Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ 1 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 B 7
KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA
Andri
vinsæll
í Brasilíu
KNATTSPYRNAN á sér
engin landamæri lengnr, það
kemur sffellt betur og betur í
yds. Ólafiir B. Halldórsson,
stjómarmaður í KR, fékk á
dögunum töivupóst frá
knattspymuáhugamanni í
Brasilíu sem kvaðst vera
mikill aðdáandi Andra Sig-
þórssonar og bað um að fá
senda eiginhandaráritun
hans. Ólafur og Andri bmgð-
ust vel við beiðninni. Það er
með óhkindum að í sjálfri
Brasilíu sé íslenskur leik-
maður sem lítið hefur spilað
utan heimalandsins svona vel
þekktur. Ólafur taldi senni-
legustu skýringuna þá að
Andri mun vera hátt skrifað-
ur í tölvuleiknum vinsæla
Championship Manager.
FOLK
■ STEINGRIMUR Jóhannesson
var í þeirri óvenjulegu stöðu að
hefja leikinn gegn KR á varamanna-
bekk ÍBV. Slíkt hefur ekki gerst í
fjögur ár, ef undanskilinn er einn
leikur árið 1998 þegar Steingrímur
var að jafna sig eftir meiðsli.
■ KRISTJÁN Finnbogason, mark-
vörður KR, kvartaði til Gylfa Þórs
Orrasonar, dómara, í seinni hálf-
leiknum og sagði að áhorfendur fyr-
ir aftan markið hefðu hrækt á sig.
Gylfi óskaði eftir aukinni gæslu og
kynnir leiksins bað áhorfendur um
að gæta fyllstu kurteisi.
■ GYLFI flautaði hátt og snjallt á
10. mínútu þegar Kristján Finn-
bogason, markvörður KR, náði
boltanum laglega af tánum á Jó-
hanni Möller. Víti! öskruðu margir,
en Gylfí hljóp brosandi til Krist-
jáns, tók boltann af honum og tók
dómarakast með því að henda bolt-
anum til hans á ný. Gylfi hafði aug-
ljóslega flautað óvart.
■ ÞORHALLUR Hinríksson var
ekki í leikmannahópi KR-inga
vegna meiðsla á hné. Reiknað er
með að hann verði tilbúinn aftur í
næsta leik, gegn Fram á fimmtu-
daginn.
■ DA VID Winnie var hinsvegar
ekki valinn í hópinn hjá KR, enda
ekki staðið undir væntingum að
undanförnu. Nú þykir líklegt að
hann hætti áður en langt um líður
og snúi heim á leið.
■ ÍVAR Bjarklind kom inn á þegar
Sigursteinn Gíslason fór úr axlarlið
á 17. mínútu leiksins. ívar, sem lék í
nokkur ár með ÍBV, fékk góðar
móttökur hjá heimamönnum sem
klöppuðu vel fyrir honum.
■ KR-INGAR mættu til leiksins í
Eyjum í jakkafotum eins og áður í
sumar. Einhverjum heimamönnum
fannst þetta óþarft, sögðu að best
væri að koma í vinnugallanum til
Eyja enda vinnusamt fólk þar á bæ.
■ STÓR hluti áhorfenda í Eyjum lét
fara vel um sig í blíðviðrinu, kom
með teppi, stóla og jafnvel borð og
var mjög heimilislegt að líta yfir
áhorfendasvæðið.
■ FÁIR KR-ingar fylgdu liði sínu til
Eyja á sunnudaginn, ólíkt því sem
gerðist í fyrra um svipað leyti þegar
þeir streymdu þangað til að styðja
sína menn gegn IBV. Stemmningin
kringum KR-liðið er greinilega ekki
súsamaogífyrra.
■ EYJAMENN léku sinn 28. deild-
arleik í röð á heimavelli án taps en
þeir biðu síðast lægri hlut á Há-
steinsvelli gegn KR 22. júní 1997.
Þá skoraði Andri Sigþórsson fyrir
KR, rétt eins og í leiknum á sunnu-
daginn.
Tíu Eyjamenn
betri en and-
lausir KR-ingar
KR-INGAR geta glaðst yf ir einu úr för sinni til Vestmannaeyja á
sunnudaginn; þeir flugu aftur heim með eitt stig. Það var einu stigi
meira en þeir áttu skilið gegn baráttuglöðum og kraftmiklum Eyja-
mönnum sem voru manni færri í 48 mínútur en voru þrátt fyrir það
sterkari aðilinn allan tímann. Vilja- og metnaðarleysi íslands- og
bikarmeistaranna var með ólíkindum og leikmennirnir sem færðu
féiaginu sinn fyrsta meistaratitil í 31 ár á síðasta tímabili eru nán-
ast óþekkjanlegir, flestir hverjir. Eyjamenn mega hinsvegar vera
sáttir með sína frammistöðu þó þeir nagi sig eflaust í handarbökin
yfir því að hafa ekki nýtt sér getuleysi KR-inga og hirt öll þrjú stigin.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
Það var aðeins á fyrsta korterinu
sem bærilegt lífsmark var með
KR-ingum og leikurinn var í ágætu
jafnvægi. Þá fengu
þeir sitt besta mark-
tækifæri þar til und-
ir lokin þegar Einar
Þór Daníelsson átti
glæsilegt skot á lofti frá vítateig en
rétt framhjá markstönginni fjær.
En eftir það náðu Eyjamenn und-
irtökunum. Þeir tóku völdin á miðj-
unni og sóknarloturnar buldu á
vörn KR-inga, sem gátu þakkað
Kristjáni Finnbogasyni fyrir að
leikurinn var enn markalaus eftir 26
mínútur. Þá hafði hann í þrígang
varið glæsilega frá Eyjamönnum,
hörkuskot Inga Sigurðssonar og
Hjalta Jónssonar af 20 metra færi,
og síðan varði hann aftur frá Inga,
sem óð inn i vítateiginn hægra meg-
in og þrumaði frá markteigshorni.
A þessum kafla misstu KR-ingar
Sigurstein Gíslason meiddan af velli
og miðjuspil þeirra mátti illa við þvi.
Þvert gegn gangi leiksins náðu
KR-ingar forystu þegar Andri Sig-
þórsson skoraði úr vítaspyrnu eftir
hálftíma leik, 0:1. Þeir urðu fyrir
öðru áfalli á 37. mínútu þegar Þor-
móður Egilsson fór af velli meiddur
á ökkla - og aðeins mínútu síðar
notfærðu Eyjamenn sér gatið í vörn
KR og jöfnuðu metin. Onnur víta-
spyrna og úr henni skoraði Momir
Mileta sitt fyrsta mark fyrir ÍBV,
1:1.
KR-ingar sluppu með skrekkinn
rétt á eftir þegar Mileta, sem var
stöðugt ógnandi vinstra megin,
komst í gott færi inni í vítateig en
rak „vitlausan" fót í boltann sem
rúllaði hættulaust til Kristjáns.
Þremur mínútum fyrir hlé var
Eyjamaðurinn Bjarni Geir Viðars-
son rekinn af velli fyrir að gefa Sig-
þóri Júlíussyni olnbogaskot eftir
návígi þeirra. Eyjamenn voru mjög
ósáttir við dóminn, töldu að Bjarni
hefði verið að rífa sig lausan, og
tveir aðstoðarmenn liðsins voru í
kjölfarið reknir af varamanna-
bekknum.
KR-ingar höfðu skipt yfir í fjög-
urra manna vörn við brotthvarf
Þormóðs, en þeir hófu síðari hálf-
leikinn með 3-4-3 eins og þann fyrri,
enda manni fleiri. En það sannaðist
áþreifanlega að leikaðferð og auka-
maður koma fyrir lítið þegar hugur
fylgir ekki máli. Búast hefði mátt
við því að KR-ingar tækju leikinn í
sínar hendur og tíu Eyjamenn ættu
í vök að verjast. Aldeilis ekki. Hafi
KR-ingar ekki náð sér á strik með-
an jafnt var í liðunum, var bókstaf-
lega hörmulegt að sjá til þeirra í
seinni hálfleiknum. I stað þess að
koma framar á völlinn og taka völd-
in á miðsvæðinu bökkuðu þeir, náðu
aldrei að byggja upp sóknir af neinu
viti og Eyjamenn áttu ekki minna í
leiknum en meðan jafnt var í liðun-
um. Það sem á vantaði til að ná
sama fjöri í leikinn var að Eyja-
menn voru of fáliðaðir í sóknar-
aðgerðunum, ellefta leikmanninn
vantaði til að fara alla leið, og vörn
KR stóð vaktina vél.
ÍBV fékk tvö ágæt færi upp úr
miðjum síðari hálfleik, Bjarni Þor-
steinsson stýrði hörkuskoti Inga í
horn og Steingrímur Jóhannesson,
nýkominn inná sem varamaður,
skaut rétt yfir mark KR eftir
snögga sókn. KR átti fyrsta mark-
skot sitt - já, fyrsta markskotið
manni fleiri - þegar aðeins 11 mín-
útur voru eftir og þá rúllaði boltinn
laflaust í fang Birkis Kristinssonar
frá Hauki Inga Guðnasyni. Andri
virtist ætla að stela sigrinum fyrir
KR mínútu síðar þegar hann komst
KR
Birkir Kristinsson 2B
Páll Guðmundsson
Hlynur Stefánsson 2R2H
Kjartan Antonsson 2B2B
Hjalti Jóhannesson m
Ingi Sigurðsson 2»
(Allan Mörköre 82.)
Bjarni Geir Viðarsson
Hjalti Jónsson 2»
Momir Mileta 2»
(Baldur Bragason 82.)
Jóhann G. Möller
Islandsmótið i knattspyrnu
Landssímadeildin, 8. umf.
Hásteinsvöllur
sunnudaginn, 25. júní 2000
Aðstæður:
Gola, sólskin, frábært
sumarveður.
Völlurinn mjög góður.
Ahorfendur: 880.
Dómari:
Gylfi Þór Orrason,
Fram, 5.
Aðstoðardómarar:
Haukur Ingi Jónsson og
Magnús Þórisson.
Skotámark: 17-7
Leikskipulag; 3-4-3
Kristján Finnbogason JRJfi
_
Gunnar Einarsson
Þormóður Egilsson
(Arnar J. Sigurgeirss. 37.)
Bjarni Þorsteinsson
2«
(Steingrímur Jóhanness. 66.) Hornspyrnur:
7-3
Goran Aleksic
jtt Rangstöður:
1-2
Sigurður ðrn Jénsson JR
Þorsteinn Jónsson
Guðmundur Benediktsson
(Haukur Ingi Guðnason 69.)
Sigursteinn Gislason
(ívar Bjarklind 17.)
Sigþér Júliusson
Andri Sigþórsson
Einar Þór Danielsson______
0:1 (30.) Guðmundur Benediktsson sendi boltann inn í vítateig ÍBV vinstra
megin þar sem Hjalti Jóhannesson braut á Sigþóri Júlíussyni.
Réttilega dæmd vítaspyrna og úr henni skoraði Andri Sigþórsson
af öryggi; sendi Birki í öfugt horn.
1:1 (38.) Gunnar Einarsson braut á Hlyni Stefánssyni á markteigshorni vinstra
megin eftir þunga sókn ÍBV. Aftur benti Gylfi réttilega á vítapunktinn
og Momir Mileta skoraði með þrumuskoti út við stöng hægra
megin. Kristján fór í rétt horn en átti ekki möguleika á að verja.
Gul spjöld: Goran Aleksic, ÍBV, (21.) fyrir leikaraskap.
Rauð spjöld: Bjarni Geir Viðarsson, ÍBV, (42.) fyrir olnbogaskot.
einn innfyrir vörn ÍBV eftir langt
útspark Kristjáns en hann missti
boltann klaufalega of langt frá sér.
Marki ÍBV var loks ógnað af alvöru
á 85. mínútu þegar Haukur Ingi
náði hörkuskoti sem Birkir varði
glæsilega. Það voru hinsvegar tíu
Eyjamenn sem pressuðu á lokamín-
útunum og voru næst því að skora
sigurmarkið þegar Allan Mörköre
skallaði í varnarmann eftir horn-
spyrnu.
Eyjamenn hafa verið í vandræð-
um með að skora að undanförnu og
þeir brugðu á það ráð að taka
Steingrím og Mörköre út úr byrjun-
arliðinu, settu Goran Aleksic í
fremstu víglínu með Jóhanni Möller
og Bjarni Geir og Hjalti Jónsson
léku sem miðjutengiliðir. Þetta
gekk ágætlega upp, Eyjamenn
sköpuðu sér næg færi til að skora
en þurftu þó vítaspyrnu sem varn-
arjaxlinn Hlynur Stefánsson knúði
fram til að skora sitt fyrsta mark
síðan gegn Keflavík í 4. umferðinni.
Lið ÍBV lék í heildina vel í fyrri
hálfleik og eftir að Bjarni Geir var
rekinn af velli var einfaldlega gefið í
með þeim árangri að tíu Eyjamenn
vii'tust vera fleiri á vellinum en ell-
efu KR-ingar allan seinni hálfleik-
inn. Heildarsvipur liðsins var mjög
góður en það er á engan hallað þó
miðverðirnir Hlynur Stefánsson og
Kjartan Antonsson fái sérstakt
hrós. Hlynur var jafn traustur og
ávallt, og tilbúinn til að koma fram á
miðjuna og jafnvel enn lengra þeg-
ar með þurfti. Kjartan virðist loks-
ins vera að springa út sem sá varn-
armaður sem hann hafði burði til að
verða á unga aldri. Aleksic gerði oft
usla í vörn KR en segja má að
helstu mistök Eyjamanna f seinni
hálfleik hafi verið að láta hann
glíma of lengi við að komast fram-
hjá Sigurði Erni Jónssyni, sem var
nánast óvinnandi vegur.
Það er meira en lítið að í herbúð-
um KR-inga. Stemmningin og leik-
gleðin sem var svo stór þáttur í sig-
urgöngunni í fyrra virðist ger-
samlega á bak og burt. Margir
leikmenn virka áhugalitlir inni á
vellinum og það var sama hversu
mikið Pétur Pétursson þjálfari og
Kristján markvörður reyndu að
reka liðið framar á völlinn í seinni
hálfleiknum, þeim skipunum var
ekki framfylgt. Einar Þór var
ágengastur KR-inga framan af leik
en missti síðan flugið. Það var ekki
fyrr en Haukur Ingi kom inn á fyrir
Guðmund Benediktsson að smá líf
færðist í sóknarleikinn. Guðmundur
var algerlega týndur í hlutverki
fremsta miðjumanns, nema þegar
hann lagði upp færið sem gaf af sér
vítaspyrnuna. Það var markvarsla
Kristjáns sem kom í veg fyrir að
leikurinn væri KR-ingum tapaður á
fyrsta hálftímanum, og í seinni hálf-
leiknum var það frammistaða Sig-
urðar Arnar, Gunnars og Bjarna í
vörninni sem varð til þess að KR
hélt stiginu.
Gylfi Orrason sýnir Bjarna Geir Viðarssyni rauða spjaldið.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Sigursteinn
úr axlarlið
í fjórða
skipti
SIGURSTEINN Gíslason, KR-ingur, fór úr
axlarlið eftir aðeins 17 mínútur í leiknum
gegn ÍBV þegar hann lenti í návígi við Inga
Sigurðsson. Þetta er í fjórða skipti á ferlin-
um sem Sigursteinn verður fyrir þessu, síð-
ast í fyrsta leik sínum með Stoke City í vet-
ur.
„Þetta var venjulegt samstuð en þegar
Ingi hljóp aftur af stað kræktumst við sam-
an með þessum afleiðingum. Beinið stóð
bara langt út í loftið,“ sagði Sigursteinn en
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sjúkraþjálfari
KR-inga, kippti öxlinni aftur í liðinn. Svein-
björn sagðist vonast til þess að Sigursteinn
myndi aðeins missa af einum leik, gegn
Fram á fimmtudaginn kemur.
Þess má geta að Sigursteinn lék í eitt
skiptið þremur dögum eftir að hafa farið úr
axiarliðnum, með IA gegn Feyenoord í
Evrópukeppni meistaraliða fyrir sjö árum.
Sigursteinn hélt á sunnudaginn upp á 32
ára afmæli sitt og hefði örugglega viljað
gera það með öðrum hætti.
Áttum stigið
ekki skilið
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Pétur Pétursson, þjálfari KR-
ingar, var allt annað en
ánægður eftir leikinn. „Við lékum
vel í fyrri hálfleik
en skelfilega í þeim
síðari. Mér finnst
alveg ótrúlegt
hvernig íslands-
meistarar geta látið svona. Ég bara
skil það ekki,“ sagði Pétur í samtali
við Morgunblaðið.
Það vantaði ekki að Pétur hvetti
sína til að sækja, en það var sama
hvernig hann kallaði af hliðarlín-
unni, ekkert gerðist.
„Við voram afskaplega slakir og
mér fannst við ekki eiga skilið
þetta stig. Auðvitað er ég ánægður
með eitt stig hér í Eyjum, en mér
fannst við ekki eiga það skilið. Það
var ekki að sjá að við værum einum
fleiri, við reyndum meira að segja
að bæta mönnum í sóknina og vor-
um með þriggja manna vörn en það
breytti engu. Menn hafa greinilega
ekki meiri áhuga á þessu en þetta.
Miðjumennirnir hægðu á öllum
aðgerðum okkar og svo komu send-
ingar sem fóru beint á Eyjamenn,
menn gáfu varla sendingu á milli
sín. Ég botna bara alls ekkert í
þessu.
Þetta var í lagi í fyrri hálfleik en
svo kom þessi hörfun eftir hlé.“
Sumir leikmenn þínir virtust
vera orðnir nokkuð þreyttir. Eru
menn ekki í nægilega góðri æf-
ingu?
„Menn ættu að var í nægilega
góðri æfingu. Þeir leikmenn sem
voru hjá mér í vetur eru allir í
góðri æfingu en ég hef ekki tekið
eftir að þeir leikmenn sem voru
ekki hjá mér séu í góðri æfingu.
Mér fannst við ekki eiga neitt
skilið hér í Eyjum í dag, ekki einu
sinni stig. Mér fannst Vestmanney-
ingarnir miklu betri, sérstaklega í
síðari hálfleik,“ sagði þjálfari ís-
landsmeistara KR.
Þrjú rauð
spjöld á
Eyjamenn
EYJAMENN fengu þijú rauð
spjöld á sömu mínútunni í leiknum
gegn KR. Þegar Bjarni Geir Við-
arsson var rekinn af velli á 42.
mínútu mótmæltu margir þeirra
harðlega, enginn þó meira en Egg-
ert Garðarsson, varaformaður
knattspymudeildar ÍBV, sem var á
varamannabekk liðsins sem for-
ráðamaður. Eggert skammaði
nærstaddan aðstoðardómara all
harkalega og var rekinn af bekkn-
um fyrir vikið, og aðstoðarþjálfari
IBV, Elías Friðriksson, með hon-
um. Elías var undrandi á þeim
úrskurði. „Ég sagði ekki neitt og
var bara að reyna að halda aftur af
Eggerti," sagði Elías eftir leikinn.
Urðum að
rétta skút-
unavið
„ÉG hafði alltaf á tilfinningunni að við myndum klára þennan leik og
það hefði verið sanngjarnt. Rauða spjaldið sem Bjarni Geir fékk
virkaði sem vítamínsprauta á okkur. Við sýndum karakter með því
að koma til baka eftir að hafa fengið á okkur vítaspyrnu og rautt
spjald,“ sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV, við Morgunblaðið eft-
ir leikinn gegn KR á sunnudaginn.
|ér fannst reyndar rauða
spjaldið vera harður dómur,
en hafi Bjarni slegið KR-inginn átti
það að sjálfsögðu
rétt á sér. Það vakti
yjjjf’l þó athygli mína að
Sigurðsson Gylfi fór og talaði
við línuvörð sem var
ekki vel staðsettur til að sjá atvikið.
Það hefði verið nær að hinn línu-
vörðurinn hefði séð þetta,“ sagði
Hlynur.
Var ekki erfítt að mæta KR í
kjölfarið á þremur deildaleikjum í
röð þar sem liðið skoraði ekki
mark?
„Við höfum alltaf náð að peppa
okkur upp gegn KR-ingum, og _ef
menn ná ekki upp baráttu gegn ís-
lands- og bikarmeisturum, þá veit
ég ekki hvenær. Við urðum að rétta
skútuna við eftir þetta áfall á móti
Breiðabliki, og við gerðum það svo
sannarlega í dag. Það var kraftur í
liðinu þótt við værum manni færri.
Við höfðum stærri svæði til að
vinna á en það var mikill hugur í
mannskapnum og ég er mjög
ánægður með frammistöðu okkar
eins og leikurinn þróaðist."
Hvernig metur þú ykkar stöðu
eftir þennan leik?
„Deildin er ennþá mjög jöfn, við
erum enn með í baráttunni og þurf-
um bara 1-2 sigra til að ná efstu lið-
um. Mótið er skemmtilegt og jafn-
ara en oft áður og ég vona bara að
leikurinn í dag sé forsmekkurinn að
því sem koma skal. Ef við höldum
svona áfram er ég bjartsýnn á
framhaldið," sagði Hlynur Stefáns-
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
við spilum vel úti á vellinum en nýt-
um ekki færin. Miðað við gang
leiksins er ég mjög óánægður með
að við skyldum ekki ná að hirða
þrjú stig. Við vorum miklu betri all-
an tímann, það kom enginn slæmur
kafli þrátt fyrir að við værum tíu
allan seinni hálfleikinn,“ sagði
Kristinn Rúnar Jónsson, þjálfari
Eyjamanna.
„Við breyttum uppstillingunni
aðeins eftir að við urðum manni
færri og það gekk ágætlega. Við
reyndum að spila okkar leik og vor-
um ekki í neinum vandræðum með
KR-inga neins staðar á vellinum,
liðsmunurinn kom helst fram í
sókninni þar sem við vorum of fá-
mennir þegar mest á reyndi.“
Þú gerðir róttækar breytingar og
tókst út sóknarmennina, Steingrím
og Mörköre. Voru þetta viðbrögð
viðmarkaleysinu ísíðustu leikjum?
„Allt liðið lék illa síðast en það er
erfitt að henda ellefu leikmönnum
út. Sóknarmennirnir urðu fyrir val-
inu en þeir eru svo sem engir blóra-
bögglar og klikkuðu ekki frekar en
aðrir gegn Breiðabliki. Við erum
með stóran hóp og það geta allir
spilað, og það verða allir að standa
sína vakt inni á vellinum. Við fórum
í gegnum lægð, fengum of lítið út úr
sex fyrstu leikjunum miðað við
hvernig við spiluðum.Við kláruðum
ekki leikina gegn Fram og Leiftri
eins og við áttum að gera. En það
voru mikil batamerki á liðinu í dag
og við verðum að nýta það hlé sem
framundan er til að bæta leik okk-
ar,“ sagði Kristinn Rúnar Jónsson.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Kristján Finnbogason náði ekki að verja vítaspyrnu Momirs Mileta.
aaark!
NÚ ER ALLT Á SUÐUPUNKTI í BOLTANUM!
Landssímadeildin er jöfn og spennandi og nýir Evrópumeistarar verða krýndir 2. júlí.
Afskap
lega
slakt
„ÞETTA var afskaplega slakt
hjá okkur, sérstaklega í síðari
hálfleik og það var ekki að sjá
að við værum einum fleiri.
Maður hefði getað haldið að
Eyjamenn væru einum fleiri,“
sagði Kristján Finnbogason,
markvöður KR-inga, sem
varði mjög vel í þrígang í
fyrri hálfleiknum og stóð sig
vel í leiknum. „Ég er þokka-
lega ánægður með minn leik,
en hefði að sjálfsögðu viljað fá
öll þrjú stigin,“ sagði Krist-
ján.
Hann lét vel í sér heyra í
leiknum en það var sama
hvernig hann reyndi að ýta
sínum mönnum framar á völl-
inn, þeir fóru hvergi. „Ég veit
ekki hvað það er sem gerist
hjá okkur. Við höfðum tæki-
færi til að pressa stíft á þá
enda voru þeir með einn
mann í sókninni en við vorum
með fjóra til að gæta hans.
Ég veit ekki hvers vegna
þetta gerist, ef til vill þora
menn ekki að sækja, ég veit
það ekki,“ sagði Kristján.
Hann bætti við að auðvitað
mætti segja að það væri gott
að fara frá Eyjum með eitt
stig, „en miðað við hvernig
leikurinn þróaðist hefðum við
átt að sigra, en við gerðum
það ekki og verðum að sætta
okkur við eitt stig.“
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Stig meira
enífýrra
Þormóður Egilsson, fyrirliði KR,
varð að fara af leikvelli eftir 36
mínútna leik, missteig sig eitthvað
og var ekki góður
fyrir í ökklanum.
Hann var ekki
ánægður með það
sem hann sá af
hliðarlínunni.
„Þetta var nú hálfdapurt í síðari
hálfleik og það sem mér fannst sár-
ast var að horfa á allar þessar ein-
földu sendingar sem rötuðu ekki til
samherja. Við það missum við bolt-
ann á slæmum stað og í stað þess að
komast í sókn þurfum við að verj-
ast,“ sagði Þormóður.
- Þrjú jafntefli í röð, varla er það
viðunandi, eða hvað?
„Nei, nei, auðvitað ætlum við okk-
ur alltaf að vinna, en þetta fór nú
svona. Eitt stig er þó meira en við
fengum hér í fyrra held ég og það er
ekkert slæmt í sjálfu sér að fara
með eitt stig frá Eyjum, en auðvitað
áttum við að nýta okkur liðsmuninn.
Eyjamenn börðust eins og ljón og
maður tók alls ekki eftir því að þeir
væru einum færri. Það er ekki hægt
að taka það frá þeim, þeir léku vel,
en við áttum að gera betur. Það var
áberandi hversu hægt við sóttum og
þeir náðu alltaf að verjast án telj-
andi erfiðleika. Við áttum að vera
mun beittari, en Eyjamenn spiluðu
mjög vel og skynsamlega, við skul-
um ekki gleyma því,“ sagði fyrirlið-
Nýttu þér úrslitaþjónustu
Símans GSIVl og fáðu stöðu og úrslit leikja
með SMS skilaboðum um leið og tölur berast.
Skráðu þig á www.vit.is
og vertu til í slaginn.
SÍMíNN-GSM
FÆRIR RÉR FRAMTÍÐINA