Heimskringla - 23.08.1900, Síða 1
'♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^****®^
1/1/1 fifi/1 í’lugur op “Hiosqu- ♦
/ UUfUUU jtos» fangaöar hér ó. J
hverjum degi* Fáid yöur hurdir ♦
og glugga úr vírneti: Viöliöíum *
það á yiuau veröi og meö allökou-
ar litum,
Tradmg Ötamps. Oash Ooupons.
ANDERSON & THOflAS,
J aknvöiiusalak 588 Main 8t.
♦
♦
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦í
Hammocks.
♦
♦
Ekkert þægi-
legra 1 hitunum
en aö kvila aig 1 “iiauimock”
Keyuiö pao einu öiuni. Vér hóf-
um þa a mismunandi verði. J
Trading títamps. Cash Coupons J
ANDERSON & THOMAS, Z
J AKNVORUSAI.AH 5oö MaIN £>T. Z
!>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦!^
XIV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 23. ÁGÚST 1900.
Nr. 46.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
(
Hraðfregn segir aö Kurdar hafi
ráðist á ’tonsúl Breta í Armeniu. á ferð
og sært túlk hans, en ejálfur hafihann
komist undan ómeiddur. Þetta skeði
innan landamæra Tyrkja/ og hefir því
brezki konsúllinn í Konstantinopel
heimtað aðTyrkir hegni Kurdumog láti
þá skila aftur því sem þeir rændu frá
konsúlnum.
Sjóflotaforingi Tyrkja. Almed Pasha,
sem sendur var til Bandaríkjanna til
að skoða herskip og vitahvort æskilegt
væri fyrir Tyrki að láta Bandarikin
byggja herskip fyrir sig, er nú kominn
heim aftur. Hann leggur til að Tyrkir
semji við skipabyggingafélag í Phila'
delphia ,að smíða eitt varnarherskip.
Flotaforinginn segir að herskip Bauda-
manna taki fram öllum öðrum herskip-
um.
Tyrkneski sendiherrann í Róm, sig-
nor Taula, hefir nýlega sent Tyrkja
soldáni aðvörun um að hann væri einn
af þeim, sem er áaftökuskrá Anarkista
og muni röðin vera komin allnærri
honum.
Malatesta heitir maður sá, sem er
foringi Anarkista á Ítalíu og undirót
allra samsæra um aftöku stórhöfðiugja.
Hann var nýlega i .Lundúnum og var
þar spurður ýmsra spurninga af frétta-
snápum, og á hanu á meðal anna. s að
hafa sagt þetta: “Signor Sarracol,
(æðsti ráðgjafi á ítaliu) er einn af okk
ar beztu vinum. Hann borgar leyni-
lögreglunni svo lítið kaup, að við get-
um ætíð keypt hana fyrir lágt verð.
Fyrir fáeina franka og nokkrar vindlur
erætíð hægt að kaupa leynilögreglu-
þjónana á ltalíu. Spánska lögreglan er
ódýrust, þá ítalska, næst rússneska, þá
amerikaaska, þar næst frakkneska u>g
HÍðast enska. Þýzka lögreglan er lang-
dýrust, en um leið sú vitlausasta. Af
öl!um þeim fjölda, sem hafa verið tekn-
ir. sem Anarkistar, hefirekki einn ein-
astiaf þeim verið sannur byltiugamað-
ur. Vér ætlum bráðum að stofna nýtt
bræðrafélag, sparsamara og mannúð-
legra en tíest ,önnur félög. Þá við höf-
um gert það, þá fylgja flestir mannvin-
ir okkur”.
Eftir hraðskeyti 16. þ. m. eiga sam
bandsliðar að hafa komið til Pekin 12.
þ. m.
Eimskipið Tchickschoff lagði af
stað 15. þ. m. frá Rússlandi mlð 800
liðsmenn og fjarskan allan af vopnum
og vistum.
Amerikanska biblíufélagið fékk ný-
lega bréf frá einum af biblíu-agentum
sínum í Shaughai. Hann segir að um
síðastl. tvær vikur hati verið mjög mik-
il> óánægju undiralda og hræðsla í
Shanghai. XJm 50,000 af fólki þar sé
tíutt burtu úr bænum. Bærinn sé full-
ur af Budha-prestum. er ekki geri ann-
að en espa og æsa bæjarbúa.
Trúboðastöðvarnar við Swatow, er
Kínverjar eyðilögðu um daginn, eru
metnar að hafi kostað um $20.000. Trú-
boðafélagið sem átti þær er amerikst.
Ekki voru amerískar konur meiddar
þar eða drepnar, en innlent kvennfólk
»em voru trúskiftingar, var misþlrmt
að mun af Boxurum. Brezka varð-
skipið Mohawk er lagt af stað til Swa-
tow.
De Wet herforingi Búa, sem sagður
hefir verið í herkvium Breta nú um
nokkurn undanfarin tíma, og ómögu-
legt væri að sleppa úr klóm þeirra, hef-
ir nú komist gegnum Krugersdrop-
Petchafstioon og sameinað sig Delaiey
herforingja, sem heldur Rusteuburg.
Brezku herforingjarnir halda í humátt-
ina á eftir De Wet.
Sú flugufregn kemur frá Afríku, að
Steyn forsetl sé dauður. Á hann ad
hafa dáið af sári er hann fékk fyrir
nokkrum mánuðum. Hann á að hafa
verið á leiðinni til Kruger gamla, að
ræða við hann mál sfn.
Kornhlaða brann í Treherne 14> þ.
m. Þar brunnu 2,500 bush. af hveiti.
Unglingsmaður var tekinn fastur
17. þ. m. í Leipzig á Þýzkalandi, eftir
hraðskeytis fyrirskipun frá Berlin.
Hann er ákærður um að vera starfandi
í samsærisfélagi, til að taka af lífi Al-
bert konung á Saxlandi. Við yfir-
heyrsluna segist hann liafa veríð kjör
inn til að vinna verkið af félagi, sem
til sé fyrir löngu, en þegar á hafi átt að
herða, þá hafi sig brostið áræði.
Óeirðir á Filipseyjunu u eru enn þá
ekki kæfðar niður. Uppreistarmenn
eru nú sem óðast að víggirða ýmsa
staði á Mindana-eyjunni, f því skyni
að verjast hermönnnm Bandaríkjanna
svo lengi sem auðið er. Segja fréttir
að ljótar morðsögur berist frá ýmsum
stöðum á eyjunum. Uppreistarmenn
myrða og ræna Bandamenn hvar og
hvenær sem þeim gefst færi á því; hlifa
þeir hvorki konum né börnum.
Súfrétt.hefir komið frá Shanghai
16. þ. m., að Kínverjar hafi drepið 3
trúboða úr Canada. Ein þar af er Miss
Huston frá Toronto.
14. þ. m. æddi haglstormur yfir
austurhlutann af Pembina og Cavalier
Counties og gerði stórskaða á ökrum og
fleira. Landfláki sá sem haglstormur
þessi fór yfir og eyðilagði, er sagður að
hafa verið eitthvert hið allra bezta
hveitiland, sem til hafiveriðí Norður-
Dakota.
Þann 15. þ. m. er sagt að 10,000 af
skríl i New York hafi safnast, saman og
leitað hvers einasta svertingja er mögu-
legt var að finna í borginni, til þess að
hefna á þeim fyrir lögreglumann, sem
svertingi drap fyrir fáum dögum. Bæði
hvítir menn og svertingjar fengu stung-
ur og meiðsli í þessum óeirðum og
margir lögregluþjónar voru hart leiKn-
ir.
Fréttir segja að ofsaveður með kaf-
aldi hafi gengið yfir New South Wales-
héraðið í Ástralíu snemma í síðasta
mánuði. Blöðin í Sydney ’segja að þök
hafi fokið af húsum og sjávarútvegur
hafi skemst stórkostlega. Vitastólpar
hafi fokið og .hrunið. Járnbrauta um-
ferðir hættu og fregnþráðastoðir brotn-
uðu, svo fréttasambönd eyðilögðust um
stundarsakir. Þessi höfuðskepna or-
usta var háð 5. Júlí síðastl. Eftir ein-
eða tvo daza var fregnþráða samband-
ið komið í brúkanlegt stand aftur og
flutti þá þessar voðafréttir tilfjarlægra
staða. Öll þessi nýlenda, New South
Wales. er óbætanléga eyðilögð og for-
djörfuð. Lestaferðír hættu vegna fann
kyugis á brautum; seglskip og eímbátar
slitnuðu upp og sumstaðar skemdust
þau og fóru í rúst. Síðan þegar
hláka kom og snjóinn fór að leysa.
flæddi fljót og ár upp um lendur og inn
í hýbýli manna, og er búist við að
fjöldi manna hafi farist í þeim flóðum.
Sumstaðar forðaði fólk sér í náttklæð-
um einum og mátti standa fáklætt og
hu ngrað. um lengri eða skemri tíma á
hæðum og hrúöldum þangað til það
bjargað sér sjálft, eða aðrir gerðu það.
Upp til fjalla stöðvuðust lestir og far-
þegjar sultu nær til dauða.
Mælt er að Victoria drotning ætli
að fara að finna dóttur síua, ekkju-
drotningu Friðriks keisara, móður Vil-
hjálms Þýzkalauds keisara. Ke>sara-
drotningin hefir verið veik nú í sumar
og auka veikindi hennar Victoriu drotn
ingu mikillar áhyggju.
Wilhelm Steinitz, sem var tafl-
kappi heimsins meira en fjórðung aldar
dó 14. þ. m. á Manhattan State sjúkra-
húsiuu í New York. Hann er talinn sá
mesti taflsnillingur sem heimuriun hefir*
átt. Wilhelra Steinitz var fæddur 17.
Maí 1836 í bænum Prag í Austurríki'
hann stundaði nám við listaskólanu í
Prag 1858—1860, þá lagði hann af stað
út í hei minn sem tafllistamaður. Frá
þessum tíma og þar til 1884 hafðist
hann m est við í Lunaúnum. Þá hann
kom þangað var hann taflkappi fyrir
Vienna. Hann tefldi þá fyrir 6 verð-
launum í Lundúuum og vann þau.
Hann tefldi við alla beztu taflmenn
hein sins eftir það, og hafði stöðugt
sigur þar til 1895 að Emanúel Lasker
var talinn að hafa unnið hann. Steinitz
bauð Lasker út aftur að tefla, en hann
vildi ekki leggja út í þá vogun. í 26 ár
hélt liann taflkappa titlinum sem bezti
taflmaður í heimi. Frá Lundúnum
flutti liann alfarinn til New York og
taldi sér þar heimili til dauðadags.
Búlgaria og Rúmunia eru að búa
sig út í srríð. Rúmania hefir heimtað
að Búlgariu stjórn láti handtaka Sara-
foio, formann uppreistarfél. í Sofia og að
félagsskapur sá sé kæfður. Bulgaria
hefir svarað þessari beiðni mjög stirð-
lega og hefir um leið sent herafla mikin
á landamæri Rúmeniu. Uppreistarfél.
hefir lagt til lOOOhermenn, sem nú ern
undir forustu æfðra herrnanna frá Búl-
gariu, og ætla þeir að vaða inn í Rúm-
eniu . Konungurinn þar hefir sagt stríð
liklegt á hverri stundu, enda hefir nú
Rúmema kallað heim séndiherra sinn
frá Sofia, það er vaualega fyrirboði stríðs
Íslandsfréttir.
(Eftir Þjóðólfi).
Reykjavík, 27. Júlí 1900.
Próf f lögfræði við háskólann hefir
tekið Páll Vídalín Bjarnason með ó-
venjulega góðri 1. einkunn, Fékk 1.
eink. í öllum námsgreinum (11), einsog
Eggert Briem sýslumaður Skagfirðinga
og hafa þeiu tveir fengið hæsta ein-
kunn . íslenzkra lögfræðinga á síðari
árum.
Próf í tannlækningum í Kaup-
mannahöfn hefir tekið H-,raldur Sig-
urðsson, bróðir Björns kaupm. í Flatey
og þeirra bræðra.
Höfuðbólið Viðey á Kollafirði hefir
Eggert Eiríksson Briem búfræðingur í
Reykjavík keypt fyrir 20.000 krónur,
það er að segja þá 2/3 hluta eyjarinnar
m Magnús bóndi Stephensen hafði
eignarumráð yfir. Mun hr. E. Br.
hafa í hyggju að reisa þar stórbú'næst-
komandi vor. Þriðja hluta eyjarinnar
eiga 3—4 menn í Reykjavík. og mun sá
hluti ekki varða seldur að sinni.
(Eftir Fjallkonunni).
Jieykjavík, 23. Júni 1900.
Embættispróf við prestaskólann
tóku 18. þ. m.: Eink. Stig
Sigurbjörn A. Gíslason I 95
Ólafur V. Briem I 82
Friðrik Friðriksson II 74
Böðvar Bjarnason II 66
Jónmundur Halldórsson II 64
Aflabrögð. Fiskiskip nýkomin inn:
“Stjernö”, eign Björns kaupm. Guð-
mundssonar, með 14000, “Agnes” eign
Jóns kaupm. Þórðarsonar, skipstj,
Stefán Kr, Bjarnason með 13000. “Eng-
eyin”, eig. Brynjólfur í Eugey o. fl.,
skipstj. Erlendur Hjartarson með 9000.
“Valdemar”, eig. Brynjólfur í Engey.
skipstj. Ma-nús Brynjólfsson með 22000
Mannalát; H nn 9. þ m. andaðist
Þórunn Jónsdóttir (frá Mýrarhúsum
Sigurðssonar) kona' Þórðarbónda Jóns-
sonar í Ráðagerði á Seltjaruarnesi, 49
ára gömul, gáfuðkona og gerfileg.
Hinn 15. þ. m. andaðist í Engey
merkiskonan Guðrún Pétursdóttir (óð-
alsbóna í Engey Guðmundssonar) ekkja
Kristins Magnússonar, er lengi bjó
sæmdarbúi í Engey, 82 ára gömul.
Rausnarleg gjöf. Einhver góður
náungi hefir að sögn sent að gjöf dr.
Jóni Þorkelssyni yngra elztu bók is-
lenzka, Odds Nýjatestamenti, prentað í
Hróarskeldu 1540. Ritstjóri þessa
blaðs seldi bók þessa í fyrra útlendu
bókasafai fyrir 65 pd. sterling (1170 kr.),
og hefir engin fslenzk bók verið seld
fyrir helming þess verðs, auk heldur
meira.
30 Júní. Sama veðurblíðan hefir
haldistí alt vor og er þetta vor og það
sem af er sumrinu eitt hið bezta sem
menn muna.
Aflabrögð. Hér á innmiðunum í
Faxaflóa mun vera nokkur fiskur og
jafnvel reitingur á grunni, en mjög fá-
ir standa það. Á þilskipin aflast all
vel, en nokkuð misjafnt.
Erobættispróf í læknisfræði við
læknaskólann tók í gær Chr. Schier-
beck með 1. eink. 186stig.
9. .Túlí. Veðurbliða um alt land'
Hefir hiti vfða iverið að undanförnu
undir 20. stig C. og sumstaðar meiri
Góðar horfur á grasvexti víðast hvrar.
Hér i nágrennipu hefir þó verið kvart-
að um að tún hafi skemst af kali í vor.
Aflabrögð. Allgott útlit með afla á
Austfjörðum, en beituskortur. Góður
afli bæði á Eyjafirði og Skagafirði og
þar með talsverður síldarafl;. Sömu
leiðis afli á Húnaflóa. Við ísafjarðar-
djúp bezti afli. Hér í Faxaflóa mundi
vera góður afli. ef hann væri stundað-
ur.
Engin ástæða að hræð-
ast rithöfund. sem er
hræddurvið ljósið.
I Lögb., er út kom 2. Ágúst þ. á.
birtist greinarkorn með fyrirsögninni:
"Enpin ástæða til að óttast Bryan”.
Grein þessi er undirrituð af Bandaríkja
ísl. Það eru því sérstaklega tvær á-
stæður fyrir þvi að ég tek til máls. 1.
Höf. er að öllum líkindum Bandarikja-
þegn eins og ég. 2 Hann er land'
minn, og svo ávarpa ég hann með því
nafni.
Eg skal taka það fram, að það er
meining mín að ræða þetta mál við
landann, án persónulegra illyrða, og
ganga út frá þvi sem sjálfsögðu, að
hann sé maður ráðvandur, er vill þjóð
sinni og samþegnum vel, með því lfka
að ég fæ ekki betur séð, en landinn
standi nú f pólitiskum skilningi þar
sem ég stóð fyrir 12 árum síðan. En
tímarnir breytast. Repúblíkaflokkur
inn hefir aðra stefnu nú, en hann hafðií
1856, þegar hann útnefndi hið fyrsta for
setaefni, hefði landinn verið þá uppi og
ritað fyrir Lögberg, muudi liann hafa
sagt að sá flokkur samanstæði af því
lakasta úr þjóðinni, hann mundi ekki
hafa væmt við því að kalla A. Lincoln
stefnulausann glanna og bent á hann
og hans fylgjendnr með jafn- beisku
mannhatri og fyrirlii ningu o« hann nú
bendir á sina pólitisku andstæðinga.
Það er litill vandi að kasta ffam alveg
órökstuddum staðhæfingum. Málið er
alvarlegt mál og verðskuldar að hver
framsögn sé studd með gildandi sann-
indum. Það sannar því ekkert þó ég
segði að sá pólitiski flokkur er landinu
tilheyrir sé nú öfugur við stefnuskrá
sina frá fýrri árum, nema ég leitist við
að færa rök fyrir máli mínu.
Senator M. A Hanna ritar bréf,
dags. 2. Júní þ. á., til Mr. Sidney Ed-
gorton, fyrrum ríkisstjóra í Ohio, og
biður hann að gera flokknum þá virð-
ing að vera heiðursgestur á útnefning.
arþinginu, er haldiðyrði 19. Júuí, og
eudurkaus Mr. McKiulej', eða útnefndi
hann til að sækju um forsetaembættið
undir umsjón Mr. Hanna og iandans.
Mr. Edgerton er einn af fjórtán, sem
enn eru á lífi af fulltrúum þjóðarinnar,
er mættu á hinutn fyrsta útnefningar
fundi og útnefndi hið fvista forsetaefni
undir nafninu Repúbflkar 1856.
Svar Mr. Edgerton er langt mál
skýrt og skörulega ritað, en ómögulegt
eraðgefaþað alt i jafnlitlu blaöi og
Hkr, er, en þeir landar sem vilja vita
sannleikann í þessu efni, geta sent 5c.
til The Irish Word, New York City, og
beðið umnr. 1560 af því blaði, er inni-
heldur bréfiö crðrétt. Mr. Edgertou
segist ómögulega geta verið þektur
f yrir að sækja þenna fund, af þeirri á-
stæðu að flokkurinn er heldur við hið
upprunalega og heiðarlega nafn, hafi
ekkert aunað eftir en nafnið. Leiðtog-
arnir hafi fyrir löngn svikist undan
merkjum Lincolns og snúi nú bakinu
við kúnningjum Washingtons og Jefiir-
son. Hann bendir á samninginn er
stjórnin gerði við Zúlu-eyjarnar, en
Mr. McKinley staðfesti með undirritun
sinni. Hannsýnirað soidán ejrjanna
var smeigt undir fána Bandaríkjanna,
svo nú getur hann í skugga fánans tal
iðkonur sínar og gert áætlun um hagn-
aðinn af þrælaverzluninni. Svo minnist
hann á brask stjórnarinnar á Filipsey-
unum, ogsegir að ekkert dæmi sé til
í veraldarsögunni að nokkurt lýðveldi
hafi aflað áfer slíkrar smánar ofe Banda-
rikin hafi gert með svikum og undir-
ferli við hið nýfædda lýðveldi eyjanna.
Hvernig veit landinn að þeii sem
f j-lla flokk Brj-ans séu það lakasta úr
þjóðinni? Þekkir hann persónulega
þær 6 milíónir. er greiddu atkv. með
Mr, Brj-an 1896? Eða var honum sagt
það, eða getur það verið að þetta séu
að einsórökstuddir dr umar landans.
Landinn gerir mikið veður úr því livað
McKinleystjórnin hafi handleikið mikla
peniuga. Það er satt, þeir hafa haft
nokkur skildingaráð. enda er það mál
viturra manna að M. A. Hanna sé sá
lang-færasti innköllunarmaður í land-
inu, en því fræðir landinn oss ekki á
því, hvaðan Washington úthaldið hafi
fengið það fé, er hún hefir braskað
með? Eða veit landinu ekkiaðstjórn
in seldi skuldabréf fyrir $200.000,000 og
lagði svo háa tolla á lífsnauðsyujar
þegna sinna, að vart finnast dæmi til
sliks í siðuðu landi. Alt er tollað
hverju nafni sem nefnist—nema inntekt
ir hinna voða ríku auðkýfinga. Veit
ekki landinn, að margar lifsnauðsynjar
hafa risið í verði nær því um helming.
Eðaer það meining höf., að leggja það
undir dómgreiud alþýðu að gera jafn
aðarreikning yfir hækkun kaups og
dýrleika á lífsnauðsynjum Ef svo er
er é>; viljugur til að hlíta þeim úr
skurði. Það er eins og landanum falli
það illa, að nokkur annar pólitiskur
flokkur, en sá er hann tilheyrir geti
talið Stórþjófa meðal áhangenda sinna
En því er nú svo varið, að Demókratar
hafa fáeina menn, sem fremur þykja
fing ralangir, tT d. Croker; en því ekki
að tilgreina borgarstjórann í New
York, sem er jafnoki Crokers og haus
saunur glæpabróðir? og þá hefði ekk
verið fjarri lagi að geta þess, að einmitt
þessir bófar hafa verið ofsóttir og dregn
ir fram í dagsbirtuna af tveimur merk
ustu bíöðum Demókrata. Má vera að
landanum hafi þótt heldur leiðufl sann-
indasmekkur eð svona framkomu.
The Home Life Association
of Canada.
Aðalskrifstofa í Toronto.
Höfuðstóll—ein millíón dollars."
I jll trygging í höndum sambandsstjórnarinnar.
Lifsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gilda hvar í heimi sem er. Eng-
in höft eru lögð á skírteinishafa hvað snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þan
eru ömótmælanleg eftir eitt ár frá dagsetningu.
Skírteinin liafa ÁBYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð, pen-
ingum og lánsgildi, eftir þrjú ár.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess tíjá
W. H. WHITE,
MANAGER.
Mclntyre lilock
ARNI EGGERTSSON,
GENERAL AGENT.
Winnipeg;. P. O Box^45.
PENINGAR LANADIR. — Hægar mánaðar afborgahir.
Vér erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag
sem bækistöðu hetír í Winnípeg.
^^ÚTU EIGNAST Laglegt og vel vandað einloftað hús
(Cottage) á Alexander Avenue ? Það er úr timbri, á
steingrunni og kostar $12Q0.
TAKID VATRYGGING— ; »The Phoenix of London».
Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi.
Nares, Robinson & Black,
JBank «f Hamilton Ohambers.
En hvað meinar svo landinn með
þessu? Er það mögulegt að hann vilji
koma þeirri skoðun inn hjá iesendum
Lögb., að allir fylgjendur Bryans séu
þjófár? Mundi það rétt af mér að
halda ^því fram að idlir flokksbræður
hans væru óráðvandir og að þeir
g^erðu þjófnað í laganna uafni að aðal.
kjörgengis skilyrðum. Þó nokkrir
aldavinir M. A. Hanna liafi stolið
svonahér um bilöllu er þeir náðu í hjá
Cúbamönnum um leið og þeir voru á
virkilegan hátt að sýna þeim menning-
aráhrif McKinley-stjórnarinnar. Alt,
sem flokkarnir geta gert, er að hegna
glæpamönnum hlutdrægnislaust öðrum
til viðvörunar, og búa ekki til lög er
beinlínis hjálpi óhlutvöndum bófum til
að féfletta varnarlausa alþýðu.
Landinn segir. að McKinleystjórn-
in liafi leyst undan harðstjórn og kúg-
un Evrópu 10 milíónir af mannkyninu
í þessari heímálfu”. Hvar er þessi
fjöldi? Eftir síðustu manntalsskýrsl
sem til eru, teljast á Cuba 1.600,000
og á Porto Rico 900,000. Hvar er hitt,
fólkið? 7J milíón við strendur Ameríku?
Erjþað roögulegt að landinn meini að
Fil pseyjarnar séu við strendur Ame
ríku? eða í þessari heimsálfu? Hvaða
dóm verðskuldar svona stefnulaus og
glæfralega hugsuð staðhæfing? Er það
ekki vottur um dæmafátt kæruleysi að
bera annað eins og þetta á borð fyrir
jafn vel hugsandi menn og vér íslend-
ingar alment erum. Eg legg það undir
óháða dómsgreind landa minna.
í næstu málsgrein fer landron að
bregða Bryan um glamur(!!) Þeir sem
búa í glerhúsum ættu að varast grjót-
kast.
Landinn segir að Brj-an sé einu-
sinni ekki Demókrat, heldur sambland
af Demókrat, Nihilista og Sósíalista,
stefnulaus þjóðmálaskúmur og embætt-
issnikja, sem þjóðin sé orðin leið á.
Hvernig veit hann þetta? Hvar eru
vitni hans? Hann bendír ekki á einn
einasta þjóðfrægan stjórnmálamann er
bregði Bryan um stefnulej-si. Getur
hann ætlast til að vér tökum orð hans
trúanleg. þegar hann sjálfur trúir ekki
staðhæfingum sínum svo vel; að hann
vílji setja nafn sitt undir þær. Veit
bann ekki að Érvsn er heimsfrægur
inaður? að andstæðingar hans dást að
honum og elska hann persónulega, þó
þeim sé illa við kenningar hans, af því
þær vara alþýðu við þeim, sem þj-kjast
vera vinir vorir, svo þeir geti því betur
dreaið til sin ávöxtinn af vinnu vorri
meö aöstoð hlutdrægrar löggjafar og
allskooar pólitiskum prangaraskap.
Réttlætis vegna set ég hér vottorð
flokksbræðra lardans og vona að les-
endur Hkr. fj-rirgefi mér, þó ég geri þá
j-firlýsing nú þegar, að ég hlýt að taka
orð þeirra gildandi fremur en uiyrkur-
nöldur landans.
Mr. Thos. B. Reed segir: “Mr,
Brj-an er Demokrat, fj-rst. seint og
snemma, en þeir sem elska hann bezt
eru Repúblikar”.
Burke Cockrau, sem leígður var
1896 af M. A. Hanna til að inæla frarp
með McKinley, segir: “Eg og Bryan
uunum sainan á löggjafarþingi Banda-
ríkjanna í sarofleytt 4 ár; ég uragekst
hann og talaði við hann nær því dags-
daglega. Mr. Bryan er persónulega sá
einlægasti maður, er ég hefi nokkru
sinni þekt í pólitík. Umhj-ggja hans
fyrir velferð alþýðu eins og hann skilur
hana, en líkari móður elsku til barns
sín, en vanalegri föðurlands elsku
stjórnmálamanna þeirra, sem ég hefi
þekt”.
Mr. Carnege segir í North Ame-
rican Review, að Mr. Bryan sé sú fyrir-
mj'nd, er hann helzt vildi óska að allir
sjiiir Bandaríkjanna tækju sér til eftir-
dternis.
Svona gæti ég haldið áfram í nær
því það óendanlega, en ég álít þetta
nægilegt til þess að sanna að leiðandi
menn af andstæðum pólitiskum skoð-
unum við Brj-an dæma hann eitthvað
öðruvisi en landinn, sem hvorki hefir
heyrt hann né séð. ^ En svo heldur
landinn áfram. Það fer líkt fyrir hon-
um og steini, sem veltur ofan bratta
f jallshlíð; fyrst fer hann hægt, en svo
smá eykst. hraþinn og verður siðast að
alveg óhugsuðu bepdingskasti. Hann
segir að leiðandi menn séu aö yfirgefa
Bryan. Hverjir eru þeir leiðandi menn
er fylgdu honum í kosningabaráttunni
1896, sem tíafa j-firgefið hann? Því
ekki að nafngreina einhverja af þessum
leiðaudi möunum? En af því landinn
er komin nokkuð neðarlega í brekkuna,
segir hann áhrifamestu stórblöðin hafi
fylgt Bryan og allri hans pólitík, og
svo telur hann St. Paul Globe, er aldrei
hefir fylgt Bryan og vann með meiri
ákafa á móti honum 1896, en blaðið
hefir gert nú upp á síðkastið. Ég vil
benda “á ritstjómargrein í þvi blaði 7.
Júlí þ. á. og enn aðra 12. s. m. máli
mínu til sönnunar. Um hin blöðin
veit ég ekkert; en hafi þau fylgt sömu
stefnu [og St. Paul Globe geiði 1896, þá
hefir Mr. Bryan engu blaðafylgi tapað,
og þessar staðhæfingar landans verða
því að dæmast eins og hvert annað ó-
ráðs »rugl-
Landinn talar(um framkomu Bry-
ans li sjálfboðaliðinu með töluverðu
skapi, þvi nú er hann sjálfur koroinn
neðst i brekkuna og veit ógjörla hvað
segja skal. Hann segir að Bryan hafi
ekki tíaftannað tækifæri en það, að
berjast við flugur. Hefir ekki landinn
svo mikla sómatilfinningu að geta séð
að svona sleggjudómar um sakiausa
menn eru eins heimskulegir og peir eru
illgjarnlegir. Veit hann ekki aðfleiri
þúsundir af hans eigin flokksbiæðrum
voru í flugnabardaganum með Bryan,
fengu ekkert annað tækifæri, en samt
hefi ég aldrei heyrt nokkurn mann af
nokkrum pólitiskum flokki vera svo
lágt fallinn að telja þeim það til van-
sæmis; þessir menn lögðu líf og heilsu
í sölurnar fyrir heiður föðr og fósturl.
Þeir voru reiðubúnir að uppfylla allar
þær kröfur. er stjórn landsins legði
fyrir þá. Hermannastaðan er engin
sældarstaða, sro það sýnist að varla
rainni viðurkenning ætti að eiga sér
stað. en þeir væru látnir njóta sann-
mælis af stjórn landsins og saroþegn-
um þeirra er heima sitja. Það er stór-
illa farið að tíokkshatur skuli geta for
myrkvað margar litlar sálir, svo þær
geta ekki séð réttara en tnka þær helg-
ustu tilfinningar, er kvikna í mannlegu
hugskoti og leggja þær út á versta veg,
og leitast við að umvenda þeim svo að
þær sýnist gerðar i eigingjörnuin til-
gangi. Mér seg r svo hugur um að
flokksbræður landans virði hann ekki
mikið fyrir þaun hernaðar vitnisburð.
er hann hefir gefið þeiin. Eu svo felur
hann »íg í skugganum svo ekki er hægt
að jafnamm haun, en svo er það versta
að einhver. sem er saklaus, getur verið
hafður fyrir rangri sök, eu eftir rit-
hætti liaus að dæina tekur hann sér það
ekki nærri. En enginn hlutur virðist
mér þó leiðinlegri, en að ástæða sé gef-
in til þess að srlæpir hins seka geti ver-
ið lagöiv viðdyr saklausra iiiarna.
G. A. Dalmakn.
Minniota, Miur.