Lögrétta - 04.12.1918, Page 2
LÖGRJETTA
196
LÖGRJETTA kemur út á hverjum mið-
vikudegi, og auk þcss aukablöð við og viS,
minst 60 blöð alls á ári. Ver8 kr. 7.50 árg. á
tsiandi, erlendis kr. 10.00. Gjalddagi 1. júlí.
kærastar fagurfræðislegar bókmentir
bæSi fornar og nýjar.
Þegar að því var komið a8 hann
lyki fullnaSarprófi viS háskólann,
varS fyrst vart viö heilsubilun hjá
honum. Þá kom fyrst í ljós, aö hann
var ^kki fyllilega hraustur' á geðs-
munum. Þó fjekk hann skjótan
bata og hvarf þá heim til íslands.
En ekki vildi hann þá snúa aftur til
Hafnar til þess að ljúka námi, þó
að honum stæði það til boða. Er
hætt við, að hann hafi mist traust
á sjálfum sjer eftr þetta áfall. Nokkru
eftir að hann kom heim gekk hann
í þjónustu íslandsbanka og var hann
þar jafnan síðan vel metinn starfs-
maður meðan hann hjeit heilsu. En
hana misti hann til fuils fyrir rúmu
ári.
Faðir hans Ijetst árið 1913, en móð-
i hans’lifir enn háöldruð, og á hún
nú um sárt að binda, eins og fleiri
um þessar mundir. En vist er, að fleiri
en hún sakna Guðmundar Benedikts-
sonar sárt. Kvöldið eftir að hann var
grafinn komu nokkrir vinir hans
saman til þess að minnast hans, og
flutti þá einn þeírra, Árni bókavörð-
ur Pálsson, minningarorð þau, er hjer
fara á eftir:
Við sitjum hjer af því að Guð-
mundur Benediktsson er genginn og
grafinn!
Við sitjum hjer ennfremur vegna
þess, að hann óskaði, að svo skyldi
vera. Þegar honum sjálfum leið illa,
þegar honum lá við að verða inn-
kulsa af sorg og örvænting, þá vissi
hann, að eina ráðið var, að verma sig
við hvern þann neista af gleði og
lífsfjöri, sem fundist gat. Jeg man
margt, sem hann sagði. En í kvöld
er mjer minnistæöast spakmælið, sem
oftast var á vörum hans síðustu miss-
erin, sem hann hafði heilsuna: „La
vie est triste, enfin soyons gais.“ (Líf-
ið er dapurt, en við skulum vera
glaðir).
í dag var talað yfir moldum hans
í kirkjunni. Það gladdi mig að ræðu-
maðurinn hafði sömu endurminning-
inguna um hann eins og við, endur-
minninguna um óvenjulegt andlegt at-
gervi, stórt hjarta, stóra sál, stóra
mannkosti. Jeg hafði hálftgert kviðið
fyrir, að hlusta á, að líf Guðmundar
Benediktssonar hefði mishepnast. Því
að þess er ekki að dyljast, að jeg veit,
að sumir menn eru þeirrar skoðunar.
l'n jeg -vil bera þennan vitnisburð:
Þegar jeg í fyrstu hafði kynst Guð-
mundi Benediktssynj til hlítar, — en
það var í Höfn, — þá vissi jeg, að
jeg mundi alt af verða vinur hans. Jeg
vissi, að hann mundi alt af skilja mig
og þess vegna var jeg vinur hans.
Jeg vissi, að hann mundi alt af fyrir-
gefa mjer, og þess vegna var jeg
vinur hans. Jeg vissi, að hann mundi
aldrei svikja mig, og þess vegna var
jcg vinur hans. Og margur minn
dómur hefur ónýtst fyrir yfirdómi
lífsreynslunnar, en þessi stóð út í
dapran dauðaTin. Guðmundur var
ekkur öllum kær, af því að harin
skildi, og fordæmdi ekki, og sveik
ekki. Hamingjan hjálpi þeim, sem á-
líta að maður, sem lætur eftir sig slíka
minningu, hafi lifað til lítils. Sá ísra-
elíti, sem aldrei sveik, var meira verð-
ur en nokkur dómari i ísrael.
En hitt mætti auövitað segja, að
æskilegt hefði verið, að hann hefði
notið sín betur, svo að atgervi hans
hefði orðið fleirum til gagns og gleði,
en raun varð á. Þegar jeg minnist
fyndni hans og orðheppni, spakmæia
hans og snarræðis í kappræðúm, þá
sárnar mjer, að ekkert af því skuli
finnast svart á hvítu. En Guðm. Bene-
diktsson skrifaði ekki einu sinni í
sandinn, hann skrifaði í loftiö. Og
loftið geymir betur bakteríur, heldur
en mannlegar hugsánir. Hugsanir
hans finnast nú hvergi nema í endur-
minningu einstaka manns. En hvað
um gildir? Han haföi enga trú á, að
hægt væri að breyta veröldinni til
batnaðar, hvorki með töluðu orði nje
skrifuðu. Fyrirlitning hans fyrir þeim
mönnum, sem þykjast vera önnum
kafnir í því að bæta veröldina og
gera sjer siðbótarstarf að atvinnu,
var takmarkalaus. Og þess vegna
blessa jeg minningu Guðmundar
Eenediktssonar einnig fyrir það, að
hann þagði og hugsaði, i landi þar
sem svo margir tala. án þess að hugsa.
Tjónið af Kötlugosinu
Það mun kunnugt um land alt, hví-
líku tjóni og vandræðum Kötlugosið.
hefur valdið í sveitunum þar um-
hverfis. Að vísu mun ekki vera Um
i bjargarskort að ræða þar í vetur, þar
sem tjónið aðailega felst i lógun bú-
penings fyrir jarðbönn af öskufalli
i og ágangi vatna. En spjöll á eignum
! hafa orðið mikil, eins og sjá má af
eftirfarandi símskeyti, 25. f. m. til
Búnaðarfjelags íslands, frá Gísla
sýslumanni Sveinssyni í Vík:
„Safnað verður í vetur nákvæmum
slcýrslum um tjón af Kötlugosinu. Má
ætla lauslega farist: hross nokkrir
tugir, sauðfje nokkur hundruð. Jarðir
skemst til frambúðar allri Skaftár-
tungu, þær helmingurinn máske gev-
samlega eyðilagðar mörg ár, ösku,
sandi, vikri. Álftaveri flestar jarðir
skemst mjög vatnsflóði og ösku, einn-
- ig nokkrar jarðir Meðallandi og vest-
urhluta Síðu. Þessar skemdu jarðir
nærri allar sjálfseign. Má heita hver
einasti búandi milli Skeiðarársands
og Mýrdalssands þurfi eyða miklum
fjenaði að eins vegna afleiðinga goss-
ins, allramest Skaftártunga, líka
: nokkuð austurhluti Mýrdals.“
Þó að beint eignatjón nemi þannig
; tugum þúsunda, mun þó tekjumissir-
inn, sem bændur verða fyrir af völd-
| um gossins, verða enn tilfinnanlegri.
; Allir bændur milli Skeiðarársands og
Mýrdalssands verða ofan á förgunma
; sakir grasleysisins síðastliðið sumar
! ennfremur að .eyða fjenaði sínum sak-
I ir gossins. Sama er og sagt af ofan-
verðu Landi og Rangárvöllum og
j víðar.
Þessi mikla förgun á fjenaði hefur
það í för með sjer, að arðurinn af
' búunum verður hverfandi næsta sum;
; ar: með öðrum orðum, bændur í þess-
um sveitum missa tekna sinna næsta
ár. Er því fyrirsjáanlegt, að rýrnun
á bústofni í þessum sveitum verður
tilfinnanlegri en svo, að afskiftalaust
eða aðgerðalaust megi láta. Virðist
einsýn þjóðarnauðsyn og mannúðar-
skylda fyrir aðra þá hluta landsins
er ekki hafa orðið fyrir tjóninu af
jarðeldunum, að hlaupa undir bagga
fljótt og drengilega. Þyrfti það að
gerast á þann hátt, að veita þeim ein-
staklingum eða sveitum fjárstyrk til
bústofnsskaupa næsta ár, þar sem
lakast er ástatt, og menn geta ekki
aí eigin rammleik endurreist lífvæn-
legan stofn. En þá er að finna að-
ferðina greiða og hagkvæma til þess,
að koma þessu i framkvæmd. Þrjár
aðíerðir hafa verið teknar til athug-
unar. Búpeningssamskot, sauðfje,kýr,
hestar; en þau má telja óframkvæm-
anleg eins og nú er ástatt. Sama er
um venjuleg peningasamskot, að þau
eru til sveita þung í vöfum, seinleg
og erfið í söfnun. Hefur því niður-
staðan orðið sú, að gera tilraun til
samskota meðal bændastjettarinnar
með frjálsu gjaldi af búnaðarfram-
leiðslu, teknu með samþykki bænda
fyrirfram eða eftirá. Slik samskot
ættu ekki að þurfa að verða mjög
fyrirhafnarmikil, þar eð vænta má
lipurðar og góðrar aðstoðar kaup-
manna og forstjóra samvinnufjelaga
bænda um innheimtuna. Endurreisn
bústofnsins í sveitunum, sem harð-
ast hafa orðið úti áf Kötlugosinu, er
næst því að vera þjóðfjelagsmál, fyrst
og fremst landbúnaðarmál, og hefur
því stjórn Búnaðarfjelags íslands og
formenn búnaðarsambandanna komið
sjer saman um:
Við hörmum óvenjulega gáfaðan
mann og óvenjulega góðan dreng. Og
í kvöld tökurn við orð hans okkur í
munn:
La vie est triste, enfin soyons gais.
Albert Thorvaldsen. Út af því, að
staðið hefur í blöðum hjer, að 150
ára afmæli hans hafi verið 13. þ. m.,
hefur fróður maður sent Lögr. eftir-
farandi athugasemd:
„Þótt svo kunni að vera, að for-
eldrar myndasmiðsins Bertels Thor-
1) Að skora á alla kaupmenn og
kaupfjelög landsins og sláturfjelög
að greiða til samskota til jarðelda-
hjeraðanna eina krónu af kjöttunnu
hverri, seldri siðastliðið haust utan-
lands eða innan. Fjeð sendist stjórn
Búnaðarfjelags íslands, er geymir það
til væntanlegrar úthlutunar næsta
sumar. 2) Einstökum viðskiftamönn-
um sje, gegn væntanlegu samþykki
þeirra eftirá, talið til gjalda tillagið
um næsta nýár, hverjum að rjettri
tiltölu við kjötsölu hans. 3) Skyldu
einhverjir einstaklingar mótmæla
gjadlið þessum að fengnum reikning-
um, — þ. e. neita hluttöku í samskot-
um til jarðeldahjeraðanna — þá verð-
ur gjaldi þeirra manna skilað aftur.
Það liggur i augum uppi, að sam-
skotaaðferð þessi stendur og fellur
með undirtektum kaupmanna og for-
stjóra kaupfjelaga og sláturfjelaga,
þarsem hjer getur ekki verið um
skyldu að ræða. En treyst er skiln-
ingi þessara manna á málefninu og
einlægum vilja til þess að vinna að
því, að bæta eitthvað úr hinu hörmu-
lega ástandi jarðeldahjeraðanna, með
því að gerast á þennan hátt safnend-
ur samskotanna meðal bænda. Hins
vegar áhættan ekki mikil, að halda
tillaginu eftir og leggja það fram
fyrir einstaka viðskiftamenn, þar sem
gera má ráð fyrir, að varla nokkur
skorist undan þvi, og ennfremur, ef
svo yrði, þá verður tillagi þeirra
manna skilað aftur.
Þótt framangreind tilraun sje gerð
til þess að gera bændum kost á að
hlaupa hjer á hagkvæman hátt undir
bagga og bera byrðir hver með öðr-
um, þá er þess vænst, að aðrar stjett-
ir landsins líti á þetta sem þjóðfje-
lagsmál, og rjetti hjálparhönd, og
veitir Búnaðarfjelagið þeim samskot-
um einnig móttöku.
Samkvæmt framanrituðu er öllum
kaupmönnum og framkvæmdarstjór-
um kaupfjelaga og sláturfjelaga send
svohljóðandi
Áskorun.
Búnaðarfjelag íslands og búnað-
arsambönd og Ræktunarfjelag
Norðurlands vilja gera tilraun til
samskota til endurreisnar næsta
sumar á bústofni bænda, sem nú
hafa felt eða verða að fella sakir
Kötlugossins. Er ætlast til að til-
lögum meðal bænda sje safnað sem
eins konar frjálsu jarðeignagjaldi
af kjötframleiðslu landsins í ár, er
komi í stað venjulegra samskota.
Leyfum vjer oss þvi að mælast til
þess við yður, háttvirti herra, að
þjer: 1) Greiðið til Búnaðarfjelags
íslands fyrir 1. apríl 1919 eina
krónu af kjöttunnu hverri af þessa
árs framleiðslu, er þjer hafið selt
eða seljið utanlands eða innan. 2)
Teljið einstökum viðskiftamönnum
yðar gegn væntanlegu samþykki
þeirra eftirá tillagið til gjalda um
næsta nýár, hverjum að rjettri til-
tölu við kjötsölu hans.
Nú skyldu einhverjir einstakling-
ar mótmæla gjaldlið þessum að
fengnum reikningum yðar og
þannig neita hluttöku í samskot-
um til jarðeldahjeraðanna, og verð-
ur yður þá skilað aftur gjaldi
þeirra manna, enda sje krafa um
það komin fram eigi síðar en fyrir
1. ágúst 1919.
valdsens hafi 13. nóv. 1768 eignast
son, sem heitið hefur Bertel Thor-
valdsen, þá er þó öldungis óvíst, að
það barn sje myndasmiðurinn. Þaö
getur eins vel verið eldri bróðir hans.
Það er og hefur verið alltítt, að börn
hafa verið látin heita eftir eldri syst-
kinum sínum, sem dáið hafa. Þannig
átti fyrv. ráðherra Hannes Hafstein,
sem fæddur 1861, bróður, sem hjet
| Hannes en dó 1860. Yfirdómari Egg-
| ert Briem, sem fæddur er 1867, átti
í bróður að nafni Eggert, fæddan
! 1866, er dó á fyrsta ári.“
Frjettir.
Tíðin hefur verið hin ákjósanleg-
asta undanfarnar vikur, stöðugar
frostleysur og stillingar.
Jarðarfarir eru hjer enn margar á
degi hverjum. 26. f. m. voru þær frú
Elín Laxdal og frú Herdís, dætur
sjera Matth. Jorhumssonar skálds,
jarðsungnar, og voru líkin flutt í
grafhvelfing þeirra Friðriks ogSturlu
Jónssona, en í vor á að reisa yfir þær
sjerstaka grafhvelfingu. Sama dag
voru þeir jarðsungnir bræðurnir Jón
og Þorvaldur Sigurðssynir, en næsta
dag frk. Ingileif Zoega, Geirsdóttir
rektors. 28. f. m. frú Borghild Am-
ljótsson, frú Stefanía frá Kaupangi
og frk. Bergljót Lárusdóttir frá
Presthólum. 29. f. m. Guðm. Bene-
diktsson bankaritari, 30. f. m. dr.
Björn Bjarnarson frá Viðfirði. I dag
fer fram jarðarför frú Torfhildar
Hólm. Jarðarför Guðm. Magnússon-
ar rithöfundar var frestað vegna
sjúkdóms ekkju hans, og er hann
ekki jarðsettur enn.
Influenzan og læknarnir.
Lögr. hefur verið beðin fyrir svo-
hljóðandi yfirlýsingu frá Læknafje-
laginu:
Vegna ýmsra ummæla í blöðum
hjer, einkum „Tímans" (frá 26. nóv.)
og „Vísis“, um sjerstaka meðferð á
influenzunni og afleiðingum hennar,
eignaða Þórði lækni Sveinssyni, hef-
ur formaður Læknafjelags Reykja-
víkur leitað álits lækna bæjarins,
þeirra sem átt hafa við þessa sótt
(landlæknis, próf. Guðm. Magnús-
sonar, Guðm. Hannessonar. Sætn.
Bjarnhjeðinssonar, hjeraðslæknis
Jóns H. Sigurðssonar, læknanna
Magga Magnús, Matth. Einarssonar,
Þórðar Thoroddsen^ ólafs Þorsteins-
sonar, Dav. Slh. Thorsteinsson), og
er það sammála álit þeirra, að sjúk-
dóm þennan beri að fara með eins og
venja hefur verið um slíkar kvefsótt-
ir, af því að enn þá þekkist engin
betri lækingaraðferð.
Auk þess telja þeir, að sumar af
þeim reglum, sem „Timinn“ birtir,
geti verið beinlínis skaðlegar, sjer-
staklega sveltan.
Hið íslenska
garðyrkjufjelag.
pað hefur nú sofið síðan um síð-
ustu áramót, en raknaði úr rotinu
þjóðhátíðardaginn okkar, 1. des-
ember. Nú ætlar það aftur að fara
að starfa eftir því sem efni og
ástæður frekast leyfa. Væntir það
að geta aftur gert sig maklegt
þeirra vinsælda, sem það hafði um
og fyrir aldamótin.
Garðyrkjufjelagið var stofnað
eftir hvötum Schierbecks
1 a n d 1 æ k n i s 26. maí 1885.
Auk hans voru þessir stofnendur:
Pjetur Pjetursson biskup, Magnús
Stephensen landshöfðingi, Theódór
Jónasson amtmaður, Árni Thor-
steinsson landfógeti, Sigurður Mel-
sted prestaskólaforstöðumaður,
þórarinn Böðvarsson prófastur,
Halldór Friðriksson yfirkennari,
Steingrimur Thorsteinsson rektor,
Björn Jónsson ritstjóri, Hallgrimur
Sveinsson biskup,
Fjelagið hafði mikið og gott
starf með höndum fram til alda-
mótanna, að Búnaðarfjelag íslands
tók til starfa. pórhallur Bjarnar-
son biskup hafði þá um nokkur
ár verið formaður Garðyrkjufje-
lagsins og var nú kosinn í stjórn
Búnaðarfjelagsins og bráðlega for-
seti þess. Einar Helgason garðfræð-
ingur vann fyrir bæði fjelögin. par
sem nú að svo var ástatt, að aðal-
starf Garðyrkjufjelagsins hvíldi á
tveimur mönnum, sem báðir störf-
uðu fyrir liið nýja Búnaðarfjelag,
þá varð það úr, að Garðyrkjufjc-
lagið hætti sínum störfum í bráð.
Samkvæmt ósk nokkurra manna
hjcr í bænum var það ráð tekið nú
í haust, að endurreisa Garðyrkju-
fjclagið og gera það fullveldisdag-
inn 1. desember.
Til fundarins boðuðu þeir Einar
Vrnason kaupmaður, Einar Helga-
von garðfræðingur og Sigurður
J’órðarson sýslumaður. Sendu þeir
Eggert Briem frá Viðey, Guðmundur Þorbjarnarson,
f. h. Búnaðarfjelags Islands. f. h. Búnaðarsambands Suðurlands.
Magnús Bl. Jónsson,
f. h. Búnaðarsambands Austurlands.
Sigurður Stefánsson, Stefán Stefánsson,
f. h. Búnaðarsamb. Vestfjarða. f. h. Ræktunarfjel. Norðurlands.
Þ. Magnús Þorláksson,
f h. Búnaðarsamb. Kjalarnesþings.
Ath. Tími vanst ekki til að bera þetta undir Búnaðarsamband Borg-
arfjarðar og Búnaðarsamband Dala og Snæfellsnessýslu.
fundarboð til allra þeirra manna
hjer i bænum, sem verið höfðu
meðlimir Garðyrkjufjelagsins þeg-
ar síðasta fjelagatal var skráð.
Fundurinn var haldinn i húsi
Búnaðarfjelags íslands; bættust
Garðyrk j uf j elaginu þar nokkrir
nýir menn. Fundinum stýrði Sig-
urður J?órðarson. Noldcur breyting
var gerð á lögum fjelagsins. Kosin
stjórn: Hannes Thorsteinsson
bankafulltrúi formaður, með-
stjórnendur Skúli Skúlason præp.
hon. og Einar Helgason. Endur-
skoðunarmenn: Guðm. Gamalíels-
son bóksali og Stefán Eiríksson
skurðmeistari.
Prjedikun
í dómkirkjunni 1. des. 1918.
Eftir dr. Jón Helgason biskup.
Með loígerð og þakklæti komum vjer
fram fyrir þig, ástríki faðir, á þessum
fagnaðardegi, sem þú hefur gefið oss mitt
í skammdegi mótlætis og sorgar. Vjer
minnumst ástar þinnar og náðar við oss
eins og hún birtist í sendingu sonar þíns,
sannleikskonungsins, er aldrei þreytist á
að vitja vor, til þess að veita oss blessun
sína og kemur nú í dag til vor með nýju
kirkjuári. En vjer minnumst jafnframt
ástar þinnar og náðar við þjóð vora, alla
handleiðslu þína á henni á öllum tímum
æfi hennar, allar ástgjafir þínar henni
til handa, og nú síðast sigurgjöfina, sem
vjer i dag fögnum yfir. Veit oss nú, faðir,
af nægtum náðar þinnar, að öll þessi
merkin miskunnar þinnar við oss megi
tengja oss við þig enn fastari böndum, svo
að vjer gefumst þjer æ betur og betur, og
alt vort líf og allar vorar athafnir vegsami
þitt nafn og víðfrægi þínar dáðir. í Jesú
r.afni — Amen.
Matth. 21, i—g. Jes. 60, i—2.
„Sjá þinn konungur kemur til
þín!“ — Vjer könnumst öl vil hina
gömlu aðventukveðju, er boðar oss
að nýtt kirkjuár sje að byrja. Og
þetta er þá líka hið gamla hátíðar-
efni þessa dags. Hún flytur oss þann
boðskap, sem ávalt er kristnum sálum
fagnaðarefni, og staðfestir hið
gamla orö, að Jesús er meS oss alla
daga. Næstliðinn sunnudag kvöddum
vjer hiö gamla kirkjuár, og í dag
heilsum vjer hinu nýja. Og hiS fyrsta,
sem mætir oss á hinu nýja kirkjuári,
er h a n n, sem var með oss á hinu
gamla. Sannleikskonungurinn hefur
ekki yfirgefiS oss með gamla kirkju-
árinu, heldur hefur hann nú göngu
sina á meðal vor á nýjan leik, til þess
aS kalla oss til þegnrjettar í sann-
leikans eilífa ríki, þar sem hann sjálf-
ur er konungurinn og vinnur aS því
að veita oss dýrlegt frelsi guSs barna.
Og eins og hann heíur komið til vor
svo mörg, mörg umliSin kirkjuár,
eins kemur hann til vor nú, hógvær
og yfirlætislaus, því að svo er eSli
hans. Eins og sannleikurinn er ávalt
hógvær og yfirlætislaus, eins er sann-
leikans konungur. ÞaS á heima um
hann, sem þar stendur: „Ekki með
valdi og ekki með styrkleika, heldur
með anda mínum, segir drottinn her-
sveitanna.“ Sannleikans konungur
kemur sem friSarhöfSingi, ekki
aS cins af því, aö erindi hans er að
semja friS milli gttðs og einstaklings-
ins, heldur og af því, aS þau vopn,
sem hann beitir fyrir sig, eru friðar-
ins vopn, vopn orðsins og andans.
Hann kemur ekki, aS hætti heims-
drotnanna, til þess að láta þjóna sjer,
heldurtil þess aSveita öðrumþjónustu
sína og hjálpa þeim til viöurkenning-
ar sannleikans frá guöi, svo aS þeir í
honum geti öSlast hiS sanna og full-
komna frelsi, guSs barna frelsiö, og
um leiö oröið samverlcamenn hans t
sannleikans þjónustu bræðrum sínum
til heilla. MeS þessum hætti heíur
hann á öllum undangengnum árurn
nálgast oss með hverju nýju lcirkju-
ári, og þannig nálgast ltann oss líka
í dag, bjóSandi oss samfylgd sína á
brautum hins nýja kirkjuárs, því að
hann gerir aö rjettu ráð fyrir, að
vjerþurfum hennar ekki síöur nú við
en endranær, svo aö vjer getum í ró-
senti og trausti lagt út á brautir þess
og það orðiö oss í sannleika náðar-
* og blessunarár frá guSi. Og þá er
líka krafan til vor hin sarna og
hún hefur ávalt verið, sem sje sú, aS
vjer búuni oss undir aS taka rjettilega
á móti honuiTi, með því að gera dyrn-
ar breiSar og hliðiS hátt fyrir hann,
svo a^5 hann geti þess betur náð til
vor og unniS t hjörtum vorum það
hjálpræðisverk, sent hann vill vinna
þar sem sannleikans konungur oss
til frelsis. í öllu þessu tilliti er því
jtessi kirkjulegi nýársdagur í engu