Morgunblaðið - 28.09.1997, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR og sígarettur; Travolta, Roberts, Krabbinn í Ráðgátum, Stone, Pitt og Thomas soga að sér reykinn.
Meiri reykur á
hvíta tj aldinu
Sígarettureykingar eru aftur komnar í tísku á hvíta
tjaldinu samkvæmt bandarískri rannsókn segir í
grein Amalds Indriðasonar. Kvikmyndastjömumar
sjást æ oftar draga ofan í sig reykinn en sjónvarps-
stjömumar gera fimm sinnum minna af því og í
sjónvarpi em sígarettureykingar gerðar fráhrindandi
en í kvikmyndunum em þær aðlaðandi.
SAMKVÆMT nýlegri könnun
gerðri á vegum Kaliforníuhá-
skóla í San Francisco reyktu
áberandi kvikmyndapersónur
sígarettur í helmingi bíómjmda
sem frumsýndar voru á árun-
um 1990 til 1995. Á áttunda áratugnum var á
sama hátt aðeins reykt í 29 prósentum bandarí-
skra bíómynda svo aukningin er umtalsverð.
Og sígarettur í bíómyndum eru sífellt að verða
meira áberandi. Einn af svömum óvinum reyk-
inga í Bandaríkjunum er forsetafrúin, Hillary
Clinton, og hún bendir á í blaðaskrifum að 77
prósent bíómynda sem frumsýndar voru á síð-
asta ári sýndu reykingar og allar fímm myndim-
ar sem útnefndar voru til óskarsverðlauna sem
besta myndin. Hún átaldi mjög hvemig bíó-
myndir létu reykingar líta út fyrir að vera aðlað-
andi og kenndi Hollywood um auknar reykingar
ungmenna þrátt fyrir að foreldrar og kennarar
reyndu að vara þau við skaðsemi reykinga.
Stjörnur á samningi
Reykingar unglinga í Bandaríkjunum hafa
aukist um 30 til 40 prósent á undanfömum
ámm þrátt fyrir umfangsmikið forvamastarf
og einn sökudólgurinn og kannski _sá mest áber-
andi eru Hollywood-myndimar. Áhrifa þeirra,
m.a. á sígarettureykingar ungmenna, gætir að
sjálfsögðu víðar en aðeins í Bandaríkjunum.
Hollywood-myndir ná um veröld alla og ekki
síst hingað upp til íslands þar sem bíósókn er
óvíða meiri í heiminum og langmestur hluti
myndanna sem sýndur er kemur frá drauma-
verksmiðjunni. Þorgrímur Þráinsson, fram-
kvæmdastjóri Tóbaksvamanefndar, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að gerð verði könnun á
vegum Landlæknisembættisins í grunn- og
framhaldsskólum landsins næsta vor á reyking-
um ungmenna en hún er gerð á fjögurra ára
fresti. Hann sagði það sína tilfinningu að reyk-
ingar ungra íslendinga hefðu aukist um 30
prósent á síðastliðnum tveimur árum. Og banda-
rískar bíómyndir spila þar stórt hlutverk. „Við
höfum orðið þess vör hvemig reykingar hafa
aukist í bíómyndunum og við erum héma með
bréf undirritað af Sylvester Stallone þar sem
segir að hann fái fímm milljónir dala fyrir að
sýna ákveðna tóbakstegund í næstu fimm mynd-
um sínum. Stjömumar eru keyptar til þess að
reykja og framleiðendumir sömuleiðis til þess
að gera reykingar áberandi. Ungmennin dýrka
stjörnumar og fræga fóikið og gerir það að
sínum fyrirmyndum."
Venjulega fylgist Hollywood vel með því sem
er að gerast í bandarísku samfélagi og reynir
að nýta vinsæl viðhorf og tískustrauma í gróða-
myndir sínar og vekur kannski furðu að á sama
tíma og reykingafólki er úthýst af opinberum
stöðum, veitingahúsum og flugvélum, svo eitt-
hvað sé nefnt, og tóbaksfyrirtækin eru í stór-
kostlegri vöm vegna skaðsemi reykinga, sé aldr-
ei meiri sígarettureyk að finna í Hollywood-
myndunum. Kannski er Hollywood-samfélagið
að mótmæja á sinn hátt áróðrinum gegn reyk-
ingafólki. Áróðurinn getur þannig haft þveröfug
áhrif í Hollywood. Hættan er sú að eftir því
sem hann verður sterkari og háværari verði
sígarettur eftirsóknarverðari; reykingar verða
tákn um uppreisn gegn stofnanavaldi og andúð
á boðum og bönnum. Það er smart að reykja
I bíómyndum en það er líka merki um að þú
látir ekki ráðskast með þig. Þú gerir það sem
þig lystir. „Það getur vel verið að reykingar í
bíómyndum séu merki um ákveðinn uppsteyt,"
segir Þorgrímur. „Ungt fólk vill verða fullorðið
hratt.“
Minna reykt í sjónvarpi
Hvert sem litið er hafa kvikmyndastjörnum-
ar, líklega einar helstu fyrirmyndir unga fólks-
ins, sígarettu á milli varanna eftir því sem segir
í stórblaðinu The New York Times, sem nýlega
fjallaði um könnun Kalífomíuháskóia. Leonardo
DiCaprio í Rómeó og Júlíu, Kurt Russell í Flótt-
anum frá Los Angeles, Brad Pitt í „Sleepers",
meira að segja Arnold Schwarzenegger í Sönn-
um lygum. Kristin Scott-Thomas reykti í Enska
sjúklingnum. John Travolta reykir nær undan-
tekningarlaust í myndum sínum, jafnvel þegar
hann leikur engil eins og í rómantísku gaman-
myndinni Mikael. Sharon Stone keðjureykti í
„Diabolique“. Mel Gibson kveikir sér í vindling-
um í myndinni Þakka ykkur fyrir að reykja, sem
byggir á skáldsögu Christopher Buckleys og
hæðist að herferðinni gegn reykingum. Popp-
söngkonan K.D. Lang, sem ekki reykir, safnaði
saman efni um reykingar á geisladisk og kall-
aði hann Rettu.
Reykingar fá ólíka meðhöndlun eftir því hvort
þær fyrirfínnast í bíómyndum, sem dreift er í
kvikmyndahús, eða sjónvarpsmyndum og sjón-
varpsþáttum segir í The New York Times. Nú
um stundir er t.d. mjög illa séð að nota sígarett-
ur í rómantískum kringumstæðum og á það
einkanlega við um sjónvarp. Reykingar eru fimm
sinnum fátíðari í sjónvarpi en kvikmyndum og
í sjónvarpi er yfirleitt enginn glamúr tengdur
reykingum heldur þvert á móti tengjast þær
spillingu, jafnvel óeðli. í sjónvarpsþáttum eins
og „Touched by an Angel“ segir leikkonan
Della Reese alvarleg í bragði skjólstæðingi sín-
um að guð vilji að hann hætti að starfa fyrir
tóbaksfyrirtæki og hætti að reykja. Þú skalt
ekki reykja er ellefta boðorðið. Fram hefur kom-
ið í sjónvarpsumræðum um reykingar vestra
að þeir sem betjast gegn þeim lýsi slagnum
gegn andstæðingnum, stóru tóbaksfyrirtækjun-
um, eins og átökum við djöfulinn.
Líklega kemur andúðin á reykingum hvergi
betur fram í sjónvarpi en í hinum vinsælu sjón-
varpsþáttum Ráðgátum eða „The X-Files“ þar
sem FBI-par fæst við hin ótrúlegustu mál þessa
heims og annarra. I byijun eins þáttarins er
keðjureykingaillmennið Krabbinn (leikarinn
heitir William B. Davis) að soga í sig blámann
og á milli fóta hans skýst rotta. Hann hendir
stubbnum í gólfið og rottan skýst í burtu; í
stað rottunnar er kominn sígarettustubbur. Þeir
sem reykja í þáttunum eru yfirleitt þijótar og
illmenni. Sígarettan er ávísun á voðaverk, fals
og svik. Það var í raun ekki Lee Harvey Osw-
ald sem myrti John F. Kennedy heldur Krabb-
inn og nefnd annarra keðjureykingamanna í
skúmaskotum opinberra stoftiana. Þegar Krabb-
inn fylgist með handtöku Oswalds í kvikmynda-
húsinu eftir forsetamorðið, sem hann sjálfur
framdi, kveikir hann sér í sígarettu og verðlaun-
ar sig þannig eftir velheppnaða sendiför til
Dallas. Svo virðist sem öll illvirki mannanna í
Ráðgátum séu ákvörðuð í gegnum bláan sígar-
ettureyk. Þegar samsærismennirnir ákveða af-
töku eða önnur örlög náungans gera þeir það
yfírleitt í þykkum reykjarmekki.
Amerískt sjónvarp hefur ekki alltaf verið svo
andstætt reykingum. Sígarettan var nánast
vörumerki læknisins Kildare, aðalpersónunnar
í samnefndum læknaþáttum sem sýndir voru
hér á landi í árdaga. Richard Chamberlain fór
með aðalhlutverkið og strax í fyrsta þættinum
árið 1961 hraðaði hann sér að sígarettusjálf-
sala og keypti sér pakka. Skilaboðin voru þau
að allir góðir læknar reyktu. Sá sem bauð þér
sígarettu sýndi þér hluttekningu í raunum þín-
um, samhjálp og vináttu. I hvert sinn sem hinn
ágæti læknir Kildare þurfti að taka erfíða
ákvörðun kveikti hann sér í sígarettu. Hún hjálp-
aði honum að komast að réttri niðurstöðu. Á
þeim tíma var viðhorfíð til reykinga auðvitað
allt annað. Sígarettuframleiðendur notuðu
lækna í auglýsingum, sem töluðu um ágæti
reykinga.
I bíómyndum dagsins er sígarettan besti vin-
ur mannsins. Hún er það eina sem Julia Ro-
berts á í lok rómantísku gamanmyndarinnar
Brúðkaup besta vinar míns; hún virðist geyma
Marlboropakka í bijóstahaldaranum. „Tóbaks-
iðnaðurinn hefur svo gríðarlegt fjármagn að
þeir geta gert það sem þeir vilja,“ segir Þorgrím-
ur, „Tóbaksframleiðendur gera allt til þess að
komast inn með vöru sína á sem flestum svið-
um. Þeir eru klókir og nota t.d. mikið íþróttavið-
burði og næla sér í fórnarlömb sem er unga
fólkið. Um leið og þú kaupir fyrirmyndirnar
kaupir þú unga fólkið. Það þarf að fræða unga
fólkið um þetta og kvikmyndimar verða teknar
sérstaklega fyrir í fræðsluátaki Tóbaksvama-
nefndar í skólunum ásamt mörgu öðru“.