Lögberg - 21.12.1944, Side 5

Lögberg - 21.12.1944, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER 1944 13 ÁliieAHAL LVCNN/i Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Gjafir vitringanna Eftir O’HENRY Ein króna og áttatíu og sjö aurar. Það var allt og sumt. Og sextíu aurar í eineyringum, sem dregnir höfðu verið saman á löngum tíma. Sigga taldi pening- ana þrisvar. Ein króna áttatíu og sjö aurar. Og jóladagurinn á morgun. Hér voru auðsjáanlega engin úrræði önnur en kasta sér niður á gamla sóffagarminn og tárast. Sigga gerði það líka. Meðan húsfreyjan er að gráta, skulum við athuga híbýlin. Allt er fátæklegt. Úti á ganginum er bréfakassi, sem bréf hafði aldrei komið í. Þar var hnappur til að styðja á, en engum mannlegum fingri var unnt að framkalla þar neina hringingu. Það var líka spjald með nafni húsbóndans, Kristján Kristjánssonar. Hann hét að sönnu aldrei annað en Stjáni, þegar hann kom heim og var margkystur of faðmjaður af húsfreyjunni, Siggu, sem þegar hefur verið kynnt fyrir lesaran- um. Sigga settist upp og strauk af sér tárin. Hún gekk út að giugg- anum og horfði á gráan gött, sem fetaði eftir gráum steinvegg úti við gráan húsgarðinn. Að morgni var jóladagur, og hún átti ekki nema eina krónu og áttatíu og sjö aura til þess að kaupa jólagjöf handa Stjána. Hún hafði sparað og sparað, og þetta var árangurinn. Útgjöldin höfðu orðið meiri en hún ætlaði. •Marga glaða stuncT hafði hún bollalagt, hvað hún ætti að gefa Stjána. Auðvitað þurfti það að vera dýrmætt, eitthvað, sem vert væri þeirrar vegsemdar að vera í eigu hans. Allt í einu stökk hún á fætur og gekk að speglinum. Augun leiftruðu, eins og henni hefði dottið nýtt ráð í hug, en liturinn var horfinn úr andlitinu. í búslóð þeirra hjóna voru tveir dýrgripir, sem þau mátu mjög mikils. Annar var gullúr Kristjáns, sem hann hafði erft eftir föður sinn, afa og langafa, hinn var hárið á Siggu. Ef drottningin af Saba hefði búið í næsta herbergi, þá hefði Sigga hengt hárið sitt út um gluggann til þerris einu sinni í viku til þess að fella skugga á gimsteina hátígnarinnar af Saba. Og ef Salómon konungur hefði búið á neðri hæðinni, þá mundi Kristján hafa tekið upp úrið, um leið og hann gekk fyrir dyrn- ar, til þess að láta Salómon reyta á sér skeggið af öfund. Hárið féll um Siggu eins og skikkja úr skínandi sólskini. Hún fléttaði hárið og bjó um það í skyndi. Eitt augnablik hikaði hún, og tár féll á rauða, snjáða gólfdúkinn, svo setti. hún upp gamla, brúna hattinn, fór í gömlu brúnu kápuna, augu hennar tindruðu enn þá. Hún þaut ofan stigann og út á götuna. Hún nam staðar við dyr með yfirskriftinni: “Hér er keypt og selt hár.” “Viltu kaupa hárið á mér?” sagði Sigga. “Taktu af þér hattinn, og lof- aðu mér að sjá það,” sagði kon- an. “Tuttugu krónur.” “Láttu mig fá þær, fljótt,” sagði Sigga. Næstu tvo klukkutímana þaut hún marga götuna á enda. Hún var að leita að festi handa Stjána. Henni þótti hann vera nógu lengi búinn að nota þvengspotta fyrir festi. Loksins fann hún hana. Henni fannst hún áreiðanlega hafa ver- ið gerð handa Stjána. Það var alveg eins og Stjáni, snilldin sjálf að allri gerð og skíra gull öll í gegn. Þessi lýsing átti jafnt svona við bæði. Sigga borgaði tuttugu og eina krónu fyrir festina og hélt heim hröðum skrefum með áttatíu og sjö aura í vasanum. Þegar Sigga kom inn í her- bergi sitt, fór hún að átta sig og hugsa fram í veginn. Hún greip hártengurnar sínar, hitaði þær og skrýfði það, sem eftir var af hárinu, til þess að bæta úr þeim spjöllum, sem örlæti ástarinnar hafði valdið. En það getur verið nógu erfitt, reglulegt Grettistak oft og tíðum. Eftir fjörutíu mínútur var hár- ið orðið að hrokknum smálokk- um, sem lágu þétt um allt höfuð- ið. Hún var nauða lík strák, sem er nýstrokinn úr skóla. “Ef Stjáni rýkur ekki út áður en hann hefur litið á mig í ann- að sinn, þá segir hann líklega, að eg sé lík smalastelpu,” sagði hún við sjálfa sig. “En hvað gat eg gert með einá krónu áttatíu og sjö aura í vasanum?” Jólakaffið sauð í katlinum, og hangikjötið var að verða soðið. Stjáni kom altaf heim á sama tíma. Sigga sat við borðshornið rétt hjá dyrunum, þar sem Stjáni var vanur að ganga inn. Hún gat varla haft augun af festinni. Nú heýrði hún hann koma. Hún fölnaði upp eitt augnablik. Það var siður hennar að biðja í hljóði við smávægi dagsins. Hún byrgði andlitið í höndunum og hvíslaði: “Góði Guð, gefðu að honum þyki eg enn þá falleg.” Dyrnar opnuðust. Stjáhi gekk inn og lokaði. Hann var magur og alvarlegur. Hann var aðeins tuttugu og tveggja ára, vesal- ingur, og hafði þegar húsföður- skyldur á herðum. Stjáni stóð grafkyr eins og myndastytta. Hann glápti á Siggu. Það. var eitthvað í svipn- um, sem hún gat ekki lesið, og hún óttaðist það. Ekki var það reiði, ekki undrun né ótti. Það var ekkert af því, sem hún hafði búizt við. Hann bara glápti á hana, eins og hann væri búinn að missa ráð og ræpu. Sigga stóð á fætur og þaut til hans. “Elsku Stjáni, horfðu ekki svona á mig. Eg lét klippa af mér hárið og seldi það, eg gat ekki lifað þessi jól án þess að gefa þér jólagjöf. Það sprettur fljótt aftur. Þú mátt ekki reiðast af því, eg varð að gera það,- Segðu gleðileg jól, og svo skulum við vera kát. Þú veizt ekki, hvað jólagjöfin þín er yndisleg.” “Þú hefur klippt af þér hárið,” stundi Stjáni upp með erfiðis- munum, eins og hann væri ekki enn þá búinn að skilja hana, jafnvel eftir mikil heilabrot. “Klippt það af og selt það,” sagði Sigga. “Þykir þér ekki vænt um mig fyrir því? Eg er eg sjálf, þótt hárið sé farið.” Stjáni skimaði ráðleysislega um stofuna. “Þú segir, að hárið á þér sé farið,” sagði hann næst- um því vitfirringslega. “Það er ekki til neins að leita að því,” sagði Sigga. “Það er farið og selt meira að segja. Það er jólanóttin, vertu ekki ósáttur, vinur minn, eg seldi það þín vegna. Það getur verið, að höfuð hár mín séu talin, en það verður aldrei með tölum talið, hvað vænt mér þykir um þig. Á eg nú ekki að koma með jólamat- 9» mn: Það var eins og Stjáni áttaði sig allt í einu. Hann faðmaði Siggu, svo dró hann böggul upp úr vasa sínum og fleygði honum á borðið. “Þú mátt ekki misskilja mig, Sigga,” sagði hann. “Þú mátt ekki ímynda þér, að hárskeri eða nokkur annar geti látið mig hætta að þykja vænt um þig. En þegar þú opnar böggulinn þarna, þá skilur þú, af hverju eg var hálfutan við mig.” Sigga leysti upp böggulinn í skyndi. Hún rak fyrst upp dá- Innilegar Jóla- og Nýársóskir! með þökk fyrir góð og greið viðskipti The Jack St. John Druq Store Ábyggileg lyf jaafgreiðsla 894 SARGENT AVE. (við Lipíon Streel) SÍMI 33 110 !”etc(cic‘«<c<etc4ci«<c!««'<«>c<Ki«cic!«<c'e'ctctctc*e«t£ictctetetcic4«tctc«ec«tc<c<ct«tetetctctc« X 2 Innilegar jóla og nýárs kveðjur til vorra íslenzku viðskiptavina. 1 CITY DAIRY COMPANY 1 LIMITED Notre Dame & Adelaide Sími 87 647 lítið gleðióp, og svo komu tár fram í augun. Þarna lágu skínandi fallegir hárkambar, sem Sigga hafði oft litið löngunaraugum í búðar- glugga þar í grendinni. Þeir voru úr skelplötu og settir dýr- um steinum. Aldrei hafði henni dottið í hug, að hún gæti eign- ast þá. Nú átti hún þá, en hár- ið, sem þeir áttu að skreyta, var farið. Hún þrýsti þeim að brjóstinu og sagði: “Hárið á mér sprettur svo fljótt, Stjáni.” Allt í einu spratt hún á fætur og sagði: “Ó, þú ert ekki farinn að sjá yndis- legu jólagjöfina þína.” Hún hélt upp festinni, sem glitraði, eins og hún endurskini af birtunni í sál Siggu. “Er hún ekki falleg, Stjáni? Eg leitaði að henni um alla borgina. Nú verður þú að líta hundrað sinnum á klukkuna á dag. Fáðu mér úrið þitt, svo að eg geti séð, hvernig hún fer við það.” I stað þess að hlýða, fleygði Stjáni sér í sóffann, setti hend- urnar undir höfuðið og brosti. “Sigga,” sagði hann. “Við skul- um setja jólagjafirnar einhvers- staðar afsíðis og geyma þær fyrst um sinn. Þær eru of fallegar til þess að brúka þær strax. Eg seldi úrið til þess að kaupa kamb ana handa þér, og nú skulum við fara að borða jólamatinn.” Þótt klaufalega og barnslega tækist til með jólagjafirnar, þá er efamál, að nokkur hafi kunn- að betur að gefa jólagjafir en Sigga og Stjáni, allt frá þeim tíma, er vitringarnir frá Austur- löndum fluttu barninu í jötunni gjafirnar og fram á okkar daga. Þau voru sannnefndir vitringar, því að þau kunnu listina að fórna dýrustu eign sinni fyrir aðra. Steingrímur Arason, endursagði. K««««««««tc«c«««««««««««te«« X K GLEÐILEG JÓL « OG NÝÁR « 1 f i £ »St»k9iai3iSi3)3)a)as3)3i3t9)3»i3i3i3l3i3l9iSíð ADANAC 741 Sargent B. Myers, eigandi & 3) aiataiaiaiaiaiaiataiaiaia) 9)3) 3)9)3) 3) 3)3)3)31913)3)3)3) 3)3)3) 3)3) 9) 3)3)9) 3) 3) 3)3)9)3)3)3)319)9)3)3., 0 *«««««««««««««««««««««««® i § g 1 S lnnilegar jóla og nýársoskir « Sf G. Lambertsen JEWELLER GLENBORO, MAN. S;3)3)3)3)3) 313)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3): Háiíðarkvejður ±11 vorra íslenzku viðskipiavina með von um framhalds viðskipii ROYAL YORK CAFE 629 SARGENT AVENUE r? oc HÁTÍÐAKVEÐJURl BOOKY’S Arlington Sick Room Supplies Sargeni and Arlingion Phone 35 550 Innilegar Jóla- °g Nýárskveðjur iil íslenzka þjóðarbrolsins í þessu landi, með þökk fyrir ánægjuleg og ábyggileg viðskipii. Mesiu framleiðendur af fiskiveiðaáhöldum í Canada Í | i i I I I s/ i i I I i i I I I I I 9 | Se? S, 3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)913,3) 3)3,3)3)3)3)3)3,313)3)3)3)3) 3)3)3)3)3)3)3)313)3)3)3) 3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)31 < DRUMMONDVILLE COTTON COMPANY LIMITED 55 ARTHUR STREET, WINNIPEG, Man. SÍMI 21020 Royal Alexandra Hotel Wlnnipefr, Man. Hugh 0. Macfarlane, manager Hotel Saskatehewan Regina, Sask. A. O. E. Robbins. manager PalUser Hotel Calgary, Alta T. C. Whelan, manager Hátíðakveðjilr Sú er einlæg ósk vor, að jólafögnuðurinn verði yður ávala samferða, og vonir yðar í sambandi við nýárið uppfyllist giftusamlega. tít Eins og í liðinni tíð, eru þessi fögru hótel reiðubúin til þess, að gera hátíðirnar öllum ánægjulegar. Ákjósanlegt húsrými fyrir öll samkvæmi, — vingjarnlegt umhverfi — prúð og ábyggi- leg afgreiðsla. tít Qom&ÍZom. Gíúfac )3)3)3)3)3)3)3)3)9)3l3)3)3)3)3)3)3t3)3)3)3t3)3)3)9)3)3)3)3)3)3)3)3)3t3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)3)9)3)3)9t3)3)3)3}3tl)3)3):

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.