Verkamaðurinn - 26.01.1951, Blaðsíða 1
o
VERKAMAÐURINN
XXXIV. árg.
Akureyri, föstudaginn 26. janúar 1951
3. thl.
Sameiningarmenn sigruðu í Verkamannafélaginu
meS hærri atkvæðafölu en nokkru sinni fyrr
A-listi fékk 177 atkv. og B-listi 165
Einkennilegar frásagnir afturhaldsblaðanna
Kosningar til stjórnar og trún- allri slíkri starfsemi frá sér með
aðarmannaráðs Verkamananfélags
Akureyrarkaupstaðar fóru fram sl.
föstudag, laugardag og sunnudag.
Fóru þær svo, að listi samiening-
armanna sigraði með 12 atkv.
meirihluta, (ekki 8 eins og aftur-
haldsblöðin vilja vera láta!) Hafa
akureyrskir verkamenn sýna það
ennþá einu sinni, að þeir trúa ein-
ingarmönnum betur fyrir málum
sínum en sendlum atvinnurek-
enda og afturhalds.
PÓLITÍSKAR ILLDEILUR.
Til þessara hjaðningarvíga inn-
an Verkamannafélagsins var stofn-
að af fulltrúum þriggja pólitískra
flokka eftir fyrirskipun frá stjórn
Alþýðusambandsins. Reynt var
eftir fremstu getu að gera kosning-
ar hreinpólitískar, og fóru kosn-
ingasmalar afturhaldsins, með
-*Eraga tryggingarforstjóra Sigur-
jónsson í broddi fylkingar, af stað
til smölunar, en árangurinn
varð í samræmi við fyrri
reynslu þeirra af þvílíku starfi.
Þessi klofningstilraun aftur-
haldsins er enn ósvífnari, þegar
þess er gætt, að nú er þrengt meira
að kjörum hins vinnandi manns
þessu landi en um langan tíma hef-
ur verið og verkalýðssamtökunum
því meiri nauðsyn en nokkru sinni
fyrr, að forysta félaga þeirra hafi
að baki sér traust sem flestra fé
lagsmanna.
Það sýnir út af fyrir sig vel,
hvað þessir menn meta meira,
hagsmuni verkamannanna eða
pólitískar spekulationir núverandi
stjórnar Alþýðusambandsins, að
þeir skuli einmitt velja þann tíma,
þegar mest sverfur að og mest
þörf er á einingu, til klofningsiðju
sinnar. Eða er ástæðan máske sú
að þeir telji nú helzt von til að
geta hrætt verkamenn til fylgis
við sig með svipu atvinnuleysis og
atvinurekendavalds?
KOSNINGAÚRSLITIN.
Þátttaka í kosningunum var
mjög mikil. Af 416, sem kosninga-
rétt höfðu, kusu 359. Atkvæði
féllu þannig, eins og áður segir, að
A-listinn, listi sameiningarmanna,
fékk 177 atkv., en B-listinn, listi
afturhaldsfulltrúanna, fékk 165
atkvæði. Stefán Árnason fékk 4
atkv. og Árni Þorgrímsson 1. 7
seðlar voru ógildir, en 6 auðir.
Akureyrskir verkamenn hafa
með þessum úrslitum sýnt það enn
áþreifanlega, að þeir meta sundr-
ungarstarfsemi atvinnurekenda-
þjóanna að verðleikum og vísa
fyrirlitningu.
Frásagnir afturhaldsblaðanna af
kosningaúrslitunum hafa orðið
verkamönnum mikið aðhláturs-
efni.
Öllum blöðunum kemur saman
um, að atkvæðamunurinn hafi ver-
ið 8 atkvæði (Bragi kemst niður í
7!) og þykjast þeir vera kjör-
stjórninni miklu fremri x þessum
sokum. I sambandi við, að Isl. seg-
ir að „kommúnistar telji atkvæði
á sinn hátt skal það tekið fram, að
innan kjörstjórnarinnar var enginn
ágreiningur um, hversu úrskurða
skyldi vafaatkvæðin, en eins og
kunnugt er var Björn Einarsson
form. hennar, og hefur það ekki
frétzt enn að hanr. værði orðinn
kommúnisti!
Annars eru ákvæði kosninga-
reglugerðar, sem Alþýðusamband-
ið hefur sett, ótvíræð og eftir
henni farið í hvívetna, svo sem
vera bar.
Núverandi stjórn Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar.
Jón Ingimarsson:
Hafa skal það, er sannara reynist
í grein sem Bragi Sigurjónsson
ritaði í síðasta tölublað Alþýðu-
mannsins um kosningarnar í Verka
mannafélaginu, er eg undirritaður
borinn allþungum sökum, alger-
lega að tilefnislausu. Ber ritstjór-
inn mér það á brýn, að hafa fals-
að inntökubeiðni frá verkamanni,
irfærzlu úr Verkamannafélaginu í
Iðju. Hinir tveir töldu sína at-
vinnu óvissa og væri henni ef til
vill þá og þegar lokið, og væri af
þeim sökum ekki rétt að gerast
meðlimir í Iðju, var það látið gott
heita. Af þessu má sjá, að allt
bullið úr Braga um fölsun og
BRAGI HNEYKSLAST.
Bragi Sigurjónsson er ákaflega
hneykslaður yfir því, að þrir iðn-
aðarmenn skuli vera í Verka-
mannafélaginu. En hvað um Hall-
grim Vilhjálmsson sýsluskrifara,
Kristófer Vilhjálmsson afgreiðslu-
mann, Konráð Sigurðsson press-
ara, Kolbein Helgason verzlunar-
mann, Þóri Leifsson veitingamann,
Magnús Björnsson verzlunarmann
o. s. frv., sem afturhaldið heldur í
félaginu, þrátt fyrir að þeir hafi
sumir ekki stundað verkamanna-
vinnu um langan tíma, og meðan
svo er ferst Braga ekki að láta
dólgslega yfir mönnum, sem
standa miklu nær verkamönnum
og eru meðal stofnenda félagsins.
Hitt er skiljanlegt, að Bragi sé
gramur, þegar hann og fylgisveinar
hans voru búnir að segja um allt
að sigurinn væri þeim vís.
RÓTTÆKU ALÞÝÐUNNAR
ER SIGURINN.
Bragi og sveinar hans hugga sig
við þá von, að þó að ekki hafi
unnist sigur að þessu sinni, þá
vinnist hann næst eða þar næst.
Þetta hafa þeir herrar alltaf sagt
frá því að fyrst urðu átök í félag-
inu og sannleikurinn er sá, að lík-
urnar verða því minni, þvi lengra
sem líður.
Róttækasti og harðskeyttasti
hluti alþýðunnar er í sókn um all-
an heim og hennar er sigurinn vís.
Afturhaldið er á undanhaldi, ósig-
urinn og hrunið bíður þess á næsta
leyti, hvað sem Bragi Sigurjónsson
sem vinnur í Ullarþvottastöðinni margháttuð, ósæmileg vinnubrögð
á Gefjun, þar sem engin ástæða er þessu viðvíkjandi, eru ósannindi
til að liggja undir slíkum áburði,
tel eg rétt að almenningur fái að
vita hið sanna í þessu máli. Og
það ætti einnig að vera holt fyrir
Braga að kynast sannleikanum, ef
það gæti orðið til þess að hann
skammaðist sín, sem virðist vera
full þörf á.
Hið sanna í málinu er þetta:
Það mun hafa verið í nóvember sl.
að eg kom í Ullarstöðina á Gefjun
og óskaði þess að starfsmenn þar
gerðust meðlimir í Iðju, félagi
verksmiðjufólks og lét þá hafa þar
til gerðar inntökubeiðnir. Bað eg
Jón Jónsson, sem þar vinnur, að
veita móttöku inntökubeiðnunum,
er verkameninrnir hefðu ritað nöfn
sín á þær.
Þann 17. þessa mánaðar hitti eg
Jón að máli og spurðist fyrir um
þetta, hafði honum þá ekki borizt
inntökubeiðnirnar frá verkamönn
unum. Síðan átti eg tal við þá og
tóku tveir af starfsmönnunum vel
í það að gerast meðlimir í Iðju og
sóttu um inngöngu. Béðu þeir mig
að sjá um það fyrir þeirra hönd,
að þeir yrðu yfirfærðir úr Verka-
mannafélaginu í Iðju. Þá um leið
skrifaði eg í ÞEIRRA VIÐUR-
VIST neðst á inntökubeiðnirnar,
að: jafnframt væri óskað eftir yf-
frá rótum. ;
En auðvitað á vesalings Bragi
erfitt með að trúa þessu, og er það
(Framhald á 4. síðu).
Alþýðusambandi ð
úrskurðar menn9 sem
gengnir eru i annað
félag, löglega í
Verkamannafélaginu!
Við allsherjaratkvæðagreiðsl-
una i Verkamannafélaginu nú
um helgina gerðist sá einstæði
atburður, að Alþýðusambandið
úrskurðaði tvo menn, sem
gengnir voru í Iðju, löglega
félaga í Verkamannafélaginu!
„Rökstuðningur“ fyrir þess-
um úrskurði mun vera sá, að
þar sem félagsfundur hefur
ekki verið haldinn í Iðju, síðan
menn þessir sóttu um inngöngu
í félagið, hafi þeir ekki öðlast
full félagsréttmdi í því félagi,
og þau því óskert í Verka-
mannafélaginu! Hvað það kem-
ur Verkamannafél. við, hvort
né hvenær menn öðlast full fé-
lagsréttindi í öðrum félögum
er víst flestum mönnum óskilj-
anlegt utan þeim, sem að þess-
um fáránlega úrskurði standa.
Er og vandséð, hvar það lenti,
ef slíka reglu, sem þessa, ætti
að taka upp í samskiptum fé-
laga.
Svo var að skilja á aðal-
fundi Verkamannafélagsins, að
sumir fulltrúar B-listans litu
svo á, að menn þessir gætu
verið áfram í Verkamannafé-
laginu, þó að þeir væru gengnir
í Iðju! Máske þeir eigi að vera
í báðum félögunum?
Sýningin Lenin í verkum
russneskra myndlistar-
manna verður opnuð í Verka-
lýðshúsinu kl. 4 e. h. á morgun
Sýningin verður aðeins opin til
sunnudagskvölds
A morgun verður opnuð i Verka-1 þessum verkum. Eru þau mörg
lýðshúsinu á vegum félagsins I afburða vel gerð og sýna mikla
segir. En meiri hluti félaga í
Verkamannafélagi Akureyrarkaup
staðar getur verið stoltur af því
að fylgja að málum þeim mönn-
um, sem framtíðina eiga fyrir sér.
Menntatengsl Islands og Ráð-
stjórnarríkjanna — MÍR — sýn-
ing, Lenin í verkum rússneskra
myndlistarmanna. Verður sýning-
in opin á laugardag frá kl. 4—
11.30 e. h. og á sunnudag kl. 10 f.
h. til kl. 11.30 e. h.
Rússneskir myndlistarmenn gera
sér mikið far um að sýna í verkum
sínum merka atburði úr lífi þjóðar
sinnar og þá ekki sízt þá, sem
snerta þann þátt, sem hinir miklu
foringjar Ráðstjórnarríkjanna,
Lenin og Stalin, hafa átt í að skapa
sögu þjóðar sinnar. Á sýningu
þessari gefur að líta nokkur af
vandvirkni og hæfni listamann-
anna. Einnig gefur á sýningunni að
líta ljósmyndir frá Ráðstjórnar-
rxkjunum í dag. ;
Bæði kvöldin verða kvikmynda-
sýningar í Verkalýðshúsinu í sam-
bandi við sýninguna. Á laugar-
dagksvöldið verður sýnd Orustan
um Stalingrad og á sunnudaginn
Siguréangan og e. t. v. fleiri smá-
myndir. Kvikmyndasýningarnar
hefjast bæði kvöldin kl. 9 e. h.
Aðgangur að sýningunni kostar
aðeins 2 krónur og að kvikmynda-
sýningunum 5 krónur.