Reykjavík - 07.02.1902, Blaðsíða 2
2
Landsbókasafnið er opið daglega kl. 12—2, og til 3 á
Mánud., Miðv.d. og Lajjgardtil útlána.
Landsskjal-asafníð cpið á t*rd., Fimtud., Laug.d. kl. 12—I.
Náttúrugripasafnið er opið á Sunnud., kl. 2—3 siðd.
Forngripasafnið er opið á Miðv.d. og Laugard., kl. II—12.
Landsbankinn opinn dagl. kl.JI—2. B.-stjórn við 12—I.
öfn unarsjóðurinn opinn I. Mánudag í máriuði, kl. 5—6.
a /? dshöfðingjaskrifstofan opin 9—101 IP/o—2, 4—7.
Amtmannsskrifstofan opin dagl. kl. 10 2, 4 7.
Bæjarfógetaskrifstofan opin dagl. kl. 9—2, 4—7.
Póststofan opin 9—2, 4—7. Aðgangurao box-kössuin 9-9.
Bæjarkassar tæmdirhelga og rúmh. daga /l/o árd.,4 síðd.
Afgreiðsla gufuskipafélagsins opin 3—12, 1 -8.
Bæjarstjórnarfundir I. og 3. Fimtudag hvers mánaðar.
Fátækranefndarfundir 2. og 4. Fimtudag hvers mán.
Hóraðslæknirinn er að hitta hei na dagl. kl. 2—3.
Tannlækn. heima II—2. Frí-tannlækn. l.og3. Mád. ímánuði.
Frílækning á spítalanum Þriðjud. og Föst d. II--1.
afgangur fyrii; ríkissjóð, um 30 milj.
króna. Fjárlagafrumvarp fyrir næsta
ár áætlar ailmikinn tekju afgang.
Danír eru nú í þann veg að selja
Bandaríkjum Norður-Ameríku þær
þrjár smáeyjar, sem þeir eiga í Vest-
urheimi, fyrir fjórar miljónir doilara.
Fetta er að eins fjórðungur þess
verðs, er ^Danir ætluðu að selja
Bandar. eina eyjuna (St. Thomas)
fyrir 1867. Þá lót danska stjórnin
eyjarskeggja greiða atkvæði um, hvort.
þeir vildu láta selja sig, og var
nærri hvert mannsbarn á því máli!
Látinn er í Danmörku Sophus
Hegsbro, fv. fólkþingis-forseti.
Friðar-umleitan. Rosberry lávatð-
ur hólt ræðu í Chesterfield og talaði
þar meðal annars á þá leið, að þótt
sjáifsagt væri að halda fram stríðinu
við Búa, unz friður kæmist á, þá
væri hins vegar fráleitt að halda
fram því, sem stjórn Breta hefði eitt
sinn látið sér um munn fara, að
sinna engri friðar-umleitun, nema
Búar gæfist upp skilyrðislaust, og
skyldi þeim einskis snefils af sjálfræði
unna. Hélt því fram, að semja bæri,
ef kostur væri á, þann frið við Búa,
er báðum mætti sæmd að verða.
Snemma í Desbr. kvaddi svo Dr.
Knyper, forsætisráðherra Hollands,
helztu Búa þar til viðtals, og kvaðst
hafa séð þar nokkur merki, bæði af
ræðu Roseberry’s og af skeytum, er
hann hefði fengið frá ýmsum máls-
metandi mönnum í Bretlandi, og þar
á meðal eigi allfáum af flokki stjórn-
arsinna, að sú skoðun væri farin að
verða talsvert almenn þar í landi,
að unna bæri Búum sæmilegra frið-
arkosta. Að vísu kvað hann sig og
stjórn sína ófáanlega til að koma
fram sem meðalgöngumenn milli
Breta og Búa. En ef Búar vildu
láta sig vita, hverjir kostir þeim
þætti takandi í mál sem grundvöllur
fyrir samningstilraunum um frið, þá
kvað hann það mundu létta mikið
fyiir friðarumleitun, með því að hann
kvaðst fús á, að fara til Englands og
leita hófanna í kyrþey um það, hvað
Bretum þætti takandi í mál.
Búarnir þökkuðu honum sína góð-
vild, en kváðu vandhæfi fyrir sig, að
svara máli hans. Sig skorti sannar
fregnir um langan tíma af ástandinu
i Suður-Afriku; þeir hefðu heldur ekki
rætt þetta með sér á fundi, og ef
málaleitun yrði byrjuð, en færi svo
út um þúfur, þa gæti það orðið til
þess, að brezka þjóðin skoðaði þetta
sem veikleika merki og yrði að
æstari að halda fram stríðinu. —
Þeir héldu þó fund (10. Des.) allir
helstu menn Búa, sem í Holiandi
vóru þá staddir, og eftir 5 klukku-
stunda ráðagerð, varð það ofan á,
að láta uppi við Dr. Knyper það er
hann hafði til mælt. — Dr. K. fór
svo yfir til Lundúna og dvaldi þai'
2—3 daga.
15. Des. beindi Roseberry lávarð-
ur þeirri fyrirspurn til Salisbury i
efri málsstofu, hvort nýlega hefði átt
sór stað nokkur friðar-umleitun.
„Ekki svo ég til viti“, svaraði Salis-
bury. — Roseberry: „Biöðin hafa þá
farið með flugufregn eins og vant er
(hlátur). Ég só á þeim, að forsætis-
ráðherra Hollands hafi komið hingað
og dvalið hér 2—3 daga. Ekki geri
ég ráð fyrir að hann hafi komið tii
að vita hvernig bragðið væri af te-
vatninu okkar núna (hlátur). En
stjórnarmálgögnin hafa látið sér mjög
ant um að skýra frá, að hann hafi
ekki hitt neinn af ráðgjöfunum að
máli. En þetta gerir mig þess full-
vissan, að hann hafi einmitt átt
hingað alvarlegt erindi". — „Ekki
svo ég til viti “, svaraði Salisbury
aftur.
í Chesteifield-ræðunni sagði Roseb.
meðal annars, að nú væri hann aft-
ur fús til taks að þjona ættjörðu
sínni, ef hún þyrfti á sór að halda.
Með öðrum orðum: hann býðst til
að taka að sér á ný forustu frjáls-
lynda flokksins, ef flokkurinn vilji
fylgja sér.
„Times“, sem annars hefir fyigt
stjórninni all-fast, lýkur miklu lofs-
orði á ræðu Roseberry’s, og segir, að
ef frjálsl. flokkurinu vildi t.aka haun
fyrir fóringja aftur, þá væri vel í mál
takandi að trúa flokknum nú fyrir
stjórninni á ný, þ. e. steypa Salisb.
og Chamberlain.
Þetta er þýðingarmikill veðurvit’,
þvi að „Times“ er þefnæinur á breyt-
ingar þjóðviljans.
Þráftalaus firðritun. Yerkfræð
ingur í spánska hernum hefir í þ. m.
sent firðrit þráðarlaust milli Centa
(í Morocco í Afríku) og Tarifa (í
Andalúsíu á Spáni), segir „Tirnes"
17. þ. m.
Marconi telst svo til, að þegar
hann sé kominn á laggirnar með
sína þráðalaustt firðritun yfir Atlants-
haf, þá muni orðsendingar milli
heimsálfanna eigi þurfa að kosta
meira en 38/4 eyri (l/2 d.) orðið.
Þá tengist væntanlega ísland við
umheiminn, og þá ketnur ,.Reykjaviku
út á hverjum morgni með firðrits-
fregnir hvaðanæfa af hnettinum.
K í kissk uldir Baudarí k j ann a
eru enn $ 1,700,000,000; en þau af-
borga nú $ 350,000 af þeim á ári
sem stendur.
Bclgia. Eftir siðasta manntali ei
íbúatalan þar nú 6,693,000.
„Polarstjerneil", danskt eimskip,
fórst í Norðursjónum íyrir áramótin
og týndust ’menn allir.
Samninginn nýja milli Bandaríkj-
anna og Bretlands um skurðgt öft milli
Kyrrahafs og Atlantshafs staðfesti
öldungaráðið í Washington 15-Des. f. á.
(Meiri út-1. fréttir enn ín. bi.)
c(r höfuðsiuðnum.
Gufuskipið „Modesta“ (skipstjóii
B. 0. Bove) kom 3. þ. m. fra Eng-
Jandi með salt tii W. Fischers verzl.
Átti svo að fara héðan til ísaijarðar
m*ð kol, en rak upp í klettana hjá
Skansinum í ofsarokinu i fyrri nóit
og verður að öllum iíkindum ekki
haffært.
„Nordjylland" (skipstjóri ICragh)
kont 4. þ. mán. frá Kaupmannahöfn.
Varðskip Færeyinga („Beskycte-
ren“) kom á f’riðjudaginn með þrjá
botnverpinga, er hann hafði tekið
fram undan Grindavík. Höfðu verið
þar 14 í hóp, en varðskipið náði að
eins þremur. Einn þessara botnverp-
unga rak í fyrri nótt upp í klettana
niður undan Sölvhól.og verður eflaust
gerður að strandi. Dómur er enn
þá ekki upp kveðinn, en veiðarfærí og
afli verður sjálfsagt upptækt, og sekt-
ir að líkindum eins og áður (£ 60).
Einn bofnverpungurinn hefir áður ver-
ið sekt.aður.
Iðiiaðarinaniiafélagið hér í bæn-
um hólt aðalfund sinn 15. Jan. For-
maður félagsins endurkosinn: Guðm.
Jakobsson trésmiður, skrifari Sigvaldi
Bjarnarson og gjaldkeri Andrés Bjarna-
son söðlasmiður. Endurskoð. reikn-
inga Björn Kristjánsson og Matthías
Matthíasson. Urnsjónarmaður Iðn-
aðarniaunahússins verður eins og áð-
ur Olafur Ólafsson prentari (kosinn i
einu hijóði).
Oddfellow’ s-félagið hélt samsæti
mikið í „Iðnó“ 24.f. m. 70—80 manns
tóku þátt i því og var skemtun hín
bezta, að sögn.
Lúðurþeytarafélaglð hélt tom-
bólu 25. og 26. f. m. Var hún afar-
illa sótt. Er vanalega betur sótt, er
félagið leikur á AusturvelJi fyrir ekk-
ert. En „gleymt er þegar gleipt er“.
Tiðavísur.
Unclir sömu me.ódiu og 'J‘ii]>pavjil!».
Nú öll eru blöðin orðin sátt,
þau elduðu lengi silfur grátt,
en Albertí ráðið óhult fann,
er upp úr þeim sauð hann ráðgjafann.
Afframfat amálum þaðfremst hann mat
að fyllt væri upp í Dyrhólagat. —
Og gatið var stoppað með stjórnarskrá.
Þai stóð ekki á.
Og klukkum var hringt við kirkjudyr;
kölski var úti’ og mann þar spyr:
„Hver á að prédika herra minn?“ —
„Eg held hann Ástvaldui diengurinn".
„Ó, það er hreint ágætt, ég þá fér inn
þvi þár er einn góður kunningi minn;