Verkamaðurinn - 02.12.1944, Blaðsíða 1
XXVII. ÁRG. Laugardaginn 2. desember 1944. 44. tbl.
1. desember
Samkvæmt úrskurði forseta ís-
lands verður 17. júní þjóðhátíðar- j
dagur framvegis, en 1. des. aðeins
einn af fánadögunum. Allstaðar á
landinu mun þó hafa verið efnt til!
ýmiskonar hátíðahalda í gær í sam-
bandi við minningu dagsins. Þjóð-
in hefir síðan 1918 geymt minning-
ar um sjálfstæðisviðurkenninguna
sér til handa og tengt hana sérstak-
lega við þennan dag. Því mun 1.
des. lengi verða minnst meðal
þjóðarinnar og hann haldinn há-
tíðlegur svo sem tilhlýðilegt er. —
Stærsti sigur þjóðarinnar í frelsis-
baráttunni var fenginn með
sambandslögunum 1. des. 1918. Þá
var það, sem hún hlaut vissu um,
að henni tækist að verða aftur al-
frjáls í edgin landi. Eftir það gat
íslenska alþýðan byrjað ótrauð á
uppbyggingarstarfinu í vissu um
það, að öll hyggindi myndu koma
öllum íslendingum sjálfum í hag.
Vegna þess er 1. desember
minnst sem hátíðisdags og vegna
þeirrar minningar og þeirra stóru
gjafa, sem hann færði þjóðinni fyr-
ir 26 árum, halda börn Fjallkon-
unnar áfram endurreisnarstarfinu
af meira kappi nú en nokkru sinni
áður. Því starfi, sem mun leysa
hverjar viðjar, er reynt verður að
búa þessari þjóð.
Sósíalistafélag Akureyrar gekkst
fyrir kvöldskemmtun í Verklýðs-
húsinu í gær í tilefni dagsins. Fjöl
mennt var og skemmtu gestir sér
við ýmsa dagskrárliði lengi kvölds,
en að lokum var dansað til kl. 2.
Ný tillaga viðvíkjandi Amtsbókasafninu
Fyrir síðasta bæjarstjórnarfundi
lág eftirfarandi tillaga frá Bóka-
safnsnefnd:
„Bókasafnsnefnd væntir þess fast
lega, að bæjarstjórn sjái sér fært að
leggja fram á næsta ári svo ríflega
fjárhæð til byggingar bókhlöðu á
Akureyri, að nægi, ásamt því fé, er
þegar er handbært, til þess að hef ja
byggingu bókhlöðunnar og koma
henni það áleiðis, að bókasafnið
'geti haft hennar not.
í sambandi við þetta vill nefndin
benda á, að hún telur sjálfsagt, að
bæjarstjórn fari fram á, að ríkið
taki ríflegan þátt í kostnaðinum
við byggingu bókhlöðunnar, ekki
einungis með tilliti til þess al-
menna mentunar- og menningar-
gildis, sem. gott bókasafn á Akur-
eyri hlýtur að hafa, heldur með
hliðsjón af gildi þess fyrir skólana
á Akureyri, þar á meðal mentaskól-
ans.“ >
Bæjarstjórn afgreiddi þessa til-
lögu í bili á þann veg, að vísi henni
til fjárhagsnefndar.
í grein, sem eg skrifaði snemma
í sumar í „Verkam.“ um Amstbóka-
safnið, lagði eg til að Akurevrar-
bær og bæjarbúar heiðruðu og
settu sér það takmark í tilefni af
endurreisn lýðveldis á íslandi á
þessu ári, að byggja Matthíasarbók
hlöðu á þessu sögufræga ári og
heiðra þannig minningu þjóð-
skáldsins, sem hin fyrirhugaða
bókhlaða hefir verið skírð eftir.
Eins og vænta mátti, fékk þessi
tillaga mín ekki undirtektir hjá
hinu andlitla afturhaldsliðr bæjar-
ins og því útilokað að Matthíasar-
bókhlaðan verði bygð á þessu
merka ári í sögu íslensku þjóðar-
innar.
Það er því ánægjulegt að bóka-
safnsnefndin skuli nú vera komin
fram með tillögu um að bærinn
hefjist handa á næstunni í þessu
máli, og er þess að vænta að bóka-
safnsnefndin fylgi tillögu sinni fast
eftir.
Öllum, sem hafa snefil af áhuga
fyrir andlegum verðmætum og
skilningi á gildi góðra bókasafna,
mnn vera það ljóst, hversu hættu-
legt er að geyma Amtsbókasafnið í
núverandi húsakynnum þess, þar
sem alt getur fuðrað upp á svip-
stundu, og að geymsla bókasafnsins
áslíkum stað er illa sæmandi þeim
bæ, er telur sig og er höfuð Norð-
urlands.
Má því undir engum kringum
stæðum dragast lengur en til næsta
árs að hafist verði handa með bygg
ingu Matthíasarbókhlöðunnar. -
En þegar ákvarðanir verða teknar
um bygginguna, þá mætti ekki
gleymast að íhuga hvort ekki væri
skynsamlegast að reisa bókhlöðuna
nálægt eða öllu heldur í skólahverfi
bæjarins.
J. Á.
Bæjarstjórn Akureyrar mófmælir harð-
lega því óréttlæti, sem Iryggingarstofn-
un ríksins beitir þegna þjóðfélagsins
múiirv
utan Reykjavíkur
Hámark ellilauna- og örorkubóta í Reykjavík kr. 3250.00
en í öðrum kaupstöðum kr. 2980.00.
Fráfarandi stjórn Björns
r
Olafssonar og V, Þór, tafði
fyrir framgangi hafnar-
Oddeyri
hún gat
mannvirkjanna
ems
°g
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
sl. þriðjudag var einróma samþykt
svohljóðandi tillaga frá framfærslu-
nefnd:
„Bæjarstjórn Akureyrar mót-
mælir enn á ný harðlega því
óréttlæti, sem þegnar þjóðfélags-
ins utan Reykjavíkur eru beittir
með þeirri framkvæmd alþýðu-
tryggingarlaganna, að láta þá
njóta minni réttinda en Reyk-
víkinga, og það þótt þeir greiði
samkvæmt lögum sömu hundr-
aðstölu af tekjum sínum til Líf-
eyrissjóðs íslands. Skorar bæjar-
stjórnin á hlutaðeigandi stjórn-
arvöld, að ráða þegar í stað bót á
þessu ranglæti.
Jafnframt vill bæjarstjórn Ak-
ureyrar láta þá skoðun sína í
ljós, að hámark ellilauna og ör-
orkubóta hafi verið ákveðið of
lágt, þar sem ógerlegt er fyrir
örbjarga fólk, að láta það endast
fyrir öllum óhjákvæmilegum út-
gjölum, og telur brýna nauðsyn
á, að úr því verði bætt.“
Bæjarstjórnin mótmælti í fyrra
því misrétti, sem þá var á hámarki
ellilauna og örorkubóta í Reykja-
vík og annarsstaðar á landinu og
(Framhald á 2. síðu).
A fundi bæjarstjórnar 17. okt. sl.
bar Tryggvi Helgason fram eftir-
farandi fyrirspurn:
„Hvað líður framkvæmdum við
hafnarmannvirkin norðan á Odd-
eyrartanga, og er fyrirhugað að láta
vinna að þeim framkvæmdum í
haust og vetur?“
Fyrirspurninni var vísað til
Hafnarnefndar og svaraði hún fyr-
irspurninni eftir mánaðartíma með
svohljóðandi bókun í fundargerð
sinni frá 16. nóv. sl.:
„Þar sem gerð hafnargarðsins
hefir ekki enn verið samþykt af
hlutaðeigandi ráðuneyti, þrátt fyrir
ítrekaða beiðni þar um getur
nefndin eigi að svo stöddu ákveðið
frekari framkvæmdir við garðinn."
Jafnframt getur svo nefndin þess
að hún vilji því enn ítreka beiðni
sína um, að ráðuneytið samþvkki
gerð hafnargarðsins, eins og farið
hefir verið fram á.
Vonandi skiftir um til batnaðar
hjá hinum nýja ráðherra, er fer
með þessi mál.
Frá Alþýðusamliands-
þinginu
Þingi Alþýðusambandsins lauk
s. 1. sunnudagskvöld. Var þá kosin
stjórn sambandsins til næstu 2ja
ára. Tvær uppástungur um forseta
efni komu fram, með þeim Her-
manni Guðmundssyni form. Hlífar
í Hafnarfirði og Helga ftennessyni
í Reykjavík. Kosningin fór þannig
að Hermann hlaut 108 atkvæði og
var kjörinn forseti sambandsins, en
Helgi Hannesson fékk 104. Vara-
forseti var kosinn Stefán Ögmunds-
son Reykjavík. Um hina stjórnar-
meðlimina kom ekki fram nema
einn listi og voru þeir því sjálf-
kjörnir, en þeir eru:
Úr Reykjavík:
Björn Bjarnason, ritari.
Sigurður Guðnason.
Jón Rafnsson.
Guðbrandur Guðjónsson.
Jón Guðlaugsson.
Úr Hafnarfirði:
Kristján Eyfjörð.
Bjarni Erlendsson.
Þá voru kosnir meðstjórnendur
aðalstjórnar tveir úr hverjum
landsfjórðungi:
Fyrir Suðurland:
Sig. Stefánsson Vestm.eyj.
Jóh. Sigmundsson Gerðum.
Fyrir Vesturland:
Árni Magnússon ísaf.
Jón Tímóteusson, Bol.vík.
Fyrir Norðurland:
Tryggvi Helgason, Akureyri
Gunnar Jóhannss., Sigluf.
Fyrir Austurland:
Bjarni Þórðarson, Norðf.
Inga Jóhannesd., Seyðisfirði.
Verkalýðsfélögin i landinu hafa
með þessu sýnt vilja sinn í því að
losa sig við ýmsa flugumenn at-
vinnurekendanna, sem laumast
hafa inn í raðir þeirra. Þessi úrslit
verða eflaust engin gleðitíðindi
fyrir borgaraflokkana og þar á
meðal Alþýðuflokkinn, sem mest
og best hafði stuðlað að sundrung-
inni og flugumennskunni innan
Alþýðusambandsins. Sá flokkur og
hans blað hafa nú fengið rækilegt
kjaftshögg frá verkalýðnum og
mætti þau verða honum og því til
varanlegrar eftirminningar.
Verkamannafélaé Akureyrarkaup-
staðar heldur fund í Verklýðshúsinu
sunnudaginn 3. desember næstk. kl.
1.30 síðdegis.
Skjaldborgarbíó
Laugardag og sunnudag kl. 9:
Góður gestur.
Sunnudag kl. 5:
Sá hlær bezt, sem síðast
hlær.