Eimreiðin - 01.01.1907, Qupperneq 6
Kína-lífs-elixír.
Heilbrigði er bezta hnossið?
Fyrirsögn lína þessara er alkunn. Hver er sá, sem þekkir ekki
þennan óviðjafnanlega bitter? Heilan mannsaldur hefir elixírinn verið
óbætanlegt heimilismeðal, sem mörg heimili hafa leitað til. Frá fyrsta
degi tilveru sinnar ávann hann sér þann orðstír að vera bezta lyfið, sem
til er, til að styrkja og laga meltinguna og vekja matarlystina. Þessu
áliti hefir elixírinn ávalt haldið og gagnleg áhrif hans á heilbrigðina hafa
alstaðar vakið mætur á honum.
Læknislist vor stendur nú í fylsta blóma. fað er því fróðlegt að
taka eftir því, að ýmist þessi eða hinn frægur læknir leitar til þessa
eða hins heimilislyfs. Orsökin til þess er sú, að þekking læknisins hefir
mörgum sinnum ekki gert nokkurt gagn, en á hinn bóginn hefir þá
heimilislyfið, sem svo er nefnt, veitt fróun og bata. Læknirinn er of
greindur til þess að fara í kringum staðreyndina og virða hana að
vettugi, heldur fléttar hann hana inn í lækningar (praksis) sínar. Það
er sönnun þess, að gömul og góð ráð, gefin af vitsmunum og hygg-
indum, skuli eigi fyrirlitin.
Vísindamenn og leikmenn hafa látið upp skoðun sína um Kína-
lífs-elixír. Dr. med. I. C. Luciani skrifar 3/a 1905 frá Caracas
(Venezuela): Eg hefi notað Kína-lífs-elixír við sjúklinga mína og í
ýmsu tilliti orðið var við læknandi áhrif hans. Með því að ég þekki
samsetning hans, get ég lýst yfir því, að jurtaefnin í honum eru for-
takslaust gagnleg fyrir heilsuna.
Stórkaupm. C. P. Perrin í París skrifar 12/s 1906: Eg hefi sam-
kvæmt ráðlegging notað Kína-lífs-elixír gegn uppsölu og verkjum millum
brjósts og maga og hefi á þann hátt losast við þennan kvilla.
Emil Westergaard í Lemvig skrifar 6/ia 1906: Mér er ánægja
í að skýra yður frá, að ég, sem frá því ég var á 15. árinu hefi þjáðst
af uppsölum og árangurslaust leitað læknishjálpar, hefi nú fengið fullan
bata með því að brúka Kína-lífs-elixír.
Halldór Jónsson í Hlíðarhúsum í Reykjavík skrifar 20/8 1906:
Eg hefi í mörg ár þjáðst af magaveiki og lystarleysi og reynt margs
konar meðul við því, en ekkert dugað. Síðan ég fékk að vita um
Kína-lífs-elixírinn, brúka^ ég hann stöðugt og hann reynist ágætismeðal
við sjúkdómi mínum. Ég get þvf mælt með honum við alla, sem þjást
af þessum sjúkdómum.
Frá Lambakoti við Eyrarbakka skrifar Jó.hanna Sveinsdóttir
17/s — 1905:
I 14 ár hefi ég verið þungt haldin af nýrnatæringu og kvillum
þeim, sem henni fylgja. Ég hefi oft legið rúmföst. En þegar ég hefi
verið á fótum, hefi ég neytt Kína-lífs-elixír, sem mér hefir fundist styrkja
mig. Og síðustu árin hefi ég getað bugað sjúknaðinn með því að
neyta bitters þessa reglulega, svo það er von mín, að ég mun fá fullan
bata, er stundir líða,
K í n a -1 í f s - e I i x í r.
er því að eins ekta, að á einkunnarmiðanum standi vörumerkið:
Kínverji með glas í hendi og neðanundir honum nafn verksmiðju-
eigandans: Waldemar Petersen, Frederikshavn — Koben-
havn, og sömleiðis innsiglið 'hp- í grænu lakki á flöskustútnum.
Varið yður á eftirlíkingum.