Morgunblaðið - 10.09.2000, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 B 19
Kaliforníuháskólann í Berkeley,
fyrirlestur um goðsögnina um
Baldur og túlkanir á henni. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á ensku og
nefnist: „When Disaster Struck
the Gods: Baldr in Scandinavian
Mythology". Fyrirlesturinn verður
fluttur í Þjóðarbókhlöðunni og
hefst kl. 17.15.
John Lindow hefur verið
prófessor við Kaliforníuháskólann
í Berkeley um langt árabil. Rann-
sóknir hans hafa einkum beinst að
norrænni goðafræði og þjóðfræð-
um. Hann var m.a. annar ritstjóra
bókarinnar Old Norse-Icelandic
Literature: A Critical Guide er
kom út árið 1985 sem 45. bókin í
ritröðinni Islandica. Þá fjallaði
John Lindow um goðið Baldur í
bók sinni Murder and Vengeance
among the Gods: Baldr in Scand-
inavian Mythology, sem kom út í
Helsinki 1997. John Lindow dvelst
hér á landi sem Fulbright-kennari
pg kennir þjóðfræði við Háskóla
Islands á haustmisseri.
Málstofa Guðfræðistofnunar
Fimmtudaginn 14. september kl.
17.15 í V. stofu í Aðalbyggingu HÍ
verður fyrsta málstofa haustmiss-
eris haldin. Þá flytur prófessor
Jón M. Ásgeirsson fyrirlesturinn
„Kýnikear og kanónar: Heimspeki
í skugga Platóns“.
Opinber fyrirlestur
um umhverfismál
Símennt Háskólans í Reykjavík auglýsir námskeið
til undirbúnings GMAT próftöku. GMAT prófið er inntöku-
skilyrði í framhaldsnám (MBA nám) um allan heim.
Námskeiðið skiptist niður í tvo hluta í samræmi við
prófið:
Enska (9 klst.)
Stærðfræði (9 klst.)
Aðaláhersla er lögð á námstækni og skipulagningu við
töku prófsins.
Kennt verður á eftirfarandi tímum:
Mánudagur 25. september
Fimmtudagur 28. september
Laugardagur 30. september
Mánudagur 2. október
Fimmtudagur 5. október
Laugardagur 7. október
19:00-22:00
19:00-22:00
12:00-15:00
19:00-22:00
19:00-22:00
12:00-15:00
Námsgögn innifalin. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Verð kr. 59.000
Leiðbeinandi: Dr. Kent D. Boklan
mora
((^02220213
Sþid
blöndunartæki
Eins handfangs blöndunartæki Mora Mega
eru lipur og létt í notkun. Fást bæði í handlaugar
og eldhús, króm eöa króm/gull.
Föstudaginn 15. september flyt-
ur William Cronon opinberan fyr-
irlestur á vegum Mannfræðistofn-
unar Háskóla Islands og
Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.
Fyi-irlestur sinn nefnir Cronon:
„Leitin að náttúrunni". í fyrir-
lestri sínum mun Cronon fjalla um
leit mannsins að hinu villta og
breyttar hugmyndir um stöðu
mannsins í náttúrunni. Fyrirlestur
Cronons er hluti af röð opinberra
fyrirlestra á vegum Mannfræði-
stofnunar Háskóla íslands um
„Markalínur náttúru og samfé-
lags“. Hann fer fram í stofu 101 í
Odda við Háskóla íslands og hefst
kl. 12.
William Cronon er prófessor í
sögu, landafræði og umhverfis-
fræðum við Wisconsin-háskóla í
Madison. Hann er kunnur fyrir rit
sín um umhverfismál og umhverf-
issögu. Meðal verka hans eru bæk-
urnar Uncommon Ground: Re-
thinking the Human Place in
Nature (1996), Nature’s Metropol-
is: Chicago and the Great West
(1991), og Changes in the Land:
Indians, Colonists, and the Eco-
logy of New England (1983). Fyrir
bók sína Nature’s Metropolis hlaut
hann svonefnd Bancroft-verðlaun.
V ísindavefurinn
Hvers vegna? - Vegna þess!
Vísindavefurinn býður gestum
að spyrja um hvaðeina sem ætla
má að vísinda- og fræðimenn há-
skólans og stofnana hans geti
svarað eða fundið svör við.
Leita má svara við spurningum
um öll vísindi, hverju nafni sem
þau nefnast.
Kennarar, sérfræðingar og nem-
endur í framhaldsnámi sjá um að
leysa gáturnar í máli og myndum.
Slóðin er: www.visindavefur.hi.is.
Sýningar í Árnastofnun
Stofnun Árna Magnússonar,
Árnagarði við Suðurgötu.
Handritasýning er opin kl. 14-
16 þriðjudaga til föstudaga, 1.
sept. til 15. maí. Unnt er að panta
sýningu utan reglulegs sýningar-
tíma sé það gert með dags fyrir-
vara.
Orðabankar og gagnasöfn
Ollum er heimill aðgangur að
eftirtöldum orðabönkum og gagna-
söfnum á vegum Háskóla Islands
og stofnana hans: Islensk málstöð.
Orðabanki. Hefur að geyma fjöl-
mörg orðasöfn í sérgreinum:
http://www. ismal.hi.is/ob/. Lands-
bókasafn Islands - Háskólabóka-
safn. Gegnir og Greinir:
http://www.bok.hi.is/gegnir.html.
Orðabók Háskólans. Ritmálsskrá:
http://www.lexis.hi.is/. Rannsókna-
gagnasafn íslands. Hægt er að líta
á rannsóknarverkefni og niður-
stöður rannsókna- og þróunar-
starfs: http://www.ris.is.
Síðasti skráningardagur er 17. september n.k. Skráning
fer fram í síma 510 6250 eða sendið skráningu í
tölvupósti á simennt@ru.is.
V
HÁSKÓLINN | REYKJAVÍK
REYKJAViK UftilVERGJTY
Símennt HR • Ofanleiti 2 • 103 Reykjavík • Sími 510 6250 • Símbréf 510 6201
www.ru.is/simennt • simennt@ru.is
Mora - sænsk gæðavara
T€Í1GI
r-
Smiðjuvegi 11 * 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is