Þjóðólfur - 16.11.1906, Page 2
192
ÞJÓÐOLFUR.
Nr3 ALLAR PANTANIR
fyrir hlutum frá Amerífeu. sem eiga að koma til móttakanda n. k. vor, verða að vera til mín komnar, ásamt
tilskyldri borgun, fyríp 1. febrúar n. k. í allra síðasta lagi. Reykjavík (Box 15 a.) S B. JÓnsson.
Danmörk sltni ekki«. [Eptir fólks-
þingstíðindunum dönsku 121. dálki1)].
Þetta er bæði vel og viturlega mælt,
mjögeptirtektaverð orð hjá hægrimannafor-
mælanda, og sýna ljóslega, að allra íhalds-
samasti stjórnmálaflokkurinn í Danmörku
telur langréttast og heppilegast að verða
við óskum vorum, svo framarlega sem
vér förum ekki fram á að slíta sambandi
íandanna. Sú krafa — skilnaðarkrafan —
fengi að sjálfsögðu engan meðmælanda
hjá nokkrum stjórnmálamanni í Dan-
mörku, í hverjum flokki sem hann væri.
Það er eðlilegt, að Dönum sé sárt um
það. En hvað sem því líður, þá væri
stórkostleg fásinna af oss, eins og nú
stendur, að fara fram á fullan aðskilnað,
enda mun sú stjórnmálastefna eiga fáa
fylgismenn 1 landinu, og því síður munu
menn hafa gert sér ljóst, hvað af því
leiddi, ef sambandi landanna yrði slitið.
Þetta er að eins hugsjón, sem ef til vill
rætist einhvern tíma, og ef til viil ekki,
og mjög vafasamt, hvort það væri heppi-
legt, að hún rættist nokkurn tíma. Vér
getum vel gert oss ánægða með að ná
sem fyllstu sjálfstæði og sjálfstjórn, sem
frjálst sambandsland Danmerkur. En vér
getum ekki heldur gert oss ánægða með
minna, en að það sé skýrt ákveðið í hin-
um væntanlegu sambandslögum landanna,
að vér einir höfum öll ráð yfir
sérmálum vorum án allrar íhlutunar
ríkisráðsins eða danska ríkisþingsins.
Þetta er réttmæt og sjálfsögð krafa, er
allir ættu að geta fylkt sér um ágreinings-
laust. Vér verðum að gera þá kröfu til
nefndar þeirrar, er skipuð verður til að
semja sambandslögin nýju, að hún gæti
þess vel, að rétti íslendinga, er þeir hafa
bæði stjórnarfarslega og sögulega, verði í
engu hallað, og að íslendingar verði ein-
ráðir um sín mál á sérmálasviðinu, er
verður að afmarkast svo skýh, að ekki
verði um að villast. í þessum kröfum
vorum má engin tvídrægni eiga sér stað,
þjóðin verður að koma fram sem einn
maður, og pólitisku flokkarnir verða að
sýna svo mikla sjálfsafneitun, að hafa
skap 1 sér til að geta komið sér saman
um þessi meginatriði> og til þess er
grundvöllurinn lagður með ofanrituðu á-
varpi, enda ætti þetta samkomulag
ekki að verða svo erfitt, úr því að vænta
má, að allir séu á sömu skoðun um þetta,
þótt sumir kynnu að vilja ganga feti
framar í kröfunum, en aðrir láta þær
liggja í þagnargildi. Það getur aldrei
spíllt málstað vorum, þótt vér látum það
uppi afdráttarlaust, sem vér meinum. Og
kom i kröfurnarein h u gafram frá
öllum flokkum ílandinu, þáer
það eitt út af fyrir sig nægilegt
til að veita þeim svo mikinn
stuðning til sigurs, sem frekast
er unn t.
Ymsir munu hafa heyrt söguna um
»manninn og tækifæriðx, Þá er tæki-
færið barði að dyrum, var maðurinn ekki
viðbúinn að fylgja þvf, hann átti svo
margt ógert, þurfti að binda á sig skóna,
taka f nefið og gera hitt eg þetta, þvi að
hann hugði að tíminn væri nógur og »tæki-
færið« mundi biða. En þá er hann var
loks búinn, var »tækifærið« bak og burt
og kom aldrei aptur.
Nú má oss íslendingum ekki eins fara
og þessum manni. Vér verðum að vera
albúnir og standa þétt saman, svo að vér
getum höndlað »tækifærið« og látið það
flytja oss heill og hamingju. E n þ e 11 a
»tækifæri« er konungskoman að
sumri. Það er enginn efi á, að slíkt
tækifæri kemur aldrei aptur. Það er
heilög skylda vor gagnvart þjóð vorri,
1) Hinn danski blaðamaður hr. Arn-
skov, er hér var í vor, hefur sent Þjóð-
óifi þennan kafla úr ræðu N. Andersens
m. fl., og kunnum vér honum þakkir fyrir.
hvern flokk sem vér fyllum, að vera nú
einu sinni alvariega samtaka og samhent-
ir, svo að vér getum sem bezt fært oss í
nyt hinn hentuga tíma, bæði sakir góð-
vildar konungs vors og kynningar við
dönsku ríkisþingsmennina, er svo góður
grundvöliur var lagður að í sumar. Eða
hvenær skyldi oss bjóðast jafngott tæki-
færi til að flytja fram óskir vorar einarð-
lega og alvarlega í þéttri fylkingu utan
um sjálfstæði Islands, sem allir sannir Is-
lendingar unna. Og séu þessar óskír
vorar og sanngjörnu, sjálfsögðu kröfur
bornar fram einhuga með gætni og still-
ingu, þá væri harla undarlegt, ef þær
fengju ekki góðan byr, bæði hjá ríkisþingi
og konungi. Vitanlega verður það aðal-
lega hlutverk hinnar væntanlegu sambands-
laganefndar, að kveða nánar á um öll
einstök atriði. En það sakar sízt, þótt
uppi sé látið, hvað þjóðin vilji að farið sé
fram á í þeim samningum. Að minnsta
kosti sjáum vérekki.að hin ófædda nefnd
þurfi að firrtast mikið við það, að henni
séu fyrir fram gefnar einhverjar leiðbein-
ingar í starfi sínu, þvi að hún ætti sjáif
að óska þess, svo að hún vissi ger, hvern-
ig hún ætti að haga framkomu sinni svo,
að þjóðinni yrði sem bezt að skapi.
Krafan um algerða iausn sérmála vorra
undan dönskum yfirráðum, er gömul krafa
og flutningur sérmála vorra í ríkisráðinu
hefur jafnan verið heimastjórnarflokknum
eða miklum hluta hans, þyrnir í augum,
þótt þeirri kröfu y r ð i að sleppa um sinn
1902, sakir þess, að hefði henni verið
haldið fast fram þá, var vaitýskan sam-
þykkt, og með því valtýski ráðgjafinn bú-
settur í Höfn, með öðrum orðum heima-
stjórn algerlega útilokuð og með því allur
flutningur valdsins inn í landið um lang-
an aldur að líkindum. Þessu meginatriði,
er svo afarmiklu skiptir, hafa Landvarnar-
menn — mestur hluti þeirra var upphaf-
lega brot úr heimastjórnarflokknum, klofn-
ingur,sem sætti sig ekki við þessa tilslökun —
ekkinógsamlega gætt eða ekki viljað skilja.
Yfirlýsingar dönsku stjórnarinnar á síð-
ustu tímum, að sérmál vor séu öldungis
óháð ríkisráðinu, þótt ráðherrann eigi þar
sæti að nafninu, sýna, að þetta fyrirkomu-
lag sé »form« eitt, sem Danir ættu ekki
að halda svo fast í, enda mundi vera
auðvelt að færa þeim heim sanninn um,
að einingu rfkisins væri lítt stofnað í
hættu, þótt »form« þetta félli niður. Með
landstjórafyrirkomulaginu t. d. félli það
niður af sjálfu sér.
Annars er óþarft að svo stöddu að fara
nánar út í hið innra fyrirkomulag innlendu
stjórnarinnar, því að þar eigum vér einir
öllu um að ráða. Það er að eins afstaða
vor út á við, gagnvart Dönum, sem vér
verðum að afmarka skýrt, og það hlut-
verk liggttr fyrst fyrir. Og þá ríður oss á
því að verða sarntaka í því, en þagga
niður allar hjáróma raddir, t, d. skilnaðar-
raddir og óvildar- og hatursraddir gagn-
vart hinni núverandi stjórn vorri, að
minnsta kosti á þann hátt, að hún verði
látin njóta sannmælis, og ekki vítt nema
fyrir það, sem vítavert er í framkomu
hennar, þvf að engin stjórn er svo góð,
og stjórn vor ekki heldur, að hún geti
ekki með réttu átt ákúrur skilið fyrir
surnt.
Takizt svo heppilega til, að helztu stuðn-
ingsmenn pólitisku flokkanna í landínu
geti — þrátt fyrir flokkaóvildina — orðið
allir sammála um meginatriðin í kröfum
vorum gagnvart Dönum nú, þá er afar
mikið unnið við það, og sá sem skerst úr
leik í þvf, vinnur þjóð sinni óþarft verk
og óhappasamlegt, er getur orðið þess
valdandi, að vér höfum lítil sem engin
not af hinu sjaldgæfa tækifæri, er vér fá-
um að sumri — konungskomunni og
heimsókn dönsku rfkisþingsmannanna.
Og það er þó ofmikill ^byrgðarhluti.
Ávarpið
sem birt er fremst hér í blaðinu, hefur
vakið almenna ánægju hér í bænum, að
því er heyrt verður, eins og hlýtur að
vera, er menn íhuga málið vandlega og
rólega. Þess skal jafnframt getið, með
því að það er ekkert leyndarmál, að hr.
Einar Benediktsson sýslumaður, sem hér
hefur verið um tíma, hefur gengizt fyrir að
koma þessum samtökum á, og virðist hvorki
hann né þeir, er samtökin hafa gert, eiga
skilin hneykslanleg svívirðingarummæli
fyrir þessar gerðir sínar.
Frá Danmörku.
[Eptjr fréttaritara Þjóðólfs í Kaupm.höfn].
Pólitík.
(Landsþlngskosningar. Þjngsetning. Há-
sætiskveðja konungs og svar þingsins. ís-
lands mál. Stjórnarfrumvörp. Járnbrautar-
lagningar. Fjárhagur).
Hinn 1. okt. kom danska þingið saman.
Voru þá nýafstaðnar kosningar á 27
landsþingsmönnum (helming hinna
þjóðkjörnu þingmanna í þeirri þingdeild).
Gengu kosningar þessar stjórninni á móti
skapi, líkt og kosningarnar til fólksþings-
ins í vor, því að stjórnarflokkurinn var
eini flokkurinn, sem varð Iiðfærri eptir
kosningarnar heldur en dður. Missti hann
5 þingsæti og unnu jafnaðarmenn 3 þeirra
(höfðu áður einungis haft einn fulltrúa í
landsþinginu), frjálslyndi flokkurinn 1
(hafði áður engan) og miðlunarmenn 1,
en hægrimenn og hinir frjálslyndu íhalds-
menn stóðu í stað. Einn hinna nýkosnu
þingmanna er dr. Edvard Brandes,
er langa hríð var ritstjóri dagblaðsins
»Politiken« og bróðir Georgs Brandesar.
Hann er eini fulltrúi frjálslynda flokksins
í landsþinginu. Fulltrúi Færeyja var kos-
inn F'riðrik prófastur P e t e r s e n, er
ýmsir íslendingar munu kannast við, því
að hann er stúdent frá Reykjavíkurskóla.
I fólksþinginu er stjórnarflokkurinn ennþá
fjölmennasti flokkurinn, en þó ekki fullur
helmingur þingmanna þar, svo að stjórnin
verður að njóta styrks annara flokka til
þess að geta haldið völdunum.
Þingsetningin var venju fremu-
hátlðleg, vegna þess áð konungur setti
sjálfur þingið. Svo sem venja er til við
slík tækifæri, las hann upp hásætis-
ræðu, er ráðaneytisforseti háfði samið í
hans nafni um hið pólitiska ástand rlk-
isins og fyrirætlanir stjórnarinnar. Rétti
ráðaneytisforseti konungi handritið að
ræðunni um leið og konungur gekk til
hásætis. í hásætisræðunni voru talin upp
allmörg lagafrumvörp, er stjórnin ætlaði
að leggja fyrir þingið, og þess getið, að
samkomulag og vinátta væri hin bezta
með Danmörku og öðrum ríkjum. í sam-
bandi við það var íslands minnzt með
þessum orðum:
sEnnfremur hlýt eg enn að minnast
með ánægju og gleði hinna vænlegu
samfunda konungs, rlkisþings og alþingis
í sumar og láta í Ijósi, að það er ætlun
mín að gera gangskör að þvf, að full-
nægja óskum Islendinga um umbætur á
löggjöfinni um stjórnarstöðu Islands í
ríkinu«.
I þrjá daga ræddi fóiksþingið um, hverju
svara skyldi hásætisræðu kon-
ungs. Umbótaflokkurinn (stjórnarflokk-
urinn) stakk upp á þingsályktun um, að
láta konungi f ljósi ánægju sína yfir há-
sætisræðunni, og að heita ráðaneytinu
aðstoð þingsins til þess að koma fram
þeim umbótum, sem þar var minnst á.
Frjálslyndi flokkurinn stakk upp á ávarpi
til konungs miklu lengra og fyllra, er
greinilegar tók fram afstöðu þingsins í
ýmsum málum, en jafnaðarmenn vildu
ekkert ávarp senda eða samþykkja þings-
ályktun um kveðju til konungs, heldur
slíta umræðunum með rökstuddri dagskrá,
er tæki fram stefnu þingsins í nokkrum
stórmálum. I.oks fór svo, að þingsályktun
umbótaflokksins var samþykkt með 63
atkvæðum (þ. e. allra umbótaflokksmanna,
þar á meðal 6 ráðherra, miðlunarmanna
og tveggja flokksleysingja), en 41 greiddu
eigi atkvæði (jafnaðarmenn, frjálslyndi
flokkurinn og hægrimenn). Er stjórninni
þannig borgið, með því að hún nýtur
styrks miðlunarmanna.
A Islandsmál minntust ekki aðrir
þingmenn við umræður þessar heldur en
Zahle málaflutningsmaður, formaður
frjálslynda flokksins. Hann lét í ljósi
ánægju slna yfir heimsókn alþingismanna,
og vonaði að Island mætti hljóta sem
allra frjálsasta stöðu í ríkinu, svo að hin
þróttmikla þjóð, sem þar byggi, gæti fram-
vegis helgað alla krapta sína verulegum
framfarastörfum 1 öllum greinum.
Af stjórnarfrumvörpunum, sem
lögð hafa verið fyrir þingið, eru þessi hin
helztu: Endurskoðun á tolllög-
u n u m, sem fer fram á afnám tolls eða
tolllækkun á ýmsum almennum nauðsynja-
vörum, efnivörum og verksmiðjuvörum,
sem gert er ráð fyrir að nemi alls 12
milj. kr. Aptur á móti er farið fram á
tollhækkun á ýmsum öðrum vörum, eink-
um munaðarvöru, er nemi 7'/» milj. kr.
Ennfremur ber stjórnin fram frumvarp um
hækkun á erfðaskattinum; eptir
þvf á hann ekki einungis að fara hækk-
andi eptir því sem erfingjarnir eru fjar-
skyldari, heldur á hann líka að fara
hækkandi eptir stærð arfsins, og getur
þannig orðið allt að 15%. Það er gert
ráð fyrir, að þessi hækkun muni nema
um 2ll* miljón kr. — Frv. um almenn-
an kosningarrétt í sveitarstjórnar-
málum, sem lengi hefur verið á döfinni.
— Frv. um tryggingu gegn at-
v i n n u 1 e y s i, gerir ráð íyrir, að ríkis-
sjóður styrki sjóði, er verkamenn mynda
til að tryggja sig gegn atvinnuleysi. —
Ennfremur má nefna frv. tim borgara-
lega greptrun án aðstoðar prests,
frv. um að lögleiða metrakerfið
og frv. um ráðherraábyrgð.
Nefnd, sem skipuð var til að gera uppá-
stungur um járnbrautarlagningar
á næstu árum, hefur nýlega látið uppi
álit sitt, og verði tillögum hennar fylgt,
munu útgjöld ríkisins á næstu 10 árum
til nýrra járnbrauta og aukninga þeirra,
sem fyrir eru, nema um 108 milj. kr., en
auk þess verður að minnsta kosti 20 niilj.
lagt til annarsstaðar frá.
Nú stendur yfir 1. umræða fjárlag-
anna (eldhúsdagarnir). Fjárlagafrv. gerir
ráð fyrir, að tekjur og gjöld standist á
næsta ár, verði hvort fyrir sig um 88
milj. kr. Er það hvorttveggja töluvert
hærra en áætlað var á síðustu fjárlögum.
Annars er fjárhagurinn nú í bezta lagi,
og sfðastliðið ár reyndist tekjuafgangurinn
3 milj. kr.
Kongatildur.
Síðan konungur vor kom til valda, hef-
ur hann látið allmikið á sér bera, Flefúr