Dagblaðið - 06.11.1914, Qupperneq 1
Föstud.
6. nóv.
1914
1. árg.
1. tbl.
Dagblaðið
»»*••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Ritstjóri Sig. Einarsson. Prentsmiðja Odds Björnssonar.
• • • • • • • • • • • • • • ••••••• ••• • • • • • • • • •-• • • • • • • • • * • • • • • •••••♦• • • • • • •
Erlendar símfregnir
Tilkyntiing frá bresku utanríkissijórninni í
London.
Blöð Pjóðverja ávíta stjórnina fyrir það, að draga að setja
verðhámark á kornvörur og hafa eftirlit með birgðunum. Segja
þau, að vörurnar hafi hækkað fram úr hófi.
Atvinnuleysi er mikið í Pýzkalandi.
Uppreisnarmennirnir í Suður-Afríku eru nær gjörsigraðir.
Egyptalaud lýsir drottinhylli sinni við England.
Akafar orustur hafa orðið í Frakklandi og ýmsum veitt betur.
Bandamönnum miðar þó norður á bóginn.
Fregnir frá Pjóðrerjuni herma, að sjóorusta hafi verið við
Chilestrendur. Bresku skipin Monmouth hafi sokkið en Good-
hope stórskemst, en önnur skip hafi komist undan á flótta. —
Bretastjórn er þetta ókunnugt.
Reuters Bureau, London.
4 þýsk herskip hafa sjest við Yarmouth 3. þ. m., skutu þau
sprengikúlum uppundir ströndina. Faílbyssubáturinn Halcyon
lenti í orustu við þau og skemdist dálítið. Fýsku skipin lögðu
niður tundurdufl.
Breskur köfunarbátur lenti á tundurdufli og sökk.
Eftir J\4orgunbIaðinu í Reykjavík þ. 6. r>óv.
Prjónles
verður keypt hœsta verði \
Carl Höepfners
verzlun
Til náungans!
Eins og sjá má hefi jeg ráðist i
að gefa út dálítið blað.
Tilgangurinn er:
/. Að flytja vœntanlegam lesendum
þess nýustu og áreiðanlegustu
frjettir og þá sjerstaklega nú þær
siðustu frjettir af Norðurálfu-
ófriðnum.
Hefir tnjer til þess boðist
trjettasamband við Morgunblaðið
i Heykjavik, en það fœr nú sínar
daglegu ótriðarfrjettir frá bresku
utanríkisstjórninni í London.
Petta frjettasamband er óejað
það besta, sem vjer nú höfum
föng á að fá. Allar útlendar frjett-
ir verða nú eins og kunnugt er
að ganga gegnum hreinsunareld-
inn — hendur Englendinga verð-
ur þvi máske skýrt frekar frá
afreksverkum bandamanna en ella,
en að œtla það, að ósannindi
standi i þessum skeytum vœri ó-
kurteysi gegn breska utanrikis-
ráðaneytinu.
2. Að leyfa pláss hóflegum og vel-
rituðum greinum um ýms mál,
er almenning varðar, að þeim
stjórnmálum undanskildum, sem
mestri sundrung hafa valdið hing
að td hjerlendis.
Velrituðum pislum til skemtun-
ar og fróðleiks verður tekið með
rniklum þökkum.
Verð blaðsins
þennan mánuð út verður 75 aur.
fyrir fasta kaupendur, en 5 au. kost-
ar hvert eintak i lausasölu. Sveita-
mönnum gefst kostur á blaðinu fyrir
lœgra verð vegna þess, að ómögu-
legt er að koma því i þeirra hend-
ur daglega.
Stjórnarskráin staðfest.
Stjórnarráðinu hefir borist skeyti
um pað, að konungur hafi stað-
fest sem lög 3. p. m. stjórnar-
skárbreytingalög síðasta alþingis,
með fyrirvara þeim sem þeim
fylgdi.
Ur Reykjavík.
jóhann jóhannesson, kaupmaður og
bæjarfulltrúi Ijest 4 þ. m., kl. 71/2
árdegis, eftir mjög stutta legu.
E s Botnfa og Flóra eru komin.
Afgreiðslu »Sameinaða gufuskipa-
ijelagsins» barst skipun símleiðis um
það að kyrsetja e s. »Skálholt* þar
fyrst um sinn.
SIG. EINARSSON.