19. júní - 01.07.1922, Qupperneq 8
8
19. JÖNÍ
Til kaupenda »19. júní«.
Tvær ástæður eru til þess að »19. júní«
kemur að þessu sinni alllöngu eftir áætl-
un. Önnur er sú, að ritstjórinn tók sér
sumarfrí — og vegna þess varð blaðið
að gera slíkt hið sama. Og það fór svo
að (lvölin í sveitinni varð lengri en upj)-
liaílega var ætlað.
Veðrið hvern daginn öðrum betra —
hreina loftið, sólskinið, í stuttu máli,
sveitin, með öllum sinum sumargæðum
— varð yíirsterkari, í hvert sinn, er rödd
skyldunnar dyrfðist að minna á prent-
smiðju, póstferðir og því um líkt.
Hin ástæðan er því miður annars eðlis.
Fjárhagur blaðsins er nú svo þröngur,
að vafasamt er, hvort gerlegt er að auka
skuldirnar. Var þó ætlunin að gefast ekki
upp fyr en í fulla hnefana, en margan
stærri kappa hefir dýrtíðin að velli lagt
og mörgum þeim, er á traustari fjár-
hagsgrundvelii hafa staðið heflr hún af
fótum komið.
Kaupendum blaðsins heflr eigi fjölgað
að sama skapi og útgáfukostnaður þess
liefir aukist, en verð þess eigi hækkað
frá því, er það var sett upphaflega. Auk
þess er, því miður, skilvísi kaupendanna
eigi jafngóð síðustu árin og þeim fjölgar
sem »gleyma«. að borga þessa litlu upp-
hæð, sem blaðið kostar. Alt þetta heflr
svo orðið til þess að kom fjárhag blaðs-
ins í mesta öngþveiti. Eru því nú þrír
kostir fyrir hendi, og enginn góður: að
blaðið hætti að koma út, að hækka verð
þess, eða að fækka tölublöðunum í bili.
Af þessum kostum höfum vér hugsað áð
velja þann minst vonda — þann, að
minka blaðið eitthvað þetta árið. Pað er
undir kaupendunum kornið, hve mikil
brögð verða að þessu. Helst hefðum vér
kosið að þurfa ekki að grípa til þess ör-
þrifaráðs. Vonum að kaupendur séu sama
sinnis og gerí sitt til að afstýra því. Blað-
ið biður ekki um gjaflr, mælist að eins
lil skilsemi. Athugið hvort þér eigið ekki
ógreidd gjöld til þess. Máske aðeins fyrir
síðasta árgang, en ef til vill fyrir fleiri
Brynjúlfur Björnsson
tannlæknir.
Hverfisgötu 14. Reykjavík.
Framkvæmir öll tannlæknisverk.
Býr til gerfitennur af öllum gerðum.
og dragið ekki að greiða þessa litlu skuld.
Pað munar yður engu, en tilvera blaðs-
ins er komin undir skilvísi yðar við það.
Hún getur borið það yfir torfærurnar.
»19. júní« er sem stendur eina kvenna-
blaðið okkar. Varla er oss vanþörf á að
eiga eitt lítið blað, einn sameiginlegan
samkomustað, þar sem vér getum mætt
með áhugamál vor, ef einhver eru. Hlynn-
ið því að »19. júní«, meðan eigi er betra
blaðs vöi, bæði með því að rita í blaðið,
kaupa pað og borga.
Vinum blaðsins, sem verið hafa góðir
og áreiðanlegir viðskiftamenn, þakkar
það viðskiftin á liðnu ári og vonar að
njóta veivildar þeirra framvegis — oft
var þörf en nú er nauðsyn.
Veg'iin þoss að nokkrir kaujiendur iilaðs-
ins hafa eigi gert því nein skil um lengri
tíma, er þess hér með óskað, að þeir
vildu sem fyrst borga skuld sina til blaðs-
ins, og um leið gera aðvart ef þeir cígi
óska að halda blaðið lengur.
Afgreiðslan er í Bröttugötu 6 (uppi),
Nýir kaupeinlnr þessa árgangs »19. júni«
geta fengið það sem út komið er af blað-
inu (5 árganga) ásamt þessum árgangi ef
þeir senda andvirðið, 10 kr., með pöntun.
Verð blaðsins er kr. 3,00 árgangurinn.
Mælið með blaðinu við nágranna yðar
og kunningja.
Úthreiðið »19. júní«.
Ritstjóri: Inga L. Lárusilóttir.
Prentsmiðjan Gutenberg.