Fréttablaðið - 04.06.2002, Qupperneq 2
2
Heimilisblaðið
4. til 9. júní 2002
FALLEC
SKREYTING
Blómapottur
sem hægt er
nota hvort held-
ur er úti eða
inni.
Blóm
eru alltaf
augnayndi
essi hvíti blómapottur fæst í
versluninni Uniku í Súðarvogi.
Pottinn er til dæmis hægt að hafa
blómum skreyttan í sólskálanum,
en líka innahúss eða úti í garði. ■
Sauðíjárrækt í garðinum
Draumagarðurinn minn væri
grænn og mjög lifandi. Svo
vildi ég alveg hafa smá sauðfjár-
rækt í garðinum. Ég og vinir mín-
ir erum mjög hrifnir af kindum,"
segir Steinar Pálsson, aðspurður
um draumagarðinn sinn. Steinar
segist vilja hafa aðstöðu til að hafa
Steinar Pálsson vill
grænan garð og segist
myndi nota hann jafnt
sumar sem vetur.
það gott í garðinum, eins og t.d.
heitan pott og grill, en er sann-
færður um hann myndi nota garð-
inn jafn mikið á veturna. „Ef ég
ætti draumagarð færi ég örugg-
lega aldrei út fyrir lóðarmörkin,"
segir Steinar. „Á veturna væri ég
svo bara í snjókailagerð," segir
hann kampakátur, en ekki fylgdi
sögunni hvað hann ætlaði að gera
við kindurnar yfir vetrartímann. ■
STEINAR PÁLSSON
íhugar að rækta sauðfé f
draumagarðinum.
FRÍÐA RUNÓLFSDÓTTIR
Notar hitarann á sumarkvöldum og þegar hún heldur veislur á vetrum.
Vildi ekki vera
án gashitarans
Eg hef verið með gashitara úti á
palli í tvö ár og vildi ekki vera
án hans,“ segir Fríða Runólfsdótt-
ir. „Við notum hann mikið og
finnst rosalega fínt á kvöldin, þeg-
ar klukkan fer að ganga tíu og að-
eins er farið að kólna, að geta set-
ið lengur úti.“ Það er svo dýrðlegt
og kósý að vera á pallinum fram-
eftir kvöldi," segir hún. Fríða seg-
Fríða Runólfsdóttir
segir gashitarann
bjóða upp á frábæra
framlengingu á
íslenskum sumar-
kvöldum.
ist stinga hitaranum í gat ætlað
sólhlíf á borðplötunni og hafa
gaskútinn undir borðinu.
„Svo nota ég hitarann líka heil-
mikið á veturna, t.d. þegar ég held
veislur," segir Fríða, en hún harð-
bannar reykingar inni hjá sér og
sendir tóbaksfíklana miskunnar-
laust út. „Þá er fólk að sjálfsögðu
mjög ánægt með að þurfa ekki að
hírast úti í kuldanum."
Fríða segist alltaf hafa verið
hálfhrædd við gas og að kveikja
upp í útigrillum. „Það er samt
ekki þannig með hitarann," segir
hún. Það kemur enginn blossi og
meira að segja ég, pjattrófan, get
kveikt án þess að sviðni á mér
hárið,“ segir hún ánægð að lok-
um. ■
Gullfallegt og reisulegt
hús við Miðstræti
Húsið sem kemur fyrst upp í
hugann er Miðstræti 10, sem
er tæplega hundrað ára gamalt
hús, afskaplega reisulegt og fal-
legt,“ segir Sigurður Örlygsson,
myndlistarmaður, þegar hann er
spurður um uppáhaldshús í
Reykjavík. „Einar snikkari smíð-
Sigurður Örlygsson er
ekki bara hrifinn af
húsinu við Miðstræti
10 heldur segir heild-
armynd götunnar sér-
lega vel heppnaða.
aði það árið 1903 og það er nýbúið
að gera húsið upp, alveg gríðar-
lega vel.“ Sigurður segir reyndar
að Miðstrætið sé eins og það legg-
ur sig mjög falleg gata. „Maður
sér oft mjög falleg hús, en það er
sjaldgæft að sjá heila götu þar
sem húsin eru hvert öðru reisu-
legri. Götumyndin í Miðstrætinu
er í fallegu samræmi og athyglis-
vert hvað húsum þar er vel við
haldið og þau falla vel inn í heild-
armyndina." Miðstræti 10 var
upphaflega einbýlishús, en nú
hýsir það fleiri f jölskyldur. „Þetta
er ósköp hefðbundinn skandinav-
ískur arkitektúr, gæti jafnvel ver-
ið norskt katalóghús, ég bara veit
það ekki,“ segir Sigurður. „En
menn voru mjög næmir á hlutföll
á þessum tíma, Það sem gerist
þegar menn fara að steypa hús
kringum 1920-30, þá fara þeir að
hugsa kannski meira eins og
myndhöggvarar, en hafa ekki
þann listræna sans sem þarf,
þannig að stíllinn fer svolítið úr
böndunum."
Sigurði er mjög annt um gömul
hús í Reykjavík og vill varðveita
sérstöðu miðbæjarins. „Ég hélt að
stríðið væri unnið þegar Bern-
höftstorfan var gerð upp, en það
er greinilega ekki. Það hafa orðið
mörg slys þegar gömlum húsum
er fórnað fyrir ný, sem eru svo í
algjöru ósamræmi við umhverfið
og gera það beinlínis ljótt. En hús-
ið í Miðstrætinu er sannkölluð
bæjarprýði," segir Sigurður. ■
SIGURÐUR ÖRLYGSSON
Er mjög annt um miðbæ Reykjavíkur og vill friða fleiri hús.
...svo þaö ætti aö vera auðvelt að skapa
nægjanlegt rýmí fyrir alla fjölskylduna.
Settu þig í samband við söluráðgjafa okkar
og fáðu ráðleggingar um hvernig
nýja eldhúsið þitt á að líta út.
þú færð það aðeins betra hjá
BRÆÐURNIR ORMSSON - LÁGMÚLA 8 - REYKJAVÍK - SÍMI 530 2800
it ■ i 1' i : I ! .11 —