Óðinn - 01.09.1905, Qupperneq 6

Óðinn - 01.09.1905, Qupperneq 6
46 ÓÐINN. pjer á verði fyrir pessa mikilvœgu atvinnugrein jafnt um nœtur sem daga, og árángurinn varð svo glœsilegur að fnrðu gegndi. Fiskimenn vorir hafa haft óvenjulega gott nœði til að stunda atvinnu sína, og óhœtt er að fullgrða, að peir hafa púsundum saman árnað gður góðs fgrir skgldurœkni gðar og dugnað. Pað var oss mikið sorgarefni, er vjer urðum pess á- skgnja, að pjer hefðuð sjeð gður tilnegddan sakir heilsu- brests að láta af stjórn varðskipsins, og pað pví fremur, sem vjer pykjumst vita, að ósjerhlífni gðar við starfið hafi með öðru verið orsök til vanheilsa gðar. Vjer undirritaðir alpingismenn legfum oss pví enn á ng að votta gður, herra kapteinn, alúðarpakkir fgrir allt, sem pjer hafið unnið og starfað fgrir ísland, fgrir panti hlgja vinarhug, sem pjer berið til landsins, og áhuga gð- aráheillpess og framförum, og ekkisist fgrir Ijúfmennsku gðar við alla pá, sem nokkur kgnni hafa af gður haft. Jafnframt óskum vjer pess af alhuga, að gður megi auðnast að ná aflur fullri heilsu og árnum gður og ást- vinum gðar allra heilla og blessunar á ókomnum árum. „Íslandsvísur“ eftir (jHðm, Mapússon, i. I}að liafa við og við sjest athugasemdir um kveðskap G. M. í blöðunum; fyrsta kaslið báru blöðin talsvert Iof á kvæðin, eða lögðu skáldinu að minnsta kosti líknaryrði, auðsjáanlega til þess að slökkva ekki þennan guðdómsneista í fæðingunni. Nú er eins og Guðmundur sje hættur að vera uppi á teningunum; gröfin er að síga saman yfir þessum lárberjum, sem hann komst yíir fyrir til- styrk hjartagóðra manna. Mjer kom þetta ekki á óvarl að svona færi, og síst er jeg hafði lesið »íslandsvísurnar«, sem áttu að heita úrvalið, eða það allra besta af því besta. Skáldið hefur verið svo vinsamlegt að bjóða mönnum bókina fyrir 10 — tíu — krónur, meðan upplagið endist, og jeg skal ekki neita því, að hjart- að í mjer hoppaði þegar mjer auðnaðist að fá bókina — auðvitað að láni, því það eru ekki all- ir, sem detta í »landssjóðsins lukkupott« og hafa peningaráð í svo stórum stíl. Jeg sje á »Ingólíi« að G. M. þykir ritdómend- urnir vera slæmir við sig; jeg trúi Jóni Ólafssyni svo sem til þess, en jeg vona að einginn saki mig um það (skáldsins vegna) að jeg »Ieggist á náinn« þótt jeg geri vísurnar að umtalsefni; jeg veit að skáldið lætur mig njóta þess, að jeg hef þó lesið bókina. Fyrstu ljóðmæli Guðmundar, æskusyndirnar, voru ekki stærri, en satt að segja eingan veginn smærri, en flestra annara byrjenda. Það var fálm, sem gerði hvorki til nje frá;íþví fálust eingin »ó- efnd Ioforð« á samvisku skáldsins. Svo Guðmund- ur hefur því ekki svikið neinn með »lslandsvís- unum«. Ytri frágángur bókarinnar, eða pappír og prentun er hvorutveggja ágætt. Kvæðunum fylgja myndir, eða »vignettur«, eptir Þórarinn Þorláksson. þeim er með öllu ofaukið. Kvæðin eru ekki svo djúpsæ að fyrir þá sök þurfi skýringa, og sem sjálfstæð list eru myndirnar einskisvirði, sumar hræðilegar. Myndin af Reykjavík er gerð í sama stíl og jarðfræðismyndir Thóroddsens eða Helga Pjeturssonar! »I)raumlandið« er snotur mvnd og hefði að ósekju mátt standa á kápunni. — Eins og títt er um stórskáld heimsins legg- ur Guðmundur einga dul á það, að hann finnur hjá sjer köllun, og hana svo mikla, að lesandinn er á nálum með það, hvort skáldið muni geta fleytt henni til lands á þessum kríjuvængjum, sem hann leggur upp með. »Óðinn« hefur eðlilega ekki rúm til þess að flytja heil kvæði þessu til sönnunar, og síst þessi kvæði; en svo menn sjái skáldsins orð, verð jeg að tilfæra 3 vísuorð úr »Varða« : »En nafn mitt' vil jeg sje til himins hafið og höggvið djúpt á einhvern fastan stað, svo allir megi eptirtekt því veita, sem upp i pessar hœðir vilja leita«! Svo mörg eru þessi orð; þau tala sinu máli svo það er óþarfi að bæta nokkru við. í kvæðinu »Þing« heldur skáldið áfram í sömu tóntegund; skáldið getur þess, að nú þurfi ekki leingur »útlenda snillingaa til þess að mála eða mynda landvættirnar. Það er nóg að íslensku snillingarnir geri það, og lesandinn mun fara nær um það, hverjum Guðmundi muni þykja tiltæki- legast að fela þann vanda. Um rjettmæti þessarar mikillætisbrjálunar, sem leggur eins og illan þef fvrir vit lesandans frá hverju blaði í bókinni, má segja með kerlingunni: Fyr má nú vera grátl í rót! Sigurður Sigurðsson. ’) Leturbreytingin gerð af höl'undinum sjálfum.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.