Lögberg - 21.12.1911, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER 1911.
13
T"
I
AGOD
HLDTUM
BUICK OIL félagið hefir greitt liluthöfum sínum 4% af ákvæðisverði um hverja þrjá mánuði, en það er sama sem
--------------------- 16 per cent. um árið -------------------------------
Brunnurinn Nr. 3 verður væntanlega til eftir viku eða hálfan mánuð, og ef hann er nokkuð líkur Nr. 1, þá fá hluthafar ofanálag á þann ágóða, sem nefndur
var, og ef það rætist, þá fá hluthafamir alls og alls í ágóða
32 per cent. um árið
emum
1 Californíu finst nú sem stendur hvergi nokkurs staðar arðvænlegra olíu fyrirtæki heldur en Buick olíu hlutabréf, og eg vil óhikað ráð.. hverjum og ei
að kaupa öll þau Buick olíu hlutabréf, sem þeir hafa ráð á.
Leggið peninga yðar í Buick olíu hluti og fáið 32% um árið.
Verðið er að eins $1.00 fyrir hvert hlutabréf —-og stendur að eins stutta stund. Þegar brunnurinn Nr. 3 tekur til starfa, þá hækkar líkast til verðið upp í hér
um bil $2.00 hver hlutur, eftir því, hve arðvænlegur brunnurinn reyndist
Lesið með athygli, það sem hér fer á eftir.
Ráðið fljótt við yður, hvað þér ætlið að gera og sendið mér pöntun þegar í stað.
Framtíðar verð
BUICK OIL HLUTABRJEFA
Heppilegast að vinda bráðan bug aö kaupunum
Það er nú fult ár síðan Buic Oil félagið mátti kall-
ast fullráðið og á trausta undirstöðu komið, með því að
alt benti á, að þær eignir, er félagið hafði hönd yfir,
mundu gefast mæta vel; en ef eitthvert fyrirtæki er ekki
það á veg komið, að hreinar tekjur þess séu nægar til ið
standast allan reksturskostnað og gefa gróða til vaxta
af hlutafé er vel sé við unandi, — þá hefir fyrirtækið
gróðabralls keim.
Þeir, sem safna auð fjár af kaupum lilutabréfa, eru
aðallega þeir, sem gerast hluthafar í félögum, áður en
þau eru komin af gróðabralls stiginu og í þeirra flokk,
sem gefa vissan ábata, og þeir, sem keypt hafa Buick
hluti, sjá nú, að hlutir þeirra hafa hækkað um helming.
Nú er svo komið, að það fvrirtæki má með nokkurn
vegin fullri vissu teljast í flokki fyrirtækja með vísum
arði, þrátt fyrir það, þótt ýmsir haldi því fram, að fyr-
irtæki, sem við olíu styðjast, séu völt til langvinns gróða.
Eg skal segja yður hvers vegna.
Hve nær sem nýir olíubrunnar finnast (svo sem við
námagröft), þá keppast allir við að ná eignarhaldi á
skák fvrir sig (claim), og í því uppnámi og æsingi er oft
borgað svo mikið fyrir leigurétt o. fl., að engri átt nær.
Þessu hefir nú lint í Kern sveit, þar sem brunnar og
námur Buick Oil félagsins eru, og sannsýnilegt verð
hefir sett verið á allar eignirnar. Því er það, að þegar
eignin fer að gefa af sér, þá má, eftir fyrirfarandi
reynslu, ásigkomulagi markaðar o. s. frv., gera sér vel
ljósa grein fyrir þeim arði, sem vænta má af slíkri eign,
og hve lengi hann muni haldast.
Þegar Buick félagið komst yfir eignir sínar, þá var
þegar búið að kanna til fulls jarðveginn, svo að ekki var
annað eftir, en að grafa, framleiða og uppfylla skyldur,
og á því stóð ekki lengi, þrátt fvrir nokkur óhöpp, sem
urðu á vélunum, og ekki koma aftur fyrir, með því að
félögin hafa af reynslunni lært að forðast þau.
Víða eru olíubrunnar grafnir svo nærri hver öðrum,
að varla er hægt að koma lyftitrönunum fyrir við þá, en
þetta er einkum gert þar, sem fárra feta bil ræður því,
hvort brunnurinn verður nægtabrunnur eða ekki.
1 Kern County er þessi óvissa mjög ótíð, af því að
jaðrar olíuvatnanna neðanjarðar hafa verið fastákveðn-
ir af jarðfræðingum, sem rannsakað hafa þau og fríam-
takssömum félögum.
Það má sjá af uppdráttum landfræðinga og annara,
að eignir Buick félagsins liggja rétt ofan á óvanalega
stóru olíuvatni; brunnur Buick félagsins Nr. 1, ber vott
um það, sem er á fjörutíu ekra svæði, er skyldur hafa
verið uppfyltar á; og það er skynsamleg tilgáta, að ef
einn brunnur getur gefið af sér $600,000 á ári, þá geti
tólf brunnar á samskonar landi gefið af sér hlutfallslega
mikinn arð.
En nú kann yður að detta í hug: “ Já, en tólf
brunnar munu evða, olíuforðanum upp á svipstundu.”
Þetta er að sumu levti rétt, en að nokkru leyti rangt.
Botn olíuvatnanna er meira 0g minna ósléttur, og verið
getur að olíustraumurinn frá einum brunni komi ekki
frá dýpri uppsprettu hundrað fet í burtu, þó að yfirborð
olíusándsins sé býsna jafnslétt á æði stóru svæði. Dýpi
olíusandsins getur verið mismunandi eins og dýpi
hafsins, og má við því búast, að um sandinn geti legið
á sumum stöðum grjót og leirhryggir, rétt eins og garð-
ar milli brunna; þess vegna getur svo farið, að
mikill ávinningur verði einmitt að tólf brunnum, eðæ
jafnvel fleiri, á þessu svæði, sem Nr. 1 er á og skyldur
hafa verið á unnar.
Um aldur þessara brunna er það að segja, að vert
er að benda á, að í olíunámunum eystra er olíusandur
sumstaðar ekki nema fáein fet á dýpt, en þeir brunnar
hafa þó látið til olíu í fjörutíu ár sumir hverjir; en á
Californíu sandinum er dýpið milli nokkurra. feta og
nokkurra hundraða feta. Ef menn ættu því að dæma af
olíunámunum eystra, þá ættu þessir vestrænu brunnar
að geta enzt í marga mannsaldra.
Fvrir eitthvað mánuði tók Universal olíufélagið að
framleiða olíu úr brunni, sem það hafði grafið fast við
landamæri þeirra 560 ekra, sem Buick olíufélagið hefir
til umráða. Sá brunnur gaus á dag 2.500 tunnum olíu,
og er hann hér um bil eins mikil sönnun fyrir ágæti olíu-
svæðis Buick olíufélagsins, eins og hann hefði verið
grafinn af því sjálfu.
Af því að þetta er tákn, sem ekki verður móti mælt,
og stutt er af jarðfræðilegum rannsóknum þess land-
flæmis, sem þessar 560 ekrur liggja í, þá virðist nú ekk-
ert nær liggja heldur en að setja upp lyftitrönur, grafa
og framleiða, og eftir öllum eyktamörkum að dæma, er
landrými Buick olíufélagsins nægilegt til þess að gera
það eitthvert voldugasta og auðugasta félag á þessum
slóðum.
Ef hægt er að starfrækja tólf brunna stóra á fjöru-
tíu ekrum, þá ætti af 560 ekrum að vera hægt að hafa
hlutfallslega framleiðslu, ef sömu skilvrði eru þar fyrir
hendi, og á það virðist alt benda.
Af þessu öllu er hægt að sjá, að Buick olíufélagið er
að svífa inn á þá gróðabraut, sem innan skamms mun
hlevp ahlutum þess í það verð, sem mjög er álitlegt, bor-
ið saman við verð á hlutum hverra annara olíufélaga í
Californíu sem vera skal.
Það, sem tyrir höndum er
Brunnurinn Nr. 1 heldur áfram að þeysa úr sér
4,000 tunnur á dag. Brunnurinn Nr. 3 ætti að fara að
gjósa innan þrjátíu daga, og ef til vill innan hálfs mán-
aðar. Brunnurinn Nr. 4 er nú kominn 1,025 fet niður.
Að grefti þessa brunns er unnið með stærsta og öflug-
asta borunar útbúnaði, sem til er í landinu, og gengur
borunin svo fljótt, að eftir því áframhaldi, sem nú er,
ætti þessi brunnur að vera fullgerður innan næstu tíu
vikna.
Það hefir verið skýrt livers vegna þessir brunnar
ættu að jafnast á við Nr. 1, sem stöðugt heldur áfram að
gjósa. Líkindin til vonbrigða í þeim efnum eru svo
lítil, að varla er vert að gera sér rellu út úr því.
Um það er þegar kunnugt, hve félag þetta er gróða-
vænlegt, því að nú þegar getur það greitt 20% af hlutum
þeim, sem það hefir gefið út, og að hlutirnir eru meira
virði nú, en sem nafnverði þeirra, $1.00, nemur. Með því
að þetta er vitað, hvers virði munu þeir þá verða, þegar
næstu brunnarnir tveir taka að gjósa?
Þnír dollarar eru það minsta, sem hægt er að von-
ast eftir, og cf til vill fjórir til fimm dollarar. Eftir þtrí
sem verkinu miðar betur áfram og margir brunnar eru
grafnir í einu í stað tveggja, má búast við miklu hærra
hlutabréfa verði, en þetta er framsýnna manna að gizka
á. Hugfast ættu menn samt að hafa það, að það er
stórféð, sem græðist með ágizkunum, og þegar eitthvert
fyrirtæki er komið á það lag að vera orðið gróðavænlegt,
eins og Buick olíufélagið, og hluti má kaupa á ábyrgðum
grundvelli, og þar við bætast laðandi 0g líklegar horfur
til feikna gróða, fyrir utan allan aukakostnað hlutaðeig-
enda, virðist það því ekki hyggilegt, hverjum sem er, að
kaupa svo marga hluti, sem auðið er yfir að komast?
Sá er þetta ritar, keypti mjög mikið af hlutum Buick
félagsins strax er það var stofnað; nokkuð af þeim hlut-
um er til sölu við því verði er gefur kaupanda í ágóða
12% til 16%. Nú er verð hvers hlutar $1.00, en það
liækkar bráðlega, þegar nýju brunnarnir fara að gjósa
og ágóðinn vex.
Þeir, sem kaupa nú, er hlutirnir eru á $1.00 verði,
munu innan skamms eiga því láni að fagna, að hver
hlutur hækki frá $3.00 til $5.00, og er búist við að þá
verði auðgert að selja hluti viðstöðulaust, svo að hver
geti losað sig við sfna hluti, er vill, með mildum ágóða,
nema hann kjósi heldur að halda hlutum sínum og fá af
þeirn greiddan aukinn arð.
BENJAMIN FRANKLIN MOFFATT
PANTANIR HLUTA
KARL K. ALBERT, 708 McArthur Building,, Winipeg, Man.
t
Kæri herra —
Hér með beiðist eg kaups á................hlutum Buick Olíufélagsins, við $1.00 verði hvern hlut,
og sé nafnverð hlutar hvers $1.00. Innlagðir eru................ . til greiðslu á téðum hlutum.
Nafn........................................................................
Heimili
Bær ...
Fylki
Þér getið símað pantanir yðar á minn kostnað
Banki — “Traders’ Bank”, Winnipeg.
KARL K. ALBERT,
Umboðsmaður
í Cariada
708 McArthur Bldg.
«* 4*
-