Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
Magic Johnson leikur
með Magic M7 í Svíþjód
Bandaríski körfuknattleiks-
maðurinn Magic , Johnson,
hefur ákveðið að leika með
sænska liðinu Magic M7, sem ætl-
ar sér að ná langt í evrópskum
körfuknattleik. Johnson greindist
með HlV-veiruna, sem leyðir til
eyðni, árið 1991 og hætti að leika
með Los Angeles Lakers í banda-
rísku NBA-deildinni í kjölfarið
eftir að hafa orðið fimmfaldur
meistari með liðinu.
Reiknað er með að Johnson
þreyti frumraun sína með liðinu,
sem lenti í fimmta sæti sænsku
deildarinnar á síðustu leiktíð, hinn
26. október nk. Hann mun þó ekki
leika statt og stöðugt með liðinu
út leiktíðina, heldur hefur hann í
hyggju að taka þátt í nokkrum
leikjum til að leiðbeina leikmönn-
unum. „Ég mun spila allnokkra
leiki með liðinu, sem er hluti af
leiðsögn minni. Vitaskuld læra
þeir á æfingum, en svo ég geti
sýnt hvað ég á við verðum við _að
spila saman,“ sagði Johnson. „Ég
hlakka mikið til að heimsækja
Svíþjóð og að leika með liði mínu,“
bætti hann við.
Eftir að hann hætti afskiptum
sínum af bandarískum körfu-
knattleik beindi hann athygli
sinni að viðskiptum og stofnaði
fyrirtæki, Magic Johnson Enter-
prise, sem hefur fjárfest í kvik-
myndahúsum, tónlistarútgáfufyr-
irtæki og æfingabúða fyrir
körfuknattleiksfólk. Hann keypti
einnig stóran hlut í M7 Boras og
var nafni þess þá breytt í Magic
M7.
Steve Haney, lögfræðingur
Johnsons, hefur dvalið í Svíþjóð
að undanförnu til að leggja Svíun-
um lið við skipulagningu á breyt-
ingum innan félagsins. „For-
gangsmál hjá mér er að koma á
vináttuleik við eitt stórliðanna í
Evrópu, svo sem Real Madrid eða
Zalgaris Kaunas frá Litháen.
Pannig vitum við hversu gott liðið
er,“ sagði Haney.
Johnson, sem er orðinn fertug-
ur, vann Ólympíugull í Barcelona
1992, eftir að hafa hætt leik í
NBA-deildinni, en þar hóf hann
aftur að leika í janúar 1996 -
hætti aftur þegar Lakers var
slegið út úr úi-slitakeppninni.
«
Robson
tekur við
Newcastle
BOBBY Robson, fyrrverandi landsliðsþjálfari enska landsliðsins,
er sagður næsti knattspyrnustjóri úrvalsdeildarliðs Newcastle.
Hann tekur við starfi Ruud Gullit, er sagði starfi sínu lausu um
síðustu helgi.
Robson, sem er 66 ára, fór í gær
til þess að leggja lokahönd á
samning sinn við félagið og er búist
við að skrifað verði undir í dag.
Robson hefur ekki stjómað liði í
Englandi frá því að hann þjálfaði
Ipswich Town frá 1968-82. Hann
Tók við enska landsliðinu árið 1982
til 1990. Þá þjálfaði hann lið í Portú-
Sigurður frá
mánuðum
saman
Sigurður Sveinsson, horna-
maður Islands- og bikarmeist-
ara Aftureldingar, er meiddur
í öxl og verður frá keppni í sex
til sjö mánuði.
Sigurður sagði að liðpoki
væri rifinn frá axlarbeini í
vinstri öxl en hann hefði átt
við slík meiðsli að stríða í tæp
tvö ár. „Þetta hefur ágerst
með tínianum og eftir síðasta
tfmabil lagaðist ég lítið og
ákvað því að fara í uppskurð.
Læknar tjá mér að 70% Iíkur
séu á að aðgerðin takist. Ég
geri mér þvf vonir um að vera
kominn á kreik í mars-apríl.
Ég gerði tveggja ára samning
við félagið í sumar og er því
ekki á þeim buxunum að hætta
keppni strax.“
Þorkell Guðbrandsson er
genginn til liðs við Aftureld-
ingu á ný og hann leysir Sig-
urð af hólmi.
Valdimar leikur með
gegn Frankfurt
Forráðamenn þýska 1. deildarliðs-
ins Wuppertal hafa óskað eftir
að Valdimar Grímsson, leikmaður
liðsins, leiki með því gegn Frankfurt
um næstu helgi þrátt fyrir að hné-
skel hans sé brotin. Valdimar hefur
komið við sögu í tveimur fyrstu
leikjum liðsins á keppnistímabilinu
þrátt íyrir meiðsli. Hann lék með
liðinu gegn Kiel á miðvikudag og
gerði þrjú mörk. Þá tók hann lítil-
lega þátt í fyrsta leik mótsins er var
gegn Dormagen.
„Forráðamenn félagsins lögðu á
það mikla áherslu að ég léki þrjá
leiki með liðinu í upphafi móts vegna
þess að margir leikmenn eru að ná
sér af meiðslum, svo sem Dagur Sig-
urðsson. Mér hefur verið tjáð að það
ætti ekki að skipta verulegu máli þó
að ég leiki nokkra leiki þannig á mig
kominn. Ég vonast til að vera eitt-
hvað með gegn Frankfurt," sagði
Valdimar. Hann sagðist vera deyfð-
ur fyrir leiki en fyndi engu að síður
til á velli.
„Ég geri mér vonir um að komst í
uppskurð í næstu viku. Ef endur-
hæfing gengur vel verð ég frá í um
þrjá mánuði," sagði Valdimar.
gal og á Spáni. Síðast var hann hjá
hollenska liðinu PSV Eindhoven.
Þrátt fyrir árin 66 kveðst Robson
vera við góða heilsu og hafi enn
mikinn metnað, en hann hafði áður
lýst yfir miklum áhuga á að taka við
starfi hjá Newcastle. „Mér líður
betur en oft áður og mig langar að
halda áfram að vinna. Ég hef ekki
áhyggjur af því starfi sem ég
hyggst taka mér fyrir hendur því ég
hef mikla reynslu.“
Kevin Keegan, landsliðsþjálfari
enska liðsins, sem þjálfaði
Newcastle fyrir nokkrum árum,
sagðist vona að erfiðleikar félagsins
væru að baki og hann taldi að Rob-
son væri rétti maðurinn tii þess að
snúa félaginu á sigurbraut.
Reuters
Bobby Robson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, sem hef-
ur þjálfað í Portúgal, Hollandi og á Spáni undanfarin ár.
HANDKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Sundmetin
falla í
Ástralíu
ÞRJÚ heimsmet hafa verið
sett á ástralska meistara-
mótinu í sundi, í 25 metra
langri laug, en það fer fram
í höfuðborginni, Canberra.
Auk þess var eitt heimsmet
jafnað. Susan O’Neill bætti
eigið heimsmet í 200 metra
flugsundi um tæpa sekúndu
er hún synti í mark á
2.04,03 mín. Landi hennar,
Michael Klim, endurheimti
heimsmetið í 100 metra
flugsundi er hann synti á
50,99 sekúndum, sem er
þremur hundraðshlutum
betra en tími Bretans
James Hickmans, sem hann
náði í Sheffield í fyrra. Þá
jafnaði Matt Welsh met
Þjóðveijans Thomas Rupp-
arths í 50 metra baksundi,
24,13 sek.
Þessi eftirtektarverði ár-
angur náðist aðeins degi
eftir að fjögurra manna
sveit, skipuð Klim, Matthew
Dunn, Todd Pearson og Bill
Kirby, stórbætti heimsmet-
ið í 4x200 metra skrið-
sundi. Á hinn bóginn kom
nokkuð á óvart að táningn-
um Ian Thorpe tókst ekki
að setja heimsmet, en hann
setti ijögur slík á sund-
meistaramóti Kyrrahafs-
þjóða í fimmtíu metra laug
á dögunum.
■ LOTHAR Mntihiius, leikmaður
þýska knattspymuliðsins Bayern
Miinchen, hefur hótað að yfirgefa
félagið í kjölfar slagsmála við
Frakkann Bixente Lizarazu á æf-
ingu fyrir skömmu, þar sem Matt-
háus var sagður eiga að hluta til
sök á uppsteytunum.
■ MATTHÁUS sætti sig ekki við
að vera sakaður um að valda vand-
ræðum og tilkynnti framkvæmda-
stjóranum, Uli Höness, og þjálfar-
anum, Ottmar Hitzfeld, að þeir
gætu rift samningi hans við félagið
undir eins ef áminning, sem honum
var veitt, yrði ekki afturkölluð.
■ ÞJÓÐ VERJINN hafði upphaf-
lega í hyggju að leika með liðinu
þar til vetrarhlé verður gert á
deildarkeppninni og ganga þá til
liðs við bandaríska liðið MetroSt-
ars frá New Jersey. Hann hefur
gert samning við liðið þess efnis.
■ KAISERSLA UTERN hefur
sektað fyi'irliðann Ciriaco Sforza
um 1,2 millj. ísl. kr. íyrir að gagn-
rýna þjálfarann Otto Rehhagel.
■ SÁ orðrómur er nú uppi að
Sforza fari á ný til Bayem
Miinchen, sem myndi láta Mario
Basler í staðinn til Kasierslautern.
Sforza er sagður vilja fara aftur í
herbúðir Bæjara, en hann tæki þá
stöðu Mattháus sem aftasti varnar-
maður í leik liðsins.
■ JAMIE Redkrmpp, miðvallar-
leikmaður hjá Liverpool, og Chris
Sutton, miðherji Chelsea, eru
meiddir og leika ekki með
Englandi gegn Lúxemborg á laug-
ardaginn. Þeir bætast því við
sjúkralistann, en á honum voru áð-
ur komnir Rio Ferdinand, Sol
Campbell, Darren Anderton og
David Seaman.