Lögberg - 19.06.1930, Qupperneq 1
43. ARGANGUR
HJALMAR A. BERGMAN, K. C.
forseti lögfræðingafélags Manitoba-fylkis. — Mr. Bergman
lagði af stað í gær, áleiðis til Lundúna, til þess að flytja þar
mikilvægt mál fyrir hæzta rétti Breta.
Sýningin í Stokkhólmi
í sumar.
í marga mánuði hafa fremstu
skrautlistamenn og iðnaðarmenn
Svía unnið að undirbúningi hinn-
ar miklu sýningar í heimilisiðn-
aði, skrautlist og listiðnaðl, sem
haldin verður í Stokkhólmi mán-
uðina maí til september í sumar.
Tilgangur þessarar sýningar er
sá, að vekja athygli manna á því,
hve skrautlist og listiðnaði hefir
fleygt fram á síðustu árum, og
hve góðar horfur eru nú á því,
að géra hversdagslífið fjölbreytt-
ara og listauðugra en áður. Tal-
ar það einnig sínu máli, að nýj-
ustu hrefingar hafa gengið í þá
átt að gera hluti almennrar notk-
unar þannig, að' þeir sameini feg-
urð og nothæfni, og hefir þessa
ekki hvað sízt gætt í list Svía ,er
unnið hefir í nánu sambandi við
almenna framleiðslu.
“Gerum heimilin eins fullkom-
in og frekast verður á kosið,” er
kjörorð þeirra, er að sýningu
þessari standa. Til þess að ná
þessum tilgangi, hafa menn leit-
MR. DG MRS. JÓN JÚLIUS.
Þann 12. þ. m., áttu þau merkishjón, Jón Júlíus og
Jónína kona hans, að 757 Home Street hér í borginni, gull-
brúðkaup. Þau hjón fluttust hingað til lands árið 1876, og
hafa dvalið í Winnipeg jafnan síðan. Af fimm börnum
þeirra hjóna, er eitt á lífi, frú Flora Benson, bókhaldari hjá
Columbia Press, Ltd. Séra Halldór heitinn Briem, gaf þau
Mr. og Mrs. Júlíus saman í hjónaband.
Þau hjón, Mr. og Mrs. Július, hafa notið hylli og vel-
vildar allra, er þeim hafa kynst, og berast þeim því óefað
mörg hlý hugskeyti um þessr mundir víðsvegar að.
ast við, að gera hina dýru hluti
miljónaframleiðslunnar fagra,
smekklega og aðlaðandi, og
reynslan hefir orðið sú, að þeir
hlutir, sem mesta fullnægju hafa
veitt augum og smekk, hafa
reynst notadrýgstir og heppileg-
astir.
Hér er því um að ræða nýjung,
sem lítil athygli hefir verið veitt
áður. Finnast þess þó ljós dæmi
í daglega lífinu. Bílar eru feg-
urri að formi, en flest hinnar
nýrri framleiðsluvöru. Stafar það
að líkindum ekki hvað sízt af því,
hve vel þeir svara tilgangi sín-
um, hraða og styrkleik. Er þar
hverjum hinum ótalmörgu hlut-
um vélar og skrokks komið þann
ig fyrir, að úr því verður sam-
feld heild, fögur og glæsileg.
Eins og geta má nærri, eru hús
þau, sem sýnt er í, bygð þannig,
að þau eru sérkennileg fyrir hið
þægilega og samræmda í bygg-
ingum nútímans.
Skrautlistin er allmikill hluti
af því, sem sýnt er. Getur þar
að líta glervörur, leirvörur, járn
steypur, silfurvörur og skraut-
gripi, bókband, prentlist o. ífl.
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 19. JÚNÍ 1930
NÚMER 25
Reykjavík í hátíðarskrúða
fagnar stóra Islendinga hópnum, er til Islands sigldi
með Cunard skipinu “Antonia.” Um tíu þúsundir
manna saman safnaðir við bryggjuna, er gestir stigu
á land, borgarstjóri býður gesti velkomna, ráðherrar,
alþingismenn og aðrir æðstu embœttismenn lands-
ins viðstaddir. Einnig fjölmennur karlakór til taks,
er syngur mörg og fögur velkomenda minni píla-
gríma hópsins.
Mikill hluti þess er einnig heim-
ilisiðnaður, svo sem bandofnar á-
breiður, dúkar. Messuklæði og
kirkjuskraut verða sýnd í kapellu,
qg fer þar fram hljóðfærasláttur
og söngur, svo sem við guðsþjón-
ustu. Heimilisskraut og innan-
stokksmunir verða og sýndir, og
verður þar sýnt það, sem bezt er
fyrir hvern og einn, og verður
auk þess sýnt, hvernig bezt sé
að rækta garða við húsin o. þ. h.
— Verður að líkindum að nokkru
leyti í sambandi við þetta sýnd
nútímalist. — Nélægt inngangin-
um að sýningarsvæðiu verður
sýnt, hvernig garðar eru ræktað-
ir með því að hita þá upp með
rafmagnaþráðum. Hefir þessi að-
ferð vakið nokkra athygli, og er
búist við, að hún munni hafa
mikla þýðingu fyrir þá, sem unna
garðrækt í norðlægum löndum.
— Þess er vænst, að afarmikil
aðsókn verði að sýningunni, og
hafa fyrir löngu byrjað að streyma
pantanir um herbergi á hótelum
um sýningartímann. Meðal ann-
ars má búast við því að þar sem
sýningin er svo einstök í sinni
röð, þá verði mikið um heimsókn-
ir ýmissa hópa, sem halda saman,
svo sem iðnaðarmanna frá ýms-
um löndum, listamanna og skóla-
fólks, Af þessum orsökum hafa
verið gerðar all-víðtækar ráðstaf-
anir til að taka á móti gestum
sýningartímainn. Hafa meðal
annars verið gerðar ráðstafanir
til að koma í veg fyrir, að verð á
gistingu verði hækkað, eða að
okrað verði á matsölu o. þ. h.
Fjöldi manna með málaþekkingu
hefir verið ráðið til að leiðbeina
gestunum og margar skrifstofur
settar upp til að sjá öllu far-
forða. — Lesb.
Seinni hópurinn á
heimleið
Síðastiiðinn fimtudag lagði a
stað til íslands, hinn siðari hóp-
ur þeirra Vesltur-ifslendinga, er
Alþingishátíðina sækja. Blaðið
Winnipeg Tribune telur 175 ís-
lendinga hafa verið í hópnum.
Heimfarenda flokkur þessi sigldi
frá Montreal, á C. P. R. skipinu
“Montcalm”, er lét í haf laugar-
daginn þann 14. þ. m.
Mrs. Arthur J. Goodrick.
Þórhallur Arnason
selloleikari.
FÆREYINGAR
gefa íslendingum málverk.
í “Tingakross” frá 30. apríl er
skýrt frá því, að Færeyingar ætli
að gefa íslendingum málverk, í
tilefni af Alþingishátíðinni. Mynd
þessa á málarinn Gudmund Hen-
tze að gera, og verður hún af stað
einum í Færeyjum, er heita ís-
lendingatóftir. En þar höfðu ís-
lendingar uppsátur fyrri á öldum
og vetursetu, er svo bar undir.
E'n ramminn utan um myndina
á að vera útskorinn og eftir út-
skurðarfyrirmyndum frá hinum
frægu kirkjustólum frá Kirkjubæ,
sem geymdir eru í Þjóðminjasafn
inu í Kaupmannahöfn.
Ófrétt er hvenær gjöfin verður
afhent, en eðlilegast hefði verið
að fulltrúi Færeyinga, sem Lög
þingið kaus, hafi hana meðferðis
En á hinn bóginn hefir ekki frézt
enn um ferðir hans, og má vera
að aðdragandinn að kosningunni,
sem lýst hefir verið hér í blaðinu,
geri honum erfitt fyrir að sækja
hátíðina. — Mgbl.
22. maí 1930 voru þau Arthur
J. Goodrich og Sigr. Rannveig
(Rawny) Thorgeirson, gefin saman
í hjónaband í Atlantic Ave. Unit-
ed Church, af Rev. R. M. Frayne.
Brúðguminn er sonnr hjónanna
Ingu Thorsteinsdóttur og Earnest
A. Goodrich, að 712 Manhattan
Ave., Elmwood, en brúðurin er
dóttij^ hjónanna Kristínar G.
Kjernested og Josephs W. Thor-
geirsson, 590 Cathedral Ave. Var
rausnarleg veizla haldin að heim
ili brúðarinnar að viðstöddum
vinum og vandafólki. — Verður
framtíðarheimili ungu hjónanna
í Vancouver, þar sem Mr. Good
rich vinnur fyrir C. N. R. járn
brautarfélagið.
Þórhallur Árnason selloleikari,
er fyrir nokkru kominn hingað til
lands til að skoðast hér um aftur
eftir rúml. þriggja ára dvöl í
Þýzkalandi. Var hann fyrst uxri
kyrt í Vestmannaeyjum nokkra
daga, áður en hann kom hingað
til bæjarins. Til að gefa lesend-
um nokkra hugmynd um starf
hans undanfarið; náði blaðið tali
af honum í gær.
— Eg hefi síðastliðin þrjú ár
dvalið samfleytt í Hamborg, seg-
ir Þórhallur. Hafði eg þar at-
vinnu við að leika í kvikmynda-
húsi. Jafnframt atvinunni stund-
aði eg einnig nám hjá einum
fremsta kennara í Hamborg,
Leichsenring.
—Þér hafið haldið hljómleika?
—Já, nokkra hljómleika hefi eg
lialdið með vini mínum Otto
Stöterau, sem hingað hefir kom-
ið með mér tvisvar áður. Einnig
hefi eg leikið í útvarp Hamborg-
ar Norag (Norsdeutscher Rund-
funk, A. G.). Loks hefi eg að-
stoðað og leikið sjálfstætt á
hljómleikum ungfrú Engel Lund
í Þýzkalandi.
Þórhallur sýnir úrklippur úr
þýzkum blöðum, sem tala um
hljómleika hans. í útvarpsblaði
Norag-stöðvarinnar er leiks hans
getið með hinum lofsamlegustu
ummælum. Annað Hamborgar-
blað segir svo um leik hans “Hinn
þekti íslenzki selloleikari Þór-
hallur Árnason, lék nokkur sello
lög, smekklega valin með festu og
fegurð, og vakti hin litla snildar-
lega Gavotta Poppers aðallega
aðdáun áheyrenda. Aðstoð Stöt-
erau var snildarlega af hendi
leyst, eins og annars þarf ekki
að taka fram. Báðum listamönn-
unum var fagnað hið bezta, að
loknuum hluta þeirra á hljóm-
leikaskránni ...” — Fleiri blöð
birta einnig hina beztu dóma um
leik þeira félaga.
JOSEPH T. THORSON, K. C., M. P.
Hefir verið útnefndur á ný, sem þingmannsefni frjálslynda
flokksins fyrir Mið-Winnipeg kjördæmifl hið syðra.
Gerhard Filgero heitir norskur
skipstjóri sem nýlega kom til
Cuba eftir að hafa siglt frá Nor-
egi yfir Atlantshafið í litlum
seglbát. Ferðinni ætlar hann að
halda áfram til meginlandsins og
sigla síðan upp Mississippi fljótið
til Minneapolis. — Hann er einn
á bátnum og lagði a fstað 11. maí
síðastliðið ár. — Lesb.
Síðari pils
Stuttu pilsin eru að leggjast
niður, eins og allir vita. En hitt
vissu sjálfsagt ekki allir, hvernig
á því stendur í raun og veru,
þangað til nú? að 'hinn alkunni
frömuður í kvenfata sniði, Bar-
on Da Meyer, hefir skýrt málið,
eftir að hann var nýkominn til
New York frá París. Hann seg
ir, að kvenfólkið hafi fært fram
ýmsar ástæður fyrir því, að það
þyrfti að lengja pilsins, en þær
hafi aldrei nefnt þá einu góðu og
gildu ástæðu, sem fyrir því væri
En þessi góða og gilda ástæða,
segir hann að sé sú, að því meir
sem pilsin styttist, því betur komi
það í Ijós, hve knén á sumu kven-
fólkinu voru ljót og stundum
kálfarnir líka. Hin mikla nauð-
syn, að hylja þessi vansmíði nátt-
úrunnar, á fótleggjum kvenfólks
ins, er því hin raunverulega á-
stæða fyrir því, að stuttu pilsin
eru að leggjast niður, eftir því
sem þessi maður segir.
Ekki nógu margar
Það voru bara tíu konur í fang-
eisi einu í Iowa ríkinu, sem þang-
að höfðu verið sendar fyrir ólög-
lega vinsölu. Þær höfðu liðið
sameiginlegt skipbrot, og sýndist
því rétt að halda saman og gera
sér það til skemtunar, sem hægt
var. En það var náttúrlega að
spila “bridge”. Nú stóð svo illa
á, að þær voru of margar ti] að
spila í tveluiu lagi. Eins og allir
vita, er hægra inngöngu en út-
göngu, þegar um fangelsin er að
ræða. Það voru því ekki tiltök,
Vð koma tveimur þeirra í burtu.
Svo þær tóku það ráð, að senda
dómara einum, sem George C,
Scott heitir, orð og biðja hann
blessaðan að senda tvær fleiri
konur í fangelsið, sem líka hefðu
selt brennivín, svo þær gætu spil-
að í þrennu lagi. Þetta var fyr-
ir fáum dögum. Ekki gat hann
orðið við tilmælum þeirra rétt 5
svipinn, en það hefir kannske
Iagast síðan.
körfuna með konfekt. Tók hún
því með þökkum. Þegar hann
kom aftur með körfuna fulla af
dýrasta konfekti, tók hún eftir
því, að karfan var miklu léttari,
en meðan að í henni voru rósirn-
ar. Hún spurði manninn, hvern-
ig á þessu stæði, og svaraði hann
henni því, að þótt konfekt væri
þungt, þá væri það ekki þyngra
en svissnesk gullúr, en hún hefði
gert sér þann greiða, að halda á
áttatíu stykkjum af því tæi inn í
Frakkland. Engum tollþjóni
hefði dottið í hug að nokkuð væri
athugavert við það, þótt leikkona
hefði rósir meðferðis. — Lesb.
Ungur bílstjókri í Vín var færð-
ur á geðveikrahæli, eftir að lög-
reglumaður hafði komið í veg fyr-
ir, að hann fremdi sjálfsmorð. —
Hann gaf þá skýringu, að sér
hefði ekki tekist að fá flibbann
til að fara vel um hálsinn á sér,
og hefði sér því fundist lífið
einskis virði.
RÓSIRNAR OG GULLÚRIN.
Frönsk leikkona hafði verið
ferð í Sviss og leikið þar. Þeg-
ar hún var á leiðinni heim aftur,
kom maður til hennar á járn-
brautarstöðinni og fékk henni
lcörfu fulla af fegurstu rósum, og
bað hana að þiggja hana sem lít-
ilfjörlega þökk fyrir alla þá
skemtun, sem hún hefði veitt hon-
um með leik sínum. Leikkonan
var ekki laus við að vera dálítið
hégómagjörn, og tók hún því við
blómunum. Þegar hún var kom-
in inn í Frakkland, kom maður-
inn til hennar aftur á einni járn-
brautarstöðinni og spurði hana,
hvort rósirnar væru ekki farnar
BRÚÐUR NEITAÐI.
•
í rómversk kaþólsku kirkjunni
í Geneva var undirbúið stórt
brúðkaup. Kirkjan var troðfull
af vinum og kunningjum brúð-
hjónanna, sem bæði voru af rík-
um foreldrum, og brúðguminn
beið í eftirvæntingu eftir konu-
efninu sínu. Og þegar hún kom,
sló öllu í dúnalogn, svo fögur var
hún og glæsileg í brúðarskart-
inu. Þau stóðu bæði frammi fyr-
ir altarinu og hlustuðu með eft-
irvænting og kvíða á orð prests-
En svo þegar presturinn
ms.
spurði brúðurina hvort hún vildi
giftast manninum, sem væri við
hlið hennar, stóð hún á fætur og
sagði ákveðin og með þunga:
“Nei! Als ekki!” Presturinn stóð
agndofa, .gestirnir göptu, brúð-
guminn glápti, og unga konan
hrópaði hárri röddu: “Það átti að
þvinga mig í þetta hjónaband.
Eg elska annan.” Og án þess að
að fölna. Hún kvað ekki mikiðibíðas vars eða að nokkur stöðv-
faraf yrir því„ en hann spurði'aði hana, skundaði hún út úr
hvort hann ætti ekki að fylla'kirkjunni og heim. — Lesb.
Merkir hátíðargestir um borð á Cunard skipinu “Antonia”
á leið til Islands.
g , yj g y K« j,£r- rgg^ fr£ vjnstri tij hægri: Emile Walters, listmálari; prófessor F. D. Magoun, Harvard Uni-
UPP tekin, að smíða bíla með smá- versity; prófesor A. P. Benson, Yale University; prófessor H. B. Josephson, University og Pennsyl-
borðum milli sætanna. Eru borð- vania; Hon. W. J. Major, dómsmálaráðgjafi Manitoba-fylkis. — Neðri röð, frá vinstri til hægri: pró-
in vmist notuð sem matborð eða fessor F. B. Cawley, Harvard University; Dr. Thorlakson, Winnipeg; prófesor Halldór Hermannsson,
Cornell University; Sir William Craigie, University of Chicago; Dr. B. J. Brandson, Winnipeg; pró-
sem spilaborð og þykja gefast ve‘«jfessor Sveinbjörn Johnson, University of Illinios; prófessor Richard Beck, University of North Dakota.