Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Körfuknattleikur
L.Leopards - ÍRB 80:78
London Arena í Docklands í Lundúnum,
Evrópukeppni félagsliða, Korac-bikarinn,
síðari leikur, þriðjudaginn 21. september
1999.
Gangur leiksins: 12:0, 13:7, 22:12, 24:24,
31:31, 47:39, 50:47, 53:52, 53:55, 62:61, 73:67,
75:76, 78:78, 80:78.
Stig London: Robert Youngblood 28, Kenya
Capers 20, Peter Deppisch 18, David
Attewell, 4, Steve Ogunjimi 4, Michael
Martin 4, Mark Quashie 2.
Fráköst: 27 í vöm -19 í sókn.
Stig ÍRB: Purnell Perry 25, Teitur Örlygs-
son 12, Guðjón Skúlason 11, Chianti Roberts
9, Hjðrtur Harðarson 6, Friðrik Stefánsson
5, Gunnar Einarsson 5, Hermann Hauksson
3.
Fráköst: 21 í vöm - 8 í sókn.
Dómarar: Gilles Bretagne frá Frakklandi
og Patrick Hainaut frá Belgíu.
Villur: 22 - 26.
Áhorfcndur: Rúmlega fímm hundruð.
Knattspyma
Meistaradeild Evrópu:
E-riðill:
Porto - Olympiakos.................2:0
Januario Esquerdinha 6., Mario Jardel 47.
25.000.
Real Madrid - Molde ...............4:1
Fernando Morientes 27., Savio 60., 69.,
vítapsyma, Jose Maria Gutierrez 80. - Knut
Lillebæk 79.15.000.
Staðan:
Porto.....................2 2 0 0 3:0 6
Real Madrid .............2 1 1 0 7:4 4
Olympiakos................2 0 1 1 3:5 1
Molde ...................2 0 0 2 1:5 0
Næstu leikir, 28. september:
Real Madrid - Porto
Olympiakos Piraeus - Molde
F-riðill:
Rangers - Bayern Miinchen ...........1:1
Jorg Albertz 22.- Michael Tarnat 89. 49.960.
PSV Eindhoven - Valencia.............1:1
Ruud van Nistelrooy 71., víti - Claudio
Lopez 4. 30.000.
Staðan:
Valencia ..................2 1 1 0 3:1 4
Bayera Miinchen ...........2 1 1 0 3:2 4
PSV Eindhoven .............2 0 1 1 2:3 1
Rangers....................2 0 1 1 1:3 1
Næstu leikir, 28. september:
PSV Eindhoven - Rangers
Bayem Munchen - Valencia
G-riðill:
Spartak Moskva - Sparta Prag.........1:1
Artem Bezrodnyi 73.- Vratislav Lokvenc 16.
Rautt spja!d:Juri Kovtun (Spartak Moskva)
63., Luis Robson (Spartak Moskva) 83.
45.000.
Bordeaux - Willem II..................3:2
Raymond Victoria 16., sjálfsmark, Lilian
Laslandes 22., Pascal Feindouno 83. -
Yassine Abdellaoui 40., Ousmane Sanou 70.
14.000.
Staðan:
Spartak Moskva.............2 1 1 0 4:2 4
Bordeaux ..................2 1 1 0 3:2 4
Sparta Prag ...............2 0 2 0 1:1 2
Willem II..................2 0 0 2 3:6 0
Næstu leikir, 28. september:
Girondins Bordeaux - Spartak Moskva
Sparta Prag - Willem
H-riðilI:
Hertha Berlín - Chelsea .............2:1
Ali Daei 2., 70. - Frank Leboeuf 86., víta-
spyma. 57.000.
AC Milan - Galatasaray...............2:1
Leonardo 44., Andriy Shevchenko 45.- Da-
vala Umit 49.
Staðan:
Hertha Berlín...............2 1 1 0 4:3 4
AC Milan ..................2 1 1 0 2:1 4
Galatasaray ...............2 0 1 1 3:4 1
Chelsea.....................2 0 1 1 1:2 1
Næstu leikir, 28. september:
AC Milan - Hertha Berlín
Chelsea - Galatasaray
England
Deildabikarinn
2. umferð, síðari leikir:
Aston Villa - Chester .............5:0
■ Aston Villa vann samtals 6:0
Bolton - Gillingham................2:0
■ Bolton vann samtals 6:1
Bournemouth - Charlton ............0:0
■ Bournemouth vann 3:1 í vítaspymu-
keppni.
Bristol Rovers - Birmingham........0:1
■ Birmingham vann samtals 3:0
Fulham - Norwich...................2:0
■ Fulham vann samtals 6:0
Ipswich - Crewe ...................1:1
■ Crewe vann samtals 32
Leyton Orient - Grimsby ............1:0
■ Grimsby vann samtals 4:2
Liverpool - Hull....................4:2
■ Liverpool vann samtals 9:3
Middlesborough - Chesterfield .....2:1
■ Middlesborough vann samtals 2:1
Notts County - Huddersfíeld........2:2
■ Huddersfield vann samtals 4:3
Preston - Sheffield United.........3:0
■ Preston vann samtals 3:2
Southampton - Man. City............4:3
■ Southampton vann samtals 4:3 eftir fram-
lengingu.
Stockport - Barnsley...............3:3
■ Barnsley vann á mörkum á útivelli.
Walsall - Sunderland...............0:5
■ Sunderland vann samtals 8:2
Wigan - Watford....................3:1
■ Watford vann á marki á útivelli.
Wimbledon Cardiff..................3:1
■ Wimbledon vann samtals 4:2
Wycombe - West Bromwich............3:4
■ West Bromwich vann samtals 5:4
Portúgal
Benfica - Vitoria Setubal .........3:0
Sporting Lissabon - Estrela Amadora . .1:1
Belenenses - Alverca...............4:2
Vitoria Guimaraes - Gil Vicente....1:0
Maritimo - Farense.................3:0
Salgueiros - Santa Clara...........2:0
Uniao Leiria - Boavista ...........0:0
Porto - Rio Ave....................4:1
Campomaiorense - Braga.............2:4
Sviss
Lausanne - Grasshoppers............3:3
Zurich - Yverdon...................1:0
Danmörk
Bröndby - FC Kaupm.höfn ...........3:1
Svíþjóð
Helsingborg - Norrköping...........0:1
Elsfborg-IFK Gautaborg.............0:1
Örgryte - Örebro...................0:1
Grikkland
Proodeftiki Piraeus - Olympiakos...0:3
Kalamata - OFI Heraklion...........0:0
Ethnikos Astir - Kavala............1:0
Panionios Aþena - Paniliakos Pyrgos .. .1:2
PAOK - AEK Aþena...................4:4
Panathinaikos - Trikala ...........2:0
Panahaiki - Ionikos Piraeus........1:1
Xanthi - Aris .....................0:0
Iraklis - Apollon Aþena ...........1:0
Karate
Bikarmót
Fyrsta bikarmesitaramót vetrarins var
haldið sl. laugardag í Hagaskóla. en alls eru
mótin fjögur yfir keppnistímabilið. I þess
verða kryndir bikarmeistararar. Helstu úr-
slit voru sem hér segir.
Kata kvenna:
1. Edda Blöndal ...............Þórshamri
2. Siv Grétarsdóttir, Fylki
3. Sólveig Sigurðardóttir......Þórshamri
Kata karla:
1. Jón Ingi Þorvaldsson........Þórshamri
2. Daníel Axelsson ............Þórshamri
3. Ásmundur Isak Jónsson .....Þórshamri
Kumite kvenna:
1. Edda Blöndal ...............Þórshamri
2. Eydís Líndal................Þórshamri
3. Siv Grétarsdóttir...............Fylki
Kumite karla, -74 kg:
1. Gunnlaugur Sigurðsson .........Haukum
2. Sverrir Sigurðsson............Víkingi
3. Daníel Axelsson ............Þórshamri
Snóker
Fyrsta stigamót vetrarins var haldið um sl.
helgi á Billiardstofu Hafnarfjarðar. Sem
fyrr er keppnistímabilinu skipt í tvo hluta,
fyrir og eftir jól, fjögur mót í hvorum hluta.
Nú var keppt í 2. flokki, en það er opinn
flokkur. Þavar keppt í riðlum og að þeim
loknum með útsláttarfyrirkomulagi.
í undanúrslitum áttust við annars vegar
Daði Eyjólfsson og Guðjón Guðmundsson
og hinsvegar Börkur Sigurðsson og Magnús
Harrýsson. Börkur sigraði 3:0 og Guðjón
lagði Daða, 3:1. Börkur vann Guðjón örugg-
lega í úrslitum, 4:0.
Staða stigahæstur manna er sem liér segir:
Börkur Sigurðsson ..............400 stig
Guðjón Guðmundsso...............250 stig
Daði Eyjólfsson.................150 stig
Magnús Harrýsson................150 stig
í kvöld
Knattspyrna
Undankeppni EM kvenna:
Laugardalsvöllur: ísland - Ítalía 20
Handknattleikur
Meistarakeppni kvenna:
Asgarður: Stjarnan - Fram 20
■ Félögin hafa ákveðið að allur ágóði
af leiknum renni til Herdísar Sigur-
bergsdóttur, leikmanns Stjörnunnar,
sem meiddist illa í landsleik sl. vetur.
Leiðrétting
Ekki Ingi Björn
Þau leiðu mistök áttu sér stað í texta með
mynd á bls. B4 í íþróttablaðinu í gær að sagt
er að á myndinni eigi Ingi Björn Albertsson
erfitt með að leyna vonbrigðum sínum.
Maðurinn á myndinni er hins vegar ekki
Ingi Björn. Eru Ingi Björn og lesendur
beðnir afsökunar á mistökunum.
\ Þjálfarar fyrir yngri flokka
\ Vegna forfalla óskar körfuknattleiksdeild Hauka
\ eftir aö rdöa nú þegar þjdlfara fyrir tvo
\ af yngri flokkum deildarinnar.
\ Nánari upplýslngar eru velttar f
\ síma 565 3221 eða í síma 898 1678.
\ Körfuknattlelksdelld Hauka
Óhugur
kom í mig
Teitur Örlygsson hefur oft skor-
að sigurkörfur handan þriggja
stiga línunnar. I gær fékk hann
slíkt tækifæri en missti marks. Eg
leit á klukkuna þegar Guðjón fékk
boltann. Þá voru um þrjár sekúndur
eftir. Ég flýtti mér aðeins of mikið,
því ég heyrði að bjallan hringdi ekki
fyrr en vel eftir að ég skaut boltan-
um. Samt sem áður hélt ég að bolt-
inn færi ofan í. Takturinn í skotinu
var góður. Það var svekkjandi að
boltinn skyldi ekki fara í, en hann
gerir það næst,“ sagði Teitur.
Mál manna var að hann hefði gert
þetta viljandi, fyrir kurteisissakir.
Því neitaði Teitur. „Nei, alls ekki.
Ég vildi endilega vinna þennan leik
hvað framtíðina varðar, því í riðla-
keppninni verðum við að vinna ein-
hverja útileiki. Það er eins gott að
byrja á því strax,“ sagði hann.
Teitur sagðist hafa orðið eilítið
áhyggjufullur í byrjun leiksins, þeg-
ar heimamenn náðu tólf stiga for-
skoti án þess að Suðurnesjamenn
svöruðu fyrir sig. „Það kom smá
óhugur í mig. Ég neita því ekki. Um
leið og við urðum hræddir bitum við
strax frá okkur. Þá vorum við fljótir
að komast inn í leikinn aftur. Perry
kom með góða troðslu og síðan
fengum við þriggja stiga körfu. Þá
komumst við í gang. Eftir það var
leikurinn í jafnvægi og fljótlega var
þetta aldrei í hættu. En þeir lögðu
greinilega allt í sölurnar, spiluðu
með byrjunarliðið nánast allan leik-
inn og vildu bjarga stoltinu.
Það kom spennufall í leikinn hjá
okkur þegar við gerðum okkur
grein fýrir að við vorum öruggir
áfram. Þá urðum við svolítið kæru-
lausir. Við hefðum getað gert út um
leikinn, eða náð .tíu stiga mun, í
fyrri háJfleik. Þá slepptum við skot-
um sem við erum vanir að taka og
halda boltanum, í stað þess að spila
eins og við erum vanir," sagði Teit-
ur. Hann sagðist þess fullviss að lið-
ið ætti alla jafna að leggja London
Leopards að velli. „Já, ég er viss um
það. Við hefðum alveg getað unnið
þennan leik með tíu stiga mun, ef
við hefðum spilað betur. Við áttum
ekkert sérstakan leik í dag,“ sagði
Teitur Örlygsson, leikmaður Njarð-
víkur í ÍRB.
Purnell Perry hitti vel
PURNELL Perry var stigahæstur ÍRB í leiknum, skoraði 25 stig
og hitti úr sjö af tíu skotum sínum auk þess að misnota aðeins
eitt af tólf vítaskotum. Hann átti fjórar stoðsendingar og vann
boltann þrívegis. Hann tók einnig átta fráköst, en þau voru einna
veikasti hlekkur liðsins í gær. Það tók 29 fráköst gegn 46 frá-
köstum London Leopards. Þar var Robert Youngblood atkvæða-
mestur með fjórtán fráköst, en hann var annar tveggja Ieik-
manna liðsins sem var inni á vellinum allan leikinn. Hinn var
Kenya Capers.
Teitur Órlygsson skoraði flestar þriggja stiga körfurnar, fjór-
ar úr tólf skotum. Guðjón Skúlason hitti úr þremur af sex
þriggja stiga skotum. Suðurnesjamennirnir skoruðu tíu slíkar
körfur í leiknum.
Guðjón Skúlason og félagar í Suðurnes
Evrópukeppninnar sem fram fer í októt
lega í gær og gerð
Fer ótroðnar s
Sameinaðir íslandsmeistarar Keflvíkinga og bikarmeistarar Njarðvík-
inga í körfuknattleik eru komnir í riðlakeppni Evrópukeppni félags-
liða, Korac-bikarkeppninnar svonefndu, eftir að hafa tapað fyrir
enska liðinu London Leopards, 80:78, í Lundúnum í gærkvöldi.
Kenya Capers skoraði sigurkörfuna fyrir heimamenn er þrjár sek-
úndur lifðu leiks. Teitur Örlygsson fékk opið þriggja stiga skotfæri í
blálokin, en missti marks. Lið Reykjanesbæjar hafði 36 stiga forskot
eftir fyrri leikinn í Keflavík og komst því örugglega áfram. Nú tekur
við fjögurra liða riðlakeppni. Þar leikur Suðurnesjaliðið við þrjú önn-
ur lið, heima og heiman, í október og nóvember. Verði liðið á meðal
tveggja efstu í riðlinum, kemst það í 32-liða úrslit. Liðið mun því
fara ótroðnar slóðir og verður fróðlegt að fylgjast með framgöngu
þessa magnaða liðs.
Lið London Leopards þurfti að
vinna upp forskot Reykjanesbæj-
ar til að komast áfram í riðlakeppni
Korac-bikarkeppninn-
Edwin ar. Af úrslitum fyrri
Rögnvaldsson leiksins að dæma, voru
skrifar möguleikarnir sáralitl-
fra Lundunum ,. ,.
ir og forseti felagsins
hló bara er blaðamaður benti á að
ekki væri öll nótt úti enn. Suðurnesja-
menn hlógu ekki. Þeir vita að fljótt
skipast veður í lofti. Gera mátti ráð
fyrir að leikmenn Lundúnaliðsins
hefðu leikið langt undir getu í Kefla-
vík í síðustu viku, leikurinn í gær færi
fram við aðrar kringumstæður. Þeir
voru auðmýktir í litla íþróttasalnum
suður með sjó, en nú myndu þeir leika
á heimavelli, hvattir til dáða af áhorf-
endum sínum og vildu þar endur-
heimta virðingu sína.
Friðrik Ingi Rúnarsson, annar
þjálfara ÍRB, sagðist búast við að
heimamenn myndu reyna að þvinga
íslenska liðið til að leika boltanum
undir körfuna, gera þriggja stiga
skyttumar óvirkar. Góð byrjun
heimamanna var því það sem forráða-
menn Reykjanesliðsins óttuðust. Við
hana myndu leikmenn enska liðsins
endurheimta sjálfstraustið og trú á
leikskipulag sitt, sem búast mátti við
að yrði annað en í fyrri leiknum. Eng-
inn efaðist um að heimamenn hygðu á
hefndir. Þjálfari þeirra, hinn þanda-
ríski Billy Mims, sagði íslensku leik-
mönnunum fyrir æfingu í fyrrakvöld
að þeir myndu líklegast ekki leika á
fullum hraða, þar sem IRB væri nán-
ast komið áfram í keppninni. Suður-
nesjamenn létu þessi orð sem vind um
eyru þjóta, vissu hvað þjálfaranum
gekk til.
Enda sást strax í upphafi, er á
hólminn var komið, að hlébörðunum
var ekki hlátur í huga, en áhugi áhorf-
enda var auðsjáanlega af skornum
skammti. „Hlébarðarnir“ fengu óska-
byijun - skoruðu fyrstu tólf stigin í
leiknum. Þjóðverjinn Depisch skoraði
strax þriggja stiga körfu og Banda-
ríkjamaðurinn Youngblood skoraði
með stökkskoti. í kjölfarið vann
Kenya Capers boltann í pressuvörn
þeirra heimamanna og skoraði.
Skyndilega var staðan orðin önnur.
Munurinn í viðureignum liðanna var
orðinn 24 stig og meðbyrinn var með
Lundúnaliðinu.
Lið Reykjanesbæjar, sem skipað er
reyndum landsliðsmönnum, lét ekki
slá sig út af laginu. Chianti Roberts
skoraði fyrstu stig þess eftir þrjár og
hálfa mínútu. Hjörtur Harðarson
skoraði síðan þriggja stiga körfu og
við það róuðust taugar liðsins. Lítil
ógnun var af Bandaríkjamönnum ÍBB
í byrjun, en Purnell Perry tók fljót-
lega við sér og veiddi villur á and-
stæðingana auk þess sem hann gerði
nokkrar laglegar körfur, maður gegn
manni.
Villuvandræði í fyrri hálfleik
Suðurnesjaliðið skipti yfir í svæðis-
vörn um miðjan fyrri hálfleik. Bftir
það lentu leikmenn þess síður í þeirri
aðstöðu að þurfa að gæta stærri,
sterkari eða leiknari leikmanns einir
síns liðs og fengu þeir færri villur eft-
ir þetta. Þrír leikmenn voru teknir út
af vegna villuvandræða í fyi-ri hálfleik;
Gunnar, Roberts og Friðrik Stefáns-
son. Tveir þeir fyrsttöldu voru í byij-
unarliðinu ásamt Hirti, Teiti Örlygs-
syni og Hermanni Haukssyni.
Eftir slæma byrjun tókst ÍRB að
jafna metin, 24:24, en enska liðið tók
aftur forystu undir lok fyrri hálfleiks.