Morgunblaðið - 10.09.2000, Side 4
4 B SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Aðalleikararnir í Klæðskeranum frá Panama - f.v. Pierce Brosnan, Jamie Lee Curtis og Geoffrey Rush sitja fyrir hjá myndasmiðum í miðborgarhóteli í Panama City.
MARGAR sögur Johns Le Carrés hafa verið
kvikmyndaðar en líklega engin með sama
góða árangrinum og sú fyrsta, Njósnarinn
sem kom inn úr kuldanum með Richard Burt-
on í aðalhlutverki undir leikstjórn Martins
Ritts. Hún var gerð árið 1965 þegar Bond-
myndimar höfðu náð vinsældum með glæsi-
legum fantasiuheimi súium en í „Njósnaran-
um“ var önnur og flóknari og raunsærri
njósnaveröld og spæjarinn sem Burton lék
bitur svartsýnismaður, sem brenndi sig á
svikum og gagnnjósnum.
Andstæða Bonds
Vondar myndir hafa iika verið gerðar eftir
sögum Le Carrés eins og The Little Drumm-
er Girl eftir George Roy Hill og The Russia
House var Iítið spennandi með Sean Connery
í aðalhlutverki en í sjónvarpi hafa sögur hans
blómstrað í höndum breskra leikstjóra; eftir-
minnilegastur er Alec Guinness í hlutverki
Smileys og A Perfect Spy, sem var að nokkru
leyti ævisöguleg, er eitthvert besta sjón-
varpseftii sem Bretar hafa boðið upp á.
Le Carré skrifar alls engar Bond - sögur
og því vekur það nokkra athygli að með ann-
að aðalhlutverkið í The Tailor of Panama eða
Klæðskeranum í Panama fer Bond-leikarinn
Pierce Brosnan. Brosnan, sem gerði nýlega
sanming um að leika James Bond í þremur
nýjum bíómyndum, segist hæstánægður með
að leika mann sem leikstjórinn, John Boor-
man, segir að sé „antí“-Bond.
Sagan gerist í Panama þegar Banda-
ríkjamenn hafa sleppt ítökum sínum og látið
frá sér skurðinn og við hefur tekið erfitt póli-
tískt og efnahagslegt umrót. Ástralski leik-
arinn Geoffrey Rush leikur titilpersónuna,
Harry Pendel, er lýsir sjálfum sér sem sam-
blandi af trúlitlum gyðingi og ískum kjaft-
aski. Hann er kúgaður af pjósnaranum And-
rew Osnard, sem Brosnan leikur, til þess að
senda lognar en ábatasamar upplýsingar í
breska sendiráðið um það að Kínveijar ætli
sér að taka yfir Panama-skurðinn.
Boorman segir í nýlegu hefti bandaríska
kvikmyndatímaritsins Premiere að Osnard
og Pendel séu „skemmtiiega ólíkt par“ en um
persónu sína í myndinni segir Brosnan: „Osn-
ard er aumkunarverður njósnari. Það er ekki
mikið að gerast í kringum hann og hann býr
við það að vera orðin 46 ára og geta ekki sagt
nokkrum manni hver hann er.“
Osnard var gerður tuttugu árum eldri en
hann er í sögunni svo Brosnan gæti farið með
hlutverk hans og leikarinn segir að hann og
Le Carré hafi búið til síðustu tvo áratugina í
lfifi ly'ósnarans þegar þeir hittust síðdegi eitt í
Kalifomíu þar sem Le Carré var að heim-
sækja bamaböm sín. Le Carré starfaði eitt
sinn við bresku njósnastofnunina MI6 og
byggir því sögur sínar á eigin reynslu að ein-
hveiju leyti og hefur í seinni tíð talað um
vem sína þar. „Um Osnard sagði hann að
Klæðskerinn
í Panama
Unnið er að því að kvikmynda njósnasögu Johns
Le Carrés, The Tailor of Panama, í Panama
undir stjórn Johns Boormans en Bond-leikarinn
Pierce Brosnan fer með annað aðalhlutverkið.
____Arnaldur Indriðason njósnaði um
Kdæðskerann, Brosnan og Boorman.
Keuters
Associated Press
Breski lcikstjórinn John Boorman í Pan-
ama um það leyti sem tökur myndarinn-
ar hófust fyrr á þessu ári.
þeir hefðu stolið æsku hans,“ segir Brosnan
og vitnar í njósnasagnahöfundinn. „Fyrir
mér var það mjög þýðingarmikið og er rök-
rétt þegar litið er til ferils Carrés sjálfs."
Brosnan og Boorman
Pierce Brosnan varð fyrst kunnur sem
sjónvarpsleikari en hann er fæddur á Irlandi.
Honum var boðið hlutverk James Bonds þeg-
ar Roger Moore hætti en var þá ekki á lausu
og Timothy Dalton hreppti hnossið mörgum
Bond-aðdáendum til nokkurs leiða. Dalton
lék hetjuna í tveimur myndum og gerði hana
að heldur skuggalegum og húmorslausum
karakter eftir að Moore hafði grínast með
hlutverkið og tekist það vel. Brosnan hefur
Rithöfundurinn John Le Carre sem heit-
ir réttu nafni David Cornwell, er meðal
framleiðenda myndarinnar.
reynt að finna húmorinn aftur og leitar aftur
til þess sem Connery gerði úr hlutverkinu.
„Dalton var hugrakkur að leika Bond eins
og hann væri kvikindi," segir hann á einum
stað, „en það verður að fylgja honum húmor.
Connery hafði þessa dökku hlið líka en hann
gleymdi aldrei húmornum. Teningunum var
kastað með túlkun Connerys og það má
aldrei gleyma gamanseminni sem fylgir
Bond. Ef þú ert bara skíthæll missirðu samúð
mikils hluta áhorfenda.“
Brosnan hefur leikið í öðru en Bond-
myndum, nú síðast The Thomas Crown Aff-
air, en er fremur takmarkaður og einhliða
leikarí. Le Carré-myndin gæti verið tækifæri
fyrir hann til þess að sýna á sér nýjar hliðar
sérstaklega þar sem leikstjórinn er John
Boorman, sem á að baki glæsilegan feril bæði
í Bretlandi og í Bandaríkjunum.
Boorman hóf störf sem aðstoðarklippari
hjá BBC á sjötta áratugnum en gerði sína
fyrstu bíómynd árið 1965, Having a Wild
Weekend, með Dave Clark Five. Honum var
boðið til Hollywood þar sem hann gerði þijár
eftirminnilegar myndir í röð, Point Blank
með Lee Marvin (Mel Gibson endurgerði
hana fyrir skemmstu og kallaði Payback),
Hell in the Pacifíc, líka með Marvin, og loks
mesta öræfatrylli allra tíma, Deliverance.
Eftir það fór heldur að síga á ógæfuhliðina
með myndum á borð við Zardoz og Særing-
armanninum 2 en hann náði sér aftur á strik í
byijun níunda áratugarins með hinni glæsi-
legu riddaramynd Excalibur. Merkasta kvik-
mynd hans síðan er sjálfævisöguleg og heitir
Hope and Glory og er frá 1987. Hún fjallaði
um ungan dreng á stríðsárunum í Bretlandi
og hvemig styijaldarátökin hafði áhrif á
hans líf.
í Panama
Leikstjórinn og landi Boormans, Tony
Scott, ætlaði sér að gera Klæðskerann í Pan-
ama en hætti við og Boorman var kallaður
til. Hann endursamdi handritið eins og siður
er þegar nýir leikstjórar koma að verkefni
sem þessu og naut við það hjálpar hand-
ritshöfundarins Andrew Davies (Circle of
Friends). Þeir studdust við hina „gríðarlega
löngu útgáfu höfundarins af sögunni," eins
og hann orðar það.
Le Carré er einn af fimm framleiðendum
myndarinnar en hætti sér ekki á tökustaði í
Panama vegna þess að Panamabúar eru ekki
beint ánægðir með lýsingu hans á landinu
sem miðstöð peningaþvættis. En kvikmynda-
gerðarmennirnir eiga sér þó að sögn einn
valdamikinn stuðningsmann sem er forseti
landsins, Mireya Moscoso. Hún hvatti ráð-
herra sína og aðra til þess að veita kvik-
myndagerðinni fullan stuðning í þeirri von
að myndin muni efla ferðamannaiðnaðinn í
landinu.
Óvíst er hvort það verði. Myndin mun ger-
ast í næstu framtíð þegar landinu er enn á ný
stjómað af herforingjum og ungum fasistum
á mótorhjólum og Bandaríkjamenn em ákaf-
ir í að ná aftur yfirráðum yfir Panama-
skurðinum og beita til þess öllum brögðum.
„Það em margir átakapunktar í Panama,"
er haft eftir Boorman, „alls kyns efnahags-
legar ógnanir, sem gætu orðið til þess að úr
verði samningar sem minnki tök heima-
manna á skurðinum."
„Ég er svo feginn að hafa gert þessa mynd
hér,“ er haft eftir Pierce Brosnan þegar
hann er spurður út í hvemig það sé að leika í
mynd sem gerist í hinum raunverulega
njósnaheimi. „Og ég er svo heppiim að geta
farið héðan líka,“ bætir hann við.