Reykjavík - 30.03.1907, Side 3
REYKJAVlK
78
Var þá eftir í hreinan ágóða fyrir árið
1290 kr. Árseikningur félagsins samþyictur
í einu hljóði.
Samþykt, að halda félaginu áfram í sama
horfi og áður, bæta ekki við öðru skipi, en
láta félagið stunda síldveiðar að eins til
beitu fyrir fiskiskipin, en ekki veiða síld til
útflutnings.
Ákveðið var að greiða félagsmönnum í
vöxtu 12°/o af hlutabréfum þeirra, og geyma
afganginn 2,850 kr. í félagssjóði til næsta árs.
Eftir lögum félagsins átti bankastjóri
Tryggvi Gunnarsson að fara úr stjórninni,
en var endurkosinn í einu hljóði.
Sömu endurskoðunarmenn vóru endur-
kosnir.
Slippfélagið.
Nýafstaðinn er aðalfundur Slipp-
félagsins í Reykjavík, var haldinn 4.
Marz þ. á. Form. félagsins, banka-
stj. Tryggvi Gunnarsson, var kosinn
fundarstjóri. Hann skýrði frá hag
félagsins, sem hann taldi vera í góðu
iagi. Agóði félagsins væri alls
10,900 kr. Þar af væri frá f. á. 4,130
kr. og næstliðnu ári 6,770 kr. Fé-
lagshlutir væru nú orðnir 242, eða
innstæða félagsins 24,200 kr., en
þetta væri alt of lítið fé til svo mik-
i!s starfa, sem félagið hefði fyrir
hendi, og áhöld öll dýr. Væri því
nauðsynlegt að fjölga enn félags-
hlutum, svo minna lánsfé þyrfti til
að vinna með. Að frádregnum vöru-
leyfum og útistandandi skuldum eru
eignir félagsins virtar af óvilhöllum
virðingamönnum á 67,000 kr. Það
eru hús öll, lóð, setningsáhöld og önn-
ur verkfæri. Alls hafa 47 skip ver-
ið sett upp á land þetta ár með
dráttarbrautinni. Þar af hafa verið
5 gufuskip, 3 skonnortur, 140 og 200
smálestir að stærð, og 39 kúttarar,
60—90 smálesta. Af þeirn hafa 11 skip
fengið aðalviðgerð, fyrir 3—7000 kr.
Tveimur af þesssum skipum var bjarg-
að af strandi, og hefði sjórinn liðað
þau sundur, et félagið hefði ekki
bjargað þeim.
I vinnulaun var greitt þ. á. 28,746
kr. — og bætt talsvert við setnings-
áhöldin.
Ágóða félagsins var skift þannig:
Bætt var við árslaun verkstjóra
O. Ellingsen, 160 kr., gjaldkera
greiddar 300 kr, og strykuð út ófá-
anleg skuld skipsins Pálmans, 680 kr.
Þá var sett niður bókfært verð á
setningsáhöldum og öðrum verkfærum
um> 5150 kr., og samþykt, að greiða
skyldi félagsmönnum io°/o í vöxtu
af féiagshlutum þeirra, sem eru 2,420
kr.; var þá eftir til geymslu í sjóði
til næsta árs 2,190 kr.
Konsúll Jes Zimsen átti, samkvæmt
Jögum félagsins, að fara úr stjórn-
inni, en var endurkosinn. Sömuleið-
is voru endurskoðunarmenn endur-
kosnir. Að síðustu var ákveðið, að
ráða fastan bókhaldara, talið, að það
væri alt of mikið starf fyrir einn
inann, að sjá um verkstjórn og bók-
jhald, þar sem aðsókn að dráttar-
brautinni hefði svo mjög aukist síð-
nstu árin.
Árið 1902 var félagið stofnað með
litlu fé og lélegum áhöldum, svo
félagið þurfti árið 1904 að kaupa
ný og dýr setnings-áhöld með gufu-
vél. Félagið gat því ekki greitt
vexti þau ár, sem það var að koma
fótum fyrir sig, en árið 1905 greiddi
það fyrst ágóða til hluthafa, sem þá
var ákveðinn og greiddur i5°/o, en
þá varð það að samkomulagi, að taka
ekki ágóðann af starfsfé félagsins,
heldur sjcyldi ágóðinn greiddur með
Klukkur, úr og úrfestar,
sörauleiðis gull og silfurskraut-
ftripi borgar sig bezt að kaupa á
Laugavegi ur. 12.
Jóhann Á. Jónasson.
000000000000-0000000
hlutabréfum og þannig aukin inn-
stæða félagsins til skuldalúkningar.
Ið sama var einnig gert þetta ár.
Peningamarkaðurinn.
Hörgullinn á peningum (gulli) fer vaxandi,
en ekki þverrandi, í Bandaríkjunum. Lán
frá degi til dags vóru um miðjan þ. m. orðin
svo dýr, að nam 15°/0 (p. a.). — Á kaup-
höllinni í New York befir eigi verið jafn-
mikil óró og ískyggilegt útlit síðan 1901.
Af þessu stafar það, að forvextir haldast
enn svo háir hér í álfu.
Annað, sem þau blöð gera mikið úr, er
mest láta sér umhugað um, að æsa hugi
manna, er það, hve ríkisskuldabréf öruggustu
ríkja og önnur örugg verðbréf falla í verði.
Brezk ríkisskuldabréf hafa fallið hratt og
komin niður í 843/4°/0, þ. e. £ 100 ríkisskulda-
bréf eru seld fyrir £ 84—15—
En þetta er fjarri því að vera nokkur ills
viti. Það er ekkert annað en alveg eðlileg
afleiðing inna háu vaxta.
Áreiðanlegustu ríkisskuldabréf, svo sem
Breta, gefa jafnan lœgstu vöxtu. In ótrygg-
ari verða að greiða hærri vöxtu. — En er
peningaþröng er og geipiháir vextir í boði,
þá vilja sumir eigendur ríkisskuldabréfa
selja þau, þótt með afföllum sé, til að fá svo
miklu hœrri vöxtu af fé sínu í bönkum eða
annarstaðar. En þegar fé gefur alment svo
háa vexti, þá vilja menn fyrir það sama
ekki gefa nærri eins mikið og vant er fyrir
ríkisskuldabréf, sem gefa mjög lága vöxtu.
Hinu má auðvitað búast við, að háir vextir
haldist hér í álfu, þar til er linnir peninga-
þrönginni í Bandaríkjunum.
Símskeyti til „Reykjavíkur“.
Seyðisfirði, 27. Marz, kl. 10,15 árd.
Annar bátur »Tryggva kon-
ungs« lenti í gær í Fagradal
í Vopnafirði með 10 manns,
þar af 3 konur. Hafði hitt
minni bátinn á Sunnudag ut-
an við Bjarnarey. Annar
stýrimaður veikur fór í stærra
bátinn; 1. stýrimaður og 2
menn með honum í þann
litla; ekki komnir enn, þó
von um afkomu. Ein kona
dáin, varpað í sjóinn.
Seyðisflrði, 27. Marz kl. 12,15 síðd.
Nú fréttist af Vopnafirði,
að báðir stýrimennirnir björg-
uðust á bátnum í gær. 1 há-
seti dauður, en engin kona.
Norðtungu, 29. Marz.
Bergpór Guðmundsson, vel tvítugur,
vinnum. á Gilsbakka, drukknaði 26. p.
m. á leið til hagahúsa í Gilsbakkagili,
rétt við túnið
Dagbók.
27. Marz.
„Sterling44 Thore-félagsins er fallegt
skip, sjálfsagt þægiiegasta farþegaskipið
af ölJum póstskipum, er hingað koma;
það er 210 feta langt og 30 feta breitt.
fað hefir 60 rekkjur á 1. farrými, en
20 á öðru, og auk þess 8 á þiljum
uppi, bak við reykingasalinn. Sé búið
um á bekkjunum, má vel hýsa 80 á
1. farrými. — Auk reykinga-sals og
borðsals, er og viðræðusalur stór og
rúmgóður. Þar er fortepiano og bóka-
safn farþegum til afnota.
Tvö baðherbergi eru í skipinu, annað
fyrir karla, hitt fyrir konur, og eru
þar kerlaugar með heitu og köldu vatni,
og svo steypiböð. — Hr. E. Nielsen
er skipstjóri.
Haxlld höfuðsm., yfirforingi á „Isl.
Falk“, er orðinn skrifstofustjóri í 2.
deild (Admilalitetsdepartement) sjóliðs-
stjórnarinnar. Hann fer út í næsta
mán., en Asmussen heitir sá er verður
eftirmaður hans. — Hr. Saxild hefir
verið hér samvizkusamur og ötull, eins
og hann hefir hvervetna haft orð fyrir.
Fangavörður við hegningarhúsið
hér er skipaður Sigurður Pétursson,
er eitt sinn var hér lögregluþjónn.
H-ann fór utan með ,,Laura“ síðast.
Næsta bl. Laugardag 6. Apr.
Veðurathuganir
eftir Knud Zimsen.
Marz 1907 Loftvog ! millim. Hiti (C.) -P *o ÉB ■s £ <D !> Veðrátta
Pö. 22. 7 759.5 -i- 1.0 SV 3 Alsk.
1 761.9 0.3 Logn 0 Snjór
4 759.6 -f- 1.7 A 4 Snjór
10 753.4 0.3 ASA 3 Regn
Ld. 23. 7 747.8 4.9 SSV 3 Regn
1 746.2 4.6 S 3 Skýjað
4 745.5 4.2 SSA 5 Hálfsk.
10 743.8 1.4 SSV 4 Regn
Sd. 24. 7 748.0 1.7 SV 5 Alsk.
1 750.0 0.2 sv 6 Snjór
4 751.7 1.0 sv 6 Snjór
10 753.1 1.7 ssv 4 Alsk.
Má. 25. 7 753.5 3.1 SSA 3 Alsk.
1 754.0 4.6 ssv 5 Alsk.
4 753.4 4.0 s 3 Regn
10 752.1 5.5 SA 5 Alsk.
Þd. 26. 7 751.9 6.7 SA 6 Alsk.
1 750.0 7.1 S 6 Regn
4 748.8 6.6 SSA 5 Regn
10 747.5 6.1 SA 3 Regn
Mi. 27. 7 742.3 4.0 SA 4 Skýjað
1 747.5 5.2 SV 4 Alsk.
4 749.7 5.0 sv 4 Alsk.
10 762.5 3.0 SA 3 Alsk.
Ei. 28. 7 748.9 5.0 ASA 2 Alsk.
1 736.3 5.3 ASA 7 Regn
4 773.6 3.5 S 7 Regn
10 740.9 0.5 ASA 5 Skýjað
Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins
(„Austri“, „Erækorn11, ,,fieykjavík“).
Kaupmannahöfn, 29. Marz.
Frakkar hafa tekið á sitt vald höfnina
Udschada í Marolcko og halda henni að veði
fyrir því, að soldán komi á ró ogfriðií landinu.
I Rúmeníu er nýtt ráðaneyti komið til
valda, með þeirri stefnu að endurbæta land-
búnaðarlögin. Óeirðunum heldur á fram.
€ggert Claessen,
yfirréttarmálaflutnlngsmaður.
I.a'kjarg. 13 B. Talsími 16.
Yenjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Til Islending'a.
Iö bætta seyöf. Hér með vott-
ast, að það Elixír, sem nú er farið að
búa til, er töluvert sterkara, og þó að
ég væri vel ánægður með ina fyrri
vöru yðar, vildi ég sarnt heldur borga
ina nýju tvöföldu verði, með því að
lækningakraftur hennar hefir langtum
fljótari áhrif og ég var eftir fáa daga
eins og nýr maður.
Svenstrup, Skáni.
Y. Eggertsson.
Móti uppköstum og verkjum milli
brjósts og maga hefi ég hagnýtt Kína-
Lífs-Elixír herra Waldemar Petersens,
og hefi ég orðið albata við að neyta
þess.
París, 12. Maí 1906.
C. P. Perrin
grósséri.
Undirritaður, sem í mörg ár hefir
þjáðst af meltingarleysi og magakvefi,
reyndi loks ið ósvikna Kína-Lífs-Elixír
Waldemar Petersens, og hefir síðan
haft svo ágæta heilsu sem aldrei áður.
Ég get nú þolað allan mat og ég get
einlægt stundað vinnu mína. Ég get
örugt ráðið öllum að reyna Kína-Lífs-
Elixírið, því að ég er sannfærður um,
að það er ágætis-lyf gegn öllum maga-
sjúkdómum.
Haarby á Fjóni,
Hans Larsen, múrari.
Biðjið skýrlega um Waldemar Pet-
ersens ósvikna Kína-Lífs-Elixír.
Fæst hvervetna á 2 kr. glasið.
Yarist eftirstællngar!
HAFNARSTR' I7I8I9 20 21-22-KOLASI-2-LÆKJARTIZ
* REYKJAVJK *
Nýkomið:
Tilbúin föt og fataefni.
Regnkápur.
Hattar. Enskar húfur.
Kaskeiti.
Nærfatnaður.
Manschetskyrtur.
Brjóst. Flibbar.
Manschettur.
Slipsi og slaufur (afarmikið
úrval).
Hanzkar.
Skófatnaður.
Göngustafir.
Alt nýtt, vandað og ódýrt.
JCtæðskerað eilðin.
Kjöt af 3-4 mánaða
gömlurn
alikálfum
fæst í
matardeíldinni í
Thomsens Magasíni.
Thomsens jlíagasín
fær með hverri skipsferð eitthvað
nýtt, sem ekki hefir fluzt hingað
áður. Það sér um að fylgjast ávalt
meðnýjungunum ytra. Ásamt mörgu
fleira fékk það með síðasta skipi
ýmsar niðursoðnar vörur, sem ekki
hafa þekst hér áður.
Alls konar ávextir (kirseber,
stikkelsber, plómur, grænarog rauð-
ar, brómber, epli, rabarber) í 2. pd.
flöskum 80 aur. Kjötextrakt í glös-
um 30 aur og 60 aur. Roquefort-
ostur, Gorgonzola og Camenbert í
dósum 1 kr. 10 aur. Steiktir kal-
kúnar. Blómkál. Ensk síld. Kan-
diseraðir ávextir i dósum og pökk -
um. Konfektdöðlur, -fíkjur og
rúsínur. Grænar baunir í dósum
og pökkuin. Alls konar krydd í
glösum og pökkum. Jarðarber í
dósum. Síróp. Perur 55 aur. og
apricots 45 aur. í 1 punds dósum.
Ratin í dósum og
Chlorkalk i 5 aur. og 10 aura
pökkum komið aftur.
Consumchocolade komið aftur.
cTZýfiqfnarÓQÍlóin.
Kj ólasaum
tek ég undirrituð að mér nú þegar.
Vandað verk. Saumalaun lægst í bænum.
Ragnh. CAausen Jónsson, Vesturg. 22. [ah
Hayden lindarpennar
eru ágætir. Kr. 5,50 7,00,10,50. Þá selur
•Tóii Olafsson.