt fyrir þverrandi andlega
heilsu dafnar arfleifð Reagans. Hag-
sældin í Bandaríkjunum er að sögn
margra leiðtoga repúblikana afleið-
ing umsköpunar í efnahagslífmu
sem hann beitti sér fyrir í forsetatíð
sinni. Þá er stutt í að Ronald Reag-
an-byggingunni, utanríkisviðskipta-
stofnun í Washington, verði lokið.
Þar munu 7.000 ríkisstarfsmenn
hafa vinnu og er L-laga byggingin
sú næststærsta í Bandaríkjunum.
Einungis bygging varnarmálaráðu-
neytisins, Pentagon, verður stærri.
Japanska þingið
Skipan
Koko Soto
harðlega
gagnrýnd
Tókýó. Reuter
RYUTARO Hashimoto, forsætis-
ráðherra Japans, hefur þurft að
verja þá ákvörðun sína að skipa
Koko Soto í embætti yfirmanns
rekstrar- og samhæfingarstofn-
unar japanska þingsins. Skipan
hans fyrir rúmri viku hafði verið
harðlega gagnrýnd.
Soto, sem var dæmdur fyrir
mútuþægni árið 1976, er fyrsti
maðurinn, sem skipaður hefur
verið í embætti á japanska þing-
inu eftir að hafa hlotið dóm.
Hann var einn af höfuðpaurun-
um í svokölluðu Loekheed-
hneyksli sem upp komst í kjölfar
rannsóknar á vegum Bandaríkja-
þings á mútugreiðslum banda-
rísks flugvélaframleiðanda.
Soto, sem á þeim tíma var aðstoð-
arflutningamálaráðherra, hlaut
tveggja ára skilorðsbundinn dóm
auk þess sem honum var gert að
greiða sekt upp á tæpar 600 þús-
und krónur.
Hashimoto réttlætti skipan
Sotos með því að hann verðskuld-
aði annað tækifæri enda hefðu
kjósendur sýnt traust sitt til hans
í kosningum. Soto hefur 11 sinn-
um verið kjörinn á japanska
þingið, þar af fjórum sinnum
eftir umræddan dóm.
Þrýstingur eldri áhrifamanna
Hashimoto tilkynnti skipun
Sotos er hann kynnti nýjar breyt-
ingar á stjórn sinni á fimmtudag.
Þetta var í annað skipti sem hann
gerir breytingar á stjórninni,
sem mynduð var árið 1996, og
eru þær taldar miða að því að
styrkja stöðu hans innan flokks-
ins. Skipan Sotos, sem nýtur
stuðnings eldri áhrifamanna í
flokknum, var harðlega mótmælt
í japönskum dagblöðum og á
heimasíðu forsætisráðherrans á
alnetinu. Meðal annars var varp-
að fram spurningum um stöðu
Hashimotos innan flokksins en
hann hefur hingað til þótt hafa
þar sterka stöðu. Á blaðamanna-
fundinum tók Hashimoto á sig
alla ábyrgð á skipan Sotos.
Cjarðpíön tustöðin
Viö veg ||nr 3741 Hvammur)f
í Ölfusi
CiarÖyrkjufólk !
Sterkar víöiplöntur
ipottum fyrir
hau stgróÖu rsetn in gar.
Hagstætt verö.
Sími 483 4840'
I lu^Icióii bjóóu öóru siimi lieimsborgaræv
SCIll .) /,'J,'í
1,1 hkn Qo slo í gcgn 1
Vcr'l)a \ -*
-rr--
1 yi 0 v| ■
á ótrúlegu verði
26 • 30. nóveml)er
• Gisting
• íslcnsk fararstjóm
• Hátíðarkvöldverður
• Verslunarferð til Worcester Factory Outlet
• Frímiðar á 2 skemmtistaði
Adoins
3Q.Q60
kr.* ámann
i tuíbýli i 4 nætur
fyriraðeins 39.960 kr* á mann í tvfbýli
í 4 nætur á Tremont Hotel, góðu hóteli með
veitingastað og tveimur næturklúhbum í
leikhúshverfinu í Boston og nálægt helstu
verslunargötum í miðborginni.
íslenskur fararstjóri:
Einar Bollason hefur með höndum almenna
■ Innlfallð í veröi: Flug, flugvallarskattar, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
gisting, fararstjóm, þakkargjörðarkvöldverður, verslunarferð til Worcestcr
Factory Outlet og frímiði á 2 skemmöstaði.
Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða símsöludeild
Flugleiða í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8 -19
og á laugard. kl. 8 -16.)
fararstjóm og leiðbeinir hátíðargestum um
einstæðan verslunar- menningar- og íþróttaheim
borgarinnar.
Vefur Flugleiða á Intemeönu: www.icelandair.is
Netfang fyrir almennar upplýsingar: info@icelandair.is
FLUGLEIÐIR
Traustur tslenskur ferðafélagi
Y