Aflstöðin - 07.12.1907, Side 1
AFLSTODIN.
WINNIPEG, 7. DESEMBER 1907.
VERID A VERDI!
AFLSTÖÐIN í VEDI. KOSNINGARHEIT ROFID.
ANDRÓDUR AUDMANNA.
UNDIRFERLI.
SÍSan borgarsrjóri Ashdown lagöi bann fyrir bygging aflstöðvar fyrir bæinn hafa þeim firnum af blekkingum
öfgum og lygum verið ausið út um það mál alt saman, að vonlaust er að kjósendur geti áttaö sig
á málinu og vitað hverju þeir mega trúa og hverju ekki. Til að bæta úr því
er þetta blað útgefið. t>að hermir frá með sannindum og gefur
mönnum nœga leiðbeining til að gæta hagsmuna sinna
við kosningarnar, sem nú fara í hönd.
Hið eina nau'synleg'a.
Þá er kosningar til bæjar-
stjórnarinnar fóru fram í f^ rra, var
fjöður ogfit uppi á hverjum manni,
að bærinn ætti að ráðast í að koma
rafaflsstöð á fót fyrir bæinn. Öll-
um var Ijóst, að með henni myndi
iðnaðurinn halda inn-reið sína inn
í bæinn með öllu því skrúði og
aliri þeirri blessun, sem honum
fylyir Ojy fylyja hlýtur, verksmiðj-
ur myndi þjóta upp, atvinna fest-
ast og aukast, nauðsynjar lækka í
verðl, ljó.s hiti og- flutningar um
b einn fást með margfalt betri kjör-
um o. s. frv., en fasteig'nir að sama
skapi hækka í verði og bærinn
biása sundur af áframhaidandi að-
streymi fólks. Rafaflsstöðin var
hið eina nauðsynlega; það þótti
mönnum þá, enda fóru kosning-ar
svo, að þeir einir voru kosnir sem
lofuðu því, að koma aflstöð bæj-
arins á stofn að einunt undantekn-
um. Hver tuska hló þá á Ash-
down af áhug-a á að koma henni
á. Hann sá þá ekki, vitmaðurinn,
fj ár h agssn i 11 i nguri n n, fj ármála-
spekingurinn svokallaði, málinu
neitt til fyrirstöðu, og tók við
kosningu upp á það loforð, að
koma henni á.
Efndir bœjarstjórnarinnar.
Með þessum kosningum að
baki sér, var bæjarstjórnin, sem
að líkindum fer, ekki hikandi,hvað
henni bæri að gera. Aflstöðin var
það á veg komin fyrir kosning
arnar, að staður hafói verið valinn
fyrir hana við Winnipeg-á árið
1905, bæjursamþykt afgreidd 1906
og verkfræðingar ráðnir til að gera
uppdrætti og sjá umframkvæmdir
á verkinu. Bæjarstjórnin hélt
þessari stefnu áfram. Hún leitar
tilboða um byggingu stöðvarinn-
ar, lætur byggja 34 mílna langa
járnbraut fyrir $300,000, til að-
flutninga efnis og véla og tekur
loks 4. nóv. með miklum meiri
hluta tilboði um að koma stöðinni
upp fyrir 2*4 miljón dollara, sem
greiðast eiga með 4% 40 ára
skuldabréfum á $92, eftir því sem
verkinu miðaði fram. Svo langt
kom bæjarstjórnin málinu áleiðis,
áður enn borgarstjóri Ashdown
skar það niður fyrir henni með því
að leggja bann á samþykkisgjörð-
ína.
Hverjar eru þakkirnar?
Með afskiftum sfnum af aflstöð-
inni, hefir meiri hluti bæjarstjórn-
arinnar sýnt áhuga sinn á máli
þessu, kostað kapps um, að vilji
almennings næði fram að ganga
um þetta mál, og reyndi að efna
kosningarheit sín. í staðinn fyrir
þakkir hafa dunið yfir hana ókvæð-
isorð og skammaryrði látlaust og
þindarlaust. Þeir hafa verið kall-
aðir eyðsluseggir, fjárglæframenn,
ræningjar, þverhausar og stefna
þeirra óðs manns æði, hámark
heimsku og fiflskapar. Hvað
kemur til? Er þetta réttlátt? Eiga
þeir þetta skilið? íhugaðu það,
kjósandi, þú sem krafðist af þeim
að koma vinnuafli í bæinn. Þú
vildir það. Þú átt sneiðina með
þeim.
Hvað er til foráttu fundið
gjörðum meiri hlutans að þiggja
tilboðið? Var tilboðið ofhátt ?
Fjarri fer því, ekkert er haft á móti
kaupi því, sem áskilið var fyrir
verkið. Það er talið gott og við-
unandi, því það er lægra en áætl-
að var af bæjarverkfræðingnum,