Morgunblaðið - 05.08.2000, Page 3
2 B LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ 1 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 B 3
KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA
Þijú lið
berjast
um meist-
aratitilinn
„Spennan er meiri núna en oftast áður. Lið
sem verið hafa um miðja deild undanfarin
ár eins og IBV og Stjarnan eru að koma inn
sterkari. Yngri flokka starf þessara liða er
að skila sér. Núna eru það miklu fleiri leik-
menn sem eru góðir en áður. Þessar ungu
stelpur fá miklu meiri og betri þjálfun en
áður var,a sagði hin margreynda knatt-
spyrnukona Kristín Arnþórsdóttir þegar
hún og Iris Björk Eysteinsdóttir settust
niður o g fóru yfír stöðu mála í efstu deild
kvenna í knattspyrnu.
Islandsmótið í knattspyrnu kvenna
er í járnum. Tíu umferðum er
lokið af fjórtán og liðin eru tilbúin í
lokaátakið. Aðeins þrjú stig skilja
efstu þrjú liðin að. Hlé hefur verið á
mótinu sökum þess að ungmennal-
andslið Islands keppti á Norður-
landamóti í síðustu viku og hafnaði
þar í sjötta sæti. Næsta umferð
verður leikin 10. og 11. ágúst.
Stjarnan hefur komið einna mest
á óvart í sumar. Stjörnustúlkur
prýddu topp deildarinnar um tíma
eftir sigur á KR í fyrri umferð. Lið-
ið hefur aðeins tapað einum leik og
var það verulegur skellur gegn
Breiðabliki 6:0. Valur hefur auk
þess komið nokkuð á óvart með
slöku gengi. Liðið er nánast óbreytt
frá því í fyrra en þá hafnaði það í
þriðja sæti, aðeins stigi á eftir Blik-
um. Núna sitja Valsstúlkur í
fimmta sæti deildarinnar en liðið
hefur aldrei endað svo neðarlega í
deildinni. KR-stúlkur eru ekki með
eins sterkt lið og í fyrra þegar þær
unnu tvöfalt og töpuðu ekki leik. Nú
hafa KR-stúlkur hins vegar tapað
tveimur leikjum og sitja í þriðja
sæti deildarinnar. Sprækt lið Blika-
stúlkna hefur einnig komið nokkuð
á óvart þar sem liðið byggist upp á
ungum stúlkum sem aldar eru upp
hjá félaginu. Margar þeirra hafa
hreinlega blómstrað í sumar og því
situr Breiðablik á toppnum með
átta sigra, eitt tap og eitt jafntefli.
Toppbaráttan er því enn hörku-
spennandi og gæti farið svo að úr-
slit ráðist ekki fyrr en í lokaumferð-
inni er Stjarnan og Breiðablik
mætast.
Kristín Arnþórsdóttir á að baki
12 landsleiki, 99 deildarleiki fyrir
Val og 63 mörk. Hún var valin leik-
maður íslandsmótsins fyrst kvenna
árið 1986 en þá varð hún einnig
markadrottning með því að skora
22 mörk. Kristín dró fram skóna í
hitteðfyrra er hún lék fjóra leiki
með Gróttu í 1. deild og skoraði tvö
mörk. Hún hefur fylgst grannt með
fótboltanum í sumar.
Ekkert landslið til á
árunum 1988-1992
„Þetta er búið að vera mjög jafnt.
Hérna áður fyrr voru það Valur og
Breiðablik sem skiptust á að vera á
toppnum. Núna er þetta spennandi
og fleiri lið farin að blanda sér í
toppbaráttuna. Það eiga sér stað
nokkur kynslóðaskipti um þessar
mundir. Eg held að það komi að
hluta til út af því að á árunum 1988-
1992 var ekki til landslið og því að
litlu að stefna fyrir stelpurnar. Um
leið og landsliðinu var komið af stað
aftur og þá ungmennalandsliðum
líka byrjuðu stelpurnar aftur því
þær vilja hafa að einhverju að
stefna.“
Hvernig finnast þér gæði knatt-
spyrnunnar núna miðað við þegar
þú varst að spila?
„Knattspyrnan sem leikin hefur
verið í sumar er betri en oft áður og
greinilegt að ungar knattspyrnust-
úlkur eru farnar að skila sér í
meistaraflokka félaganna. Ég byrj-
aði til dæmis ekki í fótbolta fyrr en
13 ára en þá voru bara til annar
flokkur og meistaraflokkur. Núna
byrja stelpurnar miklu yngri og eru
þar af leiðandi miklu tæknilegra
betri. Árangur hjá unglingalands-
liðunum sýnir það. Kynslóðin sem
er fædd 1976-1978 og síðar er í
raun fyrsta kynslóðin sem er að
skila sér í meistaraflokkana. Það er
kynslóð sem er búin að fara í gegn-
um alla þessa barna- og unglinga-
þjálfun. Þess vegna eru nú ungar og
góðar stelpur í flestum liðunum."
Nú er mikið bil milli efstu og
neðstu liða deildarinnar. Hvernig
er hægt að brúa það bil?
„Sú hugmynd hefur komið upp að
fækka liðum í deildinni og spila
þrefalda umferð vegna þess að yfir-
leitt er það þannig að þessi lið sem
koma upp fara beint niður aftur.
Þetta er mjög slæmt. Vonandi er
þetta að breytast því núna eru að
koma inn lið eins og ÍBV og Stjarn-
an og við vitum að yngri flokkar hjá
ÍBV hafa verið mjög góðir og von-
andi heldur það áfram að skila sér
hjá fleiri liðum. Nú er um að gera
hjá þessum liðum að vera þolinmóð
°g byggja upp því eftir nokkur ár
verða þessar ungu og efnilegu
stúlkur eldri og reynslumeiri og þá
fáum við að sjá mun fleiri góð lið í
kvennaknattspyrnu. Það gerist oft
að stúlkur á unglingsárum sem eru
í liðum þar sem enginn árangur hef-
ur náðst hjá meistaraflokki flytja
sig yfir í betri liðin. Það er örugg-
lega mjög erfitt fyrir minni liðin.
Þetta tíðkaðist ekki hér áður fyrr.
Manni datt aldrei í hug að skipta
um lið þegar illa gekk. Þá þótti bara
fréttnæmt ef stúlka skipti um lið.“
Öflugt unglingastarf að skila
sér hjá Breiðablik
Breiðablik er á toppnum núna.
Þær hafa verið vaxandi í sumar,
hvers vegna heldurðu að það sé?
„Mér finnst Breiðablik vera með
besta liðið í sumar. Þær eru með
frekar ungt lið, en líka reynslumikl-
ar stúlkur eins og Sigrúnu Óttars-
dóttur, Margréti Ólafsdóttur og
Helgu Ósk Hannesdóttur þótt ekki
séu þær orðnar gamlar. Síðan eru
þetta mest stúlkur um tvítugt sem
I„Það eru nokkur kynslóðaskipti
sem eiga sér stað um þessar
mundir. Ég held að það komi að
hluta til af því að á árunum 1988-
1992 var ekki til landslið og því að
litlu að stefna fyrir stelpurnar. Um
leið og landsliðinu var komið af stað
aftur og þá ungmennalandsliðum
líka byrjuðu stelpurnar aftur því þær
vilja hafa að einhverju að stefna."
Morgunblaðið /Arnaldur
Blikastúlkan Laufey Ólafsdóttir fagnar ákaft með félögum sínum eftir að hafa skorað mark í 2:1 sigri gegn ÍBV í Kópavogi.
Morgunblaðið/Kristinn
Lið Stjörnunnar og ÍBV hafa bæði komið á óvart í sumar. Hinn enski leik-
maður Stjörnunnar, Justine Lorton, á hér í höggi við Bryndísi Jóhannes-
dóttur, ÍBV, í leik sem endaði með markalausu jafntefli.
+
„Það er langt síðan það hefur gerst
að (slandsmeistarar hafi tapað fjór-
um stigum. KR er búið að tapa
tveimur leikjum og gera eitt jafntefli,
samt er liðið í toppbaráttunni."
aldar hafa verið upp hjá félaginu.
Öflugt unglingastarf er að skila sér
í Breiðabliki. Ungu stelpurnar eru
mjög góðar, enda er meginþorrinn í
landsliðinu skipaður leikmönnum
21 árs og yngri úr Breiðablik. Liðið
virðist vera í mjög góðu líkamlegu
formi. Svo fengu þær náttúrulega
liðsstyrk, bæði Rakel Ögmunds-
dóttur sem að mínu mati er besti
leikmaðurinn í dag og svo fengu
þær Laufeyju Ólafsdóttur úr Val
sem valin var efnilegasti leikmaður
íslandsmótsins 1998 og Hrefnu Jó-
hannsdóttur úr ÍBV og þær styrkja
liðið mikið.“
Stjarnan gæti misst flugið
Stjörnustúlkur hafa komið einna
mest á óvart í sumar. Ná þær að
halda sínu striki og næla í titUinn?
„Nei, ég hef ekki trú á því. Þær
hafa komið mjög á óvart, baráttu-
andinn og leikgleðin virðist vera í
fínu lagi og þær hafa gaman af því
sem þær eru að gera. Að auki eru
þær með Auði Skúladóttur sem er
mikill leiðtogi og stjórnar vörninni
og það er ekki slæmt að hafa svo-
leiðis manneskju sem rífur þær
áfram. Inn á milli eru líka góðar
stelpur sem hafa komið upp í gegn-
um unglingastarfið eins og Elfu
Björk Erlingsdóttur og Maríu
Björgu Ágústsdóttur landslið-
smarkvörð og svo eru þær með góð-
an útlending, Justine Lorton. Svo
hafa Lovísa Lind Sigurjónsdóttir,
Lilja Kjalarsdóttir og Freydís
Bjarnadóttir spilað vel ásamt Heiðu
Sigurbergsdóttur. Steinunn Jóns-
dóttir er síðan algjör „reynslubolti"
og búin að vera í þessu lengi. Þann-
ig að þær eru með góðar stelpur en
samt hef ég ekki trú á því að þær
nái að halda þetta út. Þær eru bún-
ar að sýna góða leiki og svo hafa
þær dottið mikið niður á milli.
Framtíð liðsins veltur mjög mikið á
því hvort Auður, Steinunn og þeirra
líkar halda áfram svo að liðið haldi
reynslu. Þær eru búnar að koma
skemmtilega á óvart og ég er búin
að sjá þær spila virkilega vel.
Sumarið á eftir að leggjast vel inn á
reynslubankann hjá yngri stelpun-
um og þetta er lið sem þarf ekki _að
hafa áhyggjur af framtíðinni. Ég
hugsa samt að annað hvort KR eða
Breiðablik standi uppi sem sigur-
vegarar."
Ekki sama stemmning
hjá KR-ingum
KR-stúlkurnar spila ekki jafn vel
og ífyrra, af hverju?
„Ég held bara að önnur lið séu að
koma sterkari inn eins og áður
sagði. Þær voru með algjört yfir-
burðalið í fyrra en þær hafa ekki
dottið inní það sama núna. Þær eru
búnar að vinna báða titlana og
hungrið og stemmningin er kannski
ekki eins mikil og áður. Þær eru
með sama mannskap og í fyrra fyrir
utan Eddu Garðarsdóttur og Sigur-
lín Jónsdóttur. Þær eru að koma
upp með mjög efnilegar og góðar
stúlkur eins og Guðrúnu Sóleyju
Gunnarsdóttur í vörninni, Emblu
Grétarsdóttur og Elínu Þorsteins-
dóttur. Þær eru framtíðarlandsliðs-
menn. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
og Helena Ólafsdóttir eru kannski
ekki í framtíðarliðinu en Olga Fær-
seth, Ásthildur Helgadóttir og Guð-
laug Jónsdóttir eru ungar og eiga
eftir að vera í nokkur ár til viðbót-
ar.“
Skemmtilegir
útlendingar í Eyjum
ÍBV hefur verið að styrkjast und-
anfarin ár. Er þetta lið sem á eftir
að verða enn betra?
„ Já, ef það heldur þessum hópi og
útlendingunum áfram. Síðan eru
ungu stelpurnar líka að skila sér.
Auk þess eru þær með írisi Sæ-
mundsdóttur sem hefur reynsluna í
því liði og þær eru bara búnar að
vera virkilega óheppnar í mörgum
leikjum í sumar. Þær hefðu alveg
getað unnið fleiri með smá heppni.
Mér finnst þær vera með mjög
sterkt lið og skemmtilega útlend-
inga.
Þetta eru ungar stelpur sem eru
aldar upp hjá félaginu og eiga ör-
ugglega eftir að vera í toppbarátt-
unni næstu árin.“
Vantar leiðtoga hjá Val
Af hverju hefur gengið svona illa
hjá Val í sumar? Þetta er nánast
óbreytt lið frá í fyrra.
„Mér finnst ekki vera nógu mikill
áhugi hjá liðinu. Það vantar meiri
„karakter" og einhvern sterkan
leiðtoga til að rífa liðið áfram. Ég er
búin að sjá marga leiki með liðinu
og það er eins og þær eigi alltaf að-
eins hluta úr leik alveg stórkostleg-
an. Það er oft eins og allt hrynji í
hálfleik. Þegar þær verða fyrir mót-
læti og fá á sig mark er bara eins og
það komi andleysi í þær. Það vantar
meiri baráttuanda í liðið. Það eru
tveir til þrír leikmenn búnir að spila
á getu. Rakel Logadóttir er búin að
spila sérstaklega vel seinni part
sumars - búin að rífa sig vel upp -
og svo Ásgerður Ingibergsdóttir.
Einnig hefur Ragnheiður Jónsdótt-
ir markvörður staðið fyrir sínu. íris
Andrésdóttir kom inn á miðju
sumri og þá breyttist leikur liðsins
til hins betra. Leikmenn sem eiga
að vera máttarstólpar í liðinu hafa
ekki sýnt sitt besta.
Síðan er voðalega mikið búið að
rokka með liðið fram og til baka og
það vantar mun meiri stöðugleika.
Það vantar einnig fleiri ungar stelp-
ur í liðið, þær hafa að vísu verið að
fá tækifæri núna undanfarið. Annar
og þriðji flokkur Vals eru með þeim
bestu á landinu og þær stelpur
verða að fara að fá meiri séns. Þetta
eru stelpur sem taka við liðinu eftir
tvö til þrjú ár og kannski styttri
tíma. Mér finnst að þessar ungu
stelpur hafi komið alltof seint inn í
liðið. Framtíðin er mjög góð ef
haldið er rétt á spöðunum.“
Kynslóðaskipti á Skaganum
ÍA var eitt af stórveldum kvenna-
boltans en það hefur hallað undir
fæti að undanförnu, hvers vegna?
„Þær eru með rosalega ungt lið
og til dæmis eru stúlkur úr þriðja
flokki í byrjunarliði hjá þeim.
Skagastúlkur misstu leikmenn, en
hafa reyndar endurheimt einhverja
til baka eins og Margréti Ákadótt-
ur, Magneu Guðlaugsdóttur og
Steindóru Steinsdóttur sem er
mjög mikilvægt fyrir þessar ungu
stelpur sem eiga að taka við liðinu
síðar. Það á sér stað endurnýjun á
Skaganum núna. Þetta er mjög sér-
stakt því það er alveg ótrúlegt
kynslóðabil þar. Það er eins og það
hafi komið tímabil þar sem engar
stelpur voru að spila fótbolta á
Skaganum. Maður hefði haldið að
hálft bæjarfélagið og rúmlega það
væri í fótbolta - bærinn er jú þekkt-
ur fyrir það. Skagastúlkur eiga von-
andi eftir að ná sér upp, annað væri
synd. Hér áður fyrr voru leikir
gegn ÍA stóru leikir sumarsins og
alltaf fullt af áhorfendum."
Erfitt fyrir botnliðin
að ná hínum
ÞórfKA hefur ekki náð að festa
sig í sessi. Hvers vegna er ekki
betra lið frá jafn stórum bæ og Ak-
ureyri?
„Það er svolítið skrítið að eftir að
félögin voru sameinuð virðist það
ekki hafa skilað sér. Hverju er um
að kenna get ég því miður ekki
svarað.
En eftir sigurinn á móti FH hafa
möguleikar þeirra aukist mikið á að
haldast í deildinni. Þetta ræðst í
lokin. Þær gætu dottið inn á móti
Akranesi og stolið stigi en samt hef
ég ekki trú á þvi. Með eðlilegum
leik hjá hinum liðunum á það ekki
að vera hægt.“
Hvað með FH, á það lið eftir að
halda sér uppi?
I„Knattspyrnan sem leikin hefurver-
ið í sumar er betri en oft áður og
greinilegt að ungar knattspyrnu-
stúlkur eru farnar að skila sér í
meistaraflokka félaganna."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Linda Persson, Val, og Guðlaug Jónsdóttir, KR, eigast hér við í
leik sem KR sigraði 2:0 í Frostaskjólinu fyrr í sumar.
„Þær eru með ágætis lið og mjög
ungt. Þær eru með eldri leikmenn
eins og Ástu Stefánsdóttur. Einnig
er Arna Steinsen eldri leikmaður
sem tengir vömina fyrir þær. Það
er mjög skynsamlegt því hún er
búin að vera í þessu í svo mörg ár
og veit hvað hún er að gera. Það er
auðvitað gott fyrir þessar ungu
stelpur. Síðan eru þær með mjög
efnilegan markmann, Guðbjörgu
Gunnarsdóttur unglingalandsliðs-
markvörð. Samt vantar fleiri góða
leikmenn í liðið. En það skilar sér
vonandi eftir tvö til þrjú ár þegar
liðið hefur fengið meiri reynslu."
Þurfa að vera fleiri leikir
Hvernig er hægt að gera mótið
meira spennandi, þurfa ekki að vera
fleiri leikir?
„Það eru alltof fáir leikir. Málið
er venjulega þannig að ef lið tapar
einum leik er toppbaráttan orðin
hálfvonlaus. Reyndar hafa toppliðin
tapað fleiri stigum í sumar en áður.
Það er langt síðan það hefur gerst
að íslandsmeistarar hafa tapað
fjórum stigum. KR er búið að tapa
tveimur leikjum og gera eitt jafn-
tefli, samt eru þær í toppbarátt-
unni.“
Er spennandi að fylgjast með
kvennaboltanum í dag?
„Já, mér finnst mjög gaman að
fara á toppleiki og margar af ungu
stúlkunum eru virkilega góðar. Þær
eru viljugar, áhugasamar og dug-
legar að æfa. Það er æft miklu
meira en áður. Flestar af þessum
stelpum eru 1 góðu líkamlegu formi.
Þjálfunin er miklu betri - þær æfa
allt árið en það var ekki gert áður.
Ungmennalandsliðin eru efnileg og
ekki langt á eftir nágrannaþjóðun-
um. Ef við ætlum að ná þeim bestu í
íþróttinni verðum við að gefa stúlk-
unum tækifæri á að spila erlendis
því við höfum svo sannarlega efni-
viðinn til þess,“ sagði Kristín.
IMsesta Evrópumeistaramót eldri
kylfinga (55 ára og eldri) verður haldið
í Tékklandi 25.-29. júní árið 2001.
Þar sem mótið er svo snemma árs, hefur stjórn
LEK ákveðið að þrjú viðmiðunarmót verði á
þessu ári vegna vals á keppendum fyrir fslands
hönd. Þátttökurétt í mótunum hafa allir þeir
karlar, sem náð hafa 55 ára aldri fyrir
25. júní 2001 og eldri.
Tvö fyrstu viðmiðunarmótin verða á
Akureyri 19. og 20. ágúst nk. og það
þriðja á Hólmsvelli í Leiru 10. sept.
Mótin verða auglýst síðar.