Reykjavík - 29.06.1900, Blaðsíða 2

Reykjavík - 29.06.1900, Blaðsíða 2
38 Gestlr. Margt manna á ferð um þessar mundir: anítsráðsmennirnir Guðl. Guðmundsson sýslum., séra Magn- ús Holgason Torfast., séra Skúli Skúlason Odda, próf. Guðm. Helga- son. Prestastefnan á að haldast í dag, og er hér því margt presta, auk þeirra sem áður eru taldir: Magnús Bjarnarson Prestsbakka, Olafur Olafsson Arnarbæli, Arnór Þorláksson Hesti, Eggert Pálsson Breiðabólsstað, Ólafur Magnússon Sandfelli, Brynjólfur Jónsson Ólafs- Yöllum, Jón Sveinsson á Akranesi. Geíin saman í hjónaband af pró- fasti, 23. þ. m., Björn Guðbrands- son bókbindari og Jensína Jensdótt- ir frá Hóii í Hvamssveit. . Dánlr í Heykjavíkursókn. 12. Júní: Oddur Björnsson, barn í Móakoti (6 ára). 14.: Ásgrímur GísJason steinsmið. í Hallskoti (45). 15.: Guðrún Pétursdóttir, ekkja í Engey (82). 24.: Ingibjörg Eiríks- dóttir Briem (25). 28.: Markús F. Bjarnason skólastj. (50). Við spegilinn. II. Rósa. Lag: Höfðiugjasiðina höfum við. Hann bað mín um daginn hann Björn á HóJ, og -bauð. að gefa mér silkikjól og aJls konai- léreft svo undrafín, — sem afbragð væru’ í rikkilín — og silfurbelti’ og sumarskó og sélegt albúm frá Jóni Ó, og ótal slipsi’ og eikarskrín, ef yrði ég konan sín. Hann Bjössi! hann Bjössi! Ó, hann var svo skotinn, ég hrædd- ist að sjá, hann Bjössi! hann Bjössi! því hvíslaði’ eg að honum: „Já!“ Og oft hef óg gert margt axarskaft, en ekkert með slíkum töfrakraft, því óðar en fór hann að átta sig hann ætlaði bara að éta mig; hann sagði ég væri svo sæt og góð já sætari’ en kaka steikt á glóð, og svo gaf ég honum einn sætan koss, — og sælan var þá yfir oss. Ó, Bjössi! ó, Bjössi! Nú ertu’ að verða engillinn minn! Ó, Bjössi! ó, Bjössi! því engan ég indælli flnn. Pó fyr sá ég margan svo fríðan sem hann og fult eins í vexti sélegan, og áður til sumra’ eg augum leit einshýrtogBjössa, þaðdrottinn veit, og hjartað í mér það hreyfðist smátt þótt hvelfdi’ hann augum og styndi hátt, svo bráðnaðí’ eg þó eins og bezta smér, er Búahatt keypti hann sér Ó, Bjössi! ó, Bjössi! Að fegursti engill þú orðinn ert nú ó, Bjössi! ó, Bjössi! það Asgeiri þakka mát.t þú. Og honum við bjóðum í brúðkaupíð, ; en bregðum ei út af manna sið, að haldaveizlu meðdrykkju’ ogdans, við drögum þá til okkar fjölda manns, og þá verður margur á aururn ör, við eignumst þá hnífa’ og bollapör og annað sem vantar í okkar bú — og ég verð þá kölluð frú\ Ó, Bjössi! ó, Bjössi! Svona hoppum við bæði’ inn í hjónaband, ó, Bjössi! ó, Bjössi! í himinsælunnar land! Plausor. Lækningabókin, Hjálp í viðlögum og Barnsfóstran, ómissandi bækur fyrir hvert heimili. Fást hjá Dr. JÓNASSEN. BÓKAYERZLUN f Cym un ósson ar hefir til sölu: Mikið af enskum skemtibókum, mjóg ódýrum. Allar í bandi. Talsverðar byrgðir af Panelpappa, sem er betri og ódýrari en menn hafa átt að venjast. Rúllan, sem klæðir rúmar 100 □ alnir, kostar að eins kr. 6,50. Með „Laura“ í Júlí kemur mikið úrval af „Tapet-pappír.“ Munstrin einkar smekkleg og pap- pírinn bæði góður og ódýr. Sýnishorn af honum liggjadrammi. Gegn mánaðarafborgun fást til- búin karlmannsföt eftir samkomu- lagi hjá jjndérseq. Beizlisstnngir og Svipur af ýmsri stærð, úr látúni og nýsilfri, Tóbaksbaukar, og aðgerð á ýmsu þess- konar og fleiru, fæst hjá ÁSGEIR MÖLLER, Ingólfsstr. 14. jT~~ Bréfapappír og umslög m e ð Sorgar-rönd. Askjameð 18 bréfsefnum 45 au. Jón Ólafss on, Ingólfstr. 6. Allar málaravörur og JÁRNVÖRUR er bezt að kaupa í verzlun c3. (Jl. (Jjjarnascn. ÓDÝRUST FATAEFNI fá menn með því að láta SVEIN ÁRNASON Fischerssundi I panta þau eftir sýnishornum, er hann heflr af þeiin. Fyrirfram þarf eigi að greiða nema lítinn hluta af andvirðinu. Kona hans tekur á móti pöntunum þegar hann er ekki heima. SAUMASTOFAN 14 BANKASTRÆTI 14 selur inönnum mjög ódýrt. Sauma- laun og alt sem til fata heyrir hvergi ódýrara. Mikið úrval af fallegum og ódýr- um fataefnum. Mjög fljót afgreiðsla eftir óskum. Nú seljast, tilbúin föt mjög niður- settu verði hjá mjer. Skoðið þau áður en þið kaupið önnur. Virðingaifylst. GUÐM. SIGURÐSSON, KLÆÐSKERI. _Til_leigu frá 1. Október 3—4 rúmgóð lierbergi, eldliús og geymslupláss, í húsi Steingr. Guðmundssonar snlkkara Laugaveg 23. SKOZKU LJÁBLÖÐIN eru lang-ódýrust í verzlun B. H. Bjarnason. Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst ókeypis 'hjá ritstjórunum og hjá dr. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem viija tryggja lif sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. nrri koma út þ. 1. og 15- l iCCiAUIii - hverjum mánuði. - Stuttar greinir og sögur, kristilega og siðferðilegs efnis, ýms fróðleikur, góður og gagnlegur fyrir alla. — Verðið er að eins 1 kr. 60 au. um árið. Útg. D. 0stlund, Reykjavík. Útg. og áb.m.: Porv. Þorvarðsson. Aldar-pre.ntsmiðjan. — Havík. Pappíxinn frá Jóni Ólafssyni.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.