Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 24.10.1906, Side 3

Lögrétta - 24.10.1906, Side 3
L0GRJETTA. 199 Frá fjallatindum til fískimiða. aði Stólýpín, er alt var kyrt aftur, og stökk út utn glugga á herberginu. Börn hans 2 höfðu verið uppi á svöl- um fyrir rniðju húsi, dóttir 14 ára og drengur 2 ára, og var barnfóstran þar með hann. Svalirnar hrundu niður og fanst barnfóstran dauð, dótt- irin fótbrotin á báðum fótum, en drengurinn mjaðmarbrotinn. Tekist hefur að græða börnin, en þó eigi svo, að þau bíði þessa nokkurntíma bætur. Sumarbústaður Stólýpíns er á Lyfsalaeynni í Neva-fljóti og er þar fjöldi skrauthýsa, sem rússneskir auð- menn búa í á sumrin. Daginn eftir var ráðist á Minn hershöfðingja á járnbrautarstöðinni við Peterhoff. Hann var þar ásamt konu sinni og barni, og var þá varp- að til hans sprengivjel. Minn dó þegar, en aðra sakaði eigi. Vjelinni kastaði ung stólka, bóndadóttir, Soffía Lariomoff, 27 ára gömul kenslukona, frá hjeraðinu Pensa. Minn var mjög hataður maður. Það var hann, sem ijet skjóta á stúdent- ana í St. Pjetursborg daginn eftir blóð- sunnudaginn, og í Moskva stóð hann síðan fyrir stórmorðum. Launin fyrir þetta voru. að hann var gerður hers- höfðingi. Yms grimdarverk eru hermd upp á hann af versta tægi, svo sem það, að hann hafi með eigin hendi drepið ung börn, er hann braust inn í híbýli byltingamanna. Stúlkan, sem framkvæmdi rnorðið, var dæmd til hengingar og varð hún mjög vel við dauða sínum. Daginn áður en hún var hengd hafði hún meðal annars sagt fyrir herrjettinum: .....Saga Rússlands er blóðug kúg- unarsaga og byltingin verður aldrei stöðvuð með valdboðum frá kéisar- anum. Þið dæmið mig nú annað- hvort til hengingar, eða til að skjót- ast. En eina ósk mín er, að landar rnínir fyrirgefi mjer, hve litlu jeg fjekk á orkað af öllu því, sem jeg vildi gera, og að jeg hef ekki meira til að fórna málefni okkar en líf mitt. Jeg dey með þeirri öruggu trú, að frelsisins sól renni upp áður langt um líður í Rússlandi". Önnur stúlka ung, sem var á há- skóla í Sviss, Tátjana Leontiev, vildi ráða af dögum Durnovó innanríkis- ráðherra. Hann var á ferðalagi og þóttist hún vita, að hann byggi undir dularnafni á veitingahöll einni í Inter- laken. Þangað fór hún, en svo tókst þá ófimlega til fyrir henni, að hún drap þar með sprengivjel annan mann í misgripum. Það var gamall maður auðugur, Múller að nafni, franskur, 74 ára, og hafði verið líkur Durnovó í. sjón. Lengi vel trúði hún þvf ekki, að sjer hefði mistekist, því hún kvaðst vel þekkja Durnovó. En skömmu sfðar kom hann heim til St. Pjeturs- borgar heill á hófi og hlaut hún þá að sannfærast. Stúlka þessi er af götugum ættum, dóttir Leontievs herforingja, er tók þátt í Japana-stríðinu og nú er land- stjóri í einu af fylkjunum heima í Rússlandi. Hún er fædd 1884, tók ung stúdentspróf og var sfðan send til háskólaps Lausannes. Þar kyntist hún rússneskum mönnum, sem í út- legð, voru, og drakk í sig skoðanir þeirra. Árið 1900 komst upp, að hún var við riðin samsæri, sem hafði það nrarkmið að ráða Dagmar keisara- móður af dögum. Þegar foreldrar hennar heyrðu þetta, fór móðir hennar til Sviss og bjuggum þær mæðgur þar saman nokkur ár Tatjana las þá af kappi læknisfræði við háskól- ann. En 1904 fór hún heim til St. Pjetursborgar. Hún umgekst þar fólk af hinum æðstu stjettum og var oft í boðum við sjálla keisarahirðina. Hún var í vinfengi við Trephoff og fleiri nánustu vildarmenn keisarans. „Mjer kom það alveg á óvart“, segir hún, „er lögreglumenn einn dag brutust inn í herbergi mín, en sprengiefni fundu þeir þá í saumakörfu minni. Fá- um dögum síðar átti að vera dansveisla við hirðina og vár jeg boðin þangað. En meðan jeg var að búa mig á dans- inn var jeg tekin föst og sett í fang- elsi. Jeg var yfirheyrð, en neitaði að svara öllum spurningunum. Föður- bróðir minn var þá kammerherra við keisarahirðina og tókst honum að telja dómurunum trú um, að jeg væri geð- veik. Var jeg svo send á geðveikra- hæli, en málaflutningsmaðurinn, sem tekið hafði að sjer að verja mig, var rekinn í útlegð til Síberíu. Frændur mínir komu því til leiðar, að mjer var brátt gefin lausn úr geðveikra- húsinu, og fór jeg þá aftur til Sviss". Þessar upplýsingar um líf hennar eru frá einum af kennurum hennar, pró- fessor í Lausannes. Hann spurði hana, hvort alt þetta hefði ekki valdið föður hennar sorgar, en hún kvaðst meta meira 130 milljónir landa sinna, en föður sinn einan. — Nú situr hún í fangelsi og er eftir að vita, hvort honum tekst enn að frelsa hana eftir þetta síðasta tilræði. Rússneskir stú- dentar frá háskólanum í Lausannes hafa gert tilraun til að frelsa hana og eru sakaðir um að hafa þá kveykt í húsi, sem stendur fast við fangelsið. Útlendar frjettir. Stjórnarskrá Persa. Það er nú auglýst af Persakeisara, að þar skuli komast á þingbundin stjórn. Kosningarjett eiga allir karl- menn að hafa fra 30 til 70 ára, og er þó bundið því skilyrði, að þeir kunni að lesa og skrifa, þeim hafi ekki verið refsað og þeir sjeu ekki í þjónustu ríkisins. Landinu er skift f 12 kjördæmi og kýs hvert um sig 6—19 þingmenn. Kosningar eru leynilegar. Þingmenn skulu friðhelg- ir og hafa fult málfrelsi. Þingið á- kveður sjálft þingfararkaupið. Fyrsta þingið ætlar keisarinn að setja sjálfur. Krítey. Georg Grikkjaprins hefur verið landstjóri á Krítey síðan 1899, er uppreisnin var þar. Hann, og flokk- ur Kríteyinga, er honum hefur fylgt að málum, hefur viljað sameina eyna Grikklandi, en stórveldin hafa staðið þar í móti. Þetta hefur valdið því, að hann hefur nú sagt af sjer og fór hann frá eynni 25. f. m. Kríteying- ar vildu hindra burtför hans og kom þar til vopnaviðskifta og fjellu tveir menn af Kríteyingum, en margir særð- ust. Símskeyti til „Lögrjettu“. Kliöfn 19. okt. ’06. Æfilýsing Hohenlohes (áður ríkis- kanslara Þjóðverja) eftir sjálfan hann er út komin og er þar Ijóstað upp ýmsu, sem leynt átti að fara, um það, er Bismarck var látinn fara frá völdum (1890). Keisarinn æfur. Kannast er við, að mistekist hafi að bæla niður óaldarástandið í Rúss- landi. Stungið er upp á millibilsstjórn í Brúnsvík. Blaðið „Yort land“ (hægnbl.) leggur á móti sjerstökum fána handa íslandi meðan sambandið helst (milli íslands og Baiim'erkur). Ríkisþingið hefur þegið heimboðið frá alþingismönnum. Yaldemarprins, N. Andersen, Deunt- zer og Glúckstadt leggja á stað i dag til Auslurasíu. ( ■ Kynbóta-hrútur frá kynbótabúi Ingólfs Guðmundssonar á Breiðabóls- stað í Reykholtsdal fór á uppboði við Rauðsgilsrjett í fyrra mánuði á 60 kr., og keypti hann ráðsmaður síra Guðm. í Reykholti. Hrúturinn var 3vetur. — Veturgamlir hrútar fóru á 25—30 krónur. Slys. 15. þ. m. datt Kristján Þor- steinsson trá Árnórsholti í Lunda- reykjadal af hesti, en festist í ístað- inu og dró hesturinn hann þar til ístaðið slitnaði. Maðurinn meiddist stórkostlega, en honum þó talin bata- von. Á lýðháskólann í Askov fóru í haust 3 ungir menn úr Skagafirði: Jón Sigurðsson frá Reynistað, Jóh. Björnsson frá Hofsstöðum og Jakob Líndal frá Hrólfsstöðum. Minnisvarði var nýlega reistur á Möðruvöllum í Hörgárdal yfir síra Davíð Guðmundsson áður prest á Hofi. Varðinn er úr granitsteini, 3V2 alin á hæð og er kostaður af sóknarbörn- um síra Davíðs, eyfirskum prestum og nokkrum vinum hans. Vínsöluleyfi neitað. Þess var getið í síðasta blaði, að norskur mað- ur bæði um vínsöluleyfi á Seyðisfirði. Til „Templars" hefur verið símuð frá Seyðisfirði sú fregn, að beiðninni hafi verið neitað á borgarafundi með 54 atkv. gegn 48. Af Isafirði segir „Valurjnn" frá 12. þ. m. góða tíð og afla. Þeir voru hjer nokkra daga í haust ritstjóri „Vestra" og Helgi Sveins- son bankastjóri á ísafirði. Mikla þrá sögðu þeir í ísfirðingum eftir síma- sambandi þangað, enda mun þess varla lengi að bíða, að Vestfirðir komist inn í sambandið. Kjötverð á Akureyri er 19—22 a. pd., segir „Norðri frá 5. þ. m. Fje þar „furðu vænt". Kvennaskólinn á Akureyri. For- stöðukona hans er í vetur frk. Mar- grjet Jónsdóttir, dóttir Jóns prófasts, áður á Hofi í Vopnaftrði. Af Akureyrarbrunanum hefur „Lögr.“ fengið þessar fregnir auk þeirra, sem áður eru taldar: H.já M. Blöndal hefur brunnið fyrir 17,000, Jóni Norðmann 9,000, Dav. Ketilssyni rúm 20,000, Jóni Guð- mundssyni og Sig. Bjarnasyni um 30,000. Grift eru Sigfús Sveinsson kaupm. á Norðfirði og frk. Ólöf Guðmunds- dóttir frá Nesi i Norðfirði. Mjög fágætan fisk rak hjá Gamla- hrauni nálægt Eyrarbakka seint í sept- ember síðastl. Það var síldakongur svonefndur (Regalecus glesne), fiskur skyldur vogmeri, en miklu langvaxn- ari, getur orðið um 18 feta langur; þessi var 12 fet og 4 þuml. og 8 þuml. hár, þar sem hæst var. Hann er þunn- vaxina, með einn ugga eftir endilöngu baki og fram á höfuð; þar greinist hann í nokkra flipa, eins og kórónu. Sporðugga vantar og í kviðugga stað eru tveir langir broddar. Höfuðið er mjög stutt og augun allstór. Tennur vantar. Allur er hann silfurlitaður, með dökkum þverrákum, nema bak- ugginn; hann er blóðrauður. — Hann er djúpfiskur, er á heima í norðan- verðu Atlantshafinu og rekur endur og sinnum við sunnanverðan Noreg og Bretlandseyjar. Hjer hefur hann aldrei sjest fyr, svo menn viti. Pegar hann ra.k, var hann nokkurn- veginn óskemdur, en maður sá, er fann hann, skemdi hann svo í meðförunura, að ekki er auðið að sýna hann á safn inu og er það ilt, því óskemda fiska rekur sjaldan. Höfuðið var rifið sundur og fiskurinn i mörgum pörtum, þegar hingað..kom. . Að hann kom annars hingað, var að þakka velvild P. Niel- handa unglingum og fullorðnum. Undirritaður veitir stundakenslu í öll- um venjulegum námsgreinum við hærri unglingaskóla — og auk þess í enskn, nýnorsku og ílðluspili. Ef nógu margir unglingar gefa sig fratn, verður kvöldskóli settur á fót t vetur. NB. Sjerstakar námsgreinar fyrir skóla- pilta og iðnnemendur: — Perspektiv-, prójektions- og konstruktions- teikning, hærri flatarmálsfræði, mathematik o. fl. Undirr. hefur tekið lægri og hærri kenn- arapróf við fjölsóttan kennaraskóla 1 Nor- egi, hefurverið kennari í mörg ár, bæði f Noregi og hjer heima — og hefur fyrir 2 árum síðan gengið í Centralskólann í Kristjanfu — æðsta leikfimis- og skilm- ingaskóla Norðmanna, sem sjerstaklega er ætlaður herforingjum. Helgi Valtýsson. Þingholtsstræti 23. sens verslunarstjóra á Eyrarbakka, er gaf safninu hann. Nafnið síldakongur (tekið eftir norska nafninu Sildekonge) hefur fiskur þessi af gamalli bábilju: hann átti að fara fyrir síldartorfum og stýra göngum þeirra. B. Sœm. Reykjavik. Yerslunarskólinn. Þar eru nú um 60 nemendur og hafa fleiri viljað komast þar að en hægt hefur verið að taka á móti. Skólastjórinn er hinn sami og í fyrra, hr. Ólafur Eyjólfsson frá Akureyri, og er hann nú alfluttur hingað. Skólinn er haldinn í Melsteðs- húsinu svokölluðu, sem D. Thomsen konsúll á nú, við Lækjartorg. Fantabragð af versta. tægi var framið hjer 17. þ. m. á tveimur hestum uppi á Hólavelli, stýfð af báðum hálf eyrun og fax og tagl skelt af. Annar hafði auk þessa verið stunginn mörgum hnífst.ungum á aðra hliðina og voru sumar svaðalegar. Þó er ekki von- laust um að græða megi hestinn. Maður kvað hafa verið tekinn fastur, sem grunaður er um þetta svívirðilega níð- ingsbragð. í kaþólska skólanum í Landakoti eru nú 60 börn. í barnaskólanuin eru nú 450 börn í 18 deildum og kennarar 26. Jarðarför Jafets skipstj. Ólafssonar fór fram frá Fríkirkjunni síðastl. fimtu- dag og var þar fjölment. Síra Ól. Ólafsson flutti ræðu, en kvæði var sungið eftir Bjarna Jónsson frá Vogi. Vaxtaliækkunin. Nú rjett fyrir helgina fjekk íslands banki skeyti um að Englandsbanki hefði hækkað pen- ingavexti úr 5°/0 upp í 6°/0 og eru svo háir vextir mjög sjaldgæfir þar. Bæjarstjórnin. Eins og „Lögr.“ skýrði frá í fregnmiða á föstud., var samþ. á fundi 18. þ. m. að leita til- boða hjá innlendum eða útlendum fjelögum um, að setja hjer á fót og reka á sinn kostnað, með einkaleyfi um víst árabil, gas- og rafmagns- vinnustöð. Samþ. að Rostgaard, vjelstjóri Völ- undar, fái land eftir þörfum inni hjá Kleppi undir þurrakvi handa hafskip- um, er hann hefur hugsað sjer að gera þar, en áskilið, að byrjað sje á verkinu eigi siðar en 1. júlí næstk. og því lokið eigi síðar en l.júli 1909, og að bænum sje heimilt að taka lóðina og öll mannvirki þar til al- * almenningsnota hvenær sem er gegn endurgjaldi eftir óvilhallra manna mati. Samþ. að hætta við kaup á lóð af Sv. Sveinssyni úndir „Óðinstorg". Samþ. að borga Halld. Jónssyni 2 kr. fyrir feral. af lóð undir Suðurgötu.

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.