Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 3

Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 3
2 B MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT Knattspyrna UEFA-keppnin Önnur umferð, seinni leikir. Tbilisi, Georgíu : Dynamo Tbilisi - Braga (Port.).......0:1 - Toni 49. 15.000. ■ Braga vann 5:0 samanlagt. Enschede, _Hollandi: Twente - Árósar (Danmörku)..........0:0 12.500. ■ Samanlögð markatala 1:1; Twente áfram á útimarki. Karlsruhe, Þýskalandi: Karlsruhe - Metz (Frakldandi).......1:1 Thomas Hassler 37. - Danny Boffin 10. 15.000. ■ Karlsruhe vann 3:1 samanlagt. Zagreb, Króatíu: Zagreb - MTK (Ungverjai.)...........2:0 Robert Prosinecki 12., 56. 25.000. ■ Zagreb vann 2:1 samanlagt. Birmingham, Englandi: Aston Viila - Athletic Bilbao (Spáni) ....2:1 Ian Taylor 27., Dwight Yorke 50. - Javi Gonzalez 70. 35.915. ■ Aston Villa vann 2:1 samanlagt. Bastia, Frakklandi: Bastia - Steaua Búkarest (Rúmeníu)....3:2 Prince 52., 68., Frederic Mendy 80. - Catal- in Munteanu 14., 40. 10.000. ■ Samanlögð markatala 3:3. Steaua áfram á fleiri mörkum á útivelli. Miinchen, Þýskalandi: 1860 Miinchen - Rapid Vín (Austurr.) ..2:1 Daniel Borimirov 6., Bemhard Winkler 23. vsp. - Thomas Zingler 70. 28.000. ■ Rapid Vin vann 4:2 samanlagt. Lyon, Frakklandi: Olympique Lyon - Inter Milan (Ítalíu)..l:3 Jacek Bak 68. - Francesco Moriero 10., 71., Benoit Cauet 48. 35.000. ■ Inter vann 4:3 samanlagt. Udinese, Ítaiíu: Udinese - Ajax (Hollandi)............2:1 Paolo Poggi 25., Oliver Bierhoff 32. - Averladze 80. 42.000. ■ Samanlögð markatala 2:2. Ajax áfram á fleiri mörkum á útivelli. Liverpooi, Englandi: Liverpool - Strasbourg (Frakklandi) ...2:0 Robbie Fowler 63. vsp., Karlheinz Riedle 84. 32.426. ■ Strasbourg vann 3:2 samanlagt. Iraklion, Grikklandi: OFI - Auxerre (Frakklandi)...........3:2 Nikos Papadopoulos 57., 74., Yannis Anast- asiou 94. - Stephan Guinars 37., Michel Degnion 60. 9.000. ■ Auxerre vann 5:4 samanlagt. Salonika, Grikklandi: PAOK - Atletico Madrid..............4:4 Costas Frangeskos 17., Persi Oliveira 55., Theodore Zagorakis 76. vsp., Paris Zouboul- is 81. - Jordi Lardin 2., Rade Bogdanovic 28., Santi Denia 51., Kiko 91. 25.000. ■ Atletico vann 9:6 samanlagt. Lazio, Ítalíu: Lazio - Rotor (Rússlandi)...........3:0 Pierluigi Casiraghi 5., Roberto Mancini 35., Giuseppe Signori 89. Valladolid, Spáni: Valladolid - Spartak (Rússlandi).....1:2 Juan Carlos Gomez 87. - Alexander Shirko 64., 90. 18.000. ■ Spartak vann 4:1 samanlagt. • Sigurvegarar eru komnir í 16-liða úrslit. Spánn Merida - Valencia..............1:0 Marcos (51., vítasp.). 8.500. Körfuknattleikur Miami - Charlotte...........99:112 Chicago - San Antonio........87:83 • Eftir framlengingu. Utah - Washington............86:90 Íshokkí NHL-deildin Carolina Vancouver.............5:3 Montreal Dallas................6:4 NY Rangers Edmonton............2:2 • Eftir framlengingu. St.Louis - Philadelphia........1:5 Golf Samvinnuferða-Landsýnarmót Haldið á Okford vellinum í Flórída: Karlar: Páll Einarsson, GV....................74 Hjörtur Hermannsson, GV...............76 Gunnlaugur Axelsson, GV...............77 Konur: Ema Sörensen, NK......................71 Fríða Dóra Jóhannsdóttir, GV..........73 Nýliðaflokkur kvenna: Steinunn Einarsdóttir, GV.............81 Kristín Frímannsdóttir, GV............92 Guðný E. Gisladóttir, GSE.............99 Oldungaflokkur: Kristján G. Jóhannsson, GR............79 Gísli V. Einarsson, GSE.............. 82 Punktakeppni haldið á Riverclup vellinum: Konur: Friða D. Jóhannsdóttir, GV............33 Karlar: Gunnlaugur Axelsson, GV...............37 Siguijón R. Gíslasson, GK.............36 Atli Aðalsteinsson, GV................34 Kjartan L. Pálsson, NK................34 í kvöld Handknattleikur 1. deild karla: Digranes: HK - Haukar...........20 Framhús: Fram - Víkingur........20 KA-hús: KA - ÍR.................20 Smárinn: Breiðablik - UMFA......20 Ásgarður: Stjarnan - ÍBV.....20.30 Kaplakriki: FH - Valur.......20.30 ÍÞRÓTTIR HANDKNATTLEIKUR Björgvin á fljót- andi fæði í mánuð Morgunblaðið/Golli BJÖRGVIN er mikið bólginn eins og sjð mð og þarf að vera ð fljótandi fæði næsta mðnuðinn. BJÖRGVIN Björgvinsson, landsliðsmaður í handknatt- leik, tvíkjálkabrotnaði í leik ís- lands og Litháen í Kaplakrika á sunnudagskvöldið. Björgvin fór á sjúkrahús strax eftir leik og þegar Morgunblaðið heim- sótti hann þangað í gær var allt útlit fyrir að hann fengi að fara heim í gærkvöldi. „Ég er ekki enn búinn að sjá atvikið, en mér er sagt að þetta Ifti út fyrir að vera viljandi hjá Lit- háanum," sagði Björgvin á milli samanbitinna tannanna, en vegna kjálkabrotsins eru kjálkar hans bundnir saman með vírum. Eg sá ekki hvernig þetta gerðist því maðurinn kom á blindu hliðina á mér. Ég hélt fyrst að það hefði losnað jaxl en svo fann ég að bitið var rammskakkt og þegar menn fóru að koma við kjálkann fann ég að ég var brotinn," sagði Björgvin, sem fór ekki á sjúkrahús fyrr en leiknum lauk. „Ég vildi klára að fylgjast með strákunum þó svo að ég ætti ekki von á að fá að fara meira inná.“ Neðri kjálki Björgvins ertvíbrot- inn, bæði hægra megin, þar sem bólgan er mest, og einnig vinstra megin. „Það er ekki algengt að menn kjálkabrotni í handbolta, fremur að það brotni nef eða kinn- bein. Ég hef aldrei meiðst áður, hvorki brotnað né slitið mig og það má því búast við að það sé erfiður mánuður framundan. Læknarnir tala um að ég verði með víravirkið í fjórar vikur og ef til vill verði hægt að slaka eitthvað á því eftir þrjár vikur en þangað til verður þetta alveg rígbundið. Ég verð á fljótandi fæði í mánuð þannig að ég verð að passa mig að léttast ekki of mikið og reyna að hreyfa mig til að koma í veg fyrir vöðvarýrnun. Ég má fara að æfa rólega, lyfta og skokka auk þess að skjóta á mark. Það er best fyrir mig að drekka úr glasi, ég reyndi í morgun að borða súpu með skeið en það sullaðist bara yfir mig allan.“ Björgvin lék tvo leiki með KA á móti Kaunas frá Litháen í Evrópu- keppninni ekki alls fyrir löngu og síðan tvo landsleiki við Litháa, og var fyrri leikurinn í Kaunas þar sem KA hafði leikið nokkru áður. „Það hefur gengið talsvert á í þess- um leikjum. Það sauð uppúr eftir leik KA og Kaunas og kom til rysk- inga en maður hafði ekki áhyggjur af því þar sem maður var sannfæð- ur um að þangað ætti maður aldr- ei eftir að koma aftur. Landsleikur- inn í Kaunas var líka sögulegur og ég kom allur klipinn og klórað- ur úr honum, sem er ekki algengt að gerist.“ Björgvin starfar sem leiðbein- andi við Síðuskóla á Akureyri og hafði verið í vikufríi vegna lands- liðsins þegar þetta kom fyrir. „Þetta kemur auðvitað á slæmum tíma vegna skólans en skólayfir- völd hafa verið mjög almennileg og vonandi verður það áfram. Ég hef umsjón með 9. bekk og kenni honum samfélagsfræði og dönsku, og 7. bekk kenni ég stærðfræði og 10. bekk þýsku. Ég mæti í vinn- una um leið og ég get þegar mesta bólgan er farin úr andlitinu.“ Það var nóg að gera hjá Björg- vini þegar Morgunblaðið heimsótti hann. Hann þurfti að skjótast í símann, taka á móti blómum og fleiri gesti bar að garði. Hann virt- ist halda léttleikanum og góða skapinu og kímnin var á sínum stað. „Það er verst að nú missir maður af flugeldasýningu og tíu þúsund áhorfendum í Zagreb með KA og nokkrum deildarleikjum að auki, en maður verður að líta á björtu hliðarnar. Ég hefði getað slitið krossband eða eitthvað annað sem hefði getað verið að plaga mig alla tíð,“ sagði hornamaðurinn Björgvin Björgvinsson. Udinese vill annan leik við Juve UDINESE hefur farið fram á það við ítalska knattspyrnu- sambandið að leikur liðsins á móti Juventus, sem fram fór um síðustu helgi, verði spilað- iu* aftur. Ástæðan er „mann- leg mistök“ þegar dómari leiksins tók löglegt mark af Udinese. Juve vann umrædd- an leik, 4:1, en í stöðunni 1:1 skoraði þýski landsliðsmaður- inn Oliver Bierhoff mark fyr- ir Udinese þar sem boltinn fór inn fyrir marklínuna. Mynd- band þykir sanna að boltinn hafi farið inn fyrir línuna og því hefði átt að dæma mark. „Reglurnar eru skýrar - ef dómara verður á mistök þarf að endurtaka leikinn," sagði Giampaolo Pozzo, sljórnar- maður Udinese. „í öðrum löndum, eins og Þýskalandi, er hægt að styðjast við mynd- bandsupptökur í tilfelli sem þessu þar sem Jjóst er að um mistök dómarans hafi verið að ræða.“ Reglur á Ítalíu segja hins vegar að aðeins er hægt að styðjast við myndband ef um óréttmæta brottvísun eða áminningu sé að ræða. KARATE Fyrsti meistaratitill Selfyssinga MEISTARAMÓT íslands í karate fór fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti um sl. helgi og var þetta fyrri hluti mótsins - keppt var í kumite. Keppendur reyndu með sér í fimm flokkum karla og einum flokki kvenna, auk sveitakeppni karla. Selfyssingur- inn Ingólfur Snorrason hafði yfir- burði í ;80 kg flokki og vann sinn fyrsta íslandsmeistaratitill í kar- ate. Halldór Svavarsson landsliðs- þjálfari sigraði örugglega í -65 kg flokki og er þetta í tíunda sinn sem hann verður íslandsmeistari ein- staklinga í karate. Halldór sigraði Bjarka Birgisson félaga sinn úr KFR örugglega 5-1 í úrslitaviður- eign. Daníel Axelsson, Þórshamri, hafði síðan betur í einvígi við Gunnlaug Sigurðson, Haukum, í keppni um þriðja sætið. í -73 kg flokki varð Jón Ingi Þorvaldsson, Þórshamri, sigurvegari með mikl- um yfirburðum. Hann var Sigur- geir Kortsson 6-0 í úrslitum. Birg- ir Tómasson, úr Fylki og Björgvin Hilmarsson, KFR, áttust við í jafnri viðureign um 3. sætið og hafði Birgir betur 1-0. Bjarni Kærnested, Þórshamri, stóð uppi sem sigurvegari í -80 kg flokki eftir að hafa unnið Konr- áð Stefánsson, KFR, í fjörlegri viðureign um gullið, 6-2. I þriðja sæti varð Benedikt Valdimarsson, KFR, eftir sigur á féiaga sínum Björgvini Þorsteinssyni. Ingólfur Snorrason, Selfossi, hafði yfirburði í -80 kg flokki og fór létt með Árna Þór Jónsson í úrslitum, 6-0. Þetta var fyrsti ís- landsmeistaratitill Ingólfs og jafn- framt félags hans í karate. Ingólf- ur átti ekki vandræðum með að vinna alla andstæðinga sína í keppni í opnum flokki karla. Skor- aði hann yfirleitt fullt hús stiga í viðureignum sínum við þá. Jón Ingi var eini keppandinn sem náði að vinna stig gegn Ingólfi, en þeir áttust við í keppni um 1. sætið og lyktaði viðureigninni 5-1. Bjarni hiaut 3. sætið eftir viðureign við Árna Þór. Ingólfur var að vonum ánægður með sinn fyrsta íslandsmeistaratjt- il. „Þetta er bara sá fyrsti. Ég ætla mér stóra hluti í karate á næstu árum,“ sagði hann. Edda Blöndal, Þórshamri, vann eitt árið enn í opnum flokki kvenna og þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigrinum. Hún vann Sólveigu Éin- arsdóttur 3-1 í úrslitum. Bronsið kom í hlut Védísar Siguijónsdóttur úr Fjölni. Sveitakeppnin var bráð- skemmtileg, en í henni hefur Þórs- hamar unnið gullverðlaun þrjú síð- ustu ár, eftir að sveit KFR hafði hampað sigri frá upphafi. KFR mætti með sína sterkustu sveit en skarð var fyrir skildi hjá Þórs- hamri þar sem Ólafur Nielsen, þeirra sterkasti maður, var fjarri góðu gamni. Sveit KFR vann tvær fyrstu viður- eignirnar og Þórshamar vann tvær þær næstu og var því jafnt á met- um. Bjarki Birgisson tryggði síðan KFR sigur með því að hafa betur, 6-1 í viðureign við Sigurgeir Korts- son. Þar með hampaði sveit KFR sigri í sveitakeppninni eftir að sveitabikarinn hafði verið í húsa- kynnum Þórshamars sl. þrjú ár. MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 B 3 KORFUKNATTLEIKUR AMERÍSKI FOTBOLTINN Chambers O’Neal biðst afsökunar SHAQUILLE O’Neal, miðheiji LA Lakers, baðst í gær afsökunar á framferði sínu um helgina þegar hann sló harkalega til Greg Ost- ertag, miðheija Utah Jazz þannig að sá síðarnefdni féll í gólfið. Þetta gerðist í upphitun fyrir leik liðanna en O’Neal lék ekki með þótt hann hitaði upp. O’Neal var dæmdur til að greiða ríflega 700 þúsund krónur í sekt og fékk að auki eins leiks bann. „Ég gerði mistök og bið alla hlutaðeigandi afsökunar, samhetja mína, áhorfendur og Greg og vona að hann fyrirgefi mér og við getum gleymt þessu atviki,“ sagði O’Neal í gær. Jordan líklega í bann JO Jo Chambers, bandaríski leikmaður Þórs á Akureyri, á yfír höfði sér tveggja leikja bann. Hann sló með útréttri hendi til Keflvíkings í lok leiks liðanna í bikarkeppninni á sunnudaginn og fékk brott- rekstrarvillu hjá dómurum leiksins. Þeim ber að senda inn kæru um atburði sem þennan og hafa gert það og verður málið tekið fyrir hjá aganefnd KKÍ á þriðjudaginn í næstu viku. bjargvætt- ur Bulls MICHAEL Jordan, aðalstjarna meistara Chicago Bulls í NBA- deildinni í Bandaríkjunum, var enn og aftur bjargvættur liðsins er það sigraði San Antonio Spurs í fyrrinótt. Jordan gerði 29 stig, jafnaði með síðustu körfunni ívenjulegum leiktíma, aftur eftir fyrri framlengingu og tryggði sigurinn í lok síðari framleng- ingar, en Bulls vann 87:83. Eins og tölurnar bera með sér var ekki mikið skorað og sem dæmi um nýtinguna má nefna að Jord- an hitti úr 12 af 39 skotum og alls hitti liðið úr 33 skotum af 108, eða 31 %. Jordan setti fyrsta þriggja stiga skot sitt í vetur um leið og leiktíminn rann út og tryggði Bulls framlengingu. Bow fær ekki að vera með VONIR forráðamanna KKÍ og íslenska landsliðsins í körfuknattleik ura að Jónatan Bow fengi að leika með landsliðinu í Evrópukeppn- inni eru nú orðnar að engu. Reglur FIBA, alþjóða körfu- knattleikssambandsins, eru strangar og þurfa menn að hafa verið ríkisborgarar í við- komandi landi í ákveðinn fjölda ára áður en þeir fá að leika með landsliði. FIBA hefur svarað beiðni KKI um leikheimild fyrir Bow neit- andi. Við vorum heppnir að vinna. Enginn okkar hitti vel í dag og leikmenn Spurs lokuðu alveg á okkur inni í teignum,“ sagði Jordan eftir leikinn. Dennis Rodman tók 22 fráköst áður en hann fékk sína sjöttu villu og Jordan náði 13 fráköstum. Phil Jackson, þjálfari Chicago, sá þó eitthvað gott við leikinn. „Ef þið kunnið að meta varnarleik þá var leikurinn góður. Það er sjaldgæft að lið, sem tekur yfir 100 skot í leik og skorar aðeins úr þriðjungi þeirra, nái að sigra. Ég þakka vörninni og Dennis fyrir fráköstin; það gerði gæfumuninn," sagði Jackson. Hjá Spurs var David Robinson með 21 stig og 12 fráköst og nýlið- inn Tim Duncan gerði 19 stig og tók 22 fráköst. „Þetta var barátta í vörninni allan tímann og það er afrek að halda liði í 30% skotnýt- ingu, sérstaklega þegar um er að ræða Chicago," sagði Gregg Popovich þjálfari Spurs. „En égtek ofan fyrir Bulls-liðinu. Það fann leið til að sigra þrátt fyrir allt og þess vegna er það besta liðið,“ bætti hann við. Glen Rice hrökk loks í gang í fyrrinótt er hann gerði 28 stig fyr- ir Hornets er liðið vann Heat 112:99 í Miami. Rice, sem var keyptur til Charlotte frá Miami fyrir tveimur árum, hafði aðeins gert 21 stig í fyrstu tveimur leikj- um liðsins í vetur og nýtingin var aðeins 27%. í fyrra gerði hann 26,8 stig að meðaltali og var valinn mikilvægasti maður stjörnuleiks- ins. „Það er alltaf eins og að koma heim þegar ég kem til Miami,“ sagði Rice eftir leikinn. „Hér hóf ég ferilinn og mig langaði að sýna fólkinu hér, sem heldur ennþá með mér, hvað ég get,“ bætti hann við. Chris Webber fór fyrir leik- mönnum Washington Wizards er liðið vann Utah Jazz 90:86; gerði 26 stig og tók 13 fráköst. Þetta var fyrsti sigur Washington í Salt Lake City í áratug. Juwan Howard gerði 19 stig og tók 10 fráköst en hjá Jazz var Karl Malone stiga- hæstur með 21 stig og tók auk þess 16 fráköst. Jazz tapaði aðeins fjórum leikjum á heimavelli í fyrra, þar með taldir leikirnir í úrslita- keppninni. Dregið í Aþenu ’ DREGIÐ var í riðla fyrir HM í körfuknattleik sem fram fer í Aþenu í Grikklandi næsta sumar. Sextán þjóðir hafa tryggt sér rétt til keppni þar og í A-riðli leika Grikkir, Kanada, Italía og Senegal. Júgóslavía, Puerto Rikó, Rússland og Japan eru í B- riðli, Bandaríkin, Brasilía, Litháen og Kórea í C-riðli og í D-riðli leika Ástralía, Arg- entina, Spánn og Nígería. MICHAEL Jordan treður án þess að nýliðinn Tlm Duncan hjá Spurs fái rönd vlð reist. Kúrekar úr leik? j^tórleikur helgarinnar í NFL-deild ameríska fótboltans var í San Francisco þegar heimaliðið fékk Dallas Cowboys í heimsókn. Gunnar Þessi lið hafa keppt til Valgeirsson sigurs í Landsdeildinni á skrifar frá undanförnum árum og Bandaríkjunum leikir þeirra eru ávailt þýðingarmiklir. San Francisco 49ers hafði unnið sjö leiki í röð og er nánast öruggt í úrslita- keppnina, þar sem önnur lið í þeirra riðli yirðast ólíkleg til að ógna forystu þess í riðlinum. Á sama tíma hafði kúrekun- um frá Dallas gengið mjög illa og liðið þurfti nánast að vinna þá leiki sem eftir eru ef það ætlaði að komast í úrslita- keppnina. Þrír riðlar eru í hvorri deild °g fara sigurvegarar hvers þeirra, auk tveggja annarra liða, í úrslit í livorri deild. Dallas mætti óvenjuhresst til leiks og náði 7-0 forystu í hálfleik. Vörn liðsins hélt sókn San Francisco í skefjum í fyrri hálfleik, en um miðjan þann seinni komst sókn heimaliðsins loks i gang og 49ers náði 14-10 forystu eftir tvö snertimörk. Liðið bætti síðan vallarmarki við og for- ystan var sjö stig, 17-10, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Dallas gat jafn- að með snertimarki og rétt fyrir leikslok virtist sem svo myndi verða þegar besti kantmaður liðsins, Michael Irvin, var hindraður rétt við mark 49ers eftir langt kast leikstjórnandans, Troy Aikman. Einn dómaranna kastaði flaggi sínu til merkis um að hindrun hefði átt sér stað, en eftir ráðstefnu við samdómara ákvað hann að láta brotið, sem sást vel í sjón- varpi, eiga sig. Dallas tapaði boltanum strax þar á eftir og sigur heimaliðsins var í höfn. „Dómarinn sem var rétt hjá okkur sagði fyrst að hann hefði séð brot- ið, en annar dómari sem kom að sagði að við hefðum flækt fótunum saman. Þá skipti hinn um skoðun; þorði ekki að standa við dóminn. Þetta var ótrúlegt óréttlæti,“ sagði Irvin eftir leikinn. Kraftaverk virðist þurfa til að lið Dallas fari að ganga betur, og ekkert bendir til að það gerist. Víkingarnir frá Minnesota vinna nú hvern leikinn á fætur öðrum. Á sunnu- dag vann liðið New England, 23-18. Minnesota er nú jafnt meisturunum frá Green Bay í sínum riðli, en meistararnir unnu Detroit Lions, 20-10, á heima- velli á sunnudagskvöld. í ameríkudeildinni heldur Denver Broncos áfram að vinna. Stóðhestarnir unnu Seattle Seahawks í hörkuleik á Mile High Stadium, 30-27. Denver er með besta árangurinn í deildinni, átta sigra og eitt tap. New York Jets er eitt í fyrsta sæti austurriðils í fyrsta sinn síðan 1986. Liðið hefur komið nokkuð á óvart, sér- staklega þegar haft er í huga að það vann aðeins einn leik á síðasta keppnis- tímabili. Þoturnar unnu Baltimore Rav- ens í enn einum hörkuleiknum, 19-16 í framlengingu. Guðmundur ann ar í Danmörku Guðmundur Stephensen, ís- landsmeistari í borðtennis úr Víkingi, varð í 2. sæti á sterku stigamóti sem fram fór í Dan- mörku um helgina. Guðmundur lék við ungan Dana, Michael Mais, í úrslitum og var leikur þeirra æsi- spennandi og jafn og þurfti odda- lotu til að knýja fram úrslit. Guð- mundur vann fyrstu lotuna, 21:16, tapaði annarri 21:18 og oddalot- unni 21:18. Þess má geta að Guðmundur og Mais léku saman til úrslita í tvíliða- leik á Evrópumeistaramóti ungl- inga sumarið 1996 og höfnuðu í öðru sæti. GUÐMUNDUR Stephensen Gunnlaugur kominn heim GUNNLAUGUR Jónsson, knattspyrnumaður af Akranesi, er kominn heim frá Skotlandi þar sem hann reyndi fyrir sér hjá Motherwell í úrvalsdeildinni. „Það má segja að ég sé kominn á byrjunarreit aftur. Min mál eru nú í biðstöðu, en ég gef ekkert uppá bátinn,“ sagði Gunnlaugur í samtali við Morgunblaðið í gær. Gunnlaugur gerði mánaðarsamning við Motherwell og stóð til að framlengja hann. Ákveðið var að Gunnlaugur færi heim á sunnudaginn og til Skotlands aftur í dag. „Ég var hræðilegur í leiknum á laugardaginn þannig að þeir ákváðu að finna sér einhvern reyndari í þessa stöðu. Svona er þetta nú bara. Mér gekk vel i upphafi en síðan illa þannig að nú er ég að leita fyrir mér annars staðar,“ sagði Gunnlaugur. BORÐTENNIS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.