Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 31.03.1908, Blaðsíða 1

Reykjavík - 31.03.1908, Blaðsíða 1
ey> fc í a v t fc. IX, 13 Tjtbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Þriðjudag 31. Marz 1908 Askrifendur í b æ n u m yfir 1000. IX., 13 ggg" alt fæst í THOMSENS WAGASÍNI. < >Í11<1 OJ2T <31 <1 a A é 1 aI* selur Kristján Þorgrimsson. Kappglíma um íslandsbeltið verður háð á Akureyri 6. júní. „RKYKJAVÍK" Árg. [minnst 60 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlendi* ^tr. 3,00—3 ah.— 1 ooll. Borgist fyrir 1. Júlí. Ella 3 kr. Auglgsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50; 3. og 4. bls. 1,25 — útl. augl. 33‘/s0/o hærra. - Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafólagið „Reykjavík“. Ritstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri Maíjnús B. Blöndal Lækjargötu 4. Talsimi 61. Ritstj. er áreiðanl. að hitta heima á virkum dögum lil. 13—1 ogf 4—15 síöcl. Ef einhver vanskil kunna aö verda a blaÖinu, þegar þaö er borið út um bœinn, eru þeir, sem fyrir þvi verða, beönir að aðvara um það sem allra fyrsl d skrifstofu blaðs- ink x Lœkjargötu Nr. 4. Talsími 61. £anðsreikningnrinn 1306 er nú prentaður og öllum til sýnis. í ílestum tekjuliðum reikningsins hafa tekjurnar farið fram úr áætlun þingsins ; sumsstaðar að miklum mun. Alls hafa tekjurnar orðið rúml. 1 milj. 355 þús. kr., en voru áætlaðar tæpi. 1 milj. og 12 þús. kr. Hafa því tekj- urnar alls farið rúmi. 343 þús. kr. fram úr áætlun. Gjöldin hafa og farið nokkuð fram úr áætlun. Þau voru áætluð 1 milj. 21OV2 þús. kr. en urðu rúml. 1 miij. 379 þús. kr. Tekjuhalli hefir því orðið rúml. 23 þús. kr. Þessar tekjugreinar hafa xarið mest fram úr áætlun: 1. Ábúðar og lausa- Var áætlað um Var<3 um fjárskáttur . . 43 þús. 54 þ. 2. Áfengistollur . . 143 — 201 - 3. Aukatekjur . . 38 — 52 - 4. Kaffi- og sykur- tollur .... 312 — 389 - 5. Sektarféfyrirland- helgisbrot . . . 11 - 6. Tekjur af póst- ferðum .... 40 — 88 - 7. Tóbakstollur . . 143 — 153 - 8. Útflutningsgjald af fiski og lýsi . 65 — 121 - 9. Viðlagasjóðstekjur 57 — 71 - 10. Ýmsar tekjur . 5 — 27 - Gjaldamegin hafa þessir liðir mest farið fram úr áætlun. Aukafjárveitingar og útgjöld samkv. nýjum lögum 75 þ. Til ritsíma og málþráða, var áætlað um 253 þús. varð um 281 - Til verklegra fyrirtækja var áætlað um 189 — — —- 223 - Vegabótafé var áætlað um 60 — — — 94 - í árslok 1906 er eign viðlagasjóðs um 1 milj. 89 þús. peningaforði landssjóðs . . 549 — óinnheimtar landssjóðstekjur 64 — Þannig hertr þá landsbúið staðið á gamlaárskvöld 1906. Tekjuhallinn mun engum vaxa í augum. Tekjurnar hafa víðast farið fram úr áætlun, og sýnir það varfærni þingmanna. Þar sem gjöldin hafa farið fram úr áætlun er því svo háttað að það getur engu á- mæli sætt. Það mun engan furða þó að aukafjárveitingar og útgjöld eftir nýjum lögum nemi talsverðri upDhæð. Að vegabótakostnaður hafi orðið meiri en ráð var fyrir gertmun enginn telja eftir sem ant er um íramfarir lands- ins. Nóg er af torfærum og vegleys- um fyrir því. Að verklegu fyrirtækin hafa þurft meira fé en áætlað var, sýnir vaxandi og vakandi framfaralíf hjá þjóðinni. Þar til má og telja aukinn síma og málþráðakostnað sem stjórn- arandstæðingar láta sér sæma að kalla „fargan “ hvar sem þeir geta því við komið. Tekjurnar af símunum hafa þó farið langt fram úr áætlun. Voru áætlaðar 2500 kr. en urðu 7600 kr. En við þann tekjulið er einnig aðgæt- andi, að óbeini hagnaðurinn af símun- um er svo mikill, að hann verðurekki tölum talinn. Það þarf vissulega meira en meðal iilgirni til þess, að geta ald- rei nefnt eitt hið allra veigamesta fram- fara fyrirtæki þjóðarinnar öðru visi en með óvirðingarorðum. Eftir því sem landvarnarpostularnir og blöð þeirra hafa útmálað fjárhags- ástand þessa lands hin síðustu ár, þá má þeim bregða í brún, sem þvi trú- arþreki eru gæddir að taka nokkurt orð þeirra trúanlegt, að sjá nú á lands- reikningnum að til er viðlagasjóður að upphæð 1 milj. 89 þús. kr. ogpen- ingar í landssjóði um 549 þús. kr. auk óinnkominna tekna um 64 þús. kr. 011 þessi landvarnar-þjóðræðis „fínans séní“ hafa stritast við með kófsveittan skallann að reikna út og útbreiða með- al manna í blöðum, bæklingum og bréfum að viðlagasjóðurinn væri þrot- inn, landskassinn tómur, stórkostlegar lántökur til óþarfa eyðslu fyrir dyrum og landsbúið gjaldþrota. Landsjóðsreikningurinn ber það nú með sér, að alt fram að árslokum 1906 hafa þessar góðgirnislegu kenningar landvarnarpostulanna við engin rök átt að styðjast. Skrif Gulmiiar Hannessonar. Vér hétum því í 8. tölubl. „Rvk“, að gefa lesendum blaðsins síðar kost á, að sjá í heilu líki bréf Guðmundar Hannessonar læknis til kjósanda í Eyja- firði. Úr bréfi þessu voru i „Norðra" 4. febr. þ. á. birtir nokkrir kaflar og gerðár hæfilegar athugasemdir við þá en oss virtist réttara, að birta bréfið alt, til þess að eigi væri hægt að segja, að vikið væri í nokkru við efni þess, eða kaflarnir slitnir úr sambandi hver við annan. Vér höfum nú fengið stað- fest eftirrit af bréfinu og birtist það hér svohljóðandi: Rvk, 23/i0 1907. Kæri vinur! Mér datt í liug að spyrja yður liver nú væri niðurstaðan hjá yður í landsmálum. Við landvarnarmenn erum að spyrjast fyrir út um land hvar við eigum fylgismenn og skoðanabræður. Er þetta gert til þess að vera við því búnir ef illa skyldi takast til með þessa millilandanefnd því þá verða næstu þingkosningar þýðingarmiklar, en of seint að ræða málið á undan lcosningum er nefndarálitið kemur út. ef það þá fæðist svo fljótt. Mér fanst að þér væruð í raun og veru nterri okkur í skoðunum og vildi vita á hverja sveifina þér hallist. Fyrir mér vakir að halda frarn sjálfstœð- is(ríkis)rétti íslands og vinna að pvi að fá hann viðurkendan. Að fara gœtilega z fjár- mdlum, bæði af þ\;í að við erum fátækir og þolum illa þunga skatta og auk þessu eru allir sjálfstæðisvegir lokaðir skuldugum fje- lausum mönnum Ejármálapólitíkstjórnarflokksinsþekkið þér. Á þessum stutta tíma, sem hann hefir ráðið, er viðlagasjóður nærfelt horfinn og hálfrar milli- onar króna lán á nú að taka hjá Dönum rétt um það sama bil og við erum að reyna að losa okkur sem mest undan yfirráðum þeirra. Símafyrirtæki stjórnarinnar munu okki reyn- ast arðsöm svo ekki er á því að byggja að peningarnir komi aftur sízt í bráð. Stefnan í stórpólitík er nokkuð á huldu hjá stjórninni en einkennil. er þaðaðstjórn- arfl. hefir horn i síðu bæklings míns og skoðar hann hættulegan fyrir sig. Þing- vallafundinn, sem fór vel fram, lasta stjórn- arblöðin, þau hafa og haldið í rikisráðsset- una lengst af, verið á móti sérstökum ís- lenzkum fána o. fl. Mér finst þetta alt næg sönnun fyrir því að tilætlunin er innlimun hvað sem úr verður, enda er mér persónul kunnugt um að nokkrir heldri stjórnarliðar eru á þvi máli. Jæja, ég orðlengi ekki þetta. Yona eftir svari sem fyrst. Ef svo skyldi fara að þér vilduð fylgjast með í þessari stefnuskrá sem ég drap á þá þætti mér fróðlegt að vita hvort fleiri eru þar nálægt yður á sörau skoðun og þá hverjir. Ef yður litist að breyta um annanhvorn eða báða þingmenn ykkar Eyfirðinga. Hverj- um hafið þið þá augastað á, sem traust sé í? Blessaðir. Yðar Guðm. Hannesson. Prógram þjóðræðismanna er nú að vísu sama og landvarnarmanna, en landvarnar- flokkinn hefi ég fylt af því að þar hygg ég fult svo víst að barizt sé fyrir málefninu, en hvorki völdum eða persónuríg. Allir virki- legir heimastjórnarmenn finst mér að ættu að styðja okkur. Eari svo að stjórnin konú vel fram afsláttarlaust er til nefndarinnar kemur, vil ég styðja hana, þó margt hafi á milli borið. Samhljóða mér sýndu frumriti. Not. publ. á Akureyri 14. marz 1908. Guðl. Guðmundsson. 12 — tólf — a. G. G. í 31. tölubl. „Norðurlands" þ. á. befir Guðmundur Hannesson ennfremur rit- að illyrta skammagrein til manns þess, er birti bréfkaflann í „Norðra“ og kjósandans sem bréfið var til, af því að hann hefir látið það af hendi til birtingar. Auðvitað fær stjórnin og Heimastjórnarflokkurinn þar einnig sinn mæli troðinn og skekinn, eins og í öðrum ritgerðum þessa dánumanns, sem sjálfur þykist beita hinni drengi- legustu aðferð í sinni pólitísku baráttu, en notar þó sérhvert tækifæri til að níða stjórnina leynt og Ijóst með ó- sönnum sakargiftum, sýnilega í þeim tilgangi, að koma óhug og ótrú inn hjá þjóðinni og æsa hana upp á móti stjórninni. Það má lesa út úr áminstri grein læknisins í „Norðuriandi", að honum hefir komið það mjög illa, að bréf hans skyldi koma fyrir almennings- sjónir, og láum vér honum það að vísu ekki, því bréfið mun ekki verða til þess, að auka álit hans hjá réttsýn- um mönnum. En ástæða sú, er hann einna mest lætur bera á, sem sé, að hér sé verið að birta privatbréf frá sér virðist oss vera harla léttvæg og varla framberandi. Vér getum fyrst og fremst eigi kann- ast við, að bróf til kjósenda frá foringja eins stjórnmálaflokks landsins, er ræð- ir auk þess eingöngu um stjórnmál, geti í eðli sínu verið prívatbréf, í

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.