Heimskringla - 10.09.1930, Blaðsíða 1
XLIV. ÁRGANGUR
WTNNIPEG MIÐVIKUDAGINN 10. SEPTEMBER, 1930
NCrMER
DYERS & CLEANERS, LTD.
SPECIAL
Ladies’ Plain Silk Q4 aa
Dresses Dry Cleaned ^ I aUU
Rev. II. Pétuiisson x d
45 Hoiuo St. — CITY. an<l Carry Pricel
-Jelivered, $1.25
Minor Repairs Free
DYERS & CLEANERS. LTD.
SPECIAL
Men’s Suits Dry * AA
Cleaned & Pressed*P I aUU
(Cash and Carry Price)
Delivered, $1.25
Buttons Tightened, Replaced
and all Minor Reparirs Free
SAMBANDSÞINGIÐ.
Sambandsþingið kom saman sið-
astliðinn mánudag. Forseti þingsins
var kosinn Capt. Geo. Black, þing-
maður frá Yukon. Eins og kunnugt
er, var til þessa þings boðað með
það aðailega fyrir augum, að ráða
bætur á atvinnuleysinu og fleiri mál-
um, er bráðrar úrlausnar þurfa við.
I hásætisræðunni, sem er mjög stutt,
er minnst á tvö mál, er aðallega verði
íhuguð og afgreidd á þessu þingi, en
þau eru atvinnumálið og tollmálin.
Forsætisráðherra R. B. Bennett
skýrði tilgang þingsins nokkuð frek-
ar, og leiðtogi stjórnarandstæðinga,
Mackenzie King, og Robert Gardin-
er, leiðtogi Albertabændanna, sögðu
nokkur hlýleg orð um hinn nýja
þingforseta.
Ætlast er til að þetta bráðabyrgð-
arþing standi ekki lengur yfir en 2
vikur, en það fer auðvitað eftir því,
hve langar umræður spinnast um
málin. Það er 17. þingtímabil Can-
ada, sem með þessu þingi hefst.
• • •
Síðustu þingfréttir.
Á mánudaginn var ekki neitt far-
ið út i hin eiginlegu mál þingsins.
Tíminn fór mestur í þingsetninguna.
1 gær var aftur tekið til óspilltra
mála. Frank Turnbull frá Regina
(sá er sigraði Dunning), og Mr.
Gagnon frá Dorcester, Quebec, gerðu
tillöguna um samþykkt hásætisræð-
unnar. Minntist Tumbull á ástand
landsins og sérstaklega á atvinnu-
leysið. Kvað hann gömlu sögima
hafa endurtekið sig í nýafstöðnum
kosningum, að þvi leyti, að þegar
kreppti að hag þjóðarinnar, væri
conservativunum falið að fara með
völdin. Fögnuðu flokksmenn hans
þvi. óskaði hann stjóminni til
lukku, og með andstæðingum henn-
ar kvaðst hann hafa samhyggð. —
Heyrðist þá sagt í lágum róm frá
liberal bekkjunum: “Thank you”.
Mr. Gagnon talaði á frönsku mest
af tímanum. Var máli hans vel tek-
ið. En ekki komast nú Frakkar
lengur af með að halda ræður á þingi
án þess að ihugaðar séu. Frakkar
hafa sem sé áður alltaf tilheyrt öðr-
um flokkinum, s. s. iiberölum. En
nú em á þingi nokkrir þeirra con-
servatívar. Þess vegna eru þeir nú
ekki á einu og sama máli í öllu. —
Þetta er nýtt. Til ensku mælandi
þingmannanna flestra mun þetta
hvorki gera til né frá, þvi enskan er
þeim nóg, eins og allir vita.
Eftir þetta byrjuðu ræður stjóm-
arandstæðinga. Mackenzie King
talaði fullar tvær klukkustundir.
Var ræða hans lítið annað en berg-
mál af kosningaskömmum hans á
conservatív flokkinn. Kvað hann
Bennett hafa unnið kosningamar
með blekkingum, svikið kjósendur og
farið með öfgar í sambandi við at-
vinnuieysismálið. Stjómin væri eins
manns stjóm, Bennett væri nokkurs-
konar Mussolini o. s. frv., o. s. frv.
Krafðist King allra bréfa í sambandi
við allt, sem stjómin hefði hafst að,
síðan hún tók við völdum 7. ágúst.
Var honum allt þetta veitt að ósk
sinni.
Gardiner, leiðtogi bænda í Alberta
kvað Bennett skyldi kenna á Vest-
urlandinu, ef hann hækkaði tolia. —
Woodsworth kvað tollhækkun hækka
verð vöm, og Bourassa deildi á hinn
nýja akuryrkjuráðherra, fyrir að vera
að senda mjólkurkýr út úr landinu,
sem hér væm ekki of margar. Það
lítur út fyrir að hann sé mjólkur-
vinur!
Forsætisráðherra R. B. Bennett
svaraði kurteislega ádeilunum — at-
riði fyrir atriði, og kvað stjóminni
umhugað um að standa við öll sín
kosningaloforð. Benti með hógvær-
um orðum á að sanngjarnt væri, að
meira en þrjár vikur liðu af stjóm-
artíð sinni, áður en farið væri að
brígsla um loforðasvik.
Bennettstjómin leggur til að veita
20 miljónir doilara til þess að bæta
úr atvinnuleysinu, á þann hátt sem
heppilegast þætti. Fer þessl nýja
stjórn eitthvað öðruvísi að ráði sínu
en Kingstjómin gerði i þessu máli.
Þetta er nú það helzta, sem í frétt-
ir er færandi af þessu þingi, eftir að
það hefir setið tvo daga.
FRA EFRI MALSTOFUNNI.
Um leið og sambandsþingið var
sett s.l. mánudag, tóku fimm nýir
efri málstofu þingmenn við embætt-
um sinum. Voru þeir úr hópi þeirra
7 manna, er Mackenzie King valdi í
þessi embætti í lok síðasta þings
Tveir þingmennirnir voru ekki við-
staddir, þeir Hon. L. A. Wilson og
J. E. Prevost, báðir fyrrum liberal
þingmenn frá Quebecfylki, en taka
við embætti seinna. Þeir er við-
staddir vom, heita: Hon. Rodolph?
Lemieux, fyrrum forseti neðri deild-
ar þings; Hon. J. H. King, fyrmm
ellistyrks og heilbrigðisráðherra;
Hon. E. W. Tobin, fyrrum liberal
þingmaður frá Richmond-Wolfe;
Hon. J. E. Sinclair, fyrrum liberal
þingmaður frá Prince Edward Island,
og Hon. Geo. Parent, fyrrum liberal
þingmaður frá Quebec West.
I efri málstofunni eru um 50 lib-
eralar og 46 conservatívar. Eru þvi
liberalar þar í meirihluta. tlr flokki
conservatíva verður sentator Blondin
þingforseti, sem auðvitað greiðir
ekki atkvæði, nema ef eitthvað mik-
ið er á seiði. Einn senatoranna,
Pascal Poirier'að nafni, er búinn að
vera þingmaður i efri málstofunni í
45 ár.
KOSNINGA-ATKVÆÐIN TALIN.
I sambandskosningunum, er fram
fóm 28. júlí s.l., voru alls greidd 3,-
898,995 atkvæði. Skiftust þau þann-
ig milli flokkanna, að conservatívar
hlutu 1,909,995, libeéalar 1,714,860,
prógressívar (í Sask. og Alta.) 30,993.
liberal-prógressivar (í Manitoba)
59,155, verkamenn 45,303, óháðir
49,355, U. F. A. (Albertabændur)
60,924, bændur 22,766, kommúnistar
5,685.
Þó undarlegt kunni að þykja
hlutu báðir flokkarnir fleiri at-
kvæði en i kosningunum 1926. Con
servatívar græddu um 400,000 at-
kvæði og liberalar um 300,000. Hafa
víst aldrei verið svo mörg atkvæði
greidd 1 sambandskosningum sem i
þessum síðustu.
NAMUMALAFUNDUR I THE PAS.
John Bracken forsætisráðherra
kom aftur til Winnipeg á föstudags-
kvöldið frá The Pas, eftir að hafa
verið á ferðalagi um fylkið í viku-
tíma, og hafa setið námufundi þar
nyrðra ásamt Hon. D. G. McKenzie
námumálaráðherra, George E. Cole
námustjóra fylkisins, og R. M. Fish-
er, K.C., lögfræðiráðunaut.
FELLIBYLUR I
SANTO DOMINGO.
Ægilegur fellibylur geysaði í Santo
Domingo í Vestur-Indlandseyjum
miðvikudaginn þann 3. sept s. 1., og
lagði næstum þvi höfuðborg ríkisins
í rústir, drap um 3000 manns og stór-
meiddi og limlesti yfir 15 þúsundir.
Hafði stinningsstormur af norðri
blásið yfir eyjuna i 24 klukkutíma
samfleytt, og ekkert borið til tíðinda,
fyr en vindhraðinn óx skyndilega upp
í ofsaveður á miðvikudaginn var og
náði að lokum 180 mílna hraða á
klst., og geysaði með þeim hraða
hér um bil hálfa klukkustund. Urðu
þá ýmsar skemmdir; þök fuku a?
húsum og önnur gereyðilögðust. En
skyndilega stilti til og var dauðalogn
I 10 mínútur. Að þeim loknum skall
fellibylurinn aftur á af suðri með
.jafnmiklum ofsa, og geysaði nú í 2
klukkustundir og rak þá smiðshögg-
ið á viðurstyggð eyðileggingarinnar.
Létti honum eigi fyr en varla stóð
steinn yfir steini og borgin var svo
að segja öll í rústum. Aðeins 400
hús standa eftir af 10 þús., og þar
með hefir þó varðveizt hin 400 ára
gamla dómkirkja, sem fræg er að
fögrum byggingarstíl og gröf Chris-
tophers Columbusar. Alls er tjón-
ið lauslega metið á 30 miljón doll-
ara.
Nærri má geta að hörmulegt er
ástandið i borgarrústunum. Dauðir
menn og særðir liggja innan um hrá-
viðið og fá enga björg sér veitt, en
um 30 þúsund manns eru húsvillt.
Er ógreitt aðgöngu með alla björg.
þvi að áin, sem borgin stendur við,
er frámunalega ill uppsiglingar,
og auk þess sukku í ármynninu
botnsköfubátar og ýms flakatrúss
önnur, er algerlega verja siglingu að
höfninni. Þó var gerð tilraun til að
flytja nokkra lækna og aðhjúkrun
með flugvél frá Port Au Prince,
Haitl. Roosevelt landstjóri í Porto
Rico sendi og flugleiðis vistir, klæðn-
aði og meðul og hét allri aðstoð, sem
möguleg væri frá ibúum Porto Rico,
og Rauði krossinn hefir gefið 15 þús.
dali til bráðabyrgðar hjálpar.
Aðkoman var voðaleg, eins og
nærri má geta. Fullkomin óreiða
rikti á öllum sviðum. Rafmagnsljós
og vatnsból voru eyðilögð, og fólk-
ið, það sem eftir lifði, náði hvorki i
þurt né vott.'svo að hungursneyð tólc
brátt að sækja það heim, en hver
rændi og ruplaði þvi er hann náði í.
Nú hefir borgin verið lýst i hemað-
arlögum, liðsstyrkur fenginn til þess
að hefja reglubundið hjálparstarf og
skip verið send með matvæli og aðra
aðhlynning. A laugardaginn var voru
í einum kesti brennd lik 1200 manna.
Hinir særðu og lemstruðu hafa ver-
ið lagðir inn i þau fáu hús, sem eft-
ir standa, jafnóðum og þeir hafa
náðst undan rústunum. Leonidas
Trujillo forseti hefir unnið ósleiti-
lega að því að ráða bót á hörmung-
unum. Vita menn ógerla um feril
fellibylsins innar i landinu, og þær
afleiðingar, sem hann kann þar að
hafa haft i för með sér, því að öll
simasambönd eru slitin.
Santo Domingo er höfuðborgin i
Dominican lýðveldinu, sem er um 19
þús. fermílur að stærð og nær yfir
hér um bil tvo þriðju hluta Santo
Domingo eyjarinnar, austanverða,
sem er önnur stærsta eyjan af Ant-
illeseyjunum og liggur á milli Cuba
að vestan og Porto Rico að austan
A vestanverðri eyjunni er Haiti lýð-
veldið. Er landið allt mjög frjósamt
og einkum ræktaður sykur, cacao og
tókbak. Ibúar rúmlega 1 miljóa
manna, aðallega kynblendingar. —
Sjálf borgin Santo Domingo er á suð-
urströnd eyjarinnar, 4 mílur upp
með Ozama-ánni. Er hún stofnsett
árið 1496 og þvi talin elzta borg
hvítra manna í Ameríku. Dómkirkj-
an, sem byggð er í spönskum endur-
reisnarstíl, er talin að stafa frá ár-
inu 1512, og hefir gröf Columbusar
að geyma. X borgarvirkinu þykjasi.
menn ennþá geta sýnt klefann, þar
sem Columbus og bróðir hans voru
hafðir í varðhaldi eftir skipun Boba-
dilla.
ÓEIRÐIR I ARGENTINU.
Höfuðborg Argentínu hefir verið
lýst i hernaðarástandi og búast menn
við óeirðum. Irygoyen forseti hefir
verið aðvaraður um, að nokkur hlut.i
hersins sé ótryggur, og hefir dóms-
málaráðherra La Campa lýst því yf-
ir, að ýmsir kunnir stjórnmálamenn
séu í flokki uppreisnarmanna. I sam-
tali við blaðið La Critica hefir þó
forsetinn látið í ljós, að hann óttað-
ist hvergi uppreisn gegn ríkinu, en
hitt P>nni að vera að einhver jir ó-
eirðarreggir vildu klekkja á ser per-
sónulega.
• • •
Stjórnarbylting.
Seinustu fregnir frá Argentínu
herma að forsetinn, Hipolito Irigoy-
en, hafi flúið á föstudagskvöldið var
frá heimili sínu í bíl, en verið tekinn
höndum í La Plata af uppreisnar-
mönnum. Var hann þá svo veikur,
að hann varð að leggjast á sjúkra-
hús og sagði af sér forsetatign. Gafst
þá stjóm hans upp og dró friðarfána
á stöng yfir stjómarbyggingunum,
og afhenti uppreisnarhernum, undir
forustu Jose Evaristo Uriburu hers-
höfðingja og Storni sjóliðsforingja
lyklavöldin. Samt hafa óeirðimar
haldið áfram í Buenos Aires, og vita
menn ekki glöggt ennþá hvernig á
því stendur.
Var Irigoyen forseta einkum bor-
ið það á brýn, að hann notaði vald
sitt með hlutdrægni út um landið,
þar sem hann hefði lagt kapp á að
steypa andstöðuflokkum af stóli.
Hann er 80 ára gamall.
FASTAR FLUGFERÐIR MILLI
EVRÓPU OG AMERtKU.
Getið er um það fyrir skömmu
hér i blaðinu, að þýzkur flugmaður
hafi flogið með þrem félögum sínum
frá Evrópu yfir Island og Grænland
til Ameríku. Voru þeir 7 daga á leið
inni til New York, en ekki nema 47
klukkutíma alls uppi í loftinu. Nú
er í orði að þýzka loftfarið DO-X,
sem er stærsta loftfar í heimi, og
flaug í fyrra með 170 farþega, eigi
að leggja af stað vestur um haf í
septembermánuði með 14 farþega og
mikið af þungavöru. Er það tilætl-
unin, ef ferð þessi gengur vel, að
koma á fót föstum ferðum, en eigi
mun sú leið eiga að liggja yfir Island,
heldur sunnar. Loftfarið er þægi-
lega útbúið fyrir farþega, með sex
hreyfivélum.
SENDIBRJEF
STÓRFLÓÐ A INDLANDI. >
Fregnir frá Indlandi herma, að
stórflóð hafi hlaupið í fljótið Bram-
haputra nálægt Bokoni og Laokhoa,
svo að flætt hafi yfir hús og 100,000
manna hafi hrakist frá heimilum
sínum, kornhlöður flotið burtu og
gripir drukknað. Fregnir allar eru
ógreinilegar frá þessum stöðvum, þyí
að engin símasambönd eru þangað
né nokkur járnbraut.
FRA ENGLANDI.
Frá London kemur sú fregn, að
Cunard linan hafi nú í hyggju að
byggja tvö ný stórskip, sem verða
eigi 75 þúsund smálestir, og muni
kosta um 30 miljónir dollara hvert.
Fyrra skipið, sem byggja eigi, og
bráðlega verði hafið að smlða, eigi
að verða 1000 feta langt, meira en
300 fetum lengra en Mauritania og
ganga 35 mílur á klukkustund. A
það að taka 4000 farþega og 800
manna skipshöfn.
Ekkert vátryggingarfélag hefir
þorað að taka skip þetta í ábyrgð
sína, og hefir því ríkið lofast til að
ábyrgjast það með 22 miljón dollur-
ujn.
Mun þetta verða stærsta og hrað-
skreiðasta skip, sem enn þekkjast
dæmi um í viðri veröld.
• • •
Mikil hitabylgja hefir nýlega geng
ið yfir England og drepið um 21
mann. Hefir fólkið víða orðið að
vinna i baðfötum og allir baðstaðir
í nánd við London eru yfirfullir.
I Frakklandi hefir einnig verið
mældur geysimikill hiti, í París 100
stig, sem er meira en menn vita dæmi
um í 60 ár, og 120 stig í St. Etenne,
sem er einft og i hitabeltinu. Er tal-
ið, að hitabylgjan sé komin að sunn-
an frá sandauðnum Afríku.
Vert er rökin varast, þ\i
voða sök mun þyngja! —
Sumarvöku ofinn í
eg vil stöku syngja.
•
Sorgin þaggast sérhver þá,
sálstrið haggast lætur! —
Þegar daggar dropum á
draumar vagga nætur.
Ef að baga bylgjur kífs,
bióm í haga’ ei fárast;
þar er saga sorgariífs,
sem að fagurt tárast.
Nú er engin NóTT i mér!
Nú sízt geng á reiki —
lífsþrá fengin anda er
iðkar strengja leiki.
Enda bind á alit i gær,
alla synd og trega,
ijúfar niyndir máiað fær
myrkrið yndislega.
kaldversku, sem stjórnmálamenn
þeirra tíma notuðu mjög; sumersku,
máli vísindamanna; máli Fönikíu-
manna, sem algengt var meðal kaup-
manna, og ókunnugri tungu. Enn
voru þar töflur með egypskum áletr
unum. Þar sem skólabækumar fund-
ust, hefir verið, eftir því sem áletr-
anirnar leiða í ljós, háskólabær er
hét Zapuna, er virðist hafa verið mið-
stöð grískrar, babylonskrar og
egypzkrar menningar.
Efnisviður alls er svaf
að því miðar — batna.
Næturfriður auðgast af
óm frá niði vatna.
Dýrra, veiztu’ er draumamál,
dagsins leyst frá tötrum.
Eins og neisti’ í sælli sál
sé úr reistur fjötrum.
Fegri draumar drifu hér
dagsins glaum i klipur;
hreyfast straumar alrúms, er
andinn tauma gripur.
Æðra bruggast sálarsvið,
sálin huggast Iætur.
Andans gluggar opnast við
ástarskugga nætur.
AHra mætast hlyti hrós ___
af heimasætum iiðinn ___
ef eg gæti ofið ljós
inn f næturfriðinn.
Ungur pólskur söngvari, sem nú
um stundir vekur mikla athygli í
London, var svo óheppinn að glopra
þvi út úr sér við einn blaðamanninn
þar, að hann vildi gjama kvænast
ungri enskri konu, því hann héldi að
enskar konur væm einhverjir hinir
beztu lífsförunautar einum manni,
sem hægt væri að hugsa sér. Ekki
stóð á ungu stúlkunum að taka að
sér þenna efnilega söngvara. Hefir
hann þegar fengið 17 þúsund gifting-
artilboð.
Ofar trjáuum bjarmar brún!
Brjóst mitt hiánar, logar _
þegar máni í hæsta hún
himins fána togar.
O. T. JOHNSON.
HINN SÍÐARI BROTT-
REKSTUR UR PARADIS.
Nokkrir sauðmeinlausir íbúar Lund-
únaborgar, sem mikið héldu af sið-
venjum forfeðra sinna, þeirra Adams
og Evu, í klæðaburði, mynduðu félag
með sér í því skyni, að taka sér sól-
bað þannig búin, eins og guð hafði
látið sér sæma að gera þau úr garði
í öndverðu, og höfðu fengið sér stað
nokkurn í Hendon í Norður-London,
til þess að mega stríplast þar í friði.
Yfirvöld þessa bæjarhluta ömuðust
við þessum sólbaðendum, hneykslaðír
I hjarta sínu, en fengu ekki að gert,
því að þeir báru það fyrir sig, að
þeir hefðu eignarhald á blettinum, og
kæmi engum við um það, hvort þeir
klæddu sig meira eða minna á sinni
lóð. Safnaðist þá múgur manna
þama saman öðru hvoru, og gerðu
þessum "náttúrubörnum” ónæði, en
þau sátu föst við sinn keip og hreyfðu
sig hvergi. Það var ekki fyr en
yfirvöldin komust að þeirri niður-
stöðu, að þau ættu eitthvað yfir þess-
um bletti að segja, að horfa tók ó-
vænlega fyrir þessu fólki. Siðavönd
kerling, að nafni Mrs. Grundy, gerð-
ist þá mikill spámaður í sínu föður-
landi og réðist á móti “spillingunni”
með heilagri reiði og allri lögreglunni
i eftirdragi. Hlutu þar þessi böm
Adams og Evu sömu afdrif og for-
feður þeirra, að vera rekin út úr
þessari paradís nektarinnar. Reyndi
þá félag þetta að fá til afnota land
þar nálægt, er skurðafélag eitt hafði
yfirráð yfir. Ekki var þó fólkið fyr
búið að klæða sig úr hverri spjör, en
að skurðamennirnir komu með lög-
regluna á hælum sér og ráku það út.
Varð það að halda í fáklæddara lagi
heim til sin. A nú þetta vesalings
fólk hvergi höfði sínu að að halla.
Og i tilbót við allar þessar hrelling-
ar, verður það standa reikningsskap
ráðsmennsku sinnar fyrir dómstól-
unum í London, núna þessa dagana.
Við þann málarekstur sluppu þau þó
Adam og Eva, enda var þá enginn
tn að hneykslast á framferði þeirra
nema kerúbamir.
FORNMENJAGRÖFTUR.
Nálægt Loadikies, gamalli grískri
nýlendu, miðja vega milli Persalands
og Egyptalands, hafa tveir franskir
fomfræðingar að nafni F. A. Schaef-
fer og Georges Chenet, nýlega fund-
ið óvenjulegar skólabækur einhvers
gleymds háskóla. Skólalærdómur
þessi er ritaður á leirtöflur 4000 ára
gamlar, og hafa þær að geyma lexí-
ur á fjómm tungumálum: assyro-
1 skurði einum nálægt Mexico City
hefir indverskur fomfræðingur, Pan-
durang Khankloje, nýlega fundið
likneski Chalchihuitlicue, vatna-
gyðju. Er gyðja þessi ekkert nett-
lega vaxin, 33 fet á hæð og 20 feta
digur, gerð af steini, og því eitt hið
langstærsta skurðgoð, sem fundist
hefir I Ameríku. Er talið að leggja
þurfi jámbraut að staðnum til að ná
henni burt. Þykir seninlegt að tröll
þetta sé eldra en Aztekamenningin.
og sést þó greinilega alt hið kynlega
tilhöggna sköpulag hennar ennþá.
HVAÐANÆFA
Ekki nægir auðurinn alstaðar til
þess að gera mönnum lífið bærilegt.
I Niðarósi í Noregi drap sig fyrir
skömmu ungverskur auðkýfingur, að
nafni dr. Julius von Jonkly Thege,
af þeim ástæðum er nú skal greina.
Hann hafði fyrir nokkm síðan gifst
ungri og fallegri konu, að nafni Dor-
othy Arens, dóttur amerísks miljóna-
eiganda, og bjuggu þau í Budapest.
Vissu menn eigi annað en að með
þeim væru sæmilegar ástir. En einn
góðan veðurdag tekur frúin inn eit-
ur og varð það henni að bana. Ástæð-
ur til þess vissu menn eigi aðrar en
þær, að hún hafði verið sjúk lítils-
háttar og bannaði læknirinn henni
að fara á dansleik einn, er þeim hjón
um hafði berið boðið á. Aftur hafði
bóndinn bundið það fastmælum við
nokkra vini sína að hitta þá þar, svo
að hann varð að fara. Skildust þau
með mikilli blíðu. Þegar hann kem-
ur heim aftur, hafði frúin gengið til
sængur og dmkkið eitur sér til ólífis.
Varð dr. Thege nú eigi mönnum
sinnandi af harmi, og fóm tengda-
foreldrar hans með honum til Nor-
egs, ef vera mætti að af honum bráði
sorgin, en i Niðarósi, batt hinn harm
þmngni eiginmaður enda á líf sitt
og fylgdi konu sinni inn i eilífðina.
• • •
Ennþá finnast trúaðar og hlýðnar
manneskjur á jörðinni, sem feta vilja
l fótspor Abrahams hins réttláta. —
Kona nokkur í Haag fékk vitmn um
það núna um daginn, að hún ætti að
fórna fósturdóttur sinni eins og
Abraham hafði ætlað að fóma Isak
syni sínum og dró hún stúlkuna þeg-
ar undir hnífinn og réði henni bana
Fósturfaðirinn var ekki heima, þeg
ar þetta hroðaverk var unnið, og
varð svo mikið um, þegar hann koni
heim og sá þessar aðfarir, að hann
hneig i ómegin og var fluttur á
sjúkrahús. — Konan var haldin af
trúarbrjálæði álika miklu og Abra-
ham virðist hafa verið haldinn af.
• • •
Seattle á Kyrrahafsströnd er
merkilegur bær að ýmsu leyti. Þar
á heima hin furðulegasti hani, sem
menn vita dæmi um í viðri veröld. A
hverjum morgni fær hann sér dálít-
inn sundsprett á tjörn nálægt bæn-
um sem hann á heima á. Ekki vita
menn hveraig haninn muni hafa lært
íþrótt þessa, því að fágætt er að þeir
leggi hana fyrir sig. En nú er I-
þróttaöld mikil, svo að engin fjar-
stæða er, þótt jafnvel hænsnin verði
“interestuð í sporti”.
* * *
Ungur maður í Kaupmannahöfn
var trúlofaður vinnukonu einni þar
i borginni, og brá hún við hann heit-
orði. Hét hann því, að þessa skyldi
verða grimmilega hefnt. Stúlkan
vann á gistihúsi einu og bjó á neðsta
gólfi. Kvöld eitt læddist hinn ungi
fyrverandi kærasti að glugganum til
sinnar gömlu ástvinu, þegar hún var
háttuð og búin að slökkva ljósið og
sleppti lifandi rottu inn um glugg-
ann. Rottan brá sér á leik í her-
berginu og einhenti sér upp í rúmið
til vinnukonunnar. Rak hún þá upp
mikið angistarvein og hljóðaði unz
menn komu inn til bjargar. Þessi
hefnd hefir vafalaust verið sæt, en
hún kostaði piltinn 100 krónur og al-
varlegar ávítur hjá lögreglustjóra.
Skyldu allar vinnukonur vara sig
á því að svíkja elskhuga sína.
• • •
Eitt dæmi um sanntrúað fólk i
Sviþjóð: Prestur nokkur í Norrtelje
að nafni G. E. Ljugwe, hafði setið tvo
mánuði í svartholinu fyrir fjárstuld.
Þegar hann var leystur út úr fang-
elsinu héma um daginn, kl. 8 a»
morgni, skeiðaði hann út um dymar
veifandi biSlíunni og hrópaði:
“Góðir hálsar, hver sem segir of
satt, skal hengdur verða! Safnaðist
söfnuðurinn brátt í kringum hann og
bar hann á gullstóli að bílnum, sem
þar beið eftir honum. Alls fylgdu
honum um 30 bílar heim á prests-
setrið, og þar var sjálfur prófastur-
inn til staðar og mælti fyrir minnt
hans. Hefir séra Ljugwe áreiðan-
lega gott vald yfir sinum sanntrúuðu
sóknarböraum.
• • »
Einn hinn auðugasti maður i Ev-
rópu að löndum og lausum aurum, er
Vilhjálmur fyrverandi Þýzkalands-
keisari. Er talið að hann eigi úm 100
þúsund ekrur af landi og skógi. Þar
að auki skrautlegar hallir og listt-
garða bæði í Berlín og Potsdam. —
Höllin ein í Bellevue er metin 15
miljón dollara virði, og höllin í Bab-
elsberg, sem hefir 1,400,000 fermetra
stóran skemtigarð, er talin 12 miljón
| dollara viröi.