Morgunblaðið - 25.03.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 D 31
Góö ráö viö undirbúning
fermingarveislunnar
AÐ mörgu þarf að huga þegar
fermingarveislan er undirbúin og
er eigi ráð nema í tíma sé tekið.
Hér á eftir fara nokkur atriði
sem vert er að hafa í huga sé
stefnt að því að hafa allt tilbúið
á sjálfan fermingardaginn.
► Ýmsa rétti má útbúa með
eins til tveggja daga fyrirvara,
setja í frysti eða kæii og svo í
ofninn skörhmu áður en þeir eru
bornir fram.
► Nauðsynlegt er að hafa
dúka og allan borðbúnað til-
búinn með góðum fyrirvara svo
ekki þurfi að vera að útvega
borðbúnað á sfðustu stundu.
► Gott er að vera búinn að
hreinsa og pússa silfurborðbún-
að fyrir fermingardaginn verði
slíkur búnaður á borðum.
► Standí til að prenta nafn
fermingarbarnsins á kerti og
servíettur er nauðsynlegt að
gera það í tæka tíð.
► Ráðlegt er að fá lánaða
blómavasa fyrir ferminguna séu
þeir ekki til staðar á heimilinu.
► Mikilvægt er að huga að
fötum fermingarbarnsins og ann-
arra í fjölskyldunni með góðum
fyrirvara þannig að þau séu
hrein og strokin þegar á þarf að
halda.
► Sé fatahengi á veislustaðn-
um lítið eða yfirfullt er gott að
hafa fjarlægt yfirhafnirnar þaðan
áður en gestirnir koma og hafa
nóg af herðatrjám.
Pegar Gunnar Leifur er spurður
að því hverju það sæti að mynda-
tökurnar hafi æ meir snúist um að
ná myndum af karakter barnsins
eða einstaklingnum sem slíkum
segir hann að skýringin sé sjálf-
sagt breyttur tíðarandi. Lengi vel
hafi fólk verið hrætt við að vera
hallærislegt á fermingarmyndun-
um og sumir jafnvel talið að slíkar
myndir væru það hallærislegasta
sem til væri. Það sama fólk væri
nú sjálft farið að láta ferma sín
börn og legði því meiri áherslu á
að fá myndir sem sýndu krakkana
eins og þau væru. Það gerði sér
jafnframt grein fyrir gildi mynd-
anna sem heimild um tíðarandann
og legði því áherslu á að börnin
færu í slíkar myndatökur.
Spurður að því hvort lítið sé um
að myndir séu teknar af börnunum
í fermingarkyrtlunum segir Gunn-
ar Leifur að eitthvað sé um það
enn þá en þó séu slíkar myndir í
miklum minnihluta um þessar
mundir. Börnin séu yfirleitt í sín-
um fínu fermingarfötum en einnig
komi þau oft með hversdagsfötin
sín sem þau hafi til skiptanna
þannig að bæði sé hægt að mynda
þau í sparifötunum og í hversdags-
fötunum. Auk þess, segir Gunnar
Leifur, nota foreldrarnir eða for-
ráðamennirnir tækifærið á meðan
börnin era svo fín að láta taka fjöl-
skyldumyndir á fermingardaginn.
Aðspurður segir Gunnar Leifur
að allur gangur sé á því hvort
menn vilji svarthvítar myndir eða
litmyndir. Svarthvítar myndir hafi
verið að vinna á að undanförnu en
þó sé algengt að menn vilji bæði
svarthvítar og litmyndir. Ennfrem-
ur segir Gunnar Leifur aðspurður
að ekki sé mikið um að fólk vilji
fermingarmyndir í brúnum tónum,
líklega vegna þess að slíkar mynd-
ir fela í sér meiri vinnu og þar með
meiri kostnað.
Myndirnar miklu
meira skoðaðar
Til þess að gefa lesendum hug-
mynd um hvað fermingarmyndir
kosti segir Gunnar Leifur að hjá
sér sé vinsælast að velja tólf mynd-
ir í stærðinni 13 sinnum 18 með
einni stækkun upp í 20 sinnum 25.
Slíkur pakki, í svarthvítu eða lit,
kosti sextán þúsund krónur.
En hvað er gert við fermingar-
myndirnar? Fara þær beint ofan í
skúffu eða er þeim dreift til vina
og ættingja? „Myndirnar sem við
buðum upp á voru helmingi minni
fyrir um fimm árun en eftir að þær
voru stækkaðar höfum við fundið
fyrir því að þær eru miklu meira
skoðaðar. Við látum viðskiptavin-
ina fá myndirnar í huggulegu al-
búmi sem skemmtilegt er að skoða
en þær eru einnig lausar og því
hægt að taka þær út og setja þær í
ramma og gefa þær til að mynda
ömmu og afa,“ segir Gunnar Leifur
en tekur þó fram að flestir láti
taka myndirnar fyrir sjálfa sig og
noti þær einfaldlega til að varð-
veita minninguna um tímabilið í
kringum ferminguna. „Þeir sem
ekki hafa látið taka fermingar-
myndir af sér en koma kannski
seinna í stúdentamyndatöku hafa
haft orð á því að þeir sjái eftir því
að hafa ekki látið taka fermingar-
mynd af sér og þar með misst af
þessari merku heimild," segir
Gunnar Leifur að lokum.
... að/ yleðfost/ oq/ nfóta/ cLatysin&'
með ^minquwaMtimi/ fzími/ aa/ aeshmunv.
’Wlxinda/UituoMaAaAa/
§œÁAA/v fiinnaMiatwi/
í amstrinu er auðvelt að gleyma því sem skiptir mestu máli...
VEISLUÞJÓNUSTA
OSTA- OG SMJÖRSÖLUNNAR
SÍMI 569 1600
veisla@oss.is
Ekki láta bakstur og annan undirbúning íþyngja þér.
Skoðaðu þessar girnilegu uppástungur. Skreyttar ostakökur
þarf að panta með einnar viku fyrirvara, en fyrir aðrar
veitingar nægja tveir dagar.
Hringdu eða sendu okkur tölvupóst
og fáðu veislubæklinginn okkar sendan.