Þjóðólfur - 20.01.1893, Síða 1

Þjóðólfur - 20.01.1893, Síða 1
Árg. (60 arkir) kostar 4kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júlí. ® Uppaögn, bundin við áramót ógild nema komi til útgef- anda fyrir 1. október. ÞJÓÐÖLFUR XLV. árg. Gömlu málin og gagnfræðakennslan. (NiJurl.). Ekki að eins kunnátta pilta í grísku, heldur einnig í latínu, lilýtur jafn- an að verða mjög ófullkoinin í skólanum, hversu samvizkusamir og velhæfir, sem kennararnir eru, eins og reyndar má segja um hverja aðra námsgrein, því að sökum þess, að svo margt er kennt, verður þekk- ingin svo ofurlítil í hverju einu, að hún kemur meginþorra nemenda að liltu eða engu gagni síðar meir. Hún verður bara nafnið eitt og ekki annað. Þetta hafa marg- ir séð og viðurkennt fyrir löngu. En það er ekki gott að ráða bót á því. Það verð- ur ekki bæði sleppt og haidið. Að því er latínunámið snertir skulum vér geta þess, að ekki dugar að vitna til, þótt ýmsir, sem Iærðu í Bessastaðaskóla, hafi verið vel að sér í latínu, því að það er ekki þakkarvert, þá er kennslan í öðr- um námsgreinum var svo að segja ekki neitt eða komst að minnsta kosti ekki í hálfkvisti við latínukennsluna. Margir Bessastaðastúdentar vissu heldur ekki neitt í neinu eptir skólaveru sína, nema í iatínu. í grísku voru þeir t. d. yfir höfuð lítt að sér, því að hún var olbogabarn latínunn- ar á Bessastöðum. Vér neitum því alls ekki, að pilt- ar geti aflað sér allmikillar þekking- ar í gömlu málunum í skóla, en til þess yrði að verja miklu meiri tíma til kennslu þeirrá, en nú er. Það veitti þá ekki af að tvöfalda eða þrefalda hana. En það eru engar Iíkur fyrir, að það verði gert. Stefna tímans gengur einmitt í þá á'tt, að gera námið sem óbrotnast, Sem möst arðberandi fyrir Iífið, en varpa út- byrðis öllu lærdóms-hrófatildri, sem að eins getur verið lagleg „vizkumedalía“ svona til sýnis, en dettur öll í smámula og verð- ur einskisvirði, þá er nánar er aðgætt. Vér játum fúslega, að grisku- og latínunám befur ýmsa kosti í för með sér og veitir sumum mikla nautn og ánægju, en þeir erv* tiltölulega sárfáir, sem eru svo settir í lífinii, að geta helgað því æfistarf sitt. Það er auðvitað sárt að sjá það sem manni er kærast lítils metið, að sjá aldar- andann beygja i þá stefnu, að rýra gildi Reykjavík, föstudaginn 20. janúar 1893. þess og koma því fyrir kattarnef, ef svo má segja. Það er sárt fyrir skyldurækinn kennara, að verða sjónarvottur að veru- legri hnignun þeirrar námsgreinar, sem hann hefur gert að aðalstarfi Iífs síns, án þess, að hann geti nokkuð við það ráðið. En svo mikils sem vér metum gömlu mál- in, getur oss ekki dulizt, að allt bendir á það, að kennsla þeirra við skólann hér verði innan skamms takmörkuð til muna, og teljum vér í rauninni ekkert að því, einraitt sakir þess, að kunnátta pilta í þessum málum er nú sem stendur fremur lítil. Þeir eru hættir að leggja nokkra rækt við þau, einkum iatínuna, og ekki sízt latneska stílinn, sem ekki á upp á pallborðið, enda er allur þorri pilta fá- kunnandi í honum. Hún virðist einhvern veginn liggja í loptinu sú skoðun, að gömlu málin háfi þegar lifað sitt fegursta hér á landi og að kunnátta í þeim sé alls ekki bráðnauðsynleg til að geta heitið menntaður maður. Það er síður en svo, að kennurunum sé gefandi sök á þessari apturför eða áhugaleysi meðal pilta, að minnsta kosti hvorki rektor eða dr. Birni Ólsen, sem báðir eru alþekktir og viður- kenndir, sem ágætir kennarar, og mæta- vel að sér í sinni grein, og sama má segja um Steingrim Thorsteinssön. En hvað stoðar það, þótt kennararnir séu ástund- únarsamir og leggi sig í líma til að glæða áhuga nemendanna, þá er fræinu er sáð út á þekju. Svipað áhugaleysi hjá pilt- um keraur auðvitað fram í öðrum grein- um, þvi að hjá því verður ekki koinizt. Þar er misjafn sauður í mörgu fé, og til þess verður ekki ætlazt, að allir stundi nám sitt með áhuga. Fyrir margra hluta sakir hyggjum vér æskilegt, að latínu yrði sleppt til inntöku- prófs í skólann, einkum sakir þess, hve undirbúningskennslan er léleg opt og ein- att. Margir þeirra, sem takast á hendur að kenna piltum undir skóla, hafa sjálfir aldrei getað „botnað" neitt í latinu hjálp- arláúst eða án þýðinga, aldrei kunnað að beygja rétt latneskar sagnir og aldrei þekkt algengustu tíðir og hætti, hvað þá heldur meira. Vér höfum ekki trú á að kennsla þessara manna verði á marga fiska, eða hvernig á blindur áð leiða blindan ? Vér Nr. 3. höfum og lieyrt kennara skólans kvarta yfir þessu, og lýsa því yfir, að þeir vildu miklu heldur, að piltar hefðu ekkert lært í latínu, er þeir kæmu í skóla, því að undirstaðan væri opt svo léleg og kennslu- aðferðin öll röng frá upphafi. Sé þessu almennt svona varið, hvers vegna má þá ekki latina falla burtu til inntökuprófs? Yfirhöfuð getum vér ekki séð neitt því til fyrirstöðu, að gagnfræðakennsla komist á við lærða skólann og að Möðruvalla- skólinn komist í samband við hann. Það hefur löngum verið talið hagkvæmara, að kraptarnir væru sameinaðir heldur en sundraðir, og að því mun framtíðarstefna vor íslendinga í skólamálum hneigjast. Um veginn frá Reykjavík til Geysis. Blöðin liafa lítilsháttar drepið á, hve gott væri að geta hænt útlenda ferðamenn hingað, og það er víst, að þeir flytja mikla peninga inn í landið, en það þarf að gera eitthvað i þá átt, að þeir vilji koma hingað, og álít eg þá hið fyrsta: að þeir geti átt kost á að ferðast á góð- um vegum, því að væru þeir góðir, þá væri fremur vegur að reisa gistihús með fram þeim. Sá vegur, sem eg helzt ætla að tala um og fjölfarnastur er af útlendingum, er Geysisvegurinn (frá Rvík til Geýsis). Hann er allt annað en góður, að undantekinni Mosfellsheiði. Yfir hana er lagður vegur en mjög er ofaníburðurinn grýttur austan- til á hefini, því það væri mestá þörf á að ryðja hann, en að öðru leyti er vegurinn ágætur. Frá Mosfellsheiði er allgóður vegur austur að Skálabrekkuás, en frá honum og austur á Laugarvatnsvelli er að heita má ðfær vegur, einkum þegar bleytur erU. Yegurirtn liggur yfir hraun með ein- lægum klifum og dældum á milli, sem standa fullar áf vatni eptir hverja skúr, og þar að auki eru þær mjög holóttar. Eg ímynda mér, að útlendingum þyki ekki mjög fallegt að sjá, þegar aumingja hestarnir eru að festa fæturna í þeim, svo að liggur við slysum, því íslending- um, sem er þó ekki hrósað fyrir ofgóða meðferð á hestum, þykir það æði ljótt.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.