Morgunblaðið - 30.06.1999, Page 2

Morgunblaðið - 30.06.1999, Page 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 C 3 URSLIT Breiðablik - ÍR 1:0 Kópavogsvöllur, Bikarkeppni KSÍ - 16 liða úrslit, þriðjudaginn 29. júní 1999. Aðstæður: Norðan gjóla, heitt og þurrt. Völlur góður. Mark Breiðablik: Bjarki Pétursson (47.) Gult spjald: Breiðablik: Sigurður Grétars- son (34.) fyrir brot, Guðmundur Örn Guð- mundsson (89.) fyrir brot. Rautt spjaid: Enginn. Dómari: Ólafur Ragnarsson. Áhorfendur: Um 220. Breiðablik: Atli Knútsson - Guðmundur Öm Guðmundsson, Asgeir Baldursson, Sig- urður Grétarsson (Guðmundur Karl Guð- mundsson 74.), Hjalti Kristjánsson - Hreið- ar Bjarnason, Hákon Sverrrisson, Kjartan Einarsson, Salih Heimir Porca - Marel Jó- hann Baldvinsson, Bjarki Pétursson (Ivar Sigurjónsson 57.). IR: Tómas Ingason - Bjarki Þór Hafþórs- son, Kristján Halldórsson, Magni Þórðar- son, Amór Gunnarsson - Bjarni Gaukur Sigurðsson (Ólafur Brynjólfsson 77.), Jón Þór Eyjólfsson, Njörður Steinarsson (Grét- ar Már Sveinsson 69.), Araar Þór Valsson - Heiðar Ómarsson (Jón Auðunn Sigurbergs- son 84.), Sævar Þór Gíslason. Keflavík - ÍBV 1:3 Keflavíkurvöllur: Aðstæður: Heiðskírt og hægur andvari, til- tölulega hlýtt, völlurinn þokkalegur. Mark Keflavíkur: Gestur Gylfason (65.). Mörk ÍBV: Guðni Rúnar Helgason (51.), All- an Mörköre (61., 70.). Gult spjald: Enginn. Rautt spjald: Enginn. Dómari: Egill Már Markússon. Aðstoðardómarar: Örn Bjamason, Einar Guðmundsson. Keflavík: Bjarki Guðmundsson - Karl Finn- bogason, Garðar Newmann, Kristinn Guð- brandsson, Guðmundur Brynjólfsson (Adolf Sveinsson 75.) - Ragnar Steinarsson (Ró- bert Ó. Sigurðsson 16.), Gunnar Oddsson, Eysteinn Hauksson, Zoran Ljubicic (Marko Tanasic 46.), Gestur Gylfason - Kristján Brooks. ÍBV: Birkir Kristinsson - ívar Bjarklind, Zoran Miljkovic, Kjartan Antonsson, Hjalti Jóhannesson - Allan Mörköre, Baldur Bragason, ívar Ingimarsson, Ingi Sigurðs- son, Guðni Rúnar Helgason (Goran Aleksic 67.) - Steingrímur Jóhannesson. Áhorfendur: 691. Þróttur R. - Víkingur 0:1 Valbjamarvöllur: Aðstæður: Völlurinn nokkuð góður, veður eins og best verður á kosið, norðan gola og léttskýjað og hiti um 13 gráður. Mark Víkings: Sumarliði Ámason (20. - vsp.). Gult spjald: Amaldur Loftsson, Þrótti (55.) - fyrir brot. Víkingarair: Arnar Hallsson (31.), Bjarai Hall (45.) - báðir fyrir brot. Rautt spjald: Enginn. Dómari: Jóhannes Valgeirsson. Slakur. Áhorfendur: Um 200. Þróttur: Fjalar Þorgeirsson - Arnaldur Loftsson (Brynjar Sverrisson 85.), Páll Ein- arsson, Kristján Jónsson - Ómar Sigtryggs- son (Vignir Þór Sverrisson 79.), Þorvaldur Ásgeirsson, Þorsteinn Halldórsson, Ingvar Ólason, Logi Jónsson - Hreinn Hringsson, Ásmundur Haraldsson. Víkingur: Ögmundur Rúnarsson - Þrándur Sigurðsson, Þorri Ólafsson, Gordon Hunter (Valur Úlfarsson 68.), Arnar Hallsson - Lár- us Huldarson, Hólmsteinn Jónasson, Daníel Hjaltason (Alan Prentice 57.), Bjarni Hall - Sumarliði Araason (Sváfnir Gíslason 46.), Arnar Hrafn Jóhannesson. FH - Stjaman 0:4 Kaplakrikavöllur, Bikarkeppni KSÍ -16 liða úrslit, þriðjudaginn 29. júní 1999. Aðstæður: Hægur vindur, hlítt og þurrt. Völlur þokkalegur. Mörk Stjörnunnar: Veigar P. Gunnarsson (9. 64.85.), Boban Ristic (68.) Gult spjald: Ekkert. Rautt spjald: Ekkert. Dómari: Gylfi Orrason. Áhorfendur: Um 150. FH: Guðjón S. Jónsson - Jóhann Tómas Sig- urðsson, Andri Marteinsson, Róbert Magn- ússon, Sigurður Elí Haraldsson, Guðlaugur Baldursson, Davíð Ólafsson, Hallsteinn Arn- arson, Jónas Grani Garðarsson, Jón Gunnar Gunnarsson (Hilmar Erlendsson 67.), Hörð- ur Magnússon (Erlendur Gunnarsson 67.) Stjarnan: Rögnvaldur Johnsen - Rúnar P. Sigmundsson (Þorgils Þorgilsson 82.), Her- mann Arason, Reynir Björasson, Sæmund- ur Friðjónsson (Helgi Björgvinsson 77.), Bemharð Guðmundsson, Veigar P. Gunn- arsson, Valdimar Kristófersson, Sigurður Friðriksson, Boban Ristic (Kristján Másson 81.), Dragan Stojanovic. Bikarkeppni kvenna Undankeppni, önnur umferð: Fjölnir - IBy......................0:7 Grindavík - ÍA.....................4:3 KVA - Þór/KA.......................0:5 Hvöt - RKV.........................1:3 • Siguriiðin eru komin í 8-liða úrslit ásamt KR, Val, Fjölni og Stjörnunni. NM-mót stúlkna Fer fram í Hollandi. 2. RIÐILL: ísland - Noregur....................1:1 Elfa B. Erlingsdóttir. Frakkland - Svíþjóð ...............1:1 l.RIÐILL: Þýskaland - Danmörk................1:0 Holland - Finnland ................2:1 Gotf Opna Kays hjá Keili Án forgjafar: 1. Björgvin Sigurbergsson, Keili....72 2. Úlfar Jónsson, Keili.............73 3. Albert Elísson, Keili............74 Ásgeir Guðbjartsson, Keili .......74 Gunnar Marel, Keili...............74 Með forgjöf: 1. Bjarki Sigurðsson, Keili.........66 2. Sigurgeir Sigurgeirsson, GSE ....67 3. Gunnar Marel, Keili..............68 í KVÖLD Knattspyrna Bikarkeppni karla, 16-liða úrslit: Frostaskjól: KR - Fylkir............20 Hornafirði: Sindri - Haukar ........20 Laugardalur: Fram U23 - ÍA .........20 Hiíðarendi: Valur - Víðir...........20 Dugarry féll á lyljaprófi CHRISTOPHE Dugarry, sóknarmaður Marseille og franska landsliðsins, mældist með anabólíska stera í blóðinu eftir leik á móti Lyon hinn 30. apríl. Þetta kom fram í frönskum fjölmiðlum í gær en hvorki Marseille né franska knattspymusambandið vildu staðfesta málið. Dugarry neitar sjálfur að hafa tekið ólögleg lyf og sagðist mundu reyna að hrekja niðurstöðu lyfjaprófsins. Ef málið sannast getur hann átt yfir höfði sér sex mánaða lcikbann. Síðan 1997 hafa sex franskir knattspyrnumenn tekið út leikbann vegna lyfjanotkunar. Þeirra á meðal Vincent Guerin og Cyrille Pouget sem fengu sex mánaða bann. Ilur kL 2H L kvöld 16 liða úrslit Coca Cola bikarsins SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA KR útvarp Bein útsending frá ki. 17 til 23. Upphitun á Rauða Ijóninu. Pottréttur, pizzur og bjór á torgi. Skeljungur hf. Fylkismenn Upphitun á Blásteini kl. 18. Fríar rútuferðir á KR-völlinn frá kl. 19. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Glittir í gamla takta hjá Eyja- mönnum Eyjamenn léku aftarlega á vellinum í fyrri hálfleik og gerðu sig ekki líklega til að ógna marki Keflvíkinga en í þeim síðari var mikill kraftur í leikmönnunum, enda Qrn skoruðu þeir þrjú mörk. Bjarni Amarson Jóhannsson, þjálfari Vestmann- skrifar eyinga, sagði eftir leikinn að þetta hefði verið ákveðið fyrir- fram. „Við ætluðum að leika agaðan leik og ró- legan. Keflvíkingamir eyddu miklu púðri í fyrri hálfleik og við sáum ákveðna sóknarmöguleika í þeim síðari og skoruðum tvö mörk. Það gerði út um leikinn.“ Bjami sagði að leikur liðsins hefði mótast af reynslunni sem Eyjamenn hafa af Keflvfldng- um. „Það er ekkert ömggt á móti Keflavík og það vitum við Vestmanneyingar mætavel. Þetta er gott lið og þess vegna þarf að leika agaðan leik á móti þeim. Það gerðum við og uppskámm sigur.“ Bjarni er bjartsýnn á framhaldið í Islands- mótinu. „Liðið fer batnandi með hverjum deg- inum sem líður og maður er farinn að sjá glitta í gamla takta. Við emm komnir áfram í bikarn- um og deilum efsta sætinu með KR. Ég get ekki annað séð en framhaldið sé bjart.“ Raddir hafa verið uppi um að íslensk knatt- spyma hafí verið fremur leiðinleg undanfarin ár. Bjami segir að þær raddir tali ekki af skyn- semi. „Deildin er ágæt að mínu mati. Það hefur verið kvartað yfír að knattspyrnuna hér skorti skemmtanagildi en ég held að menn átti sig ekki almennilega á hversu mikið álag er á liðun- um. Það er ekki hægt að ætlast til þess af mönnum að þeir séu alltaf á fullu. Ég er sann- færður um að það sem eftir lifir Islandsmóts eigi eftir að vera mjög skemmtilegt og ekki síð- ur spennandi.“ Klaufaskapur af okkar hálfu Þau vora þung skrefín þegar Kristinn Guð- brandsson, fyrirliði Keflvíkinga, gekk af velli í leikslok. „Við gleymdum okkur þrisvar í vöm- inni og það þurfti ekki meira til fyrir Eyja- menn. Þetta var algjör klaufaskapur af okkar hálfu og lítið mál hefði verið að koma í veg fyrir þessi mörk.“ Keflvíkingar sóttu stíft allan leikinn og voru framan af leik líklegri til að fara með sigur af hólmi. Kristinn sagði að liðið hefði gleymt vam- arleiknum í öllum sóknarhamnum. „Það er alltaf hætta á þessu þegar lið sækja stíft en það á ekki að koma fyrir ef menn halda einbeit- ingu.“ Morgunblaðið/Jim Smart ÍVAR Ingimarsson og Kristján Brooks berjast um knöttinn í gærkvöldi. Tvö mörk Merkore kaffærðu Kefhnkinga ÍSLANDS- og bikarmeistarar Eyjamanna eru komnir í átta liða úr- slit bikarkeppni KSÍ eftir að hafa borið sigurorð af Keflvíkingum, 3:1, á Suðurnesjum í gærkvöldi. ívar Ingimarsson og Allan Morkore komu titilhöfunum í 2:0, en Gestur Gylfason minnkaði muninn áður en Morkore gaf liði sínu olnbogarými með öðru marki sínu tuttugu mínútum fyrir leikslok. Edwin Rögnvaldsson skrifar IBV og Keflavík mættust eftir- minnflega í tveimur bikarúrslita- leikjum fyrir tveimur árum. Þá fögnuðu Keflvíking- ar sigri og Eyja- menn hafa því ef- laust andað léttar eftir að slegið þá úr keppninni. Þeir fóm varlega í upp- hafí leiks, héldu sig aftarlega á vell- inum, eins og heimamenn. Við það myndaðist pattstaða og fátt mark- vert gerðist áður en Egill Már Markússon dómari flautaði tii leik- hlés. Keflvíkingar sýndu öllu meiri ákveðni, en virtust ragir þegar nær dró vítateig Eyjamanna, sem biðu þess að Suðumesjaliðið hætti sér of langt fram á völlinn til að geta beitt helsta vopni sínu, skyndisóknum með markahæsta mann Islands- mótsins, Steingrím Jóhannesson, í fararbroddi. Lítið bar þó á slíkum tilburðum gestanna. Gestirnir úr Eyjum komu Kefl- víkingum á óvart í upphafí síðari hálfleiks - sóttu ákaft og uppskára mark Guðna Rúnars Helgasonar þegar fimm mínútur vom liðnar. Guðni Rúnar skallaði boltann í markið úr miðjum vítateig eftir aukaspymu Baldurs Bragasonar frá hægri. Markið sló Keflvíkinga út af laginu, en þeir jöfnuðu sig fljót- lega og gerðu heiðarlegar tilraunir til að jafna metin, en þá höfðu leik- menn IBV dregið sig aftar á völlinn og biðu átekta - vissu að Keflvík- ingar myndu taka áhættu áður en yflr lyki og þá gæfust færi á skyndi- upphlaupum. Tíu mínútum eftir að hafa brotið ísinn gerðu Eyjamenn annað mark, sem Bjarki Guðmundsson, mark- vörður Keflvíkinga, átti að koma í veg fyrir. Baldur Bragason sendi fyrir markið frá vinstri og Færey- ingurinn Allan Morkore skallaði af öryggi í tómt markið. Bjarki hras- aði þegar hann reyndi að leiðrétta mistök sín eftir misheppnað út- hlaup. Markið kom eins og reiðarslag fyrir Keflvíkinga sem tókst þó að skora óvænt fjóram mínútum síðar. Boltinn barst til Gests Gylfasonar rétt utan vítateigs og hann átti fast skot í vamarmann og framhjá Birki Kristinssyni, markverði ÍBV. Við þetta hresstust heimamenn lítið eitt, en þeir fylltust svartsýni á nýj- an leik þegar Morkore gerði þriðja mark Eyjamanna á 70. mínútu með góðu skoti efst í hægra markhomið eftir stungusendingu frá Goran Aleksic, sem var nýkominn inn á sem varamaður. Keflvíkingar neituðu þó að gefast upp og Kristján Brooks var óhepp- inn að skora ekki átta mínútum fyr- ir leikslok þegar hann lék laglega á Kjartan Antonsson og skaut í fjær- stöngina úr þröngu færi. I kjölfarið var skot Gunnars Oddssonar varið. Með marki þar hefðu liðin lent í sömu stöðu og í fyrri bikarúrslita- leiknum fyrir tveimur áram, þegar Keflvíkingar jöfnuðu metin með marki Gests Gylfasonar á lokasek- úndunum. Af því varð ekki og sókn- artilburðir Keflvíkinga gáfu Eyja- mönnum einnig færi á að auka mun- inn, en Bjarki Guðmundsson varði glæsilega í tvígang, í síðara skiptið frá Steingrími í dauðafæri. Þrjú lið frá íslandi í Evrópudrætti Dregið verður á Evrópumótunum í knattspymu í dag. Um er að ræða tvær stórar keppnir UEFA, Knatt- spymusambands Evrópu, þ.e. keppni félagsliða (UEFA-keppnina) og Meist- aradeild Evrópu. Þrjú íslensk lið verða í hattinum í dag. Eyjamenn eiga sæti í fyrri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar sem íslandsmeistarar en komast í sjálfa meistaradeildina með sigri í tveimur umferðum. I keppni félagsliða verða KR og Leiftur með í hattinum. KR- ingar hlutu hefðbundið Evrópusæti með því að verða í 2. sæti á Islands- mótinu í f'yrra en Leiftursmenn léku til úrslita í bikarkeppninni gegn Eyja- mönnum og fá því UEFA-sæti - en ekki sæti í Evrópukeppni bikarhafa eins og undanfarin ár. Sú keppni hefur verið lögð niður og áðumefndar keppnir tvær stækkaðar í staðinn. Fyrri umferð forkeppni Meistara- deildarinnar fer fram 14. og 21. júlí nk. Eyjamenn eru þar meðal níu „sterkari" liða og dragast því gegn andstæðingum sem fyrirfram eru taldir lakari. Öðra máli gegnir um UEFA-keppnina en þar eru Leiftur og KR í hópi „lakari“ liðanna, allténd fyrirfram, og lenda gegn andstæðingi sem talinn er sterkari. Fyrsta umferð í þeirri keppni fer fram dagana 12. og 26. ágúst nk. Meðal hugsanlegra mótherja Eyja- manna em HB frá Þórshöfn, Færeyja- meistararnir sem Eyjamenn léku einmitt vináttuleik við í Færeyjum á sumardaginn fyrsta. Þeim leik lauk með jafntefli en ÍBV sigraði í víta- spyrnukeppni og keypti nokkru síðar besta leikmann HB, landsliðsmanninn Allan Mörkore. Að auki má nefna Va- letta frá Möltu, sem mörg íslensk lið hafa leikið gegn á umliðnum áram, og auk þess Flora frá Tallin þar sem þjálfari er enginn annar en Teitur Þórðarson. Sterkasti hugsanlegi andstæðingur Leiftursmanna er belgíska stórliðið Anderlecht en með því lék Arnór Guðjohnsen lengi. Skoska liðið ( Kilmamock er mögulegur mótherji KR en auk þess norska liðið Bodö Glimt og sænska liðið IFK Gautaborg. Forkeppni Meistaradeildar Evrópu Sterkari lið: Nafn Styrkleikastuðull: FK Partizan, Júgóslavíu 7.124 FC Skonto, Lettlandi 6.291 Zimbm, Moldavíu 6.166 FC Lateks, Búlgaríu 4.791 FC Haka, Finnlandi 4.520 FK Zalgiris, Litháen 4.416 ÍBV, íslandi 3.166 FC Sloga, Makedóníu 2.457 . Ban-y Town, Wales 1.916 Lakari lið: FC Flora, Eistlandi 1.291 FC Tsement, Armeníu 1.208 Glentoran, N-írlandi 0.999 St. Patricks A., írlandi 0.916 Valletta, Möltu 0.749 HB Þórshöfn, Færeyjum 0.624 SK Tirana, Albaníu 0.583 AS Jeunesse, Lúxemborg 0.583 FC Kapaz, Aserbaídsjan 0.458 UEFA-keppnin, 1. riðill Sterkari lið: Anderlecht, Belgíu Grazer AK, Austurríki Lyngby FC, Danmörku NK Gorica, Slóveníu Lakari lið: Leiftur, Islandi Inter Cardiff, Wales Bii-kirkara, Möltu KÍ Klakksvík, Færeyjum UEFA-keppnin, 5. riðill Sterkari lið: IFK Gautaborg, Svíþjóð Bodö Glimt, Noregi Kilmarnock, Skotlandi Lokomotiv, Georgíu Lakari lið: KR, íslandi Linfield, N-írlandi Cork City, írlandi FC Vaduz, Liechtenstein Víkingar áfram á umdeildri vrtaspymu JT' VÍKINGAR tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar með því að ieggja Þróttara á Valbjarnarvelli, 1:0. Eina mark leiksins gerði Sumarliði Árnason úr umdeildri vítaspyrnu um miðjan fyrri hálfleik. Þróttarar sóttu nokkuð stíft í síðari hálfleik en uppskáru ekki mark. Valur B. Jónatansson skrifar arátta einkenndi leik liðanna 'frá fyrstu mínútu. Víkingar vora beittari framan af og skomðu mark sem dæmt var af eftir stundarfjórð- ung. Hólmsteinn átti þá hörkuskot sem Fjalar markvörður Þróttar varði vel en missti frá sér. Arnar Hrafn fylgdi á eftir og setti boltann yfir marklínuna, en var dæmdur rangstæður því hann var fyrir innan vamarlínu Þróttar þeg- ar Hólmsteinn skaut að marki. Að- eins fimm mínútum síðar kom markið sem réð úrslitum. Láms Huldarson tók þá langt innkast inn í vítateig Þróttar og þar var ýtt að- eins við Þrándi Sigurðssyni, sem féll með tilþrifum, og vítaspyma dæmd - strangur dómur. Sumarliði skoraði úr vítinu af öryggi efst í vinstra markhomið. Eftir markið óx Þróttumm ás- megin, vora meira með boltann en uppskám fá_ marktækifæri. Það besta fékk Ásmundur Haraldsson sem var vel varið. Á lokamínútu hálfleiksins vildu Þróttarar fá víti er einum leikmanni þeirra var haldið niðri í vítateig Víkings, án þess að slakur dómari leiksins, Jóhannes Valgeirsson, gerði nokkra athuga- semd við það. í síðari hálfleik var fátt um fína drætti. Þróttarar réðu ferðinni en færin vom af skomum skammti gegn sterkri vöm Víkings. Hreinn Hringsson fékk þó sannkallað dauðafæri á 56. mínútu er hann var einn fyrir opnu marki eftir góða sókn, en skaut framhjá. Víkingar vom í tvígang nálægt því að bæta við mörkum. Slakt í Kópavoginum Ekki verður bikarleikur Breiða- bliks og ÍR, sem fram fór í Kópavogi í gærkvöldi, lengi í minn- um hafður. Efstu- deildarlið Breiða- bliks var ekki sann- færandi en þó betra liðið á vellinum því Breiðhyltingar, sem spila í 1. deild, vora enn síður sannfærandi. Eftir stendur að Blikar unnu 1:0 og halda áfram í keppninni. Gestirnir hlupu mikið í byrjun en það skapaði enga hættu og frekar að heimamenn, með yfirvegaðri leik, yllu meiri usla. Hvort lið fékk aðeins eitt ágætt færi. Strax í upphafi síðari hálfleiks fengu IR-ingar á sig klaufalegt mark, sem Bjarki Pétursson skor- aði, en urðu við það enn ákveðnari svo að Blikar hörfuðu aftar á völl- inn. Færin létu samt á sér standa þar til á síðustu mínútunum. Þá varði Tómas Ingason, markvörður IR, gott skot Salih Heimis Porca en eftir það skall hurð oft nærri hælum Kópavogsbúa og geta þeir þakkað klaufaskap ÍR-inga að ekki fór illa. Aftur stórsigur Stjörnunnar Lið Stjörnunnar átti ekki í mikl- um vandræðum með FH-inga bikarkeppninni í gærkvöldi frekar en í deildinni á föstu- dag. Þá unnu Stjömumenn 4:1 en núna 4:0. Bæði, lið mættu mjög ákveðin í blíðskaparveðri á Gylfi Hafsteinsson skrifar til leiks fyrstu færin en eftir að Stjarnan skoraði úr sínu fyrsta, á 9 mínútu, dró strax úr FH-ingum. Það var vel að markinu staðið. Há sending kom að markinu og Rúnar P. Sigmunds- son skallaði nær markinu. Þar var Veigar P. Gunnarsson og skaut við- stöðulaust í fjærhomið. Á 37. mínútu hefðu FH-ingar get- að jafnað metin, þegar Jónas Grani Garðarsson náði skoti að marki eftir þunga sókn FH, en Sæmundur Friðjónsson bjargaði á línu. Stjörnumenn hófu síðari hálfleik- inn af mun meiri krafti en bættu ekki við marki fyrr en á 64 mínútu. Þá reyndi Boban Ristic skot af löngu færi en hitti boltann ekki bet- ur en svo að skotið varð að sendingu inn fyrir FH-vömina á Veigar P. Gunnarsson sem skoraði aftur. Fjóram mínútum síðar bættu þeir við þriðja markinu. Veigar átti þá sendingu frá vinstri kanti að stöng- inni fjær þar sem Boban Ristic var óvaldaður og skoraði. Eftir þetta mark varð leikurinn einstefna Stjömumanna. FH-liðinu gekk ekk- ert að skapa sér færi enda miðja og vörn Stjömumanna mjög sterk í síðari hálfleik. Sigurður Friðriksson átti heiður- inn að fjórða marki Stjömunnar. Hann átti skot í stöng og enn var Veigar á réttum stað inni í teignum tO að koma boltanum alla leið og gerði þar með þriðja mark sitt. Þrátt fyrir tvo stóra sigra á FH á fimm dögum vildi Valdimar Kristó- fersson, fyrirliði Stjömunnar, ekki viðurkenna að Stjömuliðið væri mun betra en FH. „Við höfum verið á mikilli uppleið í síðustu leikjum. Við leikum mjög vel saman og spil- um skipulagt. Við vissum að þeir kæmu brjálaðir í þennan leik eftir tapið á fóstudaginn svo við ákváðum að koma enn ákveðnari í þennan leik en þá - og ég held það hafi tek- ist,“ sagði Valdimar. Golfmót Grafarholti - Korpúlfsstöðum Golfkiúbbur Reykjavfkur Grafarholti 587 2211 Korpúlfsstöðum 586 2211 19. XXII GR-OPNA, helgina 3. og 4. julí. Laugardaginn 3. júlí, leikið á Korpúlfsstaðavelli Sunnudaginn 4. júlf, leikið á Grafarholtsvelli 1. Golfferðir til Islantilla frá Úrval Útsýn 2. Utanlandsferðir frá Samvinnuferðum Landsýn 3. Evrópuferðir með Flugleiðum 4. Evrópuferðir með Flugleiðum 5. GSM símar og frelsi frá Landssímanum 6. Nokia 5110 GSM frá Landssímanum 7. Talfrelsi og GSM stmar frá Tal 8. Canon IXUS M-1 myndavélar 9. Útigrill frá Olís 10. Vélsleðaferð fyrir 2 frá Geysi-Vélsleðaferðum 11. Fataúttekt í Sand, Kringlunni kr. 10.000 12. Matarkörfur, frá Ferskum Kjötvörum 13. Matarkörfur, frá Kjarnafæði 14. Vöruúttektir frá Húsasmiðjunni kr. 10.000 15. Hekkklippur frá Vetrarsól Nándarverðlaun, Korpa: 4. braut Golfregngalli frá Spar Sport, kr. 15.000 7. braut Vöruúttekt hjá Sólningu, kr. 10.000 11. braut Vöruúttekt hjá Golfverslun Reykjavíkur kr. 10.000 16. braut Út að borða á Café Óperu kr. 10.00C Nándarverðlaun: Grafarholt 2. braut Vöruúttekt kr. 10.000, veitingasala GR, Grafarholti 6. braut Út að borða á Café Óperu kr. 10.000 11. braut Vöruúttekt frá Golfverslun Reykjavíkur, kr. 10.000 17. braut Hjól frá Erninum Dregið úr skorkortum i leikslok, 2 vinningar. Aðeins viðstaddir fá verðlaun. Keppnisgjaid kr. 4.000 á mann. Munið forgjafarskírteinin. Leikfyrirkomulag: Punktakeppni 2 í liði, betri bolti. Full forgjöf, hæst gefið 18. (1 punkt á holu). Skráning á skrifstofu GR í síma 587-2211. Skráningu lýkur föstudaginn 2. júlí, kl. 18:00. flugleidirjT^ ÚRNINN Ferskar Kjötvörur MmftmsfN Ssinviiiiiiilerðlr HÚSASMIÐJAN 4 4 ÚRVfiLÚTSÝN Kaplakrikavelli. FH-ingar áttu tvö

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.