Lögrétta - 02.03.1923, Side 4
LÖGRJETTA
þtim þyngri í skauti en Grikkir.
Ilinsvegar er aðstaða Tyrkja
vestan sundanna þannig ná, að
eí' Tyrkir vildu hefjast lianda
gegn her Breta í Konstantínópel
þá er sennilegt að enska setu-
liðinu yrði hætta búín. Því
Tyrkir hafa 20,000 manns undir
vopnum í Konstantínópel og
80.000 þúsund í Þrakíu. Bnski
herinn er ekki nema brot af
þessu og þó að Bretar segi, að
hann sje meira einvalalið, en
nokkurntíma hafi verið saman
komið undir enskum fána, þá er
það í mikilli hættu, ef Tyrkir
grípa til vopna.
ÞjóQuerjar ag Rússar.
Margir hafa óttast, að aðfarir
Frakka í Ruhr-hjeraðinu mundu
draga þann dilk á eftir sjer, að
Þjóðverjar leituðu á náðir Rússa
og að þessar tvær þjóðir samein-
uðust síðan gegn Frökkum. Og
meðai almennings í Þýskalandi
hefir það verið útbreidd skoðun,
síðan Prakkar rjeðust inn í Ruhr
hjeraðið, að Rússar mundu bráð-
lega skerast í leikinn.
„Times“ segir nýlega frá áliti
rússnesks liðsforingja, sem einu
smni var í her Denikins, en nú
er í þjónustu rússnesku stjórnar-
innar, á því hvort Rússar geti
veitt Þjóðvérjum hjálp. Hafa
þýskir hermálafræðingar spurt
hanu álits og í samvinnu við hann
gert áætlun um rússneska innrás
í Vestur-Evrópu, yfir Pólland og
nýju Eystrasaltsríkin. Var hann
þeirrar skoðunar, að rússneski
herinn gæti látið til sín taka í
Vfestur-Evrópu.
Þá voru þýskir hermálafræðing
ar sendir til Rússlands, til þess
að kynna sjer nánar ástandið í
hernum. En þegar þeir komu aft-
ur úr þeirri för, var annað hljóð
komið í strokkinn. Segja þeir, að
rauði herinn sje algerlega óhæfur
til að heyja sóknarstyrjöld utan
landamæra Rússlands. Hann sje
ekki aðeins illa útbúinn, en and-
inn sem þar ráði sje þannig, að
óvíst væri hvort stjórnin gæti
treyst honum í styrjöld í öðrum
li'ndum. Bolshevikkar sjeu enn
færir um að hafa stjórn á hern-
um, og fyrir aðstoð hersins á
þjóðinni heima fyrir. En hins
vegar segi frásagnir, sem treysta
megi, að með tilliti til ástands-
ins sem er í Rússlandi, muni það
vera mjög ólíklegt, að stjórnin
vilji leggja sig í þá hættu, er
henni gæti stafað af því, að far-
ið yrði að senda stórkostlegan
rússneskan herafla til annara
ríkja.
Erl. sfmfregnit
Khöfn 26. febr.
Ruhr-málin.
Símað er frá“Köln, að Frakkar
hafi gert upptæk 13 miljard mörk,
í hraðlestinni milli Berlíri og’ Köln.
Átti fje þetta að ganga til styrk
greiðslu handa verkamönnum i
Ruhr-hjeraði.
Sá orðrómnr gengur í París,
að Þjóðverjar hafi beðið utan-
ríkisráðherra Hollendinga að
skerast í Ruhr-málin.
Járnbrautirnar í Ruhr hafa nú
verið settar undir borgaralega
stjórn franskra og beigískra em-
bættismanna.
Símað er frá London, að
franska stjórnin hafi látið Hol-
lendinga bera Þjóðverjum upp-
ástungu um að reyna að semja
um skaðabótamálin.
Iflfig íPáJttMa.
Stjórn Islandsbanka óskar þess
getið, að bankinn hafi ekki átt
neinn þáÚ í því, að borið hefir
verið fram í neðri deild alþingis
frumvarp til laga um heimild til
gjaldeyrislántöku. En jafnframt
óskar bankastjómin að taka það
fram, að hún hefir ennþá ekki
tekið afstöðu til fyrgreinds frum-
varps, enda ekki haft neitt til-
efni til þess.
Dagbók.
26. febrúar.
Fáheyrt slys vildi til hjer á höfn-
i^ni í fyrri nótt. Vjelbáturinn Sverrir
rá ísafirði, eign Karls og Jóhanns,
'.ofði verið bnndinn við efra horn
austur-uppfyllingarinnar á þeim tíma
er hásjávað var. En er tók að falla
úl, stóð báturinn að framan á undir-
stöðu hafnarbakkans, er stendur -þar
óeðlilega langt fram, en landfestin
að aftan hjelt ekki þunga bátsins,
þegar sjólaust var orðið undir hon-
um, og slitnaði, en þá valt báturinn
á hliðina, fyltist af sjó á augabragði
o[ sökk. — Á þilfari bátsins voru
hásetar að vinnu við beitingu, að
undanteknum vjelamanni, er svaf. —
Fjekk hann ekki bjargað sjer undan
þiljum og druknaði. Hann hjet Jón
J ónsson og var úr Bolungarvík,
kvæntur maður og læáur eftir sig
mörg börn. Er þetta umhugsunarvert
slys. — G-eir náði bátnum upp í gær.
27. febr.
Uppboð var haldið á Skildi í gær.
Liggur hann nú brotinn mjög við
bæjarbryggjuna, eftir ofviðrið í jan-
úar. Hæsta boðið sem kom í skipið
var 1000 krónur, og var frá Run-
ólfi Ólafssyni frá Mýrarhúsum, —
Uppboðshaldari áskildi átta daga
frest fyrir eigendanna höndr til þess
að ákveða hvort boðinu yrði tekið
eða ekki. Skjöldur er nú orðinn nær
70 ára gamall, en fjekk gagngerða
viðgerð fyrir fáum árum.
Ólafur Proppé álþingismaður lagð-
ist á Landakotsspítala á sunnudaginn
var til uppákurðar. , Verður hann
skorinn upp í dag.
Hlutabrjef íslandsbanka eru ui
seld í Danmörku á kr. 50. Hafa þau
hækkað í verði síðustu vikurnar —
voru síðast er frjettist seld og keypt
fyrir 42 kr.
Verslunarólagið. Lögrjettu er skrif-
að af Vestfjörðum: „Seigur er Björn
Kristjánsson að þæfa „Tíma-klíkuna“
og það er víst að engir, sem til
þekkja, trúa því, að honum gangi
annað en gott eitt til að' skrifa
um verslunarmálin og að hann geri
það af innilegri sannfæringu, enda
munu nú margir vera farnir að
sjá að S. í. S. er, eins og það nú
er rekið, til hinnar mestu óþurftar
heilbrigðu kaupfjelagslífi.
28. febr.
Tíminn er gramur yfir því, að Mbl.
taldi ekki frásögn hans um grein
J. H. biskups um sjera Matthías
Joehumsson, sem staðið hefir hjer
i blaðinu, sannleikanum samkvæma.
En þótt ekkert sje rangfært, sem
upp úr greininni var tekið í Tím-
ann, þá gefur þó frásögn hans mjög
svo villandi hugmynd um greinina
í heild, eins og allir geta nú sjeð,
sem bera vilja þetta saman. Með
söniu aðferð og Tíminn notar þama
mætti t. d. segja, að J. J. teldi í
síðasta tbl. Tímans Hallgr. heitinn
Kristinsson hafa verið lítið gáfaðan
mann, ón þá umsögn teldi Mbl. samt
sem áður fjarri lagi. — Tíminn
ætti sem minst að tala um aðfenginn
„skít í hreiðrum“, því flestir vita
það, og þeir best, sem þekkja Tr.
p. persónulega, hvar mest er af
honum að finna.
Afburða góð tíð hefir verið norð-
anlands undanfarið, að því er sagt
var í símtali frá Akureyri í gær.
Dálítill þorsk- og síldarafli hefir
verið á Akureyrarpolli undanfarið,
segir í sömu fregn.
Landsmálaf jelag er nýstofnað á
Akureyri, er „Verðandi“ heitir, og
skipa stjórn þess, Sigurður E. Hlíðar
formaður, Karl Nikulásson kaupm.
og Guðmundur Bergsson póstm. —
Stefna þess er sögð yera lík lands-
málafjelagsins „Stefnis“ hjer.
1. mars.
Sigurður Sigurðsson, forseti Bún-
aðarfjelags íslands kom hingað í
fyrradag með Sirius úr ferðalagi
um Norðurland.
Sigurjón Pjetursson kom heim úr
utanför í fyrradag með togaranum
Walpole.
Sambandið milli Tímans og bolsje-
vikanna hjer er að verða augljósara
0£: augljósara. Á mánudaginn skýrir
Alþ.bl. frá því, að Árni frá Höfða-
hólum hafi haldið fyrirlestur á Eyr-
arbakka og deilt á Tímaklíkuna. Er
það jafnreitt yfir þessu eins og hirt-
ingin hefði komið niður á sjálfu
því. pað er svo heimskt, litla greyið,
að það veit ekki, að vinir þess í Tíma-
klíkunni verða enn að afneita fje-
lagsskapnum við það til þess að
halda vináttu ýmsra stuðningsmanna
sinna úti um land, sem þykir skömm
tii þess fjelagsskapar koma.
Ár 1923, miðvikudaginn 31. jan-
úar var stjórnmálafundur, að til-
hlutun Fundafjelags Húsavíkur,
haldinn í barnaskólahúsinu á
Húsavík.
Formaður Fundafjelagsins, Páll
Einarsson kaupmaður, setti fund-
inn og stakk upp á Sig. Bjarklind
kyupfjelagsstj. sem fundarstjóra,
en hann tilnefndi þá Pjetur Sig-
fússon og Pál Einarsson sem rit-
ara.
Frá stjórn Fundafjelagsins kom
fram svohljóðandi tillaga:
„Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir því, að þingmaður kjördæm-
isins hefir látið nndir höfuð leggj-
ast að halda þingmálafund á Húsa
vik með kjósendum í Húsavíkur
og Tjörneshreppum, og væntir
þess, að slíkt komi ekki fyrir
af tur‘ ‘.
Var tillaga þessi samþykt með
þona atkvæða.
í sparnaðarmáli voru svohljóð-
andi tillögur samþyktar með öll-
um greiddum atkvæðum: „Umleið
og fundurinn telur lítt gerlegt að
hækka ríkissjóðstekjurnar með toll
um og sköttum frá því, sem nú
er komið, væntir fundurinn þess,
að Alþingi gæti ítrasta sparnaðar
í fjárveitingum og sk'li tekju-
hallalausum fjárlögum“.
„Fundurinn telur frumvörp
stjórnarinnar um afnám og fækk-
un nokkurra embætta ekki koma
að tilætluðum notum til sparnað-
ar, en er hins vegar eindregið
ilwaða sápu á Jeg ail nnota?
Fedora-sápan hefir til að bera alla þfe.
eiginleika, sem eiga að einkenna fyllilega
milda og góöa handsápu, og hin mýkjandi
og sótthreinsandi áhrif hennar hafa sann-
ast að vera óbrigðult fegurðarmeðal fyrir
húðina, og varnar lýtum, eins og blettum,
hrukkum dg roða í húðinni. í stað þessa.
verSur húðin við notkun Fedora-sápunnar
hvít og mjúk, hin óþægilega tilfinpiug þess,,
að húðin skrælni, sem stundum kemur vi®
notkun annara sáputegunda, kemur alls ekkr
fram við notkun þessarar sápu.
Aðalumboðsmenn:
E. KJARTANSSON & C o.
Reykjavík. Sími 1266.
meðmæltur því, að nú þegar sje
fækkað sýslunar. og starfsmönn-
um ríkisins, einkum í Reykjavík,
og hinn mikli skrifstofukostnað-
ur þar stórum minkaður. Einnig
felst fundurinn á, að Alþingi sje
einungis haldið annað hvort ár
og hinn gífurlegi Alþingiskostn-
aður lækkaður svo sem föng enu
á. Sömuleiðis sje löggildingar-
stofan fyrir mæli og vog lögð
niður, en lögreglustjórum sje fal-
ið að hafa eftirlit með mælitækj-
um verslana, og reksturskostnað-
ur Hagstofunnar sje færður niður
um alt að helmingi, þar sem skýrsl
ur þaðan virðast engan veginn
koma að fullu gagni“.
f skattamálum voru samþyktar
tvær t’llögur, í einu hljóði; svo-
hljóðandi: „Fundurinn er eindreg
ið mótfallinn hækkun húsaskatts-
ins í frumvarpi stjórnarinnar, en
telur hlutfall það, sem er í nú-
gildandi lögum milli húsaskatts
og skatta af löndum (jörðum)
rjett og sanngjarnt".
„Fundurinn telur mjög var-
hugavert. að breyta að nokkru
marki tekju- og' eignaskattslög-
unum, þar sem lagabálkur þessi
er enn lítt reyndur“.
1 vínsölumálinu var samþykt
svohljóðandi tillaga:
„Fundurinn er því algerlega
mótfallinn, að vínsölustaðir sjeu
reknir á kostnað ríkisins, og skor-
ar á Alþingi að hlutast til um,
að slíkir sölustaðir sjeu sem fyrst
lagðir niður. Heldur ekki sje lyf-
sölum veittur einkarjettur til vín-
sölu. Sje vínsala talin nauðsyn-
leg vegna Spánverja, þá sje hverj-
um lögráða manni heimilaö að
panta spánarvín, undir eft rliti og
umsjón hlutaðeigandi lögreglu-
stjóra og ríkisstjórnar, en áfengis-
innkaup ríkisins lögð niður“.
1 skólamálum var svofeld til-
laga samþykt með öllum greidd-
um atkvæðum: „Fundurinn er því
meðmæltur, að Alþingi veiti, þeg-
ar fjárhagur ríkisins batnar, styrk
til alþýðuskó.a í Þingeyjarsýslu.
Fundurinn telur ekki fært, sök-
um fjárkreppu og dýrtíðar, að
komandi' Alþingi leggi fram fje
úr ríkissjóði til styrktar nýjum
skólum eða nýjuin skólabygging-
um og væntir þess, að styrkur
úr ríkissjóði meðan verið er, að
koma fjárhagnum í rjett horf,
sje einungis veittur til eflingar
fíamleiðslunni t:l lands og sjáv-
ar og til líknarstofnana“.
í sveitfestismálum var svohljóð-
andi tillaga samþykt með öllum
greiddum atkvæðum: „Fundurinn
er mótfallinn tillögu stjórnarinn-
ar um 5 ára sveitfesti. Gömul
reynsla hefir sýnt, að svo stutt-
ur sveitfestistími veldur meiri
deilum og ruglingi og bakar
fareppsnefndum mjög aukin störf,
Fyrin njómabú»
Gerber’s mjólkurmælar,
mjólkurpípettur,
sýrupípettur,
alkholpípettur,
Mjólkurprufuglös.
Mjög ódýrt í stsérri kauþum.
Sportvöruhús Re/kjavíkur
Bnkastr.il. Símn. Sportvöruhúsið;
Þökk
til M. Pjeturssonar bæjarlæknis.
Jeg get ekki látiS vera, að geta.
þess opinberlega, sem er í fylsta
samræmi viö eftirgjafir og ívilnanir
Magnúsar læknis við efnalitla sjúk-
linga, sem leituðu hans í Stranda-
sýslu, að hann veitti mjer fæði,
húsnæði og alla aðhlynningu nú í
tvo undanfarna mánuði, meðan jeg
dvaldi hjer til lækninga, og var það
gert á líkan hátt og jeg heföi vcrið
nákomiö skyldmenni þeirra hjóna,
sem þó ekki er; og nú þegar jeg er
að fara hjeðan heim, vildu þau
hjónin enga borgun þyggja. Fyrir
þetta er mjer ljúft og skylt að
þakka þeim góöu hjónum, og óska.
þeim allrar blessunar í framtíðinni.
Pt. Reykjavík, 19. febr. 1923.
A&alsteinn Halldórsson
frá Heydalsá.
enda yrði þá, að breyta fátækra-
lögunum á þann hátt, að sveitar-
og bæjarstjórnum sje gefið vald
til þess, að neita mönnum um
aðsetursleyfi“.
í vegamúlum var samþykt svo-
hljóðandi till., með öllum greidd-
um atkvæðum: „Fundurinn skorar
á Alþingi, að taka leiðina frá
Fossvöllum um Jökulsárhlíð og
Hellisheiði til Vopnafjarðar og
póstleiðina þaðan til Húsavíkur
og þaðan sýsluveginn að Breiðu-
mýri í tölu þjóðvega“.
í málinu stjórnin gagnvart
hæstarjetti, var samþykt svofalj.
tillaga með öllum greiddum at-
kvæðum: „Fundurinn skorar á
komandi Alþing að taka strax
til ítarlegrar rannsóknar fram-
komu stjórnarinnar, einkum for-
sætisráðherra, gagnvart hæsta-
rjetti í sakamálin-u gegn Ólafi
Friðrikssyni'1.
Fleiri tillögur ekki samþyktar.
Sig. Bjarklind, fundarstjóri.
Pjetur Sigfússon. Páll Einarsson.
fundarritarar.
Inflúensu-gerillinn fundinn.
Snemma í febrúar var sagt frá
því í erlendum blöðum, að tveim-
ur ameríkönskum læknum hafi
tekist að finna sóttkveikju þá, er
veldur inflúensunni.