Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1999
IMfagtttiMjiftifr
■ MIÐVIKUDACUR 22. SEPTEMBER
BLAÐ
Dregið í ríðla á
EM á sunnudag
DREGIÐ verður í riðlana tvo í Evrópumótinu í
handknattleik á sunnudaginn. Keppnin fer hins
vegar fram í Króatíu í lok janúar og verða fs-
lendingar með í fyrsta skipti. Auk Islendinga
verða þátttökuþjóðir Svíar, Portúgalar, Rússar,
Spánverjar, Þjóðverjar, Frakkar, Danir, Sló-
venar, Norðmenn, Ukraínumenn og heima-
menn, Króatar.
Á Evrópumótinu verður m.a. keppt um eitt
sæti til viðbótar sem Evrópa á í handknatt-
leikskeppni næstu Ólympíuleika. I þá keppni
hafa þegar sex þjóðir frá Evrópu tryggt sér
sæti en það eru Svíar, Rússar, Spánverjar,
Frakkar, Júgóslavar og Þjóðverjar. Júgóslavar
verða ekki með á EM sem þýðir að efsta þjóðin
á EM fyrir utan þær fimm sem þegar hafa unn-
ið sér inn farseðil til Sydney vinnur sjötta sæti
Evrópu á Ólyinpíuleikunum.
KNATTSPYRNA
Reuters
Gamla kempan Gheorghe Hagi og félagar í Galatasaray sóttu ekki gull í greipar leikmanna AC Milan á San Síró í meistaradeildinni í
gær, lokatölur 2:1. Á myndinni að ofan reynir Hagi að komast framhjá Gennaro Gattuso, Demetrio Albertini og Paolo Maldini.
ii Leikirnir / C3
Guðmundur
þjálfar Fýlki
Handknattleiksdeild Fylkis hef-
ur ráðið Guðmund Þórðarson
til þess að þjálfa meistaraflokk fé-
lagsins í 1. deild í vetur. Þá hefur
félagið fengið til sín örvhenta
skyttu, David Kekelia, sem hefur
átt sæti í landsliðshóp Rússa. Von
er á leikmanninum, sem leikið hef-
ur í 1. deild í Rússlandi, til landsins
í dag.
Samningur Guðmundar, er tekur
við starfi Einars Þorvarðarsonar,
sem hætti fyrir skömmu, við félagið
er til eins árs. Guðmundur lék á ár-
um áður með IR.
Hermann Erlingsson, formaður
handknattleiksdeildar Fylkis, sem
vann sér sæti í 1. deifd í vor, kvaðst
vona að þeir erfiðleikar er dunið
hefðu yfir deildina í sumar væru
liðnir og markmiðið væri að standa
sig í deildarkeppninni í vetur.
„Margir Arbæingar voru slegnir
er í ljós kom að félagið hygðist jafn-
vel draga sig út úr keppni í 1. deild
og hafa sýnt okkur mikinn stuðning.
Við höfum misst nokkra leikmenn
en erum engu síður með ágætan
leikmannahóp og ætlum okkur að
styrkja hann enn frekar fyrir
keppni í vetur," sagði Hermann og
benti á að ekki væri loku fyrir skot-
ið að annar erlendur leikmaður yrði
fenginn til liðsins áður en liðið hefur
keppni í 1. deild í næstu viku. Þá
mætir Fylkir ÍBV.
Seldu
w m u m BE ■
i sigurliði
Sá fáheyrði atburður gerðist í
Borgamesi í síðustu umferð 1.
deildar karla, þegar Fylkir lék við
Skallagrím, að Fylkismenn seldu
sæti í liðinu. Verðið var 75.000 krón-
ur, sem Fylkismenn segja að renni í
ferðasjóð hjá 15 til 17 ára leikmönn-
um félagsins og eru á leið í æfínga-
ferð til í Skotlands.
Kaupandinn heitir Smári
Ludvigsson, en hann æfði lengi vel
með liðinu en hefur búið í Þýska-
landi að undanförnu. Smári, sem
varð 37 ára í byrjun september,
skipti við Ólaf Þórðarson, þjálfara
og leikmann þegar átta mínútur
voru tii leiksloka. Fyrir vikið varð
hann meistari í 1. deild með liðinu
og fékk verðlaunapening eins og
aðrir leikmenn liðsins.
Sett voru skilyrði fyrir því að
hann fengi að koma inná - það yrði
að vera undir lok leiksins og úrslit
myndu á engan hátt hafa áhrif á
niðurstöðu deildarinnar.
Smári fékk tækifæri til að komast
á blað í leiknum þegar hann fékk
ágætt færi en var of seinn og varn-
armaður Skallagríms náði frá hon-
um boltanum. Að sögn Fylkismanna
létu Borgfirðingar sér þetta í léttu
rúmi liggja, voru búnir að sætta sig
við stöðuna í leiknum. Árbæingar
segja nú að þeir munu eflaust gera
þetta aftur ef aðstæður eru fyrir
hendi.
Bush til
liðs við
KF'
KFI hefur samið við banda-
rískan leikmann, Clifton
Bush. Hann kemur í stað
Julius Teal, sem hafði samið
við félagið í sumar en fékk
heimþrá og var leystur und-
an samningi.
Bush, sem er 29 ára, kem-
ur frá Central Arkansas-há-
skóianum í Bandaríkjunum,
sama skóla og Rodney Dean,
sem hyggst leika með Hamri.
Bush hefur áður leikið hér á
landi, meðal annars með
Breiðabliki og Snæfelli.
Hann lék síðast í sama félagi
og Rob Wilson, sem lék áður
með Snæfelli, í efstu deild á
Nýja-Sjálandi, Bush skoraði
um 20,8 stig að meðaltali í
leik og tók 10,9 fráköst með
nýsjálenska liðinu.
KFI hefur einnig fengið 17
ára leikmann, Tom Huli, frá
Bretlandi. Félagið leitar enn
að framherja og vonast for-
ráðamenn liðsins til að hann
verði kominn fyrir fyrsta
leik þess, sem er gegn KR á
fimmtudag í næstu viku.
Hamar
fær liðs-
styrk
Körfuknatf leiksdeild Hamars
í Hveragerði hefur gert
samning við Rodney Dean,
rúmlega tvítugan bandarísk-
an leikmann. Hann er 1.90 m
á hæð og kemur frá Central
Arkansas-háskólanum og
skoraði 24 stig að meðaltali í
fyrra. Þá er hann sagður
eiga met í þriggja stiga hittni
innan skólaliðsins.
Búist er við að Dean, er
kemur í stað Oleg
Kriszhanovskij frá Úkraínu,
komi til Iandsins í dag og að
hann verði klár í slaginn í
fyrsta leik gegn Snæfelli í úr-
valsdeildinni á fímmtudag
eftir viku. Hamar, sem er í
fyrsta skipti í úrvalsdeild,
hefur fengið liðstyrk undan-
farnar vikur en Omar Sig-
marsson og Skarphéðinn
Ingason eru komnir frá
Tindastóli og Ægir Gunnars-
son frá Njarðvík.
KNATTSPYRNA: SKELFUMST EKKI OG ÆTLUM OKKUR SIGUR/C4