Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1914, Blaðsíða 1

Eimreiðin - 01.01.1914, Blaðsíða 1
Eimreiðin EIMREIÐIN kemur út í 3 5-arka heftum á ári. Árgangurinn fi5 arkir) kostar 3 kr. (í Ameríku # 1,20). Ur ritdómum um Eimreiðina: »Að öllu samtöldu mun »Eimreiðin« hafa fullnægt köllun sinni bezt af þeim tímaritum, sem íslenzkri alþýðu hafa boðist til þessa. Hún hefir nú í ellefu ár flutt margt fróðlegt og skemtilegt, sumt af því prýðisvel ritað. Frágangurinn allur hefir jafnan verið vandaður, og myndir hennar hafa flestar verið til prýðis (nema ómynd sú af eimreið, er til skamms tíma var prentuð framan á kápuna). Auðvitað hefir efni og ritháttur verið misjafn að gæðum, en varla mun neitt, er hún hefir flutt, hafa verið svo lélegt, að ekki hafi mátt heita fullboðlegt; og ruslaskrína hefir hún aldrei verið. Hún hefir vissulega haft góð áhrif á íslenzka alþýðu yfir höfuð.« (»VÍNLAND« V, 1.) »Eimreiðin er rit, sem ætti að hafa meiri útbreiðslu meðal Vestur-íslendinga, en enn hefir orðið. Að eins valdir höfundar rita í þetta tímarit, og allir rita þeir vel og um fróðleg efni yfirleitt. Sjálfur er Dr. Valtýr, útgefandinn, svo vel þektur af Vestur-íslendingum, að ekki er þörf að tjölyrða um rithæfilegleika hans. Peir eru í fullu samræmi við lærdóm hans og gáfur Og svo velur hann sér rithjálp, að ekki kennir neinnar hlutdrægni gegn nokkrum manni, málefni eða hugsjón; og er það stór kostur, sem allir frjálshugsandi menn munu kunna að meta að verðleikum. Islenzka málið er þar ritað svo sem bezt verður, af þeim, sem bezt kunna móður- málið. Pað út af fyrir sig er gild ástæða fyrir Vestur-íslendinga að kaupa rit þetta og lesa það. Það er hver maður fróðari fyrir lestur ritsins, og sá fróðieikur ætti að skoðast meira virði en nemur verði ritsins.« (»HEIMSKRINGLA« XX, 39.) ^Priðja og síðasta heftið af seytjánda árgangi Eimreiðarinnar er nýkomið hingað vestur, og er fróðlegt sem að vanda. Fyrst er í þessu hefti ritgerð um Jón Sigurðsson, eftir ritstjórann; ýtarlega og prýðisvel rituð, með Ijósum skilningi á Jóni og starfsemi hans. Að voru áliti bezta greinin af hinum mörgu, sem um Jón Sigurðsson hafa verið ritaðar í tilefni af aldarafmælinu. Og ber þess þó sízt að neita, að sumar hinna hafa verið prýðis- góðar og fróðlegar .... Eimreiðin er nú seytján ára gömul. Margt hefir hún flutt fróðlegt, skemtilegt og nytsamt á þeim árum; málið ávalt fallegt, og frágangurinn góður. Dr. Valtýr Guðmundsson hefir allan þennan tíma verið ritstjóri hennar, og leyst það starf prýðisvel af hendi; og fjölhæfari mann, þegar á alt er litið, mun íslenzka þjóðin vart eiga nú á lífi. Eimreiðin er hið bezta, fjölbreyttasta og víðlesnasta tímaritið á vora tungu, og ætti hún, ef vel væri, að komast inn á hvert það heimili, sem íslenzk tunga er töluð.« (»HEIMSKRÍNGLA« XXV, 49.) »Eimreiðin er skemtileg að vanda og kærkominn gestur hér vestra öllum, sem fróðleik unna og fallegú ritmáli.« (»LÖGBERG« XIX, 31.) »Hringsjáin íslenzka í hverju hefti, eftir ritstj. (mest) og ýmsa aðra, er altaf mikils virði, hér um bil eina heilleg vísbending sem vér fáum um annarra þjóða rit um ísland og íslenzkar bókmentir. Ritsjá, um íslenzkar bækur, er og í hverju hefti.« (»ÍSAFOLD« XXXIII, 44.) „Frámsta platsen bland de nutida islándska tidskrifterna intages af „Eim- reiðina/‘ (»NORDISK FAMILJEBOK«‘ 970, stærsta alfræðibók Svía.) Eimreiðin gefur há sölulaun, þeim sem selja 4 eintök eða fleiri. — Pantanir sendist til skrifstofu hennar: AMAGERBROGADE 151, Kobenhavn S. Telef. Amag’er 307 x.

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.