Verkamaðurinn - 26.01.1962, Síða 4
Írottflsomband Islands
10 dra n.h. s
Í.B.A. og U.M.S.E. minnast þess með marghóttaðri
íþróttakeppni og íþróttasýningum um helgina. —
Á sunnudaginn kemur, 28. jan.,
eru 50 ár frá stofnun Iþróttasam-
bands íslands. VerSur þess minnzt
með viðhöfn í Reykjavík af hálfu
ÍSÍ, en auk þess víðar um land,
eftir því sem við verður komið.
Hér á Akureyri gengst ÍBA
fyrir íþróttakeppni og íþróttasýn-
ingum, og tekur U.M.S.E. einnig
þátt í þessu afmælishaldi.
Samkvæmt upplýsingum Ár-
manns Dalmannssonar, formanns
ÍBA, er afmælisdagskráin hér í
höfuðdráttum þessi:
Laugardaginn 27. janúar kl. 4
verður keppni í íþróttahúsinu í
hástökki og þrístökki, og kl. 6
sama dag verða ýmsar skautalistir
sýndar á íþróttavellinum. — Á
sunnudag fyrir hádegi verður
keppni á skíöum í Hlíðarfjalli, en
eftir hádegi kl. U/2 veröur keppni
í körfuknattleik og handknattleik
í íþróttasal M. A.
Kl. 5,30 síðdegis verður sund-
keppni í sundlauginni, meðal ann-
ars boðsund karla- og kvenna-
flokka, en á sunnudagskvöld verð-
ur skemmtun að félagsheimilinu
Bjarg, og þar sýndar m. a. kvik-
myndir frá fyrri keppnum og aðr-
ar íþróttakvikmyndir, verðlaun
afhent, og sitthvað fleira verður
þar til skemmtunar.
íþróttakeppnin um komandi
helgi verður ugglaust hin athygl-
isverðasta, því að þegar er vitaö
um marga þátttakendur.
AðaHundar
Ferðafélagsins
Ferðafélag Akureyrar hélt að-
alfund sinn sl. sunnudag. For-
maður félagsins, Kári Sigurjóns-
son, flutti skýrslu stjórnarinnar,
en síðan voru reikningar félagsins
fyrir sl. ár lesnir upp og sam-
þykktir. Tveir menn áttu að ganga
úr stjórn: Tryggvi Þorsteinsson
og Jón Sigurgeirsson (frá Hellu-
vaði). Voru þeir báðir endur-
kjörnir. Aðrir í stjórn eru Kári
Sigurjónsson, Karl Hjaltason og
Karl Magnússon. Endurskoðend-
ur, Bjarni Halldórsson og Þengill
Þórðarson, báðust eindregiö und-
an endurkosningu, og voru í
þeirra stað kjörnir Halldór
Helgason
og Sigurður Ringsted.
Ferðanefnd skipa: Björg Ólafs-
dóttir, Halldór Ólafsson, Ingi-
björg Björnsdóttir, Jón Samúels-
son og Jón Sigurgeirsson (frá
Helluvaði).
IIunvetning:ar sigursælir
Húnvetningar sigursælir á skák
Skákþingi NorÖlendinga lauk í
vikunni, og urðu úrslit þau í
meistaraflokki, að Jónas Hall-
dórsson frá Leysingjastöðum í
Húnavatnssýslu sigraði með yfir-
MÍR
MIR
í Ásgarði sunnudaginn 28. janúar,
kl. 4 e. h.
Sýnd verður myndin:
SÖNGUR HJARTANS
Stórmynd í litum, mikill söngur
og hljómlist. — Enskur skýringa-
texti.
Aðgangur kr. 10.00.
Allir velkomnir.
AKUREYRARDEILD MÍR
Slökkviliðsstjóri
Sveinn Tómasson hefur form-
lega verið ráðinn slökkviliðsstjóri
hjá Akureyrarbæ frá 1. þ. m., en
undanfarið 1)4 ár hefur hann
gegnt störfum slökkviliösstjóra,
þótt hann hafi aðeins boriö nafn-
bótina varaslökkviliðsstjóri.
Samkvæmt skýrslu Slökkviliðs
Akureyrar fyrir árið 1961 var
slökkviliðið kallað út 26 sinnum
á árinu. I 23 skipti var um elds-
voða að ræða, þar af allmikinn í
3 skipti.
SIGFÚSARSJÓÐUR
Minningarspjöld sjóðsins jást á ajgr.
V erkamannsins.
Bonn við hnndahaldi
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðissamþykktar og lögreglusam-
þykktar Akureyrarkaupstaðar er hundahald bannað, að und-
anteknum þarfahundum í sambandi við kvikfjárrækt.
Þar sem einhver brögð eru að því að hundar séu hafðir í
bænum þrátt fyrir þetta bann, er hérmeð skoraö á alla þá,
er slíka hunda hafa, að lóga þeim nú þegar eða flytja brott
úr bænum. Mun lögreglan næstu daga lóga þeim hundum,
sem eigendur vanrækja að fjarlægja.
Heilbrigðisnefnd.
burðum. Hann hlaut 10 vinninga
af 11 mögulegum. Jónas er því
skákmeistari Norðurlands 1962
og er vel að þeirri nafnbót kom-
inn.
Að öðru leyti urðu úrslitin í
meistaraflokki þessi: Þónas Þor-
valdsson (Reykvíkingur, sem var
gestur mótsins) hlaut 7)4 vinn-
ing, Júlíus Bogason 7, Margeir
Steingrímsson og Halldór Jóns-
son 6)4 hvor, Haraldur Ólafsson
5, Hjörleifur Halldórsson, Jón
Igimarsson og Kristinn Jónsson
4)4 hver, Guðmundur Eiðsson og
Ólafur Kristjánsson 3 hvor.
I I. flokki varð Húnvetningur
einnig sigurvegari, Hafliði Ein-
arsson frá Móbergi í Langadal.
Hann hlaut 5)4 vinning, en kepp-
endur í þessum flokki voru 8.
í II. flokki urðu efstir og jafnir
Jón ESvarð Jónsson og Halldór
Gunnarsson með 5)4 vinning
hvor. Keppendur í þessum flokki
voru einnig 8.
Mótinu lauk með hraðskák-
keppni á miðvikudagskvöldið.
Þar varð Jónas Halldórsson einn-
ig sigurvegari, hlaut 20 vinninga
af 22 mögulegum. Næstur varð
Halldór Jónsson með 18)4 vinn-
ing og þriðji Jón Ingimarsson
með 17.
Skákstjórar á mótinu voru
Haraldur Bogason og Albert Sig-
urðsson.
ENGIN AUKAAÐILD
(Framhald af 1. síða.)
þeir þó að berjast tyrir fullri að-
ild, þrótt fyrir öll þau skilyrði,
sem sett eru? Eru þeir ókveðnir
að sclja sjólfstæði Islands, eða
ætla þeir að vinna að því, að hér
búi éfram sjálfstæð þjóð í sjálf-
stæðu landi?
Verkamaöurinn
Menntaskólaleikurinn 1962:
Lífsgleði njóttu
Leikfélag MA hefur æft af kappi
undanfarið og frumsýnir mennta-
skólaleikinn í ár næstkomandi
sunnudag, 28. þessa mánaðar.
Leikur sá, sem sýndur verður
að þessu sinni, ber nafnið Lífs-
gleði njóttu, og er franskur að
uppruna. Höfundur Alan Melville,
en nemandi í 6. bekk MA, Jóna
E. Burgess, þýddi leikinn í sumar.
Þetta er ósvikinn gamanleikur og
fjallar eins og fleiri slíkir, sem
frá Frökkum koma, um ýmiss
konar vandamál heimilislífs og
hjónabanda.
Leikstjórn annast Jónas Jónas-
son, fyrrum útvarpsþulur, og er
þetta þriðji leikurinn, sem hann
setur á svið fyrir Leikfélag MA.
Æfingar hafa að þessu sinni tek-
ið óvenj ustuttan tíma, Jónas kom
Fishirffht
Komið hefur til tals, að hafin
verði fiskirækt í landi Krossanes-
verksmiðjunnar. Mál þetta er þó
ennþá á algeru undirbúnings eða
öllu heldur rannsóknarstigi, en
stjórn verksmiðjunnar hefur sam-
þykkt, að láta kanna til fullnustu,
hvort aÖstæður þarna henta til
slíks atvinnureksturs, og ef svo
er, að dómi sérfróðra manna, að
láta gera áætlanir um slíkan
rekstur.
Alkunna er, að víða erlendis
er fiskirækt nú hafin í stórum
stíl og þykir einhver öruggasti
atvinnuvegur, sem um er að ræða.
Hér á Jandi hefur verið byrjaö á
þessu í smáum stíl, en talsvert á
dagskrá bæði hjá einstaklingum
og opinberum aöilum að stórauka
þá starfsemi á næstunni. Aðstæð-
ur ættu ekki að vera lakari hér
en í öðrum löndum, þar sem at-
vinna þessi er stunduö, og mikils
virði, ef hægt er að auka fjöl-
breytni íslenzks atvinnulífs. Á-
nægjulegt væri, ef Islendingar,
mesta fiskveiðiþjóð í heimi, gæti
einnig orðið „stór“ á sviði fiski-
ræktar.
Það mun vera Jón Árnason
verksmiðjustjóri í Krossanesi,
sem átti hugmyndina að því, að
athugað yrði um mþguleika fyrir
fiskirækt í Krossanesi. Vonandi
verður ekkert því til fyrirstöðu,
að sú hugmynd komist í fram-
kvæmd.
norður 11. janúar. En nemendur
menntaskólans hafa sýnt það fyrr,
að þeir geta gert vel og lært hlut-
verk sín, þótt æfingatíminn sé
skammur og þetta sé aukaálag,
sem þau taka á sig jafnhliða nám-
inu.
Hlutverk í leiknum eru 12 tals-
ins. Aðalhlutverkið, franska
skáldkonu, leikur þýðandinn,
Jóna E. Burgess, en með önnur
hlutverk fara: Hreinn Pálsson,
Sigurjón H. Olafsson, Baldur
Árnason, Einar Hafliðason, Sig-
urður Brynjólfsson, Ragnheiður
Heiðreksdóttir, Arnar Einarsson,
Margrét Erlendsdóttir, Jóhanna
Jónsdóttir, Guðni Stefánsson og
Elinborg Björnsdóttir.
Það munu nú liðin hartnær 20
ár, síðan menntaskólanemar hér
tóku að æfa og sýna sjónleiki, og
hafa þeir flesta vetur síðan sýnt
einn leik, oftast við mjög góðar
undirtektir leikhúsgesta, enda
leikur þeirra oft boriö af um lif-
andi fjör og leikgleði. Þótt ekki sé
sanngjarnt að bera þessar sýning-
ar saman við sýningar æfðra leik-
ara, er vafamál, að þeir æfðu
græddu alltaf á þeim samanburði.
Þetta er góð venja hjá skólanem-
endum og skemmtileg tilbreytni
fyrir bæjarbúa.
í stjórn Leikfélags MA eiga í
vetur sæti þessir nemendur:
Hreinn Pálsson formaður, Krist-
inn Jóhannesson, Margrét Er-
lendsdóttir, Arnar Jónsson og
Björn Björnsson; og að auki
Árni Kristjánsson kennari.
Sýningar á menntaskólaleikn-
um hefjast kl. 8.30 á kvöldin. Þar
sem Samkomuhúsið er mjög upp-
tekið vegna annarrar notkunar
verður leikurinn aðeins sýndur
um mjög takmarkaðan tíma.
Brotajsirn
Fyrirtækið Sindri hf. í Reykja-
vík hefur sótt um lóð á Oddeyri,
ca. 2500 fermetra að stærð, fyrir
j árnvörulager og brotajárnsmót-
töku.
Hafnarnefnd og bæjarstjórn
hafa samþykkt, að fyrirtæki þessu
verði leigð lóð af umbeðinni
stærð, með bráðabirgðakjörum,
á svæðinu austan Hjalteyrargötu
í nánd við Nótastöðina. Leigan er
háð því skilyrði, að lóöin verði
notuð í framangreindu skyni, og
lóðarleiga ákveðin fyrst um sinn
kr. 2.50 á fermetra.