Reykjavík - 22.07.1900, Síða 2

Reykjavík - 22.07.1900, Síða 2
44 Allir á fundi nema Pórhallúr Bjarnarson, Sig. Thoroddsen og Halldór Jónsson. „Fj.konan“ virðist ekki fljótt geta hætt sínum með öllu ástæðu- lausa áburði á hr. D. 0stlund. Þannig flytur hún hór um daginn grein með fyrirsögninni: „Úr bréf- um frá hr. 0stlund“, þar sem hún t. a. m. „skáldar upp“ ýmislegu, sem hann á að hafa ritað í ame- ríkanskt blað bæði um starf sitt hér á landi og ísland og íslend- inga. Rithætti „Fj.konunnar" í garð þessa manns er svo háttað, að það hlýtur að vekja viðbjóð hjá hverjum hugsandi manni. Út af þessari síðustu „Fj.konu"- grein heflr hr. 0. sent ritstjóra hennar nokkrar leiðréttingar, sem eru teknar hér upp orðréttar: „Herra ritstjóri „Fjallkonunnar"! Út af grein í „Fj.konunni“ nr. 27 þ. á. með fyrirsögninni: „Úr bréfum frá hr. 0stiund“ krefst ég hérmeð samkvæmt prentfrelsislög- imiítn að þér takið upp í 1. eða 2. tbl. blaðs yðar, sem kemur út éftir þennan dag, eftirfarandi leið- 'réttingar: Það er ekki satt, að cg hafí skrifað í neitt blað, að ég hefði hér 13 sálir í söfnuði. Ég liefi öldungis ckkcrt skrifaft uni það efni. Þangað til „Fj.konan “ færir fullgildar sannanir fyrir þessu, verður hún að bera ábyrgð á því sem hreinum og beinum ósannind- um. Nokkrir menn hér á landi fylgja trúarskoðunum adventista. Sumir þeirra eru búsettir hér í höfuð- staðnum, sumir annarstaðar. Og ég býst við, að þeir geti talað fyrir sjálfa sig, verði þeir aðspurðir. Um fjölskylduna, sem „Fj.konan" vill láta vera svo alveg óþekta, get ég gefið henni þær upplýsing- ar, að hún var hér í bænum frá því hún kom (26. nóv. 1897) og fram á sumar 1898; þá fór hún aftur til Ameríku. Húsbóndinn heitir Skapti Halldórsson. Ilvert orð, sem ég hefl skrifað um þessa fjölskyldu, eins og alt annað, sem ég hefi skrifað, veit ég ekki betur en að sé fullkomlcga satt. Sjöundadags-adventistar eigaekk- ert skylt við þær skírnarathafnir Mormóna, sem „Fj.konan" talar um að hafi „farið fram í forar- gryfjunum“ m. fl. orðum. Yér álítum þessa athöfn heilaga og trúum, að hún eigi að fara fram sem mest má verða. samkvæmt dæmi vors heilaga lausnara. En að menn, sem skrifa eins og höf. í „Fj.konunni“, séu ekki látnir vera viðstaddir við skirnarathafnir adventista, vona ég að sé almenn- ingi vel skiljanlegt. Að endingu segir höfundurinn í „Fj.konunni", að ég hafi „getið þess“ í blaði, að „sjónleikar Leik- félags Reykjavíkur séu mjög við- vaningslegir“. Þetta er heldur ekki satt. Leik- félag Reykjavíkur hofi ég ekki nefnt á nafn í neinu blaði. En á einum stað í blaðinu „Evangeliets Sendebud" (27. árg. 42. tbl., bls. 664) hefi ég vikið fám orðum að skemtunum á íslandi, og þar standa þessi orð, sem eru alt og sumt, er ég hefi skrifað um sjónleika: „Forlystelserne ere faa paa „Island. I Byeme har man i „den senere Tid faaet adskillig „Smag for Theatervæsen, skjont „der neppe kan være Tale om ,. „Kunst“ i Forbindelse dermed." Á íslenzku mundu þessi orð verða þannig: „Skemtanirnar eru fáar á ís- „landi. í kauptúnunum hafa „menn á seinni timum fengið „talsverðan srnekk fyrir sjón- „leikum, þótt varla geti verið „að tala um „list“ í sambandi „ við þá.“ Fleira gæti verið athugavert í þessari „Fj.konu“-grein. En ég er viss um að sönnunargildi hennar eftir þessum upplýsingum sé farið að rýrna svo mikið, að hún sé með öllu óskaðleg fyrir mig. Það danska blað, sem ég hefi ritað í, heitir „Evangeliets Sende- bud“; kemui- það út í Bandaríkj- unum. Allir, sem óska þess, geta hjá mér fengið að sjá og lesa það, sem í því blaði er frá mér. Rvík 17. júlí 1900. David 0stlund.“ Gest i r. Auk þeirra, er getið var í síð- asta blaði, komu með „Hólum“ Páll Ólafsson skáld með konu sinni og dóttur, og Þorl. hiæppstj. Jóns- son frá Hólmum í Reiðarfirði. Ýms- ir hafa og verið hér á ferðinni, svo sem séra Ófeigur Yigfússon, Símon Jónsson Selfossi, séra Sveinn Ei- ríksson, séra Gísli Einarsson í Hvammi í Norðurárdal, o. fl. Með „Botnia" kom að vestan séra Sig- urður Stefánsson í Vigur. Með Skál- holt: séra Sigiuður prófastur Jens- son Flatey, séra Kristinn Daníels- son Söndum, Snæbj. bóndi Krist- jánsson Hergilsey, Oddur Jónsson læknir, Jón Helgason verzlunarm. ísafirði með konn sinni, Hallgr. Jónsson barnakennari og Ólafur Hjaltesteð verzl.m. — Með „Laura“ komu: Sig. kaupm. Sæmundsén Ólafsvík, Sigurður Guðmundsson frá Helli og nokkrir útlendir ferða- menn. Nú eru hér staddir Björn Bjarnarson sýslumaður og Páll pró- fastur Ólafsson. Hingað til bæjarins komu með „Laura“ Magnús Einarsson dýia- læknir, fröken Valgerður Johnsen og cand. jur. Páll Vídalin. Trúlofuð eru slúdent Adolf Ven- del frá Pingeyri og fröken Kristín Petersen, Einar Björnsson verzl.- maður og fröken liagnheiður Sig- urðardóttir til hemilis í Hafnarfirði. 5. júlí gaf prófastur saman i hjónaband: Friðiik Hallgrímsson prest að Útskálum og ungfrú Bentínu Hansínu Björnsdóttur. Skipalisti. lO.Júlí: „Flora" (47 smálestir, skipsstjóri L. Jóhannesen) frá Staf- angri. S. d. „Sverdrup" (145, Jo- sephsen) kom frá Dysart með kol til kolapöntunarfél. í Reykjavík. S. d. „Perwie (237, H. C. Jensen) til W. Christensens verzl. með kol. 16. júlí „Ragnheiður' (72, Bönnelykke, til W. Christensens verzlunar. 17. julí: „Angelus" (460, Joung), til Vídalíns. 18. júlí: „Norðfjord" (65, J. E. Sörensen) kom frá Seyðisfirði með Þorstein Erlingsson, forstöðum. fiskiveiða- fél. „Garðar". 20. júli: „Laura" (649, Cristiansen), frá Kaupmanna- höfn. 21. júlí „ísafold" til Brydes verzl. Dánlr I Reykjavlkursókn. 10. Júlí: Sigríður Jónsd., ekkja á Syðstu-Grund (68ára). 11.: Hilde, skipstj. á galeas „Island", norskur maður kvæntur (á 70 aldri). S. d.: Salvör Brynjólfsdóttir, gift kona við Laufásveg (35 ára). 13.: Einar Einarsson frá EinarshöfnviðReykja- vík (20 ára). 18.: Drengur á öðru ári, sonur Jóns Ólafssonar bóksala. 19.: Ilúsfrú Rósa Jónsdóttir (frá Skálholtskoti), var til heimilis við Skólavörðustíg. ípvcrjum 6er að borga? Vegna hverra leyfist vínsalan í landinu ? Ekki leyfist hún vegna bindindis- mannanna, sem vinna af öllum mætti að því, að útrýma vínnautn

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.