Reykjavík - 22.07.1900, Qupperneq 1
j^.xra-irsrsirN'Gí-.A.- o<3- í’ebttablab.
14. tbl. 1. árg.
Árgangurinn (alt að 20—25 tbl.) kostar bér í bænum 25 au.,
en 50 au., ef sent or inrð póstum.
22. Júlí 1900.
ALT FÆST I THOMSENS BÚÐ.
frjD.frEjfrC?*' 7 *“ i*n*Á+jT4" i
ÓHEYRÐ AÐSÓK N
AÐ
SAUMASTOFUNNI í BANKASTRÆTI i4.
Þar fá menn saumalaun og allt er til fata heyrir
langódýr ast.
IVIíkið úrval af fataefnum.
Fjölbreyttir litir eftir nýjustu tízku.
Feir sem vilja fá sór falleg og ódýr föt, ættu að koma
J klæðskurðarbúð mína, áður en þeir kaupa annnarstaðar.
Komið, skoðíð og sannfcerist.
duðm. Sigurðsson, ldæðskeri.
J
í
i-3-»E3»!:3y:«LU-.ra»CX-J«t:a»C3y^r.3>.Lj<wtiyC7VC3«CÆ3»'C3»Cj.»S3»E3'>!:3«:jC3-»ra'»C
lil
<3 varzíun ^SilRjálms þorvalóssonar
6 Akranesl
eru ávalt nægar birgðir af margs konar vönduðum og ódýrum vörum,
nýjar vörusendingar koma með hverju póstskipi, flestar íslenzkar vörur
teknar og borgaðar hæsta verði.
Hvcrgi jafngóðar og' ódýrar vörur á Akranesi.
1
# SíullsmíÓi —- ^Crsmíói.
* 12 LAUGAVEG 12.
Hór með leyfi óg mér að tilkynna heiðruðum almenn-
ingi, að óg hefl. nú ílutt mig frá Sauðárkróki til Heykjavíkur #
(Laugaveg 12), og tek nú sem fyr að mér alls konar #
GmII- og Silfursmíði;
sömuleiðis tek ég að mér
Víðgerð á Úrum og Klukkum o. m. 11.
Pantanir úr Skagafjarðarsýslu má borga með innskrift
við allar verzlanirnar á Sauðárkróki til næsta nýárs.
Reykjavík (Laugaveg 12), 13. Júlí 1900.
<%j örn Símonarson
#
*
*
*
FOT fyrir mánaðarafborgun
HJA R. ANDERSON.
2T
_ „Reykjavík" kemur út á föstudögum, 2 eða 4
síður, eftir auglýsingaþörfinni, Auglýsingum só skllað
í Aldarprentsmiðju, helzt á Miðvikudðgum, en eigi
síðar en fyrir hádegi á Fimtudag,
C(r öœniim.
Bæjarstjórnarfundir.
19. Júlí 1900.
1. Nefndin, sem kosin var út
af beiðni Mr. Payne um leigu eða
kaup á veiðiréttinum fyrir Klepps-
landi, skýrði frá því, að Mr. Payne
mundi ekki vilja láta fyrir veiði-
róttinn það, sem bæjarstjórnin
óskaði helzt, nl. Bústaði, eða ann-
að en peninga, eins og beiðnin
hljóðaði, 150 kr. Sömu nefnd fal-
ið að íhuga til næsta fundar fram-
komið tilboð frá Bjarna snikkara
Jónssyni o. fl. um leigu á veiði-
réttinum, og gera tillögur um
málið.
2. Erindi frá sótara bæjarins
um 200 kr. launahækkun til að
launa aðstoðarmanni, og annað
erindi frá Jóni 6. Sigurðssyni bæj-
fógetaskrifara, þar sem hann býðst
til að taka að sór sótarastörfin
fyrir 100 kr. minni upphæð, en
sótarinn nú fer fram á að fá. Báð-
um erindunum vísað til bruna-
málanefndar til íhugunar.
3. Beiðni frá Jes Zimsen, Hann-
esi Thorarensen og Jóhannesi
Nordal um útmælingu á erfða-
festu, 1 dagsl., vestan við Melblett
nr. 2. Frestað til næsta fundar.
4. Brunabótavirðingar samþykt-
ar: Hús Árna Gislasofiar pósts á
Lækjarbakka við Laugaveg kr.
2544,00; hús bókavarðar Hallgríms
Melsteðs kr. 3425,00.
5. Bæjarstjórnin veitti alt að
800 kr. tíl kostnaðarvið heimsókn
danskra stúdenta hingað í næsta
mánuði.
6. Kosinn var varamaður í vega-
nefndina tii að gegna störfum í
fjærveru Sig. Thoroddsens: Jón
Jensson.
7. Ákveðið að fresta aðgerð á
rennu í Austurstræti fyrst um sinn
þetta árið, en til þess var áætlað
í vetur 1200 kr.
8. Til umbóta á girðingunni
kringum Austurvöll var ákveðið
að verja alt að 60 kr.
9. Ályktað að fara þess á leit
við landshöfðingja, að bærinn fengi
í vinnu verkfræðing landsins næsta
siunar til mælinga í bæjar þarflr.