Lögberg - 01.06.1933, Blaðsíða 8
Bls. 8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN I. JONÍ, 1933
Ur bœnum og grendinni
Skuldar-íundur í kvöld (fimtu-
dag) og framvegis nú yfir sumar-
tímann, heldur stúkan Skuld fundi
sína annanhvern fimtudag.
Mr. Kristján Finnsson frá
Duluth, Minn. var stadur í borginni
í vikunni sem lei8. Hann var á leið
til Vancouver, B.C., þar sem hann
gerir ráð fyrir að verða framvegis.
Hann var áður í Selkirk, Man., og
er sonur Mr. og Mrs. Guðmundar
Finnsson.
Mr. Hósías Hósíasson frá Moz-
art, Sask., var í borginni í siðustu
viku.
Safnaðarfund heldur Fyrsti lút-
erski söfnuður í Winnipeg í fund-
arsal kirkjunnar, á miðvikudags-
kveldið í næstu viku 7. júní, kl. 8.
Verkefni fundarins er að kjósa
fjóra menn til að mæta á kirkju-
þinginu, sem haldið verður í Argyle
bygð 23.—27. þ. m. Fleiri mál söfn-
uðinum viðvíkjandi, verða tekin til
umræðu ef ástæða þykir til.
Mcssur í Vatnabygðum
Guðm. P. Johnson, sem stundað
hefir nám við lúterska prestaskól-
ann í Saskatoon hinn síðastliðna
vetur, flytur messugjörðir sem hér
segir:
Á hvítasunnudaginn 4. júní,
Kandahar kl. 11 f. h.'; í Wynyard kl.
2 e. h. og Mozart kl. 8 að kvöldinu.
Trinitatis, sunnudaginn 11 júní, í
Leslie kl. 11 f. h.; Foam Lake kl.
2 e. h. og í Elfros kl. 8 að kvöldinu.
Fólk er beðið að f jölmenna.
Allir hjartanlega velkomnir.
G.T. Spil og Dans á hverjum
þriðjudegi í G.T. húsinu Sargent
Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að
kvöldi. Jimmie Gowler’s Orchestra.
Þrenn verðlaun fyrir konur og
þrenn fyrir karla: $5; $2; $1.
Vinnendur: Mrs. B. Hallson, Mrs.
Allford, Mrs. A. Barker, Mrs. B.
Russell; Mr. W. Anderson, Mr.
R. Ogilvie, Mr. B. Burr, Mrs. S
Ferrer.
Séra Jóhann Friðriksson messar
í fylgjandi söfnuðum í júní mánuði
Ferming á Lundar þ. 4 júní kl.
e.h.; messa á Lundar þ. 11 júní kl
11 f. h.; mesa í Luther söfnuði
11 júní kl. 2. e. h. og fólk er beðið
að muna eftir almennum safnað^r
fundi eftir messu. Messa á Lang
ruth þ. 18 júní kl. 2 e. h.
í nafnalistanum, sem prentaður
var í síðasta Lögbergi yfir þá er út-
skrifuðust af Manitoba háskólanum
við nýafstaðin próf, var eigi getið
nafns Hermanns Johnson.
Mr. Johnson útskrifaðist Bachelor
of Science, honors course, með á-
gætis einkunn (magna cum laude).
og stóð hann hæstur við prófin af
þeim er veitt var Bachelors of
Science stigið, honors
course.
Ólafur Ólafsson og Ingunn Elíza-
beth Hallgrímsson, bæði frá
Glenboro, Man., voru hinn 28. maí
gefin saman í hjónaband. Hjóna-
vígsluna framkæmdi Dr. Björn B.
Jónsson, og fór hún fram að heim-
ili hans 774 Victor St.
Lúter M.- Líndal andaðist
George eyjunni í Winnipegvatni
laugardaginn í vikunni sem leið
Hann varð bráðkvaddur og varð
hjartabilun dauðamein hans. Hann
hafði í allan vetur verið í þessari
eyju, umsjónarmaður fyrir Arm
strong fiskifélagið og bar dauða
hans að þegar fyrsti báturinn var
nýkominn til eyjarinnar. Lúter M
Lindal var 47 ára að aídri. Hann
eftirlætur konu og sex börn. Heim-
ili f jölskyldunnar er á Gimli. For-
eldrar hans eru Mr. og Mrs. Björn
Líndal, 173 College St., St. James
Fyrir fáum vikum andaðist hér
grend við borgina bróðir hans
Columbus, eins og getið var um hér
í blaðinu. Er því hér mikill harmur
kveðinn að hinum öldruðu foreldr-
um.
Á laugardaginn þann 27. mai síð-
astliðinn var Mrs. S. C. Thorsteins
son (áður Sigriður Olson), haldið
kveðjusamsæti að heimili Mr. og
Mrs. W. H. Olson, er um þrjátíu
vinkonur hennar tóku þátt í. Var
tilefni samsætisins það, að Mrs.
Thorsteinsson var í þann veginn að
flytja alfarin héðan úr borginni, og
taka sér bólfestu í Humbolt, Sask
Var hún leyst út með mörgum og
fögrum minningargjöfum. Mrs.
Thorsteinsson leggur af stað til síns
nýja heimilis á föstudaginn kemur,
þann 2. júní.
Jóns Sigurðssonar félagið heldur
sinn næsta fund á þriðjudagskeldið,
hinn 6. þ. m. kl. 8 að heimili Mrs.
Summers, 204 Queenston St.
Dr. Tweed tannlæknir verður
staddur í Árborg fimtudaginn þann
8. þ. m.—Aðeins einn dag í þetta
sinn.
Mr. J. K. Olafson frá Gardar, N.
Dak. var staddur í borginni á þriðju-
daginn.
Góð Tíðindi
Nýasta Rjómabúið í Winnipeg
er nú tekiö til starfa. /’að er starfrækt af heimamönnum með
heima rekstursfé.,
Hrcin, gerUsneydd Mjólk, Rjómi og Rjómabússmjör.
Standard Dairies Ltd.
WELLINGTON and McGEE
Sími 29 600
E. G. Moor
Manager
O
Kvenfélög Fyrsta lúterska safn-
aðar halda útiskemtun (lawn social)
á grasflötinni fyrir sunnan kirkjuna,
þriðjudaginn 6. júní n.k.
Þetta verður að líkindum seinasta
skemtisamkoman, sem haldin verður
til arðs fyrir Fyrsta lút. söfnuðinn
fyrir sumarmánuðina, og hafa því
bæði kvenfélögin tekið saman hönd-
um um að gjöra hana eins skemti-
lega og fullkomna sem tök eru á.
Samkpman hefst með máltíð kl. 5.30
og stendur yfir til 7.30. Eftir kl. 8
geta allir fengið kaffi og kökur.
Máltíðin kostar 25C fyrir fullorðna
en 15C fyrir börn, og kaffið kostar
15C. Ágæt skemtiskrá er undirbúin
og fer fram að kveldinu, undir um-
sjá Mrs. Helgason, músík-kennara
og Mrs. Th. Johnston. Komið, allir
vinir, og neytið sameiginlega mál-
tíðar og styrkið gott málefni og
njótið ánægjunnar af að hittast, tal-
ast við og hlusta á fallegan hljóð-
færaslátt.
Gísli Guðmundsson, hátt á þriðja
ári yfir áttrætt, andaðist að heimili
þeirra Nlr. og Mrs. Þorleifs Daníels-
sonar, Skógarnesi í Mikley, þ. 13.
maí s. 1. Var ættaður úr ÞistilfirSi
í Norður-Þingeyjarsýslu. Kom vest-
ur um haf árið 1904. Dvaldi jafn-
an á Mikley, frá því er hann kom
af íslandi. Fyrst í mörg ár hjá
Helga Ásbjörnssyni og Margréti sál.
konu hans, er var náskyld Gísla, en
síðan hjá dóttur þeirra Helga og
Margrétar, Mrs. Daníelsson og Þor-
leifi manni hennar, í Skógarnesi.
Leið Gísla ágætlega alla tíð hér
vestra. Var ógiftur alla æfi. Mað-
ur heilsugóður lengst af, og lá nærri
enga banalegu og fékk hægt andlát.
Jarðsunginn með húskveðju frá
heimilinu og með útfararathöfn í
kirkju Mikleyjarsafnaðar þ. 19.
maí. Séra Jóhann Bjarnason jarð-
söng.
Mr. og Mrs. Nordal
Um aldarfjórðungs skeið hafa
þau Mr. og Mrs. H. G. Nordal átt
heimili í Leslie, Sask., en nú eru
þau fyrir skömmu flutt til Theodore,
Sask., þar sem Mr. Nordal er ráðs-
maður fýrir North American viðar-
sölufélagið. Hafa þau hjón jafnan
verið vinsæl mjög í sínum bæ og
bygð og tekið þar mikinn þátt í fé-
lagslífinu og mörgum málum bæjar-
ins og bygðarinnar.
Rétt áður en þau fóru frá Leslie,
var þeim haldið fjölment og mjög
myndarlegt kveðjusamsæti í sam-
komuhúsi bæjarins. Tóku þátt i því
um 250 manns. Mr. A. J. Ólafsson
stjórnaði samkvæminu og fórst hon-
um það prýðilega vel. úr hendi
Skemt var með söng og hljóðfæra-
slætti og margar ræður voru fluttar
bæði á ensku og íslenzku, en aðal-
ræðu flutti W. H. Paulson fylkis-
þingmaður. Flutti Mr. Paulson
snjalla og skemtilega ræðu og fór
mjög lofsamlegum orðum um Mr.
og Mrs. Nordal og starfsemi þeirra
alla, öll þau mörgu ár., sem þau
hefðu átt heima í Leslie. Færði
hann þeim mjög vandaðan silfur-
bakká með viðeigandi áletrun, sem
vinagjöf frá Leslie-búum. Mr. Nor-
dal þakkaði gjöfina og samsætið og
alla þá vinsemd og góðvild, sem sér
og konu sinni væri nú í té látin.
Eftir að langri og góðri skemti-
skrá var lokið, voru rausnarlegar
veitingar frambornar og þar á eftir
var dansað fram á morguninn.
Samsætið var hið ánægjulegasta
og bar ljósan vott um að í Leslie og
grendinni hafa þau Mr. og Mrs. H.
G. Nordal notið mikillar virðingar
og vinsælda.
TIL SOLU
Eitt stærsta og fullkomnasta matsölu og kaffihúsið í vestur-
bænum, WEVEL CAFE, að 692 Sargent Ave.
Öll áhöld hin fullkomnustu, þar á meðal nýir kæliskápar—
Refrigerators.
Sérstök kjörkaup gegn peningum út í hönd. Upplýsingar veitir
á staðnum, Mrs. Rannveig Johnston, eigandi.
leik við söng frúarinnar hafði með
höndum ungfrú Snjólaug Siguröson
og fórst hið prýðilegasta.
í laginu “Hirðingjar,” eftir
Schumann sungu stutta einsöngs-
kafla með flokknum, þær frú Sig-
ríður Thorsteinsson og ungfrú
Matthildur Halldórsson.
Eitt lagið á skemtiskránni fanst
mér tilfinnanlega mistakast; á eg
þar við vögguvísuna eftir Brahms;
þýðleikinn fauk út í veður og vind,
og það svo mjög, að lagið varð
hryssingslegt með köflum. Annars
voru veiku tónarnir, eða píanissimó-
ið, flokksins ótraustasta hlið.
Um forustu söngstjórans er ó-
þarft að fjölyrða; við áhrifin frá
sprota hans verður hvaða söng-
flokkur, sem hlut á að máli “auð-
mjúkur þjónn.”
Starf Brynjólfs Þorlákssonar
meðal vor Vestur-Islendinga um
tuttugu ára skeið, eða því sem næst,
er orðið harla margþætt. Hefir það
verið að makleikur metið ?
Hr. Gunnar Erlendsson lék undir
á pianó með flokknum og leysti
þann starfa prýðilega af hendi.
E. P. J.
portrayeá on the /
Aj grandest scale ever Jj
attempted.Thestory ,
•• of a love that held,
with f’aith and cour-
Vj? age, in deiLance of
j the rushing Caval-
,fj cade calied Life!
C«st of 3500
líjUr-j' 40 Feafured Playera
^ A FOX Achievement
Produced at Fox Movietone Qty
WONDERMND THEATRE
Mon. & Tues., June 5-6
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, hvítasunnudag, eru fyr-
irhugaðar þannig, að morgunmessa
verður í gamalmennaheimilinu Bet-
el, kl. 9.30 f. h., og síðdegismessa
kl. 2 e. h., í kirkju Gimlisafnaðar.
Ferming ungmenna og altarisganga
við þá messu. V’erður reynt að
byrja stundvíslega á þeim tíma sem
hér er tiltekinn, kl. 2 e. h
hér með
hjartans
Þakkarorð
Við undirrituð viljum
senda okkar innilegasta
rakklæti öllum ættingjum, vinum og
nágrönnum fyrir hinn mikla kær-
leik er þeir auðsýndu okkar elskaða
eiginmanni og föður, Pétri Thor-
finnsyni í veikindum hans, og fyrir
allan kærleika og samúð er þeir
auðsýndu okkur í sorg okkar og
söknuði við fráfall hans. Við met-
um þann kærleik mikils og biðjum
Guð að launa.
Mountain, N. D., 28. maí, 1933.
Dýrfinna Thorfinnson,
Vivian Thorfinnson,
Margrét Thorfinnson,
Mr. og Mrs. Clifford Martin
Á hvítasunnudag', 4. júní, fer
fram fermingar-guðsþjónusta og
altarisganga á Mountain kl. 11 f. h
Sum fermingarbörnin eru ensku
mælandi svo guðsþjónustan fer fram
bæði á ensku og íslenzku.
Stutt guðsþjónusta verður hald
in á Gardar kl. 3 e. h. næsta sunnu
dag. Safnáðarfundur strax á eftir
til að kjósa erindreka á kirkjuþing
og ræða um samband kirkjufélags
ins við önnur kirkjufélög.
Mánudagskvöldið hinn 5. þ. m.
heldur VíkursöfnUður almennan
safnaðarfund til að kjósa erindreka
á kirkjuþing og ræða um samband
kirkjufélagsins við önnur kirkjufé-
lög.
Söngskemtun
KARLAKÓR ISLENDINGA I WINNIPEG
heldur samsöng í Árborg, Man, miðvikudaginn
þann 7. júní, 1933, kl. 8.45
Songstjóri—hr. Brynjólfur Þorláksson
Einsöngvari—Séra Ragnar E. Kvaran
Meðspilari—hr. Gunnar Erlendsson
Hr. Páll S. Pálsson syngur gamanvísur.
INNGANGUR 50C
Dans á eftir samsöngnum við góðan hljóðfæraslátt.
Samkomu hafði R. .H. Ragnar,
píanó kennari, með nemendum
sínum á fimtudagskveldið í vikunni
sem leið í Y.W.C.A. Samkoman
var mjög vel sótt, þrátt fyrir afar
mikið regn það kveld. Má hiklaust
segja, að samkoman var í alla staði
hin ánægjulegasta.
Jenny Dahl aðstoðaði með söng,
og fórst þáð mjög laglega. Karla-
kór Jóns Bjarnasonar skóla undir
stjórn Miss Salóme^ Halldóráson
söng fjörlega og með ágætum sam-
tökum og má óhætt segja að piltarn-
ir skemtu áheyrendunum mjög vel min væna-
með söng sínum. Þess er sérstak-
lega vert að geta, að einn af nem-
endum R. H. Rágnar, ungur piltur,
Marvin HaliJerson, lék þarna lag,
er hann hafði sjálfur samið og vakti
það svo míkla eftirtekt, að hann var
hvað eftir annað kallaður fram.
Yfirleitt var samkoman ágæt, þó
hér sé ekki frekar farið út í einstök
Nýstárlegt skemtikvelc
Síðastliðið mánudagskveld naut
allmargt fólk, þó betur hefði raun
ar mátt vera, nýstárlegrar skemti
stundar í Fyrstu lútersku kirkju; lét
þar í fyrsta skifti opinberlega til sín
heyra hinn nýi söngf lokkur íslenzkra
kvenna í Winnipeg, er stofnaður var
í öndverðum janúarmánuði síðast-
liðnum. Hr. Brynjólfur Þorláksson
stjórnaði flokknum.
Er tekið er réttilega tillit til þess
hve flokkur þessi er ungur i hett-
unni og margt af meðlimum hans
því nær með öllu óvant söng, þó
nokkuð sé þar að vísu taminna
radda, þá verður ekki annað sagt,
en að sæmilega tækist til um söng-
inn, og í sumum tilfellum prýðisvel.
Söngskráin var hæfilega löng;
sum lögin stutt, en önnur skrefa
drjúg og allerfið yiðfangs. Af þeim
lögum, er mér fanst syngjast hvað
bezt, má tilnefna “Last Night,” eft
ir Kjerulf ; “Sofðu vært mín væna,”
eftir Wetterling; “Þegar blómin
brösa,” eftir L. Reichardt, og
“Mariquita,” eftir E. Marzo. Síð-
asta lagið á söngskránni, “Serenade”
eftir Schubert, söngst og allvel, þó
ekki væri laust við með köflum að
nokkuð skorti á æskilegan innileik.
Úr þvi var samt meira en bætt með
hinni blóðríku og tæru rödd frú
Sigríðar Olson, er söng forustu-
rödd í laginu með flokknum.
Framburður texta var yfirleitt
góður og hreint ekki síðri á íslenzk-
unni, svo sem í laginu “Sofðu vært
Ung stúlka, Miss Beth Hunter,
sagði frani af reglulegri list.
Frú Sigriður Olson söng tvö ein-
söngslög “Oh That It Were So,”
eftir Bridge og “Spring Night,” eft-
ir Jensen; náði hún slíku fullveldi
yfir rödd sinni í meðferð þessara
tveggja unaðsfögru laga, að hin
dýpsta nautn var á að lýða. Undir-
Niels Adolf E. Norden
‘ skjöld
Skömmu fyrir jólin voru 100 ár
liðin síðan sænsk-finninn Norden-
skiöld fæddist í Helsingfors. Er
hann talinn með merkustu land-
könnuðum, sem Norðurlönd hafa
átt og það sem einkum heldur nafni
hans á lofti er för hans austur um
íshaf fyrir norðan Evrópu og Asíu,
landnorðurleiðina svonefndu, sem
hann kannaði fyrstur manna.
Nordenskiöld lagði stund á efna-
fræði og steinafræði við háskólann,
og tók doktorspróf 1857. En hann
var frelsisvinur mikill og lenti oft
saman við rússnesku kúgaravöldin
Finnlandi og neyddist til að flýja
land. Settist hami þá að í Stokk-
hólmi. Um það leyti voru Svíar að
byrja að gefa sig að rannsóknum
norðurhafa og var Nordenskiöld í
ferðum Torells til Spitzbergen 1858
og 1861. Jafnframt gerðu Svíar
hann að forstöðumanni steinasafns-
ins í StQckhólmi. AriS 1864 og 1868
stjórnaði hann leiðangrum til Spitz-
bergen og komst í síðari ferðinni
lengra norður á bóginn með skipi
en nokkur maður hafði komist áður,
eða á 810 42' nbr. Sumarið 1870
komst hann 50 km. inn á Grænlands-
ísa og þótti það þrekvirki og 1872
hafði hann vetursetu á Spitzbergen,
en 1875 komst hann á skipi austur
að ósum Jeneissei og var það undir-
búningsför undir norðausturleiðina.
Komst hann þessa leið á skipinu
ROYAL YORK CAFE
629 SARGENT AVE.
Beztu máltíðir sem hugsast get-
ur, við óviðjafnanlega sanngjörnu
vei-ði.
FISH and CHIPS, bezta tegund
til þess að taka með sér heim,
fyrir I5c og þar yfir.
BED PLANTS
ROSES, CARNATIONS,
TULIPS, ETC.
VARIOUS POT PLANTS
t
Verð lægra en niðri í bæ
Sargent Florists
678 SARGENT (at Victor)
Phone 35 676
“Ve^a” 1878—79 og varð nafn hans
þá frægt um allan heim. Síðustu
rannsóknarferðina sem nokkuð
kvað að fór hann til Grænlands
1883.
Eftir þetta settist hann að mestu
í helgan stein en gaf sig að vís-
indastörfum. Sérstaklega þykir á-
stæða til að minnast á rit hans og
nýjungar í lanclkostagerð og ferða-
sögn hans og vísindarit um Vega-
förina. Hann var jafnframt vís-
indastörfum sínum áhugasamur
stjórnmálamaður alla tíð.
—Fálkinn.
FALCON “BOOSTER NIGHT”
WHIST DRIVE AND DANCE
The Falcon Athletic Association’s
regular Whist Drive and Dance will
be held on Saturday night at the
I.O.G.T. Hall, Sargent and McGee,
commencing at 8.30 p.m. The Club
has arranged for a program of old-
time and modern dancing under the
supervision of Mr. Anderson, who
so capably handles the Tuesday
night whist drivesA Eddie Walker,
old-time fiddler, has been secured
by Betty Eyolfson’s orchestra, and
it is earnestly hoped that there will
be a good attendance of supporters
to make the evening a big success.
Mr. B. S. Thorvardson frá Akra,
N. Dak., var staddur í borginni á
þriðjudaginn í þessari viku.
MID-WEST SEItVICE STATION
COR. SARGENT & AGNES ST.
Starfrækt af nýjum eigendum.
Fyrsta flokks afgreiðsia. Kostaboð
á iaugardaginn — 1 gallón af
gasi, eða % gaUón af ottu ókeypis
með hverjum 10 gallónum af gasi.
Phone 37 448
íslenska matsöluhúsið
par sem Islendingar I Winnipeg og
utanbæjarmenr, fá aér máltlðir og
kaffi.
WEVEL CAFE
692 SAROENT AVE.
Slml: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, elgandi.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annaat greiðlega um alt, sem a8
flutningum lýtur, smáum eBa etór-
um. Hvergi sanngjarnara verB.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Slml: 24 500
CARL THORLAKSON
úramiður
699 Sargent Ave., Winnipeg
Heimaslmi 24 141
/