Ameríka - 30.12.1873, Page 6
n
yíirráö hers og herbúnaðar, allt á ábyrgð sinna stjórn-
arherra, en er sjálíur ábyrgðarlaus fyrir þjóðinni. Með
J)VÍ bæði hann og hinir fylkjastjórarnir verða að fara
eptir ráði ráðgjafanna, en þeir geta því aðeins haldið sæt-
um sínum, að þeir fari að vilja þjóðarinnar (hinna
þjóðkjörnu þingmanna) þá er stjórnarformið í raun og veru
þjóðveldislegt (þjóðstjórn) þótt þar sje kölluð ein-
valdsstjórn.
Hið enska lögjafarvald („Parlamentið8) má enga skatta
nje kvaðir leggja á bandafylki þessi. Fyrir því hefir
England að eins heiðurinn af þvf að kallast eigandi lands-
ins. I vissum tilfellum getur löggjafarvald sambandsins
lagt skatt á landið, eða rjettara sagt, heimtað tiltölulegt
fjárframlag af Iiverju fylki til einhvers þess, er þau
varðar öll og er þeim í sameiginlegann hag. Þar
á móti ræður hvers fylkis Iöggjafarvald ö'llu eitt um
skatt-álögu og skatta afnám og ræður eitt yfir
fje (landssjóði) fyikisins og ver því eptir eiginni (þ. e.
þjóðarinnar) vild; og þetta frelsi hefir haft þau góðu
og happasælu áhrif, að skatíarnir eru víðast mjög lágir
á móti auðsæld og uppgangi landsins og bæði andleg og
verkleg menntun á háu stigi. Að vísu eru skattarnir nokk-
uð mismunandi í fylkjunum, en þó mun meðaltal þeirra fara,
sem næst er svari 3 til 3] dollars fyrir hvern mann, þegar
verzlunartollurinn er talinn með, þar sem gjöldin til hins
opinbera í Bandaríkjunum eru talin nálægt 1 8 dollars að
meðaltali fyrir hvern mann, ef þeim væri jafnað niður ept-
ir höfðatölu.
Fyrir utan afarmiklar byggingar íyrir skóia og hafna-
gjörðir og skurðargröft m. fl. eru þegar fullgjörðar 4000
mílna langar járnbrautir og mikill rafsegulþráðavefur sem
setur allar borgir og hvern þann bæ, sem nokkuðerkom-
inn á fót, eigi einasta í innbyrðis samband, heldur svo
að segja við heim allann, fýrir samband, er þeir aptur
standa í við alla meginþræði heimsins. Kostnaðurinn við
að senda boð með rafsegulþráðunum í Canada er allstað-
ar eins: 25 cents fyrir hver 10 orð. Þrátt fyrir allann
þenna mikla tilkostnað sem gjörður hefir vcrið, mestmegais