19. júní - 01.07.1922, Blaðsíða 2
2
19. JÚNÍ
þá hugsjón fyrir augum, að góður
og starfhæfur fulltrúi er þjóðinni eins
mikils virði — þó flokksleysingi sé —
eins og sá, sem bundinn er í báða
skó af tilliti til flokkshagsmuna.
Um leið og »19. júní«, í nafni
fjölda kjósenda um land alt óskar
hinum nýja þingfulitrúa allra heilla
og blessunar á hinu nýja starfssviði,
vill blaðið einnig minna ykkur, alla
þá er C-listann kusu, en þó sérílagi
kvenkjósendur, á, að einnig fyrir oss,
óbreyttu liðsmennina, er nýtt og þýð-
ingarmikið starf fyrir hendi. Minna
ykkur á orð, er nafnkend finsk kona,
sem reynslu hefir af margra ára þing-
setu, sagði eitt sinn: »Ef hagnýta á
rétt þann, er konnr unnu, er þær
fengu pólitískt jafnrétti, þörfnumst
vér öfiugra pólitískra samtaka«. 8.
júli síðastliðinn genguð þér að kjör-
borðinu og greidduð, í fyrsta sinni
á æfinni, konu atkvæði til þingsetu.
Margar konur lögðu hart á sig til
að geta ferðast á kjörstaðinn — því
enn eiga konur ekki jafn heiman-
gengt og bændur þeirra. Viljið þér
nú skilja við verk sem aðeins er
hafið.
Nei, vissulegá ekki. Margar konur
fundu það fyrst nú, er þær fóru að
vekja áhuga á kosningunni meðal
nágranna sinna, hve svefninn og
deyfðin liggur þungt á hugum margra
í fámennum, afskektum sveitum —
og í fjölmenninu víða líka.
Látið vakninguna, sem fór yfir nú
í vor lifa lengur en fram yfir kosn-
inguna. Blásið lífi í litla neistann og
haldið áfram að kveikja hanu hjá
þeim, er enn þá sofa. Þá verðum vér
íslenskir kvenkjósendur betur búnir
undir næsta róður. því ef vér konur
eigum að koma einhverju góðu lil
leiðar, þurfum vér fyrst og fremst að
vera samtaka. Pað er skylda vor
gagnvart sjálfum oss, sem borgurum
í landi voru, og þær konur, er vér
kjósum, sem fulltrúa vora, hvort
heldur er á æðsta þing þjóðarinnar,
eða til annara trúnaðarstarfa, eiga
heimting á, að vita sig studdar í
starfi sínu af áhuga og samúð kjós-
enda sinna.
Aðalfundur
Bandalags kvenna.
Fundurinn var haldinn 27.—28.
júní og mætlu á honum fulllrúar
allra félaga í Bandalaginu, nema
tveggja, auk þess nokkrir geslir.
Forseti setti fundinn, gat þess að
honum hefði verið frestað vegna fjar-
veru varaforseta, er sótt hefði stjórn-
arfund Alþjóðabandalags kvenna i
Hollandi, en nú væri komin heim og
mundi síðar á fundinum skýra frá
ferð sinni. Síðan flutti forseti ávarp
til fundarins. (Er það prenlað á öðr-
um stað hér í blaðinu). Var síðan
gengið til dagskrár.
I. Upptaka nýrra félaga. í Banda-
lagið gekk kventélagið »Gefn« í
Gerðahreppi og var það boðið hjart-
anlega velkomið.
II. Skýrslur. Frestað til næsta dags.
III. Reikningar lagðir fram til sam-
þyktar. Ekkert við þá að athuga.